Morgunblaðið - 07.09.2004, Blaðsíða 25
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 25
dag í bíltúr til Cambridge. Við geng-
um þar um og komum í hans gamla
„college“ frá námsárunum og hann
sagði frá. Hann hafði, fannst mér, yf-
irbragð bresks menntamanns og
skar sig úr á fundum og mannamót-
um. Þá var það í Washington að
Gunnar Scram gat skroppið í helg-
arheimsókn frá New York. Við geng-
um um á Capitol Hill og úr því varð
mikil samræða um hæstarétt Banda-
ríkjanna, sem þar er í sinni virðulegu
byggingu. Mættu fleiri en ég hafa
heyrt útskýringar Gunnars á þeirri
sérstöðu sem sá hæstiréttur hefur til
lagasetningar í okkar skilningi. En
þetta voru líka alltaf tilefni til brand-
arasagna og oft var hlegið dátt á
okkar samverustundum þessa
mörgu áratugi.
Heilsu Gunnars tók að hraka eftir
að við fluttum alkomin heim og
vissulega syrgi ég með svo mörgum
að hafa nú ekki framundan fleiri
samverustundir með þessum góða,
trausta vini. Sárastan harm ber
Elísa og fjölskyldan öll við að hann
skyldi greinast sársjúkur og eiga þá
aðeins nokkrar vikur ólifaðar. Þeim
sendum við Elsa og börn okkar
dýpstu samúðarkveðjur. En hugur-
inn hverfur aftur til fagra vorkvölds-
ins á Akureyri 1950 þegar við ung-
mennin hittumst í fögnuði þar á
bryggjunni. Við höfum vafalaust
sungið „Integer vitae, scelerisque
purus“ og megi þau orð fylgja Gunn-
ari G. Schram á þeirri leið, sem nú er
hafin.
Einar Benediktsson.
Við Gunnar kynntumst í háskóla.
Hann kom að norðan, ég úr MR.
Leiðir okkar lágu saman í Vöku, þar
var miðstöð þeirra sem töldu heim-
inum stafa hætta af heimskommún-
isma. Þá var vá fyrir dyrum, en
marxismi í tízku og þeir sem sóttust
eftir vinsældum völdu sér annað
kompaní en þennan meinlausa hug-
sjónahóp sem kenndi sig við lýðræði
á byltingatímum. Og þóttu heldur
lummulegar trakteringar, þegar
stalínistar köstuðu fjöreggi heimsins
á milli sín, eins og skessurnar í
Hlyna kóngssyni.
En þarna kynntist ég mörgum
þeim sem fylgt hafa íslenzka lýðveld-
inu fyrstu sporin inn í óvissa framtíð.
Þessi kynslóð, hvar í flokki sem hún
stóð, lét samt lítið fyrir sér fara, þótt
hún væri traust og tæki hlutverk sitt
harla alvarlega. Kölluð lýðveldiskyn-
slóðin af fyrirferðarmeiri spor-
göngumönnum sem nutu þess að
losna að mestu við klámhögg kalda
stríðsins.
En það var góður hópur í Vöku og
hvarf til ýmissa starfa landi og þjóð
til heilla. Sumir urðu jafnvel verka-
lýðsforingjar á vegum Sjálfstæðis-
flokksins og þótti nýnæmi, þótt slíkir
verkalýðsforingjar þættu heldur
gamaldags í dag. Allir hafa þessir
eldhugar átt sína sögu, sína miklu
drauma, gleði og vonbrigði. En þó
umfram allt sína miklu reynslu, sam-
ofna miklum pólitískum örlögum. Og
nú geta þeir horft til allra átta,
ánægðir með hlutskipti sitt á viðsjár-
verðum tímum, þegar engu mátti
muna að jörðin yrði sprengd í loft
upp eins og hver önnur hundaþúfa
við Kárahnjúka.
En þetta var sem sagt rúmgott
samfélag, fullt af hugsjónum um af-
hroð ofbeldis- og einræðisafla og
margvíslegum væntingum um af-
farasælt þjóðfélag hins nýstofnaða
lýðveldis. En það voru mörg ljón á
veginum og ekkert fagnaðarefni að
takast á við stalínismann á þessum
örlagaríku tímum. Og tízkan önd-
verð eins og alltaf, þegar eitthvað er
í húfi. En Vökuhópurinn fastur fyrir
og átti þátt í því, hvernig við kom-
umst klakklaust út úr logheitum
átökum kalda stríðsins.
