NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 12.12.1985, Qupperneq 4

NT - 12.12.1985, Qupperneq 4
Eyfirskir bændur: Óánægðir með mjólkurkvóta Tillögur Framleiðsluráðs ekki verjandi, segir bóndi í Eyjafirði ■ „Bændur hcr um slóöir eru mjög óánægðir meö tillögur Fram- leiðsluráðs varðandi skiptingu mjólkurframleiðslu ntilli héraða," segir Oddur Gunnarsson bóndi á Dagverðareyri í Eyjafirði. „Ég tel ekki verjandi að ráðið láti frá sér fara svona tillögur og vona að þær nái ekki fram að ganga. Það væri mun skynsamlegra að miða héraðabúmarkið meira við fram- leiðsluna eins og hún er í dag til að stór röskun yrði ekki milli einstakra héraða. Hvað leyfilega framleiðslu einstakra búa snertir væri á hinn bóginn rétt að ntiða við búmark hvers og eins. Ef skiptingin yrði miðuð við hvað hver einstakur bóndi hefur framleitt á undanförn- um árum þá yrði skoriö niður við þá bændur, sent þcgar hafa dregið úr framleiðslu sinni og þeir fengju þannig á sig skerðingu tvisvar sinnunt." Landbúnaðarráðherra voru sendar tillögur Framleiðsluráðs í lok nóvember og miðast þær eins og kunnugt er við að skipta því framleiðslumagni, sem bænda- samtök og stjörnvöld sömdu um í ágúst síðastliðnum. Tillögurnar gcra ráð fyrir því aö ákveðinn kvóti verði rciknaöur út fyrir hvert hérað en þau verði alls 30 í landinu. í hverju héraði fái síðan livert bú á- kveðinn kvóta til kindakjöts- og mjolkurframleiðslu Oddur bendir á að ef tillögur Fiamleiðsluráðs verði samþykktar muni samdráttur í mjólkurfram- leiðslu hvergi verða jafn mikill og hjá bændum í Eyjafirði og á svæð- inu íkringum Húsavík. Samkvæmt tillögunum má reikna með að sam- drátturinn í ntjólkurframleiðslu í Eyjafirði verði um 5% umfram landsmeðaltal. Á hinn bóginn bendir Oddur Gunnarsson á að hann telji lögin frá því í júlí í sumar til bóta fyrir bændur en nteð þeim var kontið á fullum greiðslum til kúabúa eigi síðaren 10. næsta mánaðareftirað mjólkin erlögð inn til mjólkurbúa. Reyndarmun nokkurraróánægju gæta nteðal kúabænda í Eyjafirði að fá ekki greitt á þessu ári nema framleiðslu ellefu ntánaða þar sem greiðslur fyrir desem- bermánuð komi ekki fyrr en 10. janúar á næsta árí. „Mánuðirnir eru nú tólf á okkar almanaki og sá háttur hefur verið í áratugi að árið hafi verið gert upp 31. desember," sagði Oddur að lokum. Jólamarkaður ■ Opnaður hefur verið jólamarkaður á Hverfisgötu 105. Þar eru á boðstólum hvers kyns jólavörur, s.s. gervijólatré, skraut, kerti og Ijósaseríur. Þá er einnig til sölu í jólabúð- inni alls konar gjafavörur, hljómplötur og fatnaður. Hreinósannindi Athugasemd frá Matthíasi Á. Mathiesen ■ í Þjóðviljanum laugardaginn 7. desember svo og í leiðara blaðsins í gær, 10. þ.m. og í grein merktri Sdór er ég borinn þeint sökum að hafa farið vísvitandi með rangt mál í umræðum á Al- þingi 18. júní sl. er ég svaraði fyrirspurn Guðmundar Einars- sonar, alþingismanns. Auk þess er gefið í skyn að ég hafi lcynt skýrslu frá Seðlabankanum til viðskiptaráðuneytisins um mál- efni Hafskips hf., dags. 3. júní sl. Um leið og ég mótmæli slíkum málflutningi þar sem fariö er nteð hrein