Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 12

Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 12
12 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Langar hvatningarræður ogótal blöðrur og bréfasnifsisem dreift er yfir þúsundirfagnandi gesta er þaðfyrsta sem mörgum dettur í hug þegar minnst er á flokksþing stjórnmálaflokkanna í Bandaríkjun- um. Nú orðið ríkir sjaldnast mikil spenna í kringum það hver verður út- nefndur forsetaframbjóðandi og það á við nú. Löngu er orðið ljóst að öld- ungadeildarþingmaðurinn John F. Kerry, sem sigraði í forkosningum demókrata fyrr á árinu, er sá sem mun bjóða sitjandi forseta, George W. Bush, birginn í haust. Öldungadeild- arþingmaðurinn John Edwards verð- ur útnefndur varaforseti. Þingið mun að miklu leyti snúast um að kynna persónu Kerrys. Ekki er vanþörf á, ef marka má nýlega skoð- anakönnun sem sagt er frá í breska tímaritinu The Economist, því þrátt fyrir að hafa fengið gríðarlega um- fjöllun í fjölmiðlum og hafa tekist að safna meira fé til kosningabaráttunn- ar en dæmi eru um hjá demókrötum telur helmingur Bandaríkjamanna sig ekki hafa hugmynd um hvernig manneskja Kerry er eða hvað hann stendur fyrir. „Kerry er núna dular- fulli maðurinn,“ segir Allan Licht- man, sagnfræðingur við Bandaríska háskólann í Washingtonborg. „Hann verður að koma fyrir sem virkilega spennandi frambjóðandi og sýna að hann sé í raun öðruvísi kost- ur, ekki eins og Bush,“ segir Licht- man. „Það er mikil andstaða við Bush núna en Kerry á enn eftir að nýta sér það. Hann getur ekki nýtt sér það ein- ungis með því að veitast að Bush.“ Undir risastórum borða með slag- orðinu „Sterkari heima fyrir, virt af umheiminum“ mun fjöldi ræðumanna lofa Kerry og Edwards, þar á meðal Bill Clinton, fyrrverandi forseti, Ted Kennedy, öldungadeildarþingmaður frá Massachusetts, Ron Reagan, son- ur Ronalds Reagans heitins, fyrrver- andi forseta og repúblikana, og Ter- esa Heinz, eiginkona Kerrys. Holræsaopum lokað og póstkassar fjarlægðir Um 35.000 flokksmenn, auk blaða- manna og gesta, koma saman í Fleet- höllinni í Boston á mánudag þegar þingið hefst en það stendur í fjóra daga. Öryggisgæsla verður meiri en áður hefur sést en þetta er fyrsti landsfundur stjórnmálaflokks eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. Heimavarnarráðuneytið varaði nýlega við því að hryðjuverkasamtök- in al-Qaeda ætluðu sér hugsanlega að trufla forsetakosningarnar. Hefur verið bent á að landsþing demókrata og repúblikana gætu verið skotmörk. Boston hefur verið breytt í víggirt borgarvirki. Umferð um 65 km lang- an veg sem liggur að Fleet-höllinni hefur verið bönnuð, holræsaopum verið lokað og allir póstkassar, rusla- tunnur og dagblaðasjálfsalar, sem hugsanlega væri hægt að koma sprengjum fyrir í, fjarlægðir. Sveitir á vegum lögreglunnar og strandgæsl- unnar munu fara um höfnina í Boston til að gæta þess að hryðjuverkamenn komi ekki sjóleiðina til lands eða smygli vopnum þá leið. Flokksþing eru miklar glyssýning- ar. Um 500 kílóum af mislitum papp- írsögnum og 100 þúsund blöðrum verður sleppt