Morgunblaðið - 07.09.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.09.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Sjáið þið hann ekki vel svona, elskurnar mínar? Haldi loftslag áframað hlýna í svipuð-um mæli og verið hefur undanfarin ár getur svo farið að dýr sem fara í felubúning að vetrarlagi, þ.e. fá hvítan feld, geti átt erfitt uppdráttar í kjölfar þess að snjórinn sem þau eru vön að fela sig í mun í framtíðinni fara minnk- andi. Um þetta var skrifað í grein á Reuters í gær og eins var þar fjallað um þau áhrif sem loftslags- breytingar gætu haft á hvítabirni og dýr sem skipta um lit eftir árstíma. Loftslagslíkön spá því að hlýnun á norðurskauts- svæðinu verði tvöfalt hraðari en annars staðar á jörð- inni og að það muni haft marg- vísleg áhrif á lífríkið á þessum slóðum. Á vegum Norðurskauts- ráðsins hefur hópur vísinda- manna unnið að því undanfarin fjögur ár að meta áhrif loftslags- breytinga á vistkerfi og samfélög á norðurhjara. Niðurstöður hóps- ins verða kynntar á ráðherrafundi sem haldinn verður á Íslandi í nóvember. Niðurstöðurnar benda til að meðalhiti geti hækkað um 4–7 gráður á norðurhveli jarðar á næstu hundrað árum og er það meiri og hraðari hlýnun en áður hafði verið spáð. Svo hraðar breytingar geta haft víðtæk áhrif, en eftir á að koma í ljós hvort náttúran nái að aðlaga sig breyt- ingum sem hlýnuninni fylgja. Raunveruleg ógn fyrir hvítabjörninn Snorri Baldursson, aðstoðar- forstjóri Náttúrufræðistofnunar, er fulltrúi Íslandi í stýrinefnd verkefnisins en hann segir grund- vallarmun vera á aðstæðum hvíta- bjarna og landdýra sem fara í vetrarbúning, en þar má t.d. nefna refi og rjúpur. Þau skipti um lit eftir árstíma í þeim tilgangi að fela sig fyrir rándýrum. Snorri sagði ógn sem hvíta- björnum stafi af hlýnandi loftslagi raunverulega. „Það er fyrst og fremst vegna þess að hafís á Norðuríshafi mun dragast veru- lega saman ef marka má spár. Hvítabirnir eru algjörlega háð- ir hafís um veiðar, lifa nær ein- göngu á hringanóra, sem er selur sem kæpir á hafísnum norður í höfum. Ef hafísinn hverfur eða minnkar tapast jafnframt bú- svæði hringanórans og þar með missir hvítabjörninn fæðu sína,“ sagði Snorri. Í skýrslunni eru teknar saman breytingar sem þegar hafa orðið á veðurfari á norðurhjara, en það hefur farið hlýnandi undanfarin 30 ár og jafnframt lagt mat á þær breytingar sem búast má við í framtíðinni. Hafís á norðurslóðum hefur þegar dregist saman um 10%. Að sögn Snorra ganga spár sem byggðar eru á meðaltali 5 þekktra loftslagslíkana út á að um næstu aldamót muni hafís í Norðuríshafi hafa dregist saman um 50%, m.a. er líklegt að Hudsonflói í Kanada verði orðin íslaus um miðja þessa öld og hvítabirnir horfnir af þeim slóðum. Vaðandi snjóþekju sagði Snorri að hún hefði að meðaltali dregist saman um 10% á undanförnum 30 árum. Snjó tekur upp fyrr á vorin og festir síðar að hausti, þannig að snjólausa tímabilið hefur lengst að jafnaði. Þá er því spáð í skýrslunni að snjóþekja dragist saman um 20% til viðbótar á þess- ari öld. „Hvort þetta muni hafa veruleg áhrif á dýr sem skipta lit- um er alls óvíst,“ sagði Snorri. Á Íslandi lifa tvö dýr sem skipta litum, rjúpa og refur. Ref- urinn er svonefndur heimskauta- refur sem finnst í tveimur af- brigðum hér á landi, annarsvegar afbrigði sem er mórautt árið um kring og er það mest áberandi á Vestfjörðum og með ströndum landsins, en hitt afbrigðið sem skiptir litum er algengara inn til landsins og austanlands. „Ef snjóalög hér á landi minnka um 20% svo sem spáð er má ímynda sér að mórauða afbrigðið muni sækja á,“ sagði Snorri. Rjúpan gæti orðið auðveld bráð Hverfi snjór fyrr á vorin en nú er sagði hann að rjúpan, sem enn yrði í sínum hvíta búningi þegar snjóa leysti, gæti orðið fálkanum auðveldari bráð. „Hvort það muni hafi áhrif á stofnstærðina til lengri tíma litið efast ég um,“ sagði Snorri. Taldi hann líklegt að þróunin yrði sú að litaskiptin myndu smám saman aðlagast árs- tíðaskiptum. Slíkt væri þekkt hjá fjallrjúpu sunnar á hnettinum. „Mér finnst ólíklegt að þessi hugsanlegu áhrif af minnkandi snjóalögum á rjúpu hafi í för með sér veruleg vandamál hér.