Morgunblaðið - 07.09.2004, Side 17
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 17
Softub pottarnir eru mjúkir viðkomu. hvergi harðar eða hvassar
brúnir. Börnum stafar því engin hætta af þeim þó leikar æsist.
Lok allra Softub nuddpottana eru með öryggislæsingu sem
kemur í veg fyrir að börn komist í pottinn án eftirllits.
Hitastýribúnaður pottsins kemur í veg fyrir að vatn potttsins geti
orðið of heitt. Það er engin hætta á bruna vegna of heits vatns.
Orkukostnaður
aðeins 1.100 kr. á mánuði*
Vert er að veita dælubúnaði Softub-pottanna athygli. Vegna þeirrar miklu einangrunar sem
er í pottunum, þarf ekki orkufrekt hitaelement til hitunar á vatni pottsins. Varmaskiptadæla
(bremsumótor) sér um hringrás vatnsins og nuddið og er hitinn frá henni notaður til hitun-
ar á vatni pottsins.
Orkuþörf dælunnar er einungis 1400 w og 6 amp. og getur því tengst í hvaða tengil sem er.
Nákvæmur rafeindastýrður hitastillir heldur fyrirfram ákveðnu hitastigi allan sólarhringinn.
Potturinn er því ávallt tilbúinn til notkunar, sem verður til þess að notkunin verður margfalt
meiri.
*Samkvæmt mælingu á 4 manna potti í nóvember. Lofthiti var að meðaltali -1°.
Miðað er við verðskrá fyrir höfuðborgarsvæðið kr. 7,94 á kWh.
4 manna pottur
kr. 288.000
Barnvænir nuddpottar
Haust tilboð
Suftub-pottarnir eru framleiddir
úr 15 cm þykku einangrunarefni
Þegar Softub hóf framleiðslu á rafkyntum nuddpottum árið 1986, breyttu þeir hug-
myndum manna um heita potta. Hugvitsamleg hönnun Softub á nuddpottum, fram-
leiddum úr léttu einangrunarefni, tryggir mjög hagstætt verð og gerir pottana auðvelda
og þægilega í notkun.
Softub-pottarnir eru framleiddir úr 15 sm þykku einangrunarefni sem gerir þá létta,
mjúka og barnvæna, en ekki síst er hitatap í þeim óverulegt. Pottarnir eru síðan klædd-
ir með veðurþolnum og slitsterkum vinyldúk að innan og utan.
Ekki þarf stórvirk tæki til að koma Softub-pottunum fyrir né fagmenn til að tengja þá.
Þeim er einfaldlega komið fyrir á sléttum fleti, fylltir af vatni með garðslöngu og raf-
magnssnúrunni stungið í 220 volta straum. Pottunum er því hægt að koma fyrir hvar
sem er.
JÓN BERGSSON EHF.
LYNGHÁLSI 4, 110 REYKJAVÍK
SÍMAR: 588 8886 - 867 3284
www.softub.com
Sólbrekkur | Skógurinn í Sól-
brekkum hefur verið opnaður al-
menningi eftir umbætur sem þar
hafa verið gerðar á vegum verkefn-
isins Opinn skógur. Árni M. Mathie-
sen sjávarútvegsráðherra opnaði
skóginn með því að koma af stað
flugeldasýningu sem haldin var af
þessu tilefni síðastliðinni laugardag.
Þannig var verið að tengja athöfn-
ina Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Sólbrekkuskógur er ekki stór en
hann er skjólsæll og fallegur. Hann
er í alfaraleið í landi Reykjanes-
bæjar, vestan Grindavíkurvegar,
skammt sunnan gatnamótanna við
Reykjanesbraut. Trjánum var plant-
að í lok sjötta áratugarins og á þeim
sjöunda. Brynjólfur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags Ís-
lands, segir að aðsókn að skóginum
hafi aukist mjög á síðustu árum. Sel-
tjörn er í næsta nágrenni og því sé
svæðið sem heild skemmtilegt úti-
vistarsvæði. Gildi þess eigi enn eftir
að aukast því á síðustu fimmtán ár-
um hafi trjám verið plantað í ný
svæði þannig að skógurinn muni
stækka mjög á komandi árum.
