Morgunblaðið - 25.07.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 25.07.2004, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 35 ✝ Margrét KristínGuðmundsdóttir fæddist í Selárdal í Hörðudal í Dalasýslu 22. maí 1933. Hún lést á heimili sínu 24. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðmundur Guð- mundsson bóndi á Litlu-Gröf í Borgar- firði, f. 21. mars, d. 28. maí 1941, og Arn- dís Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 19. nóv. 1894, d. 17. okt. 1983. Systkini Margrétar eru: Hjörtur, f. 25. nóv. 1928, Guðmundur Ár- dal, f. 16. apr. 1930, Finndís, f. 7. jan. 1932, d. 27. sept. 2003, og Þorsteinn Heiðdal, f. 11. apr. 1937. Sambýlismaður Margrétar var Eggert Guðmundsson en þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: 1) Þór- unn Edda, f. 15. okt. 1955, maður hennar er Axel Sævar Blomster- berg, f. 14. apr. 1950, dóttir þeirra er Margrét Sæunn, f. 1. jan 1994. 2) Arndís Sjöfn, f. 6. okt. 1956. 3) Ragn- heiður, f. 17. sept. 1957. Fyrri maki Valdimar K. Guð- mundsson, f. 10. maí 1953, sonur þeirra er Hrólfur Knakan, f. 1. nóv. 1978. Seinni maki Anton Valur Pálsson, f. 15. mars 1951, þau skildu, dóttir þeirra er Olga Bettý, f. 21. sept. 1987. 4) Guð- rún Æsa, f. 23. okt. 1963. 5) Sigurdís Sandra Laxdal, f. 30. sept. 1970, faðir hennar var Óli Lúðvík Laxdal, f. 16. ágúst 1922, d. 7. sept. 1993. Sigurdís Sandra var í sambúð með Murat Ómari Serdar, f. 5. mars 1957, en þau slitu samvistir, dóttir þeirra er Sibel Anna, f. 7. ágúst 1992. Margrét var uppalin fyrst í Sel- árdal og síðar í Litlu-Gröf í Mýra- sýslu. Útför Margrétar fór fram 6. júlí í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elskulega mamma. Það er skrítin tilfinning að skrifa um þig minning- arorð, skrítið að þú sért farin … ég sakna þín sárt. Minningarnar um þig hrannast upp í kollinum á mér, hversu traustur og góður vinur þú varst alltaf. Og hvað þú ráðlagðir manni alltaf heilt þegar ég leitaði til þín. Oft hugsa ég: æ best að hringja í mömmu en þá ert þú ekki hér … en eftir lifa fallegar minningar um þig. Það eru ekki nema nokkrir mán- uðir síðan þú greindist með illkynja ólæknandi sjúkdóm, fram að þeim tíma hafðir þú alltaf verið hraust og dugleg – það var mikið áfall fyrir okkur öll og erfitt að takast á við, en þú kvartaðir lítið og sýndir ótrú- legan kjark við svona aðstæður, þótt sorgin væri mikil. – Eftir á er ég reið og sorgmædd yfir því að allt þetta hafi verið á þig lagt, það er ósanngjarnt. Kostir þínir voru margir, elsku mamma, þú hafðir sterka samkennd með þeim sem áttu erfitt, hvort sem þeir voru fátækir eða veikir, ég leit alltaf upp til þín fyrir það. Þú varst einstaklega gjafmild og varst alltaf að gleðja okkur systurnar, jafnvel undir það síðasta þegar þú varst orðin fárveik varstu að hugsa um að við myndum nú örugglega fá afmæl- is- og jólagjafir frá þér í ár – hlýja þín var mikil og hugulsemi. Þú hafð- ir sterkar skoðanir á öllu og var oft gaman að rökræða við þig, þegar kom að þjóðfélagsmálum varst þú vel með á nótunum. Listrænir hæfi- leikar þínir voru ótvíræðir, allt sem þú gerðir í höndunum var einstak- lega fallega unnið, enda hafðir þú mjög næmt auga á gott handbragð og vandaða vinnu og kenndir mér ýmislegt í þeim efnum. Lífið án þín elsku mamma er óneitanlega fátæklegt, en ég trúi því að þú sért á góðum stað hjá þín- um ástvinum, elska þig af öllu hjarta … guð geymi þig. