Morgunblaðið - 07.09.2004, Qupperneq 18
MINNSTAÐUR
18 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Skráning í barna-/unglingakóra Seljakirkju fer fram í
kirkjunni fimmtudaginn 9. september frá kl. 16-18.
Tveir kórar verða starfræktir í vetur og er margt spennandi
framundan. Kórstjóri er Anna Margrét Óskarsdóttir.
Æfingar verða sem hér segir: Yngri deild (7-9 ára) æfir
þriðjudaga kl. 15:30-16:30. Eldri deild (10 ára og eldri)
æfir fimmtudaga kl. 14:30-16:00.
Foreldrar mæti með börnum sínum á skráningardaginn.
Kórastarf
í Seljakirkju
Þátttökugjald greiðist við innritun.
Nánari upplýsingar í Seljakirkju í síma 567 0110.
LANDIÐ
AUSTURLAND
Vestmannaeyjar | „Stansið, kallaði
lögregluþjónninn til hóps af krökk-
um sem voru á röltinu á bryggjunni
klukkan tvö eftir miðnætti. Hann
nálgaðist þau varfærnislega og rétti
þeim lundapysju og fór síðan aftur
inn í lögreglubílinn og keyrði í
burtu.“ Þannig byrjar grein Ellen
E. Schults, blaðamanns The Wall
Street Journal, sem birtist á forsíðu
blaðsins á dögunum. Hún var hér á
ferð í ágúst og fylgdist með þeim
Arnari Gústafssyni, 11 ára, Árnýju
Ósvaldsdóttur, 11 ára, og bræðr-
unum Ólafi og Bjarti Ólafssonum, 8
og 11 ára, þar sem þau röltu um í
myrkrinu og reyndu að bjarga þeim
pysjum sem lentu á Heimaey. Faðir
þeirra Ólafs og Bjarts, Ólafur Týr
Guðjónsson var bílstjórinn í leitinni.
Að sögn Ólafs Týs var það Krist-
ján Egilsson, forstöðumaður Nátt-
úrugripasafnsins, sem kom blaða-
manninum í samband við hann. „Við
buðum henni að koma með um
kvöldið enda stóð til að fara á veið-
ar,“ sagði Ólafur og strákarnir
bættu við að helgina áður hefðu
þeir verið á pysjuveiðum með þýsk-
um sjónvarpsmönnum. Það má því
segja að þeir hafi verið orðnir vanir
athygli fjölmiðlanna þegar Ellen
bankaði upp á. Aðspurðir hvernig
hefði gengið þetta kvöld sögðu þeir
að það hefði gengið ágætlega. „Við
veiddum sex þetta kvöld,“ sagði
Ólafur Týr en strákarnir voru fljótir
að leiðrétta hann og bættu tveimur
við. „Við veiddum sex á meðan hún
var með okkur en hún þraukaði
ekki eins lengi og við,“ sagði Bjart-
ur og bætti því við að þeir hefðu
veitt tvær til viðbótar eftir að henni
var skutlað upp á hótel.
Heldur áköf
Samtals veiddu þeir um fimmtíu
pysjur þessa vertíðina og var það
allt skrásett enda tóku þeir virkan
þátt í pysjueftirlitinu. Aðspurðir
hvernig veiðimaður Ellen Schults
hefði verið sögðu þeir að hún hefði
verið heldur áköf. „Hún sá lunda-
pysju í hverju horni og var alltaf að
benda, segja okkur að stoppa en þá
var það kannski bara plastpoki,
steinn eða eitthvað álíka. Þegar leið
á kvöldið var farið að taka minna
mark á henni,“ sögðu þeir í léttum
tón. Ellen byrjaði grein sína á lýs-
ingu þegar lögreglan stöðvaði þau
klukkan tvö eftir miðnætti. „Já, hún
var rúmlega tvö og við vorum á leið-
inni að skutla henni upp á hótel,“
sagði Óli Týr og Bjartur bætti við
að þau hefðu verið fjögur aftur í
þegar löggan stoppaði þau. „Svo
rétti hann okkur bara pysju og
keyrði í burtu.“
Ólafur Týr sagði að blaðamað-
urinn bandaríski hefði hrifist mjög
af því rólegheitalífi sem hún upplifði
í Eyjum. „Hún skildi mjög vel að
fjölskyldur kæmu ofan af landi til
að upplifa þetta. Eins hrósaði hún
krökkunum í Vestmannaeyjum sér-
staklega, fannst þau sérlega frjáls-
leg, þæg og kurteis,“ sagði Ólafur
Týr og bætti við að henni hefði
fundist sérstakt þegar pysjunum
var sleppt. „Þá fórum við út á ham-
ar og slepptum þar, fengum okkur
síðan ber þarna í nágrenninu og
enduðum heima hjá móður minni
þar sem krökkunum var boðið í
svið. Hún smakkaði reyndar ekki
sviðin, sagðist vera grænmetisæta.“
Pysjunum bjargað
en lundarnir veiddir
Eins og áður kom fram fengu
þeir þýska sjónvarpsmenn í heim-
sókn nokkrum dögum áður. Þá voru
þeir meira og minna fastir á einum
stað þar sem sjónvarpsmennirnir
mynduðu þá í bak og fyrir og settu
nokkrar bjarganir á svið. „Sömu
pysjunni var bjargað nokkrum sinn-
um.“ Það sem vakti mesta athygli
þeirra og þeir í raun áttu mjög erf-
itt með að skilja var það að pysj-
unum var bjargað en lundarnir
veiddir. „Við vorum að bjarga pysj-
unum þetta kvöld með þeim en dag-
inn eftir fórum við Bjartur út í klett
að veiða lunda. Þar veiddi Bjartur
sinn fyrsta lunda. Þetta fannst þeim
skrýtið og gátu engan veginn skilið
hvernig við getum litið á þetta sem
tvennt ólíkt, að bjarga pysjunum og
veiða lundann.“
Duglegir lundapysjuveiðimenn í Eyjum á forsíðu The Wall Street Journal
Orðnir vanir athygli fjölmiðlanna
Morgunblaðið/Sigursveinn Þórðarson
Veiðimennirnir góðu, f.v. Bjartur, Ólafur og Arnar og fyrir aftan þá bíl-
stjórinn Ólafur Týr. Á myndina vantar frænku þeirra, Árnýju Ósvalds-
dóttur, sem var með þeim þetta kvöld.