Skógræktarfélag Suðurnesja hef-
ur umsjón með Sólbrekkuskógi. Op-
inn skógur er samstarfsverkefni
skógræktarfélaga og fyrirtækjanna
Olís og Alcan á Íslandi. Sólbrekku-
skógur er sjötti skógurinn sem opn-
aður er undir merkjum verkefnisins.
Undanfarna mánuði hefur verið
unnið í skóginum. Þar hefur verið
komið fyrir fánastöngum, skiltum,
grillum, borðum og bekkjum og
merkingum sem lýsa trjátegundum,
örnefnum og sögu. Þá hefur verið
gefinn út upplýsingabæklingur um
skóginn.
Opinn skógur hefur bætt aðstöðu fyrir almenning í Sólbrekkuskógi
Skógurinn opnaður með flugeldasýningu
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Tónlist: Rúnar Júlíusson mætti með gítarinn og söng nokkur gömul og góð
lög við opnun Sólbrekkuskógar, meðal annars Bláu augun þín.
Berserkur: Stór berserkjasveppur fannst í Sólbrekkuskógi við opnun skóg-
arins þar á laugardag. Sveppurinn er litsterkur og eins og sjá má á viðmiði
við tíu króna peninginn er hattur hans risastór.
Þúsund
börn á
heiðurslist-
um grunn-
skólanna
Reykjanesbær | Nöfn um eitt þús-
und barna eru á heiðurslista
grunnskóla Reykjanesbæjar sem
nú hafa verið birtir í fyrsta sinn. Á
heiðurslista eru nöfn þeirra nem-
enda sem sköruðu fram úr í hinum
ýmsu bók- og verknámsgreinum á
síðasta skólaári, auk nemenda sem
sýndu mikla framför í námi. List-
arnir eru birtir á upplýsingavef
Reykjanesbæjar, www.rnb.is.
Þeir nemendur sem eru í 15%
efsta flokki í hverri námsgrein
komast á heiðurslistann auk nem-
enda sem kennarar benda á að hafi
sýnt mikla framför í námi á við-
komandi skólaári. Árni Sigfússon,
bæjarstjóri og formaður fræðslu-
ráðs, segir að með því að draga
fram góðan árangur eða framför
nemenda sé verið að sýna dugleg-
um nemendum virðingu og hvetja
alla til að standa sig vel á nýbyrj-
uðu skólaári. „Það eiga allir mögu-
leika á að komast á heiðurslistann,
ýmist með góðum einkunnum eða
góðri ástundun og framför ef eitt-
hvað hefur skort á árangur í fortíð-
inni,“ segir Árni.
Hann segist telja að foreldrar,
afar og ömmur, ættingjar og vinir
eigi rétt á því að vita ef börnin eru
að ná frábærum árangri í einni eða
fleiri námsgreinum. Það hvetji
börnin til að gera enn betur og gefi
foreldrunum tækifæri til að fylgj-
ast betur með. „Það er þörf á því í
skólunum okkar,“ segir Árni.
SUÐURNES
ATLANTSOLÍA hefur sótt um
lóðir fyrir bensínstöðvar í Grinda-
vík og Sandgerði.
Í afgreiðslu bæjarráðs Grinda-
víkur á erindinu kemur fram að
unnið er að deiliskipulagi fyrir
íbúðarbyggð norðan Grindavíkur
og lagt til að tekið verið tillit til
umsóknar fyrirtækisins við þá
vinnu.
Atlantsolía vill byggja sjálfsaf-
greiðslustöð í Sandgerði. Bæjarráð
vísaði umsókninni til fagnefndar
vegna staðsetningar.
Atlantsolía
sækir um lóðir
♦♦♦