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Sandra. Elsku mamma. Það er erfitt að setjast niður og skrifa um þig nokkur orð. Ég læt hugann reika yfir liðinn tíma og minningarnar líða fram. Söknuður- inn, sársaukinn og tómleikinn er mikill við fráfall þitt. Þú varst sterkur persónuleiki, það sýndir þú í þínum erfiðu veikindum. Þú kynntist mótlætinu snemma, sem barn misstirðu föður þinn og hafði það djúpstæð áhrif á þig. Þú sagðir mér oft sögur af afa sem voru þér kærar. Við fráfall afa var amma ein með ykkur systkinin, öll ung að ár- um, og fyrir dugnað ykkar allra gengu hlutirnir upp, þó að oft hafi verið erfitt. Þér þótti vænt um sveitina þína og sagðir mér oft sög- ur af því þegar þú varst lítil að alast upp, þær minningar lifa áfram með mér. Þú varst mikill dýravinur og er mér minnisstætt hvað þú varst góð við hundinn minn Bangsa. Þeg- ar hann var orðinn mjög veikur fann hann hlýjuna frá þér og kom til þín, þá straukst þú honum og tal- aðir við hann. Þú varst vel gefin kona sem unnir góðum bókmenntum og fylgdist vel með þjóðmálum. Þú hafðir næmt auga fyrir allri fegurð og varst mikil handverkskona og erum við syst- urnar svo lánsamar að eiga eftir þig mjög fallega handavinnu. Minningarnar eru margar sem ég á um þig mamma mín og eru þessi orð bara örlítið brot af þeim. Þú varst kletturinn í lífi mínu og ég gat alltaf treyst þér, það varst þú sem hughreystir mig og varst ætíð til staðar ef mér leið ekki vel. Ef draumar gefa svör við spurningum um látna móður þá hef ég fengið svar um að þér líði vel og sért kom- in til ástvina sem á undan eru gengnir. Blessuð sé minning burtsofnaðr- ar heittelskaðrar móður minnar. Þín dóttir Þórunn. Elsku amma mín. Mér finnst voða sárt að þú sért farin, en þú varst orðin svo veik. Mér fannst alltaf svo gaman að koma í heimsókn til þín, af því þú sýndir mér alltaf inn í „ævintýra- skápinn“ þinn, en þar voru myndir, teikningar, skartgripir, eldspýtu- stokkurinn sem ég gerði handa þér og margt fleira. Ég elska bækur, blóm, hesta og öll dýr alveg eins og þú gerðir. Þú varst besta amma í heimi. Þegar ég fór frá þér varst þú alltaf í gluggan- um og sendir mér fingurkoss, þess- um minningum um þig gleymi ég aldrei. Allt er svo tómlegt eftir að þú fórst, áður en þú kvaddir sagðir þú: „ég elska þig“ og ég sagði á móti „ég elska þig líka“. Ég sakna þín alltaf, þín Sibel. Elsku amma mín. Ég veit að þú varst mjög lasin. Ég man þegar þú sagðir mér sögur um þig í sveitinni. Þú varst alltaf brosmild og sagðir alltaf eitthvað skemmtilegt. Þú varst blómadrottn- ing, þú elskaðir blómin. Þegar þú komst í sveitina til mín horfðir þú út um gluggann og sást hestinn okkar hann Rúbín, þá komu stjörnur í himinblá augun þín af hrifningu. Ég kallaði þig pond-ömmu af því þú varst með stóran og feitan pondub- angsa sem frænka mín á, mér þykir vænt um þessa pondu. Einu sinni þegar þú varst að passa mig prökk- uruðumst við. Þú tókst klósettpapp- ír, bleyttir hann og kastaðir honum upp í loft. Ég hlakkaði alltaf til að koma til þín og gera eitthvað skemmtilegt. Bless amma mín, ég sakna þín voða, voða mikið. Margrét Sæunn Axelsdóttir. Elsku Margrét, ég kom til þín á Landspítalann í heimsókn áður en ég fór utan í frí, ég vissi að þú varst mikið veik en ég hélt að við mynd- um hittast aftur. Það er erfitt að vera erlendis þeg- ar vinir deyja, svo margt kemur upp í huga manns en svo fátt sem hægt er að setja niður á blað. Við Sandra, dóttir þín, höfum verið vin- konur frá eins og hálfs árs aldri og mér er svo margt minnisstætt um þig úr bernsku minni. Þú áttir það til að koma til okkar, kyssa okkur og faðma og segja: Þið eruð báðar stelpurnar mínar. Svo gafstu okkur appelsínur eða aur fyrir íspinna. Ef- laust var líf þitt ekki dans á rósum, þú ein með fimm dætur og oft varstu þreytt, en alltaf áttirðu næga ást og væntumþykju handa öllum. Í síðasta skipti sem við hittumst fannst mér þú friðsæl og líta vel út og mig grunaði ekki hversu stutt var eftir. Í dag hugsa ég að kannski hafir þú