ósannindi, vísvitandi eða af vanþekkingu, vil ég koma á fram- færi því sem rétt er: 1. Á Alþingi 18. júní svaraði ég Guömundi Einarssyni alþm. og vísaði þá til yfirlýsingar banka- stjóra Útvegsbankans sem birzt hafði á Mbl. 16. júní en þarsegir: „Bankastjórn Útvegsbanka íslands vill taka fram að fullyrð- ingar, sent fram konta í blaði yðar hinn 12. þ.m. í grein Hall- dórs Halldórssonar ritstjóra Helgarpóstsins unt tryggingar bankans vegna skuldbindinga Hafskips hf. eru úr lausu lofti gripnar. Tryggingar bankans eru í eignum fyrirtækisins og hluthafa." Ég lagði ekkert mat á yfirlýs- ingu bankastjóranna, en sagöi: „Hv. þm. vék að reikningum þessa ákveðna fyrirtækis, og las út úr þeim reikningum ákveðna niðurstöðu sem ég skal ekki dæma um. En þar verðum við að gera greinarmun á útkomu fyrir- tækisins annars vegar og svo þeim tryggingum sem bankinn hefur hinsvegar. Nú hafa banka- stjórar þessa banka opinberlega gert grcin fyrir því að bankinn hafi tryggingu fyrir þeim lánum, sem hann hefur veitt, í eignum fyrirtækisins og eignum hluthaf- anna, þannig að reikningar fyrirtækisins þurfa ekki að sýna og sýna ekki, skv. þessu, þær tryggingar sem bankinn hefur fyrir þeim skuldum sem fyrir- tækið er í. Varðandi fsp. sem er fram- hald af fsp. frá því fyrr í vetur, þá hafa, að ég best veit, þeir aðilar sem fara með eftirlit undir þess- unt kringumstæðum, ekki talið ástæðu til að gera sérstaka at- hugun á því tilviki sem hér er að vikið." Það er því með öllu ásatt, að ég hafi sagt, eins og segir í leiðara Þjóðviljans í gær, „að full veð væru fyrir hendi hjá Hafskip fyrir skuldum þess hjá Útvegsbankanum. 2. í grein merktri Sdór í Þjóðvilj- anum 10. des. sl. er eftirfarandi ritað urn svar mitt 18. júní sl. svo og þaö sem viðskiptaráðherra MBj sagði á Alþingi 14. nóvem- bersl.: „Matthías Bjarnason sagði í umræðum um Hafskipsmálið 14. nóvember sl., að þann 3. júní hefði legið fyrir að Hafskip hf. átti ekki veð fyrir skuldum. Orðréttt sagði Matthías Bjarna- son: í júnímánuði á þessu ári fékk Seðlabankinn skv. beiðni upp- lýsingar um stöðu Hafskips gagnvart Útvegsbankanum sem dagsett er 3. júní en þar kom fram að nokkuð vantaði til þess að tryggingar bankans nægðu fyrir heildarskuldbindingum Hafskips gagnvart bankanum að meðtöldum víxlum vegna ann- arra ábyrgða." Þegar Matthías Á. Mathiesen bankamálaráðherra þáverandi sagði 18. júní á þingi, að full veð væru fyrir skuldum Hafskips vitnaði hann í opinbera yfirlýs- ingu bankastjóra Útvegsbank- ans. Spurning vaknar hvort Matthías sagði vísvitandi ósatt, eða fylgdist hann ekki betur með en það að hálfuni mánuði eftir að bankaeftirlitið sendir honum og Seðlabankanum skýrslu um málið, hafi hann ekki lesið skýrsluna." Það er rangt, að viðskiptaráðu- neytinu hafi borist skýrsla um stöðu Hafskips gagnvart Útvegs- bankanum 3. júní sl., enda kem- ur það ekki fram hjá núverandi viðskiptaráðherra, heldur er skáldskapur greinarhöfundar Sdór. Viðskiptaráðuneytinu barst fyrst skýrsla frá bankaeftir- litinu dags. 30. júlí og hafði engin skýrsla þar til borist frá bankaeft- irlitinu frá því að ég tók við