Gunnar var til foringja fallinn á
þessum árum. Hann var bjartsýnn
og vinsæll. Hafði áhuga á öllu því
sem til mannheilla horfði. Var list-
rænn í eðli sínu og skrifaði góðan
andríkan stíl sem lyfti undir löngun
hans til blaðamennsku. Móðir hans
var mágkona Valtýs Stefánssonar,
ritstjóra Morgunblaðsins, og því átti
hann greiða leið að blaðinu. Þangað
fylgdi ég honum því að hann gegndi
því hlutverki m.a. að afla efnis fyrir
blaðið og láta snara greinum sem
þóttu hnýsilegar eins og á stóð. Slík
störf voru fyrstu skref mín í blaða-
mennsku og þá fyrir áeggjan Gunn-
ars. Að því leyti var hann örlagavald-
ur í lífi mínu. En um starf Gunnars á
Morgunblaðinu skrifaði Valtýr í afar
persónulegri grein um alla starfs-
menn ritstjórnar í fjörutíu ára af-
mælisblaðinu, 2. nóv. 1953: „Gunnar
Schram hefur haft umsjón með
æskulýðssíðunni, ritað um stjórn-
mál, þingfréttir o.fl. Hann er meðal
efnilegustu ungra manna í Sjálf-
stæðisflokknum.“ Gunnar fékk
snemma pata af því að ég hefði
áhuga á skáldskap, þótt ég flíkaði því
ekki, og tók ástfóstri við ljóðlist
brezka skáldsins Dylans Thomas
sem við fengum sérstakar mætur á.
Þannig á ég bókina Quite Early One
Morning eftir Thomas, áritaða af
Gunnari. Vísbending um áhugamál
þessara ára, þótt Gunnar færi í lög-
fræði, en ég í norrænu sem svo var
kölluð.
Þegar ég blaða í þessari bók nú,
hálfri öld síðar, finnst mér hún hafa
verið einskonar áskorun. Veröldin
var ekki bara pólitískt kviksyndi,
heldur skáldlegar umbúðir um stóra
drauma. Og það var víst engin til-
viljun, þegar grein birtist um Dylan
Thomas í Stefni, eftirmæli um skáld-
ið úr Times 1953. Og þar segir í inn-
gangi Gunnars: „Fá skáld hafa haft
meiri áhrif á enska ljóðagerð, enda
tókst honum snilldarlega að sam-
hæfa gamlar venjur nýjum tíma“.
Slíkt er ekki á allra færi.
Þegar ég nú snögghorfi um öxl,
gleðst ég yfir því sem lífið veitti okk-
ur af æsku og fyrirheitum, minnugur
þess að Gunnar skrifaði í Morgun-
blaðið harla mikilvæga grein um
frægasta menningarfund sjötta ára-
tugarins, þegar Steinn Steinarr lýsti
því yfir að hið hefðbundna ljóðform
væri dautt, eins og hann komst að
orði. Án þessarar greinar værum við
merkum sögulegum bókmennta-
þætti fátækari.
Já, það var eftirvænting í lofti og
gaman að takast á við þann hroll-
kalda veruleika sem fylgdi kalda
stríðinu. Engu líkara en Ísland væri
einskonar miðþyngdarstaður þessa
hildarleiks sem hvarvetna blasti við.
Hingað komu bókstaflega allir, ekki
sízt tónlistarmenn og skáld á heims-
vísu og hér átti ég samtöl við ýmsa
forystumenn sovézkra kommúnista.
Og ekki ósjaldan orðabasl við þá sem
maður átti ekkert sökótt við. Ekki
sízt ef maður vann á Morgunblaðinu,
þar sem rússagrýlan réð ríkjum, eins
og allir áttu að vita, og lýðræðissinn-
ar svo nefndir í útrýmingarhættu
eins og geirfuglinn.
Eða voru það ekki við sem börðust
gegn góða málstaðnum og þá auðvit-
að fyrir loðna krumlu auðvaldsins?!
Voru það ekki við sem gegndum
hlutverki hlaupastrákanna fyrir
hernaðarvélina í Washington og vor-
um sífelldlega að reyna að koma
höggi á ástmög alþýðunnar, félaga
Stalín?! Nei, við vorum ekki að hugsa
um landið okkar, frelsi þess og ör-
yggi; framtíð þess og fyrirheit. Eða
hvað? Ég hafði ungur sjóari farið
með frosinn fisk til Leníngrað og
verið bólusettur við kommúnisma,
svo að dugað hefur hingað til. Gunn-
ar þurfti ekki slíka bólusetningu.
