Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.2004, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.2004, Blaðsíða 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 4. september 2004 Kleifarvatn eftir Arnald Indriðason Kleifarvatn (Vaka-Helgafell) er ný glæpasaga eftir Arnald Indriðason þar sem Erlend- ur, Sigurður Óli og Elínborg, sem lesendur þekkja úr fyrri bókum höfundar, eru í aðal- hlutverki. Bókin kemur út 1. nóvember eins og bækur Arnaldar hafa gert und- anfarin ár. Samkvæmisleikir eftir Braga Ólafsson „Um leið og Friðbert sagði bless við síðustu afmæl- isgestina… tók hann eftir að við blómsturpottinn fyrir framan dyrnar var skópar sem hann kannaðist ekki við að hafa séð áður.“ Þannig hefst skáldsagan Samkvæm- isleikir (Bjartur) eftir Braga Ólafsson en í ljósi þeirrar al- mennu reglu að sögur, rétt eins og bíómyndir, eigi að enda vel má segja að frásögnin hefjist á þeim punkti þar sem hún ætti í raun að enda. Aðalpersónan, prentneminn Friðbert, hefur boðið vinum sínum og skyldmennum til veislu í tilefni af þrítugsafmæli sínu og undir morgun, þegar hann hefur kvatt síðustu gestina, kemur í ljós að enn er einn gestur í íbúðinni. Samkvæmisleikir glímir við siðferðileg álitamál og spyr þar á meðal hinnar sígildu spurningar: Hvað er glæpur og hvað ekki og hver er viðeig- andi refsing? Þetta er þriðja skáldsaga Braga Ólafssonar en hinar tvær, Hvíldardagar og Gæludýrin, voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Bítlaávarpið eftir Einar Má Guðmundsson „Vofa gengur laus um götur heimsins, vofa Bítlanna.“ Á þessum orðum hefst ný skáldsaga Einars Más Guð- mundssonar, Bítlaávarpið (Mál og menning), sem lýsir því þegar rokkið heldur inn- reið sína í veruleik íslenskra skólabarna á sjöunda ára- tugnum – og byltir lífi þeirra. Í þessari bók beitir Einar Már frásagnaraðferð sem er eins konar blanda af Riddurum hring- stigans og Englum alheimsins. Hugsjónadruslan – Ideological Slut eftir Eirík Örn Norðdahl Er hægt að skrifa ástarsögur eftir 11. septemb- er? Já, en ekki án þess að minnast á 11. sept- ember. Þrándur er á leið til Kaupmannahafnar að hitta stelpu sem hann kynntist á Netinu og er pólíamorískur Texasbúi með master í mann- fræði. Í Hugsjónadruslunni (Mál og menning) eftir Eirík Örn Norðdahl er hugmynda-, hug- sjóna- og gleðisúpa samtímans matreidd af krafti. Lömuðu kennslu- konurnar eftir Guðberg Bergsson Lömuðu kennslukonurnar (JPV-útgáfa) nefnist ný skáldsaga eftir Guðberg Bergsson en þetta er fyrsta skáldsaga hans í mörg ár. Guðbergur hefur á und- anförnum árum m.a. fengist við að endurskrifa eldri verk. Morgunblaðið/Þorkell Haustbækurnar koma Íslenskar skáldsögur verða mest áberandi í haustútgáfu ársins eins og undanfarin ár. Hér er sagt frá því helsta sem væntanlegt er frá bókaútgefendum á næstu vikum og mánuðum. Einnig eru birt brot úr fjórum bókum, Málsvörn og minningum eftir Matthías Johannessen, Bríet, Valdimar, Laufey og Héðinn eftir Matthías Viðar Sæmundsson, Fífli dagsins eftir Þorstein Guðmundsson og Samkvæmisleikjum eftir Braga Ólafsson. ÉG VAR aldrei neinn aðdáandi. Hann var hluti af lífi mínu, eins og annarra hér á landi en ég var ekki hluti af honum, þekkti hann ekki neitt, hafði aldrei hitt hann og ól með mér sömu efasemdir um að hann væri til og margir aðrir. Stundum hugsa ég um allt fólkið í kringum mig sem á eftir að skipta mig máli í framtíðinni: ljóshærð stelpa í strætó, með þykka neðri vör og svartan pinna í augabrún- inni verður kannski tengdadóttir mín eftir þrjátíu ár og gerir mér lífið leitt en verður kannski sú eina sem heimsækir mig á elliheim- ilið. Maðurinn sem selur mér grátt flísteppi á íbúðina keyrir yfir mig á jepplingi eftir tuttugu ár og drepur mig og kemur þar með í veg fyrir að ég hitti tengdadóttur mína, jæja, ég get þá afskrifað hana. En allar hugleiðingar af þessu tagi eru léttvægar, í besta falli afþreying og hugarleikfimi, borið saman við þá staðreynd að ég hitti Sigga Tex, ég þekki Sigga Tex, hann þekkir mig og fyrir utan að hann breytti lífi mínu þá hafði ég líka áhrif á hann. Hlæið þið bara og segið: Hann er að skrifa ævisögu Sigga Tex til þess að upphefja sjálfan sig, hann vill standa á öxlum mikilmennis, niðurlægja og eyðileggja, notfæra og traðka á. En þið lesið áfram og þið lesið áfram vegna þess að þessi bók er ekki um mig, hún er um Sigga Tex og það er ekki ein setning í þessari bók sem hann stendur ekki á bak við, ekki eitt orð sem ekki má rekja til hans, ég er verkfæri í hans höndum, ómerkilegur leigupenni, skíthæll. Úr Fífli dagsins Eftir Þorstein Guðmundsson Skáldsögur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.