Morgunblaðið - 07.09.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.09.2004, Blaðsíða 32
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes ÞAÐ SEGIR MÉR ENGINN HVAÐ ÉG Á AÐ GERA! FÁÐU ÞÉR SVOLÍTIÐ AÐ BORÐA GRETTIR ÞETTA ER ORÐIÐ FREKAR VANDRÆÐALEGT HVIRFILLINN Á ÞER ER SÆTUR ÉG VILDI AÐ ÉG VÆRI ENNÞÁ UPP Í RÚMI! ÉG GÆTI HLUSTAÐ Á VINDINN OG HORFT Á RIGNINGUNA DYNJA Á GLUGGANUM. SÍÐAN GÆTI ÉG DREGIÐ SÆNGINA BETUR YFIR MIG, LOKAÐ AUGUNUM OG LÁTIÐ MIG LÍÐA INN Í DRAUMALAND Í STAÐINN STEND ÉG HÉR, ÚTI Í RIGNINGUNNI, OG BÍÐ EFTIR SKÓLABÍLUM SEM ER AÐ FARA MEÐ MIG Í GÚLAKIÐ! ÉG VONA AÐ SÆNGIN MÍN VERÐI ENNÞÁ HEIT ÞEGAR ÉG FER AFTUR INN FALLEGT AF ÞÉR HOBBES Lalli lánlausi © LE LOMOMBARD MARGIR KENNARAR SKRIFA MÉR TIL AÐ FORVITNAST UM ÞAÐ HVERNIG SÉ BEST AÐ HAGA SÉR GAGNVART NEMENDUM SÍNUM, TIL ÞESS AÐ UNDIRBÚA ÞÁ SEM BEST FYRIR VERSNANDI HEIM BETRA ER AÐ VERA MEÐ AUÐVELD DÆMI Í STAÐ LANGRA OG LEIÐINLEGRA LESTRA ÚR BÓK SEM ÖLLUM ER SAMA UM BRAST JÓN HREGGVIÐSSON ÞÁ ILLA VIÐ... Á SÍNUM 20 ÁRA STARFSFERLI HEFUR ÞESS ÁGÆTI KENNARI ÞRÓAÐ TÆKNI TIL ÞESS AÐ SPARA SEM MEST. MÆTTI KALLA LISTGREIN HVER? ÉG? ÞEGAR ÉG ER AÐ TALA UM AÐ SPARA ÞÁ ÉG VIÐ 0RKU EN EKKI AURA ÞAÐ ERU LIÐIN 20 ÁR OG HANN ER ENNÞÁ AÐ ÞYLJA UPP SÖMU SETNINGARNAR USSS! FRÆÐSLU- STJÓRINN GÆTI HEYRT Í ÞÉR ÞESSAR BÆKUR ERU ÁGÆTT DÆMI UM ÞANN LITLAUSA HEIM SEM HANN LIFIR Í ÞAÐ SEM HANN KENNIR ER 100% RYÐFRÍTT NÁMSEFNI SEM STENST TÍMANS TÖNN Á HVERJU ÁRI TEKUR HANN VIÐ HRÚGU AF NÝJUM NEMENDUM OG ENDURTEKUR LEIKINN HANN ER SVO MIKIÐ FYRIR ENDURTEKNINGU AÐ HANN NÍÐIST ALLTAF Á SAMA NEMANDANUM, SEM ER ÉG SEM SAGT, KÆRU KENNARAR, TIL ÞESS AÐ ENDURBÆTA ÞANN HEIM SEM VIÐ LIFUM Í ÞÁ ÞARF AÐ ENDURNÝJA YKKUR HÉRNA ER BRÉF FRÁ SKÓLASTJÓRA Í KÍNA SEM VILL AÐ ÞÚ KOMIR TIL HANS AÐ FLYTJA ERINDI Dagbók Í dag er þriðjudagur 7. september, 251. dagur ársins 2004 Víkverji er mikillaðdáandi norsku Dressmann-búðanna, enda fáir staðir í þess- um heimi þar sem hægt er að fá jafn ódýran en um leið áhættulítinn fatnað. Með orðinu „áhættu- lítill“ á Víkverji við þá fagurfræðilegu áhættu sem hann tek- ur í hvert skipti sem hann kaupir föt, enda er Víkverji jafnan dauðhræddur um að verða skotspónn tískugagnrýnenda og svonefndra „metrósexúala“ sem virðast gjarnan gefa sjálfum sér skotleyfi á lægri lífverur með léleg- an fatasmekk. Dressmann býður einfaldlega upp á fatnað sem fellur vel inn í bakgrunn þekkingarsam- félagsins og virkar í raun eins og dularbúningur í laufskrúði nútíma- regnskógarins. Fötin eru ekki alveg alvöru lauf og greinar, en þau eru svipuð á litinn, svo hlébarðar og eit- urslöngur ruglast í ríminu og leiða Víkverja hjá sér. x x x Af kynnum sínum af „metrósexúöl-um“ hefur Víkverji vont eitt að segja. Þessi tegund „upplýstra“ karlmanna, sem þekkir átta tegundir af „hárvörum“ í sund- ur og notar þrenns konar krem til að halda húð sinni renni- sléttri eins og innra byrði salernis, fer illa í Víkverja sem kann betur að meta hrjúfa karlmennsku sína og forfeðra sinna en bleyjubossa nú- tímans. Víkverji lítur á það sem skyldu sína sem karlmanns að verða gamall fauti með hrjúfar kinnar, sem afabörnin geta litið til þegar þau þurfa ást, alúð og kæruleys- islega og grófa viðurkenningu en ekki „fegurðartipps“ frá fröken afa. x x x Metrósexúalisminn“ er að matiVíkverja ekkert annað en ör- væntingarfull tilraun tískuvöru- framleiðenda til að metta nýjan markað, nú þegar þeim hefur tekist að sannfæra konur um tilvist appels- ínuhúðar og þá firru að þær geti forðað stefnumótinu við Elli kerl- ingu með notkun hinna ýmsu krema, mixtúra og snákaolía sem eru u.þ.b. eins trúverðugar og goðsagnir um páskahéra og viðskiptasiðferði. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is       Café Kulture | Valentine-kvintettinn leikur á tvennum tónleikum í kvöld kl. 20 á Café Kulture við Hverfisgötu og annað kvöld kl. 22 á Café Rosenberg. Kvintettinn skipa Hanne Hammer söngvari, Svend Hulthin gítar, Niels Ryde bassi, Erik Qvick trommur og Sigurdur Flosason altsaxófónn. Kvintettinn Valentine leikur djassmelódíur af ýmsum toga og þekkt og minna þekkt Bossa Nova-lög eftir lagahöfunda á borð við Cole Porter, Rodg- er & Hart, Jerome Kern, Antonio Carlos Jobim og Joni Mitchell. Morgunblaðið/Sverrir Valentine-kvintettinn MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Gjörið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillátir og metið aðra meira en sjálfa yður. (Fil. 2, 3.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.