NT - 23.11.1985, Blaðsíða 5

NT - 23.11.1985, Blaðsíða 5
■ Framkvæmdanefnd vegna bygginga í þágu aldraðra ásamt verkfræðingum og hönnuðum fyrir framan hið nýja vistheimili Seljahlíð við Hjallasel í Reykjavík. NT-mynd: Sverrir. Seljahlíð, nýtt þjónustuheimili fyrir aldraða ■ Pláss verður fyrir 80 einstaklinga í 60 einstaklingsíbúðum og 10 hjóna- íbúðum í hinu nýja vistheimili sem Reykjavíkurborg er að reisa um þess- ar mundir við Hjallasel í Reykjavík og heitir Vistheimilið Seljahlíð. Petta eru þjónustuíbúðirþ.e. íbúar geta fengið læknisþjónustu, lyf, mál- tíðir, endurhæfingu, þrif og félags- starf í húsinu. Hverri íbúð fylgir eldhúsinnrétting með kæliskáp, vaski og eldavél og baðherbergi eru útbúin þannig að hægt verður að koma hjólastólum þar inn. Að auki verður rúm en íbúar koma að öðru leyti með sínar eigur í íbúðina. Gert er ráð fyrir að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar í mars á næsta ári og áætlað er að hús og lóð í kring verði fullfrágengin í júní n.k., en lóð Seljahlíðar nýtist jafnframt fyrir 18 íbúðir í parhúsum sem boðnar verða til sölu fyrir aldraða og geta íbúar þeirra notið allrar þeirrar þjónustu sem í boði er í Seljahlíð. A lóðinni verða upphitaðir göngustígar og gróðurreitir til útivistar. Vistheimilið Seljahlið er byggt fyrir tilstuðlan framkvæmdanefndar vegna bygginga stofnana í þágu aldraðra og borgarráðs Reykjavikur. Ognaði fólki með plast-vélbyssu ■ Maður vopnaður plast hríðskota- byssu var með háreysti á billjardstof- unni áKlapparstígsíðastliðið miðviku- dagskvöld. Hann ógnaði mönnum með vopninu. Lögregla var kvödd á staðinn en þegar þangað var komið var maðurinn farinn og lagði hann leið sína næst á veitingastaðinn Café Gestur. Lögreglan kom þar að honum, og sáu lögreglumennirnir fljótlega að um plastvopn var að ræða. Fékk maðurinn alvarlegt orð í eyra. Meðal annars sagði einn lögreglumaðurinn við hann. „Ef þú gerðir þetta í útlöndum fengir þú kúlu á milli augnanna.“ Plastbyssumaðurinn var skrautleg- ur ásýndum. Viðmælandi NT hjá lögreglunni lýsti honum á þessa leið. „Hann var í leðurdruslum, rakaður öðru megin á höfðinu alveg upp að hvirfli, en litaður hinum megin. Mað- urinn var hæfilega kenndur og ekki æstur.“ Maðurinn fékk að sofa úr sér vímuna í fangageymslum lögreglunn- ar. Málverkasýníngu SÓLVEIGAR EGGERZ PÉTURSDÓTTUR að Austurströnd 6 Seltjamamcsí, lýkur annað kvöld, Sunnudagínn 24. Nóvember. Frá Fjölbrauta- skólanum við Ármúla Innritun fer fram á skrifstofu skólans alla virka daga frá kl. 9-15. Skólameistari Laugardagur 23. nóvember 1985 5 föstudag laugardag Gamansýning órþúsundsins (1000-2000 e.Kr.) Laddi rifjar upp 17 viðburðarík ár í skemmtana- heiminum og bregður sér í gervi ýmissa góðkunningja! Um sfðustu helgl stóðst Dolll (Slgurður Sigurjónsson) ekki mátið og heimsóttl Dodda vin slnn (Ladda) ó svlðlð á Sögu. Það voru tagnaðarfundir. Hver mœtir um þessa helgil! Leikstjóri: Egill Eðvarðsson útsetning tóniistar: Gunnar Þórðarson Dansahötundur: Sóley Jóhannsdóttir Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur undir - og fyrir dansi á eftir. Matseðill: Salatdiskur með ívafi Lamba- og grísasneiðar með ribsberjum Hunangsís með súkkulaðisósu Kynnir og stjórnandi: Haraldur Sigurðsson (Halll) Húsið opnað kl. 19.00 Borðapantanir í síma 20221 eftirkl. 16. GILDIHF HANSKAR OG TÖSKUR í ÚRVALI Teg. 6951 Kr. 2.300.- Litir: Grátt, svart. Hanskar r Skinn Frákr. 1.195.- Litur: Svart, brúnt, beige. Litir: Grátt, svart. PÓSTSENDUM Teg. 6985 Kr. 2.300.- Hanskar Rúskinn Kr. 796.- Litur: Svartur, brúnt, bJái VERSLUNIN JÓJÓ AUSTURSTRÆTI8 sími 13707.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.