Morgunblaðið - 25.07.2004, Síða 6

Morgunblaðið - 25.07.2004, Síða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ „VIÐ HEIMILDAÖFLUN vegna gerðar þessarar myndar hafa Borgfirðingar sagt mér margar sögur um baróninn á Hvítárvöllum. Kannski er slíkt eðlilegt þegar litið er til þess hvað baróninn hefur skipað stóran sess í munnlegri geymd meðal fólks í héraðinu. Áhrif hans virðast hafa verið mikil,“ segir Dúi Landmark kvikmyndagerðarmaður. Dúi vinnur um þessar mundir að gerð heim- ildarmyndar um Gauldrée Boilleau, franska baróninn sem skömmu fyrir síðustu aldamót keypti jörðina Hvítárvelli í Borgarfirði og fleiri jarðir þar um slóðir, þar sem hann setti svo upp stórbú á þeirra tíma vísu. Jafnframt reisti hann fjós í Reykjavík, það er við Bar- ónsstíg þar sem í dag er verslunarhús 10–11. Stígurinn er einmitt eftir baróninum nefndur. Mikil heimildavinna „Ég hafði eins og margir heyrt ávæning af sögu þessa manns. Þótti hún merkileg og þess verð að gerð yrði heimildamynd,“ segir Dúi. Fyrir tæpum áratug setti hann sig í samband við Þórarin Eldjárn rithöfund. Hafði þá fregn- að að Þórarinn væri að rannsaka sögu baróns- ins. Í kjölfarið hófst samstarf þeirra við að rannsaka sögu hans. Þórarinn hafði þegar unnið mikla heimildavinnu sem greiddi leið- ina. „Ég hef reynt síðan að hjálpa til eftir föng- um, til dæmis með eftirgrennslan í Frakk- landi. Tókst meðal annars að finna fæðing- arvottorð barónsins, en þar til nýlega var aldur hans ekki nákvæmlega vitaður,“ segir Dúi. Vinna við gerð myndarinnar lagðist í dvala þegar ljóst var að styrkir til hennar fengjust ekki, en fór svo aftur af stað eftir að Dúi og Þórarinn hittust í Iðnó síðastliðinn vetur. „Þá sagði hann mér að hann væri að vinna í sögu- legri skáldsögu um baróninn og væri langt kominn. Þá fannst mér einboðið að fara af stað aftur, þótt engin styrkloforð væru fyrirliggj- andi,“ segir Dúi. Áætlað er að myndin verði sýnd í Sjónvarpinu síðla hausts, eða um svipað leyti og bók Þór- arins Eldjárns kemur út. Borð, stóll og höll í Frakklandi Í vikunni var Dúi við mynda- tökur í Borgarfirði. Kom hann þá meðal annars við á Hvít- árvöllum þar sem hann filmaði húsgögn, það er borð, rúm og stól, sem voru í eigu Boilleaus baróns – aukinheldur sem þar eru til á veggjum myndir sem Lechner, fylgdarmaður hans hér á landi, málaði. Þá var einn- ig aflað myndefnis við Langa- vatn og bæina Heggstaði og Fossatún á Andakíl sem og víðar í héraðinu. „Í sumar hef ég verið í tökum í Borgarfirði og rætt við heimamenn, sem hafa verið sér- staklega hjálplegir. Það er einnig til talsvert af munum í minjasafn- inu í Borgarnesi sem tengist sögu hans. Ég á síðan eftir að auglýsa eftir munum sem tengjast bar- óninum, og geri það hér með líka ef einhver hefur slíkt í fórum sín- um eða býr yfir vitneskju sem tengist sögu hans sem ekki hefur komið fram. En þræðirnir liggja víðar. Það var gaman að finna höll- ina rétt hjá Nîmes í Suður- Frakklandi hvaðan ættgöfgi bar- ónsins kemur og Boilleau- barónarnir ríktu mann fram af manni.“ Sáði fræjum í þjóðlífið Barónsins Gauldrées Boilleaus naut ekki lengi við hér á landi. Hann spennti bogann hátt og sást ekki fyrir. Fór svo að undan veldi hans vatnaði. Fjárhagsáhyggjur sóttu að og milli jóla og nýárs 1901 fannst hann látinn af eigin byssuskoti í járnbrautarvagni nálægt Lundúnum. Dúi Landmark er þó ekki í minnsta vafa um að baróninn Boilleau hafi haft mikil áhrif hér á landi. „Ég tel að baróninn hafi víða sáð fræjum í íslenskt þjóðlíf með háleitum hugmyndum sín- um. Að sumu leyti var hann hundrað árum of snemma á ferðinni, en sumar hugmyndir hans komu til framkvæmda örfáum árum eftir dauða hans svo sem togaraútgerðin. Hann byggði fyrsta steinsteypta húsið í Reykjavík, og laxveiðimenn borga háar fjárhæðir í dag fyrir veiði í þeim ám sem hann leigði og vildi selja veiðileyfi í. Hann lifði aldamót og eins er- um við nú: þjóðfélagsumræðan speglast með aldarmillibili. Einmitt þess vegna finnst mér saga Boilleaus, bæði í mynd og á bók, eiga mikið erindi við samtíð okkar,“ sagði Dúi Landmark. Barónssagan á mikið erindi við okkar samtíma Dúi Landmark kvikmynda- gerðarmaður vinnur að heimildamynd um Gauldrée Boilleau Hvítárvallabarón. Ljósm: Sigurður Bogi Sævarsson. Á Hvítárvöllum eru munir sem voru í eigu barónsins, svo sem þessi mynd sem Lechner fyld- armaður málaði. Þau Dúi