yfir fagnandi fundar- gesti. Talið er þingið kosti rúma 6,7 milljarða íslenskra króna. Fjöldi frægs fólks úr skemmtana- bransanum mun láta sjá sig á þinginu. Sumir eru harðir stuðningsmenn og flytja lofræður um frambjóðendurna, aðrir mæta bara til að ljá samkom- unni glæsileika. Mikilvægt er að stjörnur mæti á þingið því þær beina athygli að því og frægð þeirra hjálpar til við að afla fé í kosningasjóði. „Nærvera stjarnanna gerir Kerry meira spennandi. Sérstaklega í aug- um unga fólksins, og fólks sem finnst hann of gáfumannslegur og ein- strengingslegur,“ segir Bruce Caine, prófessor í stjórnmálafræði við Kali- forníu-háskóla í Berkeley. Á meðal stjarna sem hyggjast láta sjá sig eru Bianca Jagger, Óskars- verðlaunahafinn Chris Cooper, leik- ararnir Sean Astin, Christina Ricci, Ellen Burstyn og Janeane Garofalo, hljómsveitin Red Hot Chili Peppers og kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein. „Það er verið að reyna að næla í unga fólkið. Stjörnur sem unga fólkið lítur upp til eru fengnar til að sýna að þær hafi áhuga á stjórnmál- um,“ útskýrir Caine. Annað sem líklega á að höfða líka til unga fólksins er að um yfir þrjátíu bloggurum, þ.e. fólki sem skráir hug- leiðingar sínar og helstu tíðindi á net- síður, verður veittur aðgangur að flokksþingi. Verður þetta í fyrsta skipti sem bloggarar fá aðgang að flokksþingum stjórnmálaflokka eins og um blaðamenn væri að ræða. Meðlimir grasrótarsamtaka munu flestir sitja heima, þeir ætla frekar að eyða kröftum sínum í mótmæli á flokksþingi repúblikana sem haldið verður í New York eftir mánuð. Edwards með bleyju þegar Kerry var í Víetnam? Kerry þykir að mörgu leyti þver- sagnakennd persóna, og hann er ým- ist sagður hrokafullur eða hógvær. Hann er stríðshetja frá Víetnam sem hóf að mótmæla stríðinu harkalega, persónulega segist hann vera á móti hjónaböndum samkynhneigðra en þó styður hann lögleiðingu þeirra í ein- stökum ríkjum. Kerry þótti ekki sérlega vænlegur frambjóðandi framan af. Hann var (og reyndar er) gagnrýndur fyrir að vera þurr, gáfumannslegur og gam- aldags yfirstéttarmaður. Í nóvember í fyrra ákvað hann skyndilega að ráða Mary Beth Cahill, ráðgjafa öldunga- deildarþingmannsins Teds Kenne- dys, sem kosningastjóra í stað þess sem hann hafði áður. Hann breytti allt í einu um stíl, fór að einbeita sér að því að nota einfaldar grípandi setn- ingar sem lýst gætu stefnumálum hans á skýran hátt, í stað þess að nota langar, ómarkvissar setningar eins og hann hafði áður gert. Stundum fengu keppinautar hans í forkosningum demókrata að kenna á beittum athugasemdum hins nýja Kerrys, þar á meðal Edwards. „Ég veit ekki hvort John Edwards var hættur að nota bleyjur þegar ég kom heim úr Víetnamstríðinu 1969,“ sagði hann eitt sinn um manninn sem hann átti síðar eftir að velja sem varafor- setaefni sitt. Repúblikanar hafa ein- mitt haldið þessari athugasemd mjög á lofti undanfarið og hamrað á því að Edwards sé of ungur og óreyndur til að vera næstur forsetanum. Edwards er átta árum yngri en hinn sextugi Kerry en virðist mun yngri. Kerry var ekki