vitað það og verið sátt við að yfirgefa þennan heim fyrir annan betri. Þetta var stutt en erfið bar- átta og þó að þú sért ekki lengur hér, þá munum við hittast seinna og ég veit að yfir okkur Söndru vakir nú engill sem mun leiða okkur rétta leið. Það var alltaf gott að leita ráða hjá þér og þú vissir meira og lengra en margur annar. Mér verður hugs- að til heimilis þíns í Hólunum og hversu hreint og fínt allt var hjá þér og blómin þín svo falleg. Við verð- um að reyna að hugsa um þau nú og í Sibel, dóttur Söndru, sé ég pínulít- ið af þér alla daga og það gleður mig. Enginn hefði getað alið betri dóttur en Sandra, mín besta vin- kona, er og ég er viss um að þú varst stolt af henni líkt og ég er. Elsku hjartans Sandra mín, ég kveð mömmu þína á minn hátt í öðru landi og hugsa til hennar á betri stað en með okkur í hjarta. Hugur minn er heima á Íslandi hjá þér og ykkur systrum, ekkert getur komið í stað móður ykkar og ég votta ykkur systrum og öllum sem þekktu Margréti mína dýpstu sam- úð og megi guð styrkja okkur í þessum harmi. Rut. MARGRÉT KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR Áskær faðir okkar, afi og langafi, SÖLVI ÓLASON, verður jarðsunginn frá Fáskúðsfjarðarkirkju mánudaginn 26. júlí kl. 14.00. Margrét Guðný Sölvadóttir og fjölskylda, Pálína Ósk Bragadóttir og fjölskylda. Eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, fóstur- faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, KARL FRIÐRIK KRISTJÁNSSON fyrrv. framkvæmdastjóri, Skeljatanga 3, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 27. júlí kl. 15.00. Jarðsett verður að Mosfelli. Berglind Bragadóttir, Arnþrúður Karlsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Hrefna Björk Karlsdóttir, Kristján Friðrik Karlsson, Steinunn Egilsdóttir, Hulda Egilsdóttir, tengdabörn, barnabörn og systkini. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur vinsemd og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, MARGRÉTAR ÞORBJARGAR JOHNSON, hjúkrunarheimilinu Grund. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á frúargangi Grundar fyrir einstaka alúð og umönnun. Thor Ólafur Johnson, Nikki Johnson, Guðrún Johnson, Pétur P. Johnson, Sigurborg Sigurbjarnadóttir, Christian, Tor og Margrét Halla. Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLÍNA RUT ÓLAFSDÓTTIR, Stekkjargerði 10, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 26. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Stefán Bragi Bragason, María Stefánsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir, Sveinn Ásgeirsson, María Stefánsdóttir, Þorgeir Smári Jónsson, Bragi Stefánsson, Guðný Stefánsdóttir, Magnús Árnason, Sigurlaug Stefánsdóttir, Helgi Garðarsson og systkini hinnar látnu. Okkar ástkæra, RAGNHILDUR KRISTÍN PÁLSDÓTTIR, Teigaseli 2, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 18. júlí, verður jarðsungin frá Seljakirkju mánudaginn 26. júlí kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Rauða kross Íslands. Guðbjartur Ágústsson, Stefanía Arnheiður Truelsen, Esben Truelsen, Bryndís Edda Snorradóttir, Elís Björgvin Hreiðarsson, Snorri Þór Snorrason, Hildur Fríða Þórhallsdóttir, Albert Snorrason, Þórdís Guðjónsdóttir, Kristín Snorradóttir, Baldvin Viggósson, Ágúst Guðbjartsson og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, STEFANÍA SIGURÐARDÓTTIR, Sólheimum 8, Reykjavík, verður jarðsungin frá Digraneskirkju í Kópa- vogi þriðjudaginn 27. júlí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Jónína Guðnadóttir, Kristján Linnet, Sigurður Pétur Guðnason, Edda Ingvarsdóttir, Kristján Pétur Guðnason, Sigríður Árnadóttir, barnabörn og langömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.