Hann dró einfaldlega ályktun af
sögu þriðja ríkisins og það fullnægði
dómgreind hans.
Saman fórum við Gunnar til Berl-
ínar í júní 1953 og upplifðum helj-
artök rauðu krumlunnar í alþýðu-
uppreisninni þá og dugði okkur
báðum næstu árin. Þá var Branden-
borgarhliðið eins og hver annar víg-
völlur, en um það var ekki hugsað,
heldur þær fréttir sem Morgunblað-
ið beið eftir úr þessum stríðskalda
þætti nútímasögunnar. Ég minnist
þess hvernig ítalskur blaðamaður
var drepinn þarna á torginu, en við
okkur var sagt við skyldum ekki fara
austur fyrir tjald og ef við gerðum
það, yrði það á okkar eigin ábyrgð.
En um það var ekki hugsað, og ég
sendi margar greinar heim um það
sem fyrir augu bar, en á öllum mynd-
um af flóttamönnum að austan sem
við birtum var strikað yfir augu
þeirra svo að þeir þekktust ekki. Það
var til verndar ættingjum sem eftir
urðu í þessu pólitíska limbói sem lesa
má um í helvítiskaflanum í Gleðileik
Dantes.
Ekki vorum við bornir á gullstól
þegar heim kom, það var nú eitthvað
annað: Matthías til Berlínar með
bundið fyrir augu, stóð í blaðinu sem
kenndi sig við vilja þjóðarinnar.
Og búinn heilagur eins og Elli
Hólm hefði sagt.
Í þessari ferð upplifðum við þriðja
ríkið í rústum. Við bjuggum í
pensjónati frú Teske sem var sér-
stæð og aðsópsmikil kona, en um
hana og borgina skrifaði Gunnar eft-
irminnilega smásögu sem við birtum
í októberhefti Stefnis 1955, mynd-
skreytta af Örlygi Sigurðssyni, en
okkur þremur blaðamönnum á
Morgunblaðinu hafði verið trúað fyr-
ir tímaritinu og við töldum nauðsyn-
legt að breyta því í menningarrit
vinstri mönnum til lítillar ánægju.
Þriðji blaðamaðurinn var Þorsteinn
Ó. Thorarensen.
Margir merkir höfundar lögðu
hönd á plóginn og þar birtist marg-
víslegt efni sem borgarastéttin var
ekki vön, en tók tveimur höndum.
Þessi gráglettna tilraun var heldur
skemmtileg ögrun á þröngum, for-
dómafullum tímum. Og auðvitað áttu
ritstjórarnir sinn metnað, þótt ekki
væru þeir í neinum metsölustelling-
um.
Smásaga Gunnars sem heitir
Borgin dimma og stúlkan, dagbók-
arbrot frá Berlín, er hálfsúrrealískt
myndbrot um drauma og tortímingu
og sýnir rithneigð hans og listræna
hæfileika og mundi sóma sér vel í
sýnisbók íslenzkra smásagna. Hún
var helzta afrek þessarar Þýzka-
landsferðar. Mitt afrek var það að
kippa Gunnari upp á gagnstétt þegar
hann var á hraðri leið fyrir næsta
sporvagn. Frá þeirri stundu hefur
mér fundizt ég bera þó nokkra
ábyrgð á lífi hans.
„Maður á ekki að reyna að sigrast
á lífinu, heldur sætta sig við það,“
segir í Borginni dimmu. Á ritstjórn-
arárum Bjarna Benediktssonar á
Morgunblaðinu kom í ljós að þeir
Gunnar áttu ekki skap saman og
taldi Gunnar í samtölum okkar að
Bjarni hefði byggt sér út af blaðinu.
Eftir það hallaðist hann að forystu
Gunnars Thoroddsens og á þeim for-
sendum var honum falin ritstjórn
Vísis allnokkru síðar.
Þegar að því kom að ég tæki að
mér ritstjórn við Morgunblaðið, var
Gunnar kominn til framhaldsnáms í
útlöndum og ég óskaði þá eftir því að
annar gamall Vökumaður kæmi að
blaðinu, Eyjólfur Konráð Jónsson,
en samstarf okkar hafði verið með
ágætum, bæði á háskólaárunum og
síðar þegar Eyjólfur var orðinn
framkvæmdastjóri Almenna bóka-
félagsins. Með okkur hafði þannig
þróazt hin bezta vinátta og ég treysti
honum vel, þegar fyrir höndum var
það mikla starf að losa um tengsl
blaðsins við Sjálfstæðisflokkinn. Og
var Eyjólfur betri en enginn í þeirri
baráttu, þótt sjálfur færi hann á þing
á vegum flokksins.