embætti viðskiptaráðherra. Á Alþingi í dag kont fram í ræðu viðskiptaráðherra MBj að Seðlabankinn fékk síðari hluta júnímánaðar yfirlit frá Útvegs- bankanum um yfirlit skulda- og tryggingastöðu Hafskips við Út- vegsbankann. Sú greinargerð barst ekki viðskiptaráðuneytinu á meðan ég gegndi störfum við- skiptaráðherra. Fullyrðingar Sdór þess efnis, að ég hafi vísvitandi sagt ósatt eða ekki fylgst betur með, eru því uppspuni frá rótum. Matthías Á. Mathiesen. Fimmtudagur 12. desember 1985 4 ■ Arthúr Bogason flutti setningarræðu á aðalstofnfundinum en 36 fulltrú- ar smábátaeigenda frá öllum landshornum sátu hann. NT-mynd: Árni Bjarna. Smábátaeigendur: Landssambandið formlega stofnað ■ „Mín trú er sú að héðan hverf- um við sameinaðir og öflugri en áður, til baráttu fyrir rétti okkar og til að mótmæla þeim þungu högg- um sem stjórnvöld hafa veitt okkur undanfarið," sagði Arthúr Boga- son formaður undirbúningsnefnd- ar Landssambands smábátaeig- enda í setningarræðu sinni á aðal- stofnfundi félagsins, fyrir helgi. Stofnfundinn sátu 36 fulltrúar smábátaeigenda hvaðanæva af landinu, en alls munu íslenskir smá bátaeigendur vera um 1500. „Níunda greinin verður í brenni- deplinum hér í dag,“ sagði Arthúr í samtali við NT, en í níundu grein frumvarps til laga um stjórn fisk- veiða 1986-87 er m.a. fjallað um árstíðabundið veiðibann báta und- ir 10 brl., en ákvarðanir stjórn- valda í þessunt málum hafa vakið mikla reiði smábátaeigenda undanfarið. „Það má segja að reiði okkar yfir þessu hróplega óréttlæti hafi ýtt mest undir stofnun Landssam- bandsins. Atburðirnir sem áttu sér stað í Vestmannaeyjum í mars sl. og eins þegar triilukarlar af Akra- nesi voru teknir fastir við veiðar, fylltu mælinn. Það liggur því beint við að hefja baráttuna gegn smá- bátabanninu á þessum fyrsta stofn- fundi og semja harðorða ályktun um þetta mál," sagði Arthúr að lokunt. Félag kvikmyndagerðarmanna: Fé Kvikmynda- sjóðs verði ekki skert ■ Félag kvikntyndagerðarmanna hefur sent frá sér mótmæli gegn fyrirhuguðum niðurskurði á lög- bundinni fjárveitingu til Kvik- myndasjóðs. í ályktun sem félagið samþykkti nýlega á stjórnarfundi segir að samkvæmt lögum um Kvikmynda- sjóð skal fjárveiting til hans nema söluskatti af aðgangseyri kvik- myndahúsa. Fyrirhugaður niður- skurður skerði tekjur sjóðsins um helming. íslensk kvikmyndagerð hafi hlotið góðar undirtektir hjá landsmönnum og viðurkenningu erlendis og þessi góði árangur hafi náðst þrátt fyrir geysierfiðar fjár- hagsaðstæður. Kvikmyndasjóður hafi verið mikilvægur í uppbyggingu ís- lenskrar kvikntyndagerðar, enda þótt framlög til hans hafi verið í lágmarki. Félag kvikmyndagerð- armanna mótmælir því endurtekn- um tilraunum fjárveitingavaldsins til að seilast í tekjur af kvikmynda- sýningum sem lögum samkvæmt eiga að renna óskertar í Kvik- myndasjóð. ■ Úr söngva- og gleöimyndinni Meö allt á hreinu sem Stuðmenn og Ág- úst Guðmundsson gerðu hér um árið. Kvikmyndagerðarmenn hafa nú mótmælt fyrirhuguðum niðurskurði á lögbundnum fjárframlögum til kvik- myndasjóðs.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.