“ Í grein Reuters er þó nokkuð gert úr þeirri hættu sem hvítum dýrum stafar af loftslagsbreyting- um, jafnvel látið að því liggja að þau séu í útrýmingarhættu, en Snorri telur nokkuð djúpt í árinni tekið í þeim efnum. Vissulega megi gera ráð fyrir að einhverjar breytingar verði á stofnum slíkra dýra vegna loftslagsbreytinga, einkum á útbreiðslumörkum þessara dýra sunnar í álfunni. Fréttaskýring | Áhrif loftslagsbreytinga Hafísinn mun minnka um 50% Meiri hlýnun á heimskautasvæðunum en annars staðar á jörðinni Hlýnun loftsins hefur áhrif á afkomu hvítra dýra. Hvítabjörnum stafar ógn af hlýnandi loftslagi  Hitabreytingar eru meiri á heimskautasvæðum en að jafnaði annars staðar á jörðinni. Það á sér veður- og eðlisfræðilegar skýringar, m.a. verður hlýnunin þar hraðari vegna þess að þegar dökkblátt hafið á köldu svæð- unum losnar við ísinn dregur það í sig meiri hita en hvítur ís. Ef sú þróun sem menn sjá fyrir á næstu áratugum gengur eftir verður um að ræða meiri hlýnun og hraðari breytingar en menn hafa áður séð á sögulegum tíma. maggath@mbl.is Alþjóðleg ferðaráðgjöf Ferðamálaskóli Íslands er eini skólinn á Íslandi sem hefur kennt alþjóðlegt IATA/UFTAA námsefni samfleitt í 12 ár. Á hverju ári útskrifar skólinn „ferðaráðgjafa“ til starfa á ferðaskrifstofum, flugfélögum og við aðra ferðaþjónustu, enda er í dag krafa ferðaþjónustuaðila að starfsfólk hafi slíka menntun. Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22 OPINBER heimsókn Karls 16. Gústafs Svíakonungs, Silvíu drottn- ingar hans og Viktoríu krónprins- essu hefst í dag. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tekur á móti gestunum á Bessastöðum. Svía- konungur sækir m.a. ráðstefnu um loftslagsbreytingar í Öskju, náttúru- fræðihúsi HÍ, þar sem sérfræðingar um loftslagsbreytingar flytja erindi. Þá munu konungshjónin heim- sækja Barnaspítala Hringsins, Þjóð- minjasafnið og taka á móti gestum í Norræna húsinu. Þá afhendir Svía- konungur Íslendingum 62 glerlista- verk að gjöf eftir sænska listamenn í Listasafni Íslands. Á morgun skoða gestirnir kvik- myndaver Latabæjar í Garðabæ, Þingvelli og safn um Halldór Lax- ness á Gljúfrasteini sem opnað var um sl. helgi. Að því búnu heldur konungsfjöl- skyldan norður í land og heimsækir m.a. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Háskólann á Akureyri. Sænsku kon- ungshjónin í heimsókn FJÓRMENNINGARNIR í kajakleiðangri Blindra- félagsins niður með austurströnd Grænlands eru nú á lokasprettinum og jafnframt erfiðasta hluta leiðarinnar. Á sunnudag reru þeir 31 km og lentu í miklum ís, bæði lagnaðarís og krapa. Var krapinn víða svo mikill að dag- urinn fór að mestu í að „moka“ krapann þegar róið var, að því er segir í dagbók leiðangursins. Um hádegið ætl- uðu leiðangursmenn að ná landi, en lentu í brimi og reyndu því árangurslaust að komast upp á ísjaka. Fikr- uðu þeir sig þá aftur upp að landi, en þurftu að moka sig í gegnum krapann, fet fyrir fet. Stundum sátu þeir kol- fastir og þurftu að moka ís og krapahröngli frá bátunum. Loks fundu þeir litla klettasnös, sem þeir komust upp á með því að klifra upp 5–6 metra háa kletta og elduðu þar hádegismat. Eftir hádegishlé reyndist mjög erfitt að komast út úr víkinni eða snúa bátunum fyrir ís. Heldur batnaði þó ástandið þegar á leið og tóku þeir sér bólfestu í eyju einni og fundu sér þar náttstað. Blindrafélagið hefur látið opna símanúmer sem hægt er að hringja í og leggja sitt af mörkum til stuðnings leið- angrinum. Númerið er 902-5100 og dragast þá 1.000 kr. af símreikningi viðkomandi. Á heimasíðu leiðangursins www.internet.is/leidangur er hægt að heita á leiðang- urinn eða hringja í Blindrafélagið í síma 525 0000. Kajakleiðangur Blindrafélagsins á Grænlandi Mikill krapi tefur kajak- mennina Morgunblaðið/Eggert Kajakræðarar Blindrafélagsins áður en lagt var af stað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.