spáð góðu gengi í forkosningum demókrata. Rétt áður en þær hófust benti flest til að How- ard Dean myndi vinna auk þess sem Wesley Clark, fyrrverandi hershöfð- ingi, og hinn ungi og myndarlegi Edwards fengu mesta athygli. Hinn nýi Kerry sigraði þó í fyrstu forkosn- ingunum í Iowa og fljótlega varð ljóst að enginn hinna ætti möguleika gegn honum. Edwards, sem veitti Kerry hvað harðasta keppni í forkosningunum, þykir lífga upp á framboðið. Hann er andstæða Kerrys að því leyti að hann þykir opinn og heillandi ræðumaður. Hann þykir eiga auðveldara með að höfða til lágstéttanna en Kerry. Kerry hefur hins vegar fengið dæmi- gert hástéttaruppeldi, er kominn af efnuðu fólki og var sendur í einka- skóla í Sviss á æskuárunum. Teresa Heinz, eiginkona Kerrys og erfingi Heinz-tómatsósuveldisins, þykir einnig styrkja framboðið. Ted Kennedy hefur kallað hana „leyni- vopn demókrata“ í kosningunum. Hún þykir opin og hress og liggur ekki á skoðunum sínum, sértaklega þegar Bush er annars vegar. Fylgið eykst eftir flokksþing Tilgangurinn með þinginu, auk þess að tilnefna forsetaframbjóðend- ur, er fyrst og fremst að þjappa flokksmönnum saman fyrir kosning- arnar og kynna frambjóðandann og stefnumálin. Sagan sýnir að fylgi við demókrata mun aukast eftir flokks- þingið en síðustu tíu forsetakosninga- ár hefur stuðningur kjósenda aukist um að meðaltali 6% eftir flokksþing. Eftir þing demókrata árið 1992 jókst fylgi við Bill Clinton, þáverandi for- setaframbjóðanda, um heil 16%.                     !"#$% "&     "  !" !   ! ! #  $ %& $"%# $"% # $  ' # #  !   $ !* % !    ! ! #  $ $ $"%#+ ,  -  *   ! ""  ) ,    $ !* &' ' - !     (  )!"!  . /   -  !      $ (     ! 0 122 ,3( 4 .056  -- 66 .2  6032 7 6 8  $" ! "" :  ! !; &!!  / <==>  ?@+@@@  + 4 !! # "A  *  !! B+C>? !   +  , + - D#   #'$( )# * (.&&,/0..-!1 (          ##' #&* " +, "-.+#$/0'" #*)# # ". $''&#" 12 32 45 12 67""'45 6 "8# )# *9%#"$ :  ; )'""< &; )'=#"$ B "# >29?'& "0#")# #.. & * @@# $,* $-'#A $  ) &$#' &# "#/+B*' "$$-*#' )  $0" $''%C ..$?'&'  ' ?" $#* $#8# *D""< 3!4!!3!&' ' ! !*  !5'! *!  !     !6*      !"!   77*!"! 7 !   )!'*   ! *! !"! ! !* 7' Veginn og metinn AP John F. Kerry er sextugur en vel á sig kominn. Hér sýnir hann færni sína í Nan- tucket-höfn í Massachusetts í vikunni á svonefndum drekasjóskíðum en þá er íþróttamaðurinn dreginn áfram af lítilli fallhlíf. Forsetaframbjóðandinn tók sér stutt frí frá mikilvægu verkefni: hann var að semja ræðuna sem hann mun flytja þegar hann tekur formlega við tilnefningu Demókrataflokksins á þinginu í Boston. John F. Kerry verður í sviðs- ljósinu á flokksþingi demó- krata sem hefst í Boston á morgun en þar verður hann formlega útnefndur forseta- frambjóðandi Demókrata- flokksins. Fjöldi Holly- wood-stjarna ætlar að mæta á samkomuna en grasrót- arhreyfingarnar sitja heima. bryndis@mbl.is ’Við getum gert betur.