Morgunblaðið - 07.09.2004, Qupperneq 27
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 27
hann átti kyn til og fram kemur af af-
rekum hans á lífsleiðinni. Umfram
allt var hann gæddur slíkum kjarki
og lífshúmor, að smitaði alla í kring-
um sig. Fyrir það megum við vera
þakklát og gleðjast með hans nán-
ustu yfir því sem hann var, um leið
og við vottum Elísu og börnunum og
þeirra fólki innilega hluttekningu í
hlutskipti þeirra. Blessuð sé minning
hans og Guðs blessun fylgi þeim öll-
um.
Rósa og Bjarni Bragi Jónsson.
Leiðir okkar Gunnars lágu fyrst
saman fyrir hartnær 25 árum, hann
var þá ráðgjafi iðnaðarráðuneytisins
og ég starfsmaður þar.
Ég man hve mér þótti Gunnar hár
og myndarlegur, hann var sannkall-
að glæsimenni á velli.
Seinna störfuðum við saman í
stjórn Bandalags háskólamanna þar
sem Gunnar gegndi formennsku af
röggsemi í nokkur ár.
Það er svo um mitt ár 1996 að leið-
ir okkar Gunnars liggja saman enn á
ný.
Ég var þá, ásamt hópi fjárfesta, að
kanna grundvöll að stofnun nýs
verðbréfafyrirtækis og varð þess
áskynja að Gunnar hafði mikinn
áhuga á slíkum málum.
Mér kom það á óvart að lögfræð-
ingur skyldi sýna fjármálum og
verðbréfum slíkan áhuga, ég taldi
það fyrst og fremst vera á færi við-
skiptafræðinga að sjá um slík mál.
En það var ekki komið að tómum
kofunum hjá Gunnari varðandi verð-
bréf, erlenda verðbréfasjóði og fleira
á þessu sviði. Það varð úr að Gunnar
og Elísa kona hans gerðust þátttak-
endur í stofnun Verðbréfastofunnar
á haustdögum árið 1996 og var
Gunnar kosinn í fyrstu stjórn fyr-
irtækisins og hefur setið þar síðan.
Alls urðu stjórnarfundirnir 99 tals-
ins.
Gunnar hafði mikinn áhuga og
góða þekkingu á verðbréfamarkaðn-
um, en þeim mikla vexti sem orðið
hefur á þessum markaði undanfarin
ár óraði hvorki Gunnar, mig né
nokkurn annan fyrir.
Verðbréfastofan hefur vaxið mikið
frá því að fyrirtækið hóf starfsemi
með sína þrjá starfsmenn.
Ég hitti Gunnar síðast fyrir um
þremur vikum. Ég gat sýnt honum
góðar tölur úr rekstri okkar fyrir-
tækis. Áhuginn var enn til staðar.
Hann taldi þetta smávægileg veik-
indi sem hann þyrfti bara dálítinn
tíma til að vinna úr.
Hann ætlaði að koma til fundar
með okkur á ný þegar hann hresst-
ist. En það fór á annan veg.
Að leiðarlokum viljum við sam-
starfsmenn Gunnars á Verðbréfa-
stofunni þakka fyrir gott og gefandi
samstarf. Fjölskyldu hans sendum
við hugheilar samúðarkveðjur.
Jafet S. Ólafsson.
Með dr. Gunnari G. Schram er
fallinn frá einn ötulasti talsmaður
umhverfismála á Íslandi. Fáum dylst
að Gunnar var einn helsti lögspek-
ingur þjóðarinnar á síðasta aldar-
fjórðungi. Þekkingu hans á alþjóða-
rétti og hafréttarmálum var
viðbrugðið og var jafnan leitað til
hans sem álitsgjafa á þeim sviðum.
Við, sem þessar línur ritum viljum þó
ekki síður halda á lofti framlagi
Gunnars til umhverfismála en á því
sviði liggur eftir hann mikið verk í
orði og á borði.
Gunnar var snemma á ferðinni
með ritverk sín um umhverfismál.
Hann gaf út rit um Umhverfisrétt á
Norðurlöndum árið 1979 og bók
hans Umhverfisréttur – um verndun
náttúru Íslands kom út árið 1985,
talsvert áður en umhverfismál urðu
vinsælt umfjöllunarefni í íslensku
samfélagi. Sömuleiðis var rit hans
Framtíð jarðar – leiðin frá Ríó sem
út kom árið 1993 eitt hið fyrsta sinn-
ar tegundar á íslensku, heildstætt
yfirlit yfir þau umhverfisvandamál
sem heimsbyggðin stendur frammi
fyrir.
Við undirritaðir áttum því láni að
fagna að starfa með Gunnari að
framgangi gróðurverndar og upp-
græðslu á vettvangi samtakanna
Gróður fyrir fólk í Landnámi Ing-
ólfs. Gunnar var einn af stofnendum
þeirra samtaka árið 1997 og sat í
stjórn þeirra frá upphafi. Nærvera
Gunnars og atbeini við stofnun og
starf samtakanna var ómetanlegur.