Landmark og Þóra Stefánsdóttir húsfreyja halda á myndinni. Baróninn franski, Gauldrée Boilleau. HEIMILDASKÁLDSAGA Þórarins Eldjárns um baróninn á Hvítárvöllum kemur út í haust. Þórarinn kveðst lengi hafa haft áhuga á þessu viðfangsefni, eða allt frá því hann las ungur frásagnir Árna Óla og Tómasar Guð- mundssonar um baróninn. Fyrir mörgum árum hafi hann byrjað að draga að sér heimildir um efnið, þó fyrst fyrir alvöru þegar hann bjó í Englandi árið 1988. „Allt fram á þennan dag hafa gengið ýmsar þjóð- sögur um baróninn, þótt þær mættu auðvitað vera miklu fleiri. Flestar sem nú ganga eru sprottnar af rit- uðum getgátum sem fólk hefur tekið bók- staflega og skáldað í skörðin eftir atvikum. Sjálfur er ég hins vegar að skrifa heim- ildaskáldsögu þar sem hið ótrúlega er satt, en hið trúlega ósatt,“ segir Þórarinn. Í heimildaöflun hefur Þórarinn leitað fanga í skjalasöfnum og rituðu efni hér á landi, sem og í Frakklandi, Englandi, Banda- ríkjunum og Kanada. Netið segir hann hafa opnað nýjar víddir. „Það kom mér á óvart þegar ég fór að kanna þessa sögu hversu lítið er í raun vitað um Boilleau barón. Skáldið og lygarinn ég þurfti að ganga í grunnvinnu fræðimanna; flökun, snyrtingu og pökkun á hráefninu, áður en ég gat farið að huga að matreiðslu, það er bókinni sem kemur út í haust,“ segir Þórarinn Eldjárn. Lítið vitað um Boilleau í raun Þórarinn Eldjárn ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR vill koma eftirfarandi athugasemdum á fram- færi vegna ummæla Guðjóns Rún- arssonar, framkvæmdastjóra Sam- taka banka og verðbréfafyrirtækja: „Guðjón Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri SBV, reynir í Morg- unblaðinu 24. júlí að klóra sig út úr athugasemdum sem hann sendi Íbúðalánasjóði þann 14. júlí og Íbúðalánasjóður hefur sýnt fram á að hafi verið unnar „með afar ófag- legum og illa undirbúnum hætti“ svo notað sé orðalag Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. Guðjón heldur því fram að Íbúða- lánasjóður misskilji kjarnann í at- hugasemdum SBV. „SBV voru að benda á að mánaðamótin júní/júlí hafi verið erfiður tími þar sem al- menningur, sem átti húsbréf, var í sumarfríi í stórum stíl og varð þann- ig af möguleikanum á að nýta sér skiptikjörin.“ Í ljósi þessara um- mæla framkvæmdastjóra SBV er rétt að birta ásakanir hans í bréfi til ÍLS, en um þetta atriði segir orðrétt í bréfi SBV: „Fyrir það fyrsta var sá frestur sem markaðsaðilum var gef- inn til að undirbúa skiptin allt of skammur, auk þess sem skiptin voru dagsett á mjög óheppilegum tíma þegar hálfsársuppgjör markaðsaðila fara fram og á hásumarleyfistíma. Einnig mátti sjóðnum vera ljóst hve mikið var enn órafvætt af útgefnum flokkum, sem kallar á gríðarlega aukna vinnu við skiptin.“ Ekkert er minnst á almenning í þessari athugasemd, heldur vísað til markaðsaðila sem þurfa að vinna hálfsársupgjör. Allir fjárfestar, stór- ir og smáir, máttu vita að skiptin færu fram fyrir 1. júlí 2004. Sú vitn- eskja hefði átt að liggja fyrir frá 31. desember 2003 eins og Íbúðalána- sjóður hefur bent á. Þá má geta þess að einungis 6% húsbréfa í þeim flokkum sem boðnir voru til skipta höfðu ekki verið rafvædd fyrir skipt- in svo staðhæfing um að mikið hafi verið órafvætt er staðlaus með öllu eins og flest þau atriði sem SBV kvartaði um í bréfi.“ Íbúðalánasjóður segir fjárfesta hafa átt að vita að dagsetning skipta húsbréfa lá fyrir um áramót Ummæli fram- kvæmdastjóra SBV gagnrýnd SNORRAVERKEFNINU lauk með útskriftarathöfn á föstudag en fimmtán ungir Vestur-Íslendingar frá Kanada og Bandaríkjunum hafa dvalið hérlendis í fimm vikur. Verkefnið er samstarf Norræna félags- ins og Þjóðræknifélags Íslendinga og hefur þann til- gang að hvetja unga Vestur-Íslendinga til að varð- veita og rækta íslenskan menningar- og þjóðararf sinn. Þátttakendur skoðuðu helstu náttúruperlur Ís- lands, heimsóttu ættingja sína hérlendis og tóku þátt í þriggja vikna starfsþjálfun. Nú hafa samtals 75 manns tekið þátt í verkefninu hér á landi á sex árum. Í ágúst hefst svo verkefnið Snorri-plús en það er hugsað fyrir Vestur-Íslendinga sem eru þrjátíu ára og eldri. Unnið er að gerð heimildarmyndar um verkefnið en tökum lýkur á Íslendingadeginum í Gimli nú í sumar. Morgunblaðið/Jim Smart Vestur-Íslendingar í Snorra- verkefni halda til síns heima

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.