‘John Kerry, forsetaframbjóðandi demó- krata í Bandaríkjunum, hét því á fimmtu- dag að koma á viðamiklum umbótum í ör- yggismálum yrði hann kjörinn forseti. Þingnefnd sem rannsakaði hryðjuverkin 11. september 2001 skilaði lokaskýrslu sinni á fimmtudag, þar sem fullyrt er að bandarískar öryggisstofnanir hafi sofið á verðinum. ’Allir ættu að viðurkenna aðkoma þarf á lögum og reglu, einnig þurfa menn að hafa betri stjórn á sér og huga að framtíð- arsýn.‘Javier Solana, talsmaður Evrópusam- bandsins í utanríkismálum, hvatti Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, til að tak- marka ekki valdsvið Ahmeds Qorei, for- sætisráðherra heimastjórnarinnar. Um tíma í vikunni leit út fyrir að sá síðarnefndi myndi láta af embætti. ’Ég finn fyrir miklum samhljómihjá flestum flokkum um að það sé ástæða til að huga að endur- skoðun ákvæða stjórnarskrár- innar.‘Bjarni Benediktsson, formaður allsherj- arnefndar alþingis. Í áliti sem meirihluti nefndarinnar lagði fram á þriðjudag er lagt til að hið fyrsta verði komið á fót nefnd með fulltrúum allra stjórnmálaflokka til að end- urskoða stjórnarskrána og einkum kafla þar sem greinina um synjunarvald forseta er að finna. ’Mér finnst eins og alltaf sé veriðað hegna manni fyrir að vera óvinnufær þegn því ekki bað ég um að verða fyrir árás og verða rænd framtíð minni og frelsi.‘Guðrún Jóna Jónsdóttir, 26 ára öryrki, í bréfi til Velvakanda Morgunblaðsins á þriðjudag, þar sem hún vekur athygli á hversu dýrt það er fyrir fatlaða að ferðast. ’Ég er hæstánægður og það ermikill léttir að vera búinn að ganga frá málunum.‘Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, sem framlengdi á þriðjudag samning sinn við enska úrvalsdeildarliðið Chelsea um fjögur ár. ’Ég tel sjálfur að þessi nið-urstaða gæti verið grundvöllur sáttagerðar um málið, þó því að- eins að stjórnarandstaðan komi að því í gegnum fjölmiðlanefnd.‘Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk- ingarinnar, um lyktir fjölmiðlamálsins. ’Við Halldór erum alveg sam-stiga í málinu.‘Davíð Oddsson forsætisráðherra um ákvörðun forystumanna stjórnarflokkanna á mánudag um að draga fjölmiðlafrum- varpið til baka og afturkalla lögin um eign- arhald á fjölmiðlum. ’Við vissum alltaf af því að þaðværi möguleiki á því að önnur eða báðar myndu deyja á meðgöng- unni.‘Lilja Dögg Schram Magnúsdóttir, móðir tvíburasystra sem komu heilbrigðar í heim- inn fyrir skömmu. Æðakerfi þeirra voru að- skilin með leysigeislaaðgerð á belgísku sjúkrahúsi um miðja meðgönguna, eftir að móðirin fékk sjúkdóm í fylgju. ’Ég veit að ég get stokkiðhærra.‘Þórey Edda Elísdóttir, afrekskona í stang- arstökki, eftir að hún bætti Íslands- og Norðurlandamet sitt um 6 cm í keppni í Madríd um liðna helgi. ’Við horfum upp á útbreiðslutaumlauss gyðingahaturs í Frakklandi.‘Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hvatti alla gyðinga í Frakklandi til að flytj- ast til Ísraels á fundi með frammámönnum bandarískra gyðinga í Jerúsalem sl. sunnu- dag. Ummælin vöktu takmarkaða hrifningu meðal franskra ráðamanna. Ummæli vikunnar Atkvæði voru greidd um fjölmiðla- frumvarpið með handauppréttingu á fimmtudag, þar sem venjubundin rafræn atkvæðagreiðsla var ekki möguleg vegna framkvæmda í Al- þingishúsinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.