Þegar Gunnar hvarf til Þýzka-
lands hlaut hann von Humboldt-
styrk, það var í október 1957, ef ég
man rétt. Síðar hélt hann til Bret-
lands, þar sem við Hanna sóttum þau
Elísu heim í Cambridge sem hann
kallaði Kambsbryggju í anda Fjöln-
ismanna, en mér sýnist dagbækur
Konráðs Gíslasonar hafa haft áhrif á
hann ungan, ekki sízt loftskurðurinn
sem prýddi þessar hitasæknu setn-
ingar í texta hans, en kannski voru
það þó einkum áhrif frá umhverfinu
á Akureyri og í MA. Þetta flug
fannst mér einnig fylgja hugsunum
vinar okkar á háskólaárum, Sveins
Skorra Höskuldssonar síðar prófess-
ors.
En nú var hafinn undirbúningur
undir lífsstarfið því að prófessors-
staða í lögfræði var markmiðið. Þar
var svo lífsstarf hans, en hvorki í
pólitík né blaðamennsku, sem
bjuggu þó með honum alla tíð.
Allan þennan tíma voru tengsl
okkar Gunnars hin sömu og áður
eins og sjá má af bréfi sem hann
skrifaði mér frá Cambridge 30. júlí
1963. Þar lýsir hann högum sínum
með þessum hætti: Maður lifir hér í
huggulegheitum og hefur afar hægt
um sig. Dægrastytting ekki önnur en
reykja pípu, spila bridge og lesa
enskan litteratur nýjan sem er
reyndar lakari en maður skyldi
halda. Annars á lögfræðin hug minn
allan eins og þú veizt. Um þessar
mundir að minnsta kosti og sit ég
dag hvern blýfastur á gömlu sæti Ei-
ríks meistara Magnússonar og
hugsa. Auðvitað er það ákaflega gott
fyrir manns andlegu heilsu, en held-
ur er ég samt að gerast þreyttur á
vísindunum og gömlum rykföllnum
skinnbókum, einangraður svo fjarri
öllum mögnuðum íslenzkum lífs-
hræringum, hákarli og gömlu
brennivíni. En allt tekur enda ein-
hverntíma og loks sé ég fyrir lokin á
minni Kambsbryggjudvöl sem í
mörgu hefur verið minn merkileg-
asti lífstími. Ég er náttúrlega orðinn
hinn mesti lögspekingur eins og þú
veizt og veit meira um eitt lítið horn
lögfræðinnar en nokkur annar í
þessu landi, sem er ekki mikils virði
á metaskál silfurs og gulls en gefur
manni þó tangarhald á tilverunni á
sína vísu, sem ekki er að öllu forkast-
anlegt. Slíkt þarf ég ekki að skýra
fyrir þér nánar.“ Annars staðar segir
Gunnar í bréfi til mín, þegar hann
reifar væntanlega ritstjórn sína á
Vísi sumarið 1964 að Vísir og Morg-
unblaðið séu „tveir kvistar á sama
meiði og mikið er komið undir að
starfi saman af góðvild og einlægni,
en reyni ekki að reyta menn hvort
frá öðru (þótt ég myndi ekki neita ef
mér væri boðin ritstjórastaða við
Moggann!) … afstaða mín til Mbl. er
slík, eftir margra ára starf þar, að
sízt sæti á mér að fara með undirmál
gagnvart jafngóðum vinum mínum
eins og þér, Valtý eða Sigurði
(Bjarnasyni), enda mun ég aldrei
reka Vísi þannig að Mbl. beri þar
hallan hlut frá borði né ástæðulaust
hnjóð. Ef einhvern tímann kemur að
mannaskiptum milli blaðanna, með-
an ég er þar, mun slíkt ekki gerast
öðru vísi en með samþykki og samn-
ingum milli allra aðila.