Það mátti iðulega finna, að þegar
nafn Gunnars var nefnt í ýmiss kon-
ar erindrekstri á vegum samtak-
anna, var góðs manns getið. Í störf-
um sínum í stjórn þeirra lagði
Gunnar jafnan gott til mála, og fé-
lagsskapurinn allur naut góðs af
skarpri greind hans við útlistun og
lausnir oft erfiðra mála.
Nú, þegar komið er að leiðarlok-
um, er okkur og stjórn samtakanna
ljúft að þakka Gunnari ánægjulega
samfylgd, um leið og við tjáum sökn-
uð eftir góðum félaga. Fjölskyldu
hans vottum við dýpstu samúð.
Ingvi Þorsteinsson,
Björn Guðbrandur Jónsson.
Fleiri minningargreinar
um Gunnar G. Schram bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga. Höfundar eru: Golfklúbbur-
inn Dalbúar, Ásta Edda og Hinrik
og Þorgeir Örlygsson
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR JÓHANN SIGURJÓNSSON,
Gránufélagsgötu 41,
Akureyri,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
laugardaginn 28. ágúst sl., verður jarðsunginn
frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 8. septem-
ber kl. 13.30.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim,
sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar.
Sigurlaug Þ. Gunnarsdóttir, Trausti Jóhannsson,
Tryggvi Gunnarsson, Gunnar J. Gunnarsson,
Sigríður D. Gunnarsdóttir, Gunnhildur H. Gunnarsdóttir,
Sigurjón Gunnarsson, Elín Harðardóttir,
Tómas Gunnarsson, Kristina Pere,
barnabörn og barnabarnabörn.
Erfidrykkjur
Heimalöguð kaffihlaðborð
Grand Hótel Reykjavík
Sími 514 8000
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
VILHJÁLMUR S. V. SIGURJÓNSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 8. september kl. 10.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Erla Bergmann Danelíusdóttir,
Sverrir Bergmann, Soffía Guðmundsdóttir,
Heimir Bergmann,
Bragi V. Bergmann, Ingibjörg S. Ingimundardóttir,
Guðrún Bergmann, Kolbeinn Reynisson,
Pálmi Bergmann, Guðrún Linda Jónsdóttir,
Bjarni V. Bergmann, Guðrún María Helgadóttir,
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, Aldís Tryggvadóttir,
Vilhelmína S. Vilhjálmsdóttir,
afa- og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR EGILSDÓTTIR,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 30. ágúst sl.,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 9. september kl. 13.30.
Una O. Guðmundsdóttir, Þórir Skúlason,
Erling R. Guðmundsson, Vilhelmína Ísaksen,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
KORMÁKUR INGVARSSON
fyrrum bóndi á Sólheimum
í Hrunamannahreppi,
er lést þriðjudaginn 24. ágúst sl., verður jarð-
sunginn miðvikudaginn 8. september.
Útför hans fer fram frá Hrunakirkju kl. 14.00.
Sólveig Erla Brynjólfsdóttir,
Jóhann B. Kormáksson, Esther Guðjónsdóttir,
Erla Jóhannsdóttir,
Guðjón Jóhannsson,
Ingvar Jóhannsson.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR JÓNSSON
frá Katanesi,
Skarðsbraut 19,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn
1. september.
Jarðarförin fer fram frá Hallgrímskirkju í
Saurbæ föstudaginn 10. september kl. 14.00.
Jóna Guðrún Ólafsdóttir, Jóhann Norðfjörð,
Jón Ólafur Ólafsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Erla Ólafsdóttir, Gísli Eiríksson,
Sverrir Haraldsson,
barnabörn og langafabörn.
Okkar ástkæra,
ÓLÖF JÓNA BJÖRNSDÓTTIR,
Ásvallagötu 65,
Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landakotsspítala laugardaginn 4. september.
Stjúpbörn og systkinabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
DÓRA GUÐBJARTSDÓTTIR,
Aragötu 13,
andaðist á Landspítala Fossvogi föstudaginn 3. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kristrún Ólafsdóttir, Einar G. Pétursson,
Dóra Ólafsdóttir,
Ólafur Jóhannes Einarsson, Laurence van Wymeersch,
Guðbjartur Jón Einarsson.
Eiginmaður minn og faðir,
MOHAMMAD MARINO KHALIFEH,
lést á King Hussein Cancer Center í Amman, Jórdaníu, laugardaginn
4. september. Útförin hefur farið fram.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Stefanía Reinhardsdóttir,
Arnar Kais Khalifeh.
Eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir og
tengdadóttir,
SIGRÚN JÓNSDÓTTIR,
Aðalgötu 14,
Stykkishólmi,
sem lést á Landspítalanum sunnudaginn
5. september, verður jarðsungin frá Stykkis-
hólmskirkju laugardaginn 11. september
kl. 15.00.
Hólmgeir Sturla Þórsteinsson,
Margrét Hólmgeirsdóttir,
Jón Glúmur Hólmgeirsson,
Þórhildur Hólmgeirsdóttir,
Jón Aðalsteinn Baldvinsson, Margrét Sigtryggsdóttir,
Ragnar Þór Jónsson, Róshildur Jónsdóttir,
Þórsteinn Glúmsson, Aðalbjörg Pálsdóttir.