Neskaupstaður | Trommuleik-
arinn Pjetur Sævar Hallgrímsson
hefur rekið verslunina Tónspil í
Neskaupstað í bráðum sautján ár.
Þar höndlar hann með tónlist og
sitthvað fleira. Menn leita gjarnan í
smiðju til Pjeturs eftir tónlist-
arlegu góðgæti og fágæti. Þar má
jafnt sjá léttstígar ömmur að kaupa
Fjórtán fóstbræður, sem og dökk-
klædda drengi í þungum þönkum
hjá gaddavírsrekkanum.
„Þetta er í rauninni búið að vera
hellingsbasl þessi sautján ár,“ seg-
ir Pjetur um búðarreksturinn.
„Markaðssvæðið er ekki stórt, en
þetta lafir og ég býst við að halda
út eitthvað áfram. Menn eru hér að
finna sér hitt og þetta í tónlist og
margir í rokkinu, ekki síst þessu
eldra frá sjötíu.
Austfirðingar rokkaðir
Pjetur er rokkari af gamla skól-
anum og spilaði m.a. með Amon
Ra, sem var býsna þekkt hljóm-
sveit eystra og víðar í eina tíð.
Hann segist líka hafa spilað með
Brján; blús-, rokk- og djass-
klúbbnum í Neskaupstað. „Maður
hefur spilað í sjóvunum og komið
nálægt ýmsu. Ég er svo sem ekkert
hættur að spila. Ef einhver vill hafa
mig með þá er ég hugsanlega til.“
Pjetur segir Norðfirðinga hlusta
á allskonar tónlist. „Austfirðingar
hafa samt sem áður alltaf þótt frek-
ar rokkaðir og maður finnur vel
fyrir því í plötusölunni.
Tónlistarlífið hérna hefur líka
verið nokkuð öflugt. Brján skiptir
miklu máli í þessu sambandi hvað
varðar rokk, djass og blús. Þeir
hafa meira að segja tekið diskó-
sveiflur og auðvitað öll tónlist
sem á sinn rétt inni í þessu.
Það kom reyndar niðursveifla í
tónlistarlífið hér fyrir fáum árum
og lýsti sér fyrst í minnkandi að-
sókn að Tónskólanum og svo í
lægð í bílskúrsböndunum. Gras-
rótin er annars vel virk. Hér er
m.a. band sem kallast Out Loud
og er efnilegt. Þeir eru eru í rokki
og bara seigir.
Eftirminnilegasta plata sem
farið hefur um hendur Pjeturs er
Frank Zappa-plata sem hann
man ekki lengur hvað heitir.
„Sem ég tímdi ekki að selja en
seldi samt. Mjög sjaldgæf plata
og ég náði mér í eitt eintak frá
Bandaríkjunum. Sé náttúrlega
eftir því dag að hafa selt það. En
það fer svo sem ýmislegt gott í
gegnum verslunina hér sem gam-
an er að handfjatla og fer svo sína
leið.
Þegar upp er staðið og árið
gert upp er það íslenska tónlistin
sem alltaf er hæst í sölu og það er
gott mál.“
Í sautján ár hefur Pjetur í Tónspili séð Norðfirðingum
fyrir músík úr öllum áttum
Á rokkvaktinni
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Höndlar með heimstónlistina: Pjetur S. Hallgrímsson í versluninni Tón-
spili í Neskaupstað og Atli Már Magnússon dyggur viðskiptavinur.
Eskifjörður | Þær virðast býsna
samstiga í hárgreiðslulínum þessar
eskfirsku snótir sem sátu niður
undir fjöruborði þar í bæ á dög-
unum. Allar ljóshærðar með greitt í
tagl og undu sér vel í góðviðrinu.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Eskfirskir taglhnýtingar
Fellahreppur | Framboðsfrestur
vegna sveitarstjórnarkosninga í
sameinuðu sveitarfélagi Austur-
Héraðs, Fellahrepps og Norður-
Héraðs, sem fram fara hinn 16. októ-
ber næstkomandi, rennur út kl. 12 á
hádegi laugardaginn 25. september.
Yfirkjörstjórn hefur sent frá sér
auglýsingu þar að lútandi og þar
kemur fram að á hverjum framboðs-
lista skulu vera að minnsta kosti 11
nöfn frambjóðenda og að hámarki 22
nöfn. Skulu frambjóðendur gefa
skriflega yfirlýsingu um að þeir hafi
leyft að setja nöfn sín á listann.
Einnig skal fylgja skrifleg yfirlýsing
um stuðning kjósenda við listann, að
lágmarki fjörutíu nöfn og að hámarki
áttatíu nöfn.
Yfirkjörstjórn, sem er skipuð
þeim Bjarna G. Björgvinssyni, Guð-
mundi Davíðssyni og Jóni Víði Ein-
arssyni, mun koma saman í ráðhúsi
Fellahrepps til að taka á móti fram-
boðslistum milli kl. 10 og 12 laug-
ardaginn 25. september.
Framboðsfrestur
vegna kosninga renn-
ur út 25. september