Ég vona að þú takir þessi ummæli
mín af þeirri einlægni sem þau eru
sögð, en ég vil ekki láta það sam-
bandsleysi sem stafar af því að við
erum hvor í sínu landi valda hér
neinum misskilningi okkar í millum.“
Þegar Gunnar tók við Vísi var hugur
hans þannig bundinn Morgun-
blaðinu. Hann vissi að gott uppeldi
og veganesti þaðan dygði honum vel,
meðan hann stundaði blaða-
mennsku. Þá vorum við ritstjórar
hvor á sínu blaði og samkeppni mikil
á markaðnum. Lagt hafði verið upp
með þann ásetning sem fyrr greinir,
en lífið er hart með köflum og leikur
einatt góðan ásetning okkar og vilja
heldur illa. Og í þessu tilfelli kröfðust
hagsmunir Vísis annars vilja en þess
sem var grundvallaður á gamalgró-
inni vináttu úr Vöku.
Morgunblaðið þurfti einnig á öllu
sínu að halda til að geirnegla forystu
sína í markaðsharðri samkeppni, en
það skyggði þó ekki á æskuvináttu
okkar Gunnars.
Allt tók þetta að vísu á við metn-
aðarfullar aðstæður líðandi stundar.
Og áformin eins og kvikuhlaup fyrir
eldgos. En þegar fundum okkar bar
saman löngu síðar á hafréttarráð-
stefnunni í Genf, þar sem Gunnar
var á heimavígstöðvum í fræðum sín-
um, ef svo mætti segja, var engu lík-
ara en tíminn hefði staðið kyrr frá
miðjum sjötta áratugnum. Margt
hafði að vísu farið á annan veg en við
ætluðum, en kjarninn var þó heill, ef
glöggt er greint, eins og Einar Bene-
diktsson segir í kvæði sínu Á Njáls-
búð.
Og ég upplifði enn gamla vináttu
okkar Gunnars og veglyndi hans.
En tíminn líður eins og jökulfljót
að lygnum ósi þessarar eilífu þagnar
sem bíður okkar.
Matthías Johannessen.
Sá, sem þetta ritar, átti dr. Gunn-
ar G. Schram prófessor að sam-
starfsmanni við kennslu og fræði-
störf við lagadeild Háskóla Íslands í
hartnær þrjá tugi ára, en hann lét af
starfi sínu þar fyrir um þremur ár-
um. Margs er að minnast frá þessum
langa samstarfstíma. Gunnar var
sannarlega minnisstæður maður,
víðförull, margvís og reyndur vel á
mörgum sviðum. Upp í hugann koma
skýrar og ánægjulegar minningar
um líflegar og fjölskrúðugar sam-
ræður á kennarastofunni í Lögbergi
á árum áður, þar sem Gunnar gat
iðulega farið á kostum, hlaðinn gam-
ansemi, stundum örlítið beittri, allt
eftir atvikum. Hann hafði mótaðar
skoðanir á mörgum mikilvægum
málefnum, svokölluðum „þjóðmál-
um“ jafnt sem öðrum, og var óragur
við að láta þær í ljósi. Hann hafði lif-
andi áhuga á mannfélaginu öllu jafnt
sem hverjum einstaklingi, er hann
komst í kynni við. Mannglöggur var
hann með afbrigðum og langminn-
ugur á marga hluti.
Að sjálfsögðu var fræðastarfið –
kennsla og ritstörf – aðalstarf Gunn-
ars áratugum saman, og þar sló hann
sannarlega ekki slöku við. Eftir hann
liggja fjölmargar bækur og ritgerðir
á kennslu- og rannsóknarsviðum
hans, sem m.a. beindust að stjórn-
skipunarrétti og þjóðarétti. Öll ein-
kenndust rit hans af skýrleika og
voru rituð á góðu máli. Áttu því nem-
endur yfirleitt tiltölulega auðvelt
með að tileinka sér efni þeirra, eins
þótt oft væri þar fjallað um flókna
þætti lögfræðinnar, þar sem fræði-
leg skerpa höfundarins naut sín vel.
Ríkan metnað hafði hann fyrir hönd
fræðigreina sinna og var jafnframt
hugmyndaríkur um hvaðeina, sem
mátti verða þeim til framdráttar.
Hann var m.a. aðalhvatamaður þess,
að Hafréttarstofnun Íslands var sett
á laggirnar, í tengslum við lagadeild,
og var síðan forstöðumaður hennar
um árabil.
En lögfræðiiðkanir, einar saman,
fullnægðu aldrei starfsorku Gunn-
ars. Löngum var hann virkur þátt-
takandi á ýmsum sviðum samfélags-
mála. Mjög munaði t.d. um framlag
hans til umhverfismála, í ræðu og
riti. Beindist sá áhugi hans bæði að
náttúruvernd hér á landi og að haf-
SJÁ SÍÐU 26
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís
Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is