Morgunblaðið - 07.09.2004, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8, og 10.20.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.20. b.i. 12 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 Ísl tal.
ÁLFABAKKI
kl. 8 B.i 14 ára.
KRINGLAN
10. B.i 14 ára.
Þeir hefðu átt að láta hann í
friði.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP
KL. 3.30, 5.40, 8 OG 10.20.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára.
S.V. Mbl.
HP. Kvikmyndir.com
S.V. Mbl.
HP. Kvikmyndir.com
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. b.i. 14 ára
Kemur steiktasta grínmynd ársins
SÝNIÐ ALDREI SLÆMA LITINN
ÞVÍ ÞAÐ VEKUR ATHYGLI ÞEIRRA.
I I I I
Í I I .
G.E.
Ísland í bítið/Stöð 2
Kvikmyndir.com
S.K., Skonrokk
Ó.H.T Rás 3.
Ó.H.T Rás 3.
2 dagar eftir
STÓRSKEMMTILEG
Ó.H.T Rás 2
O.O.H. DV
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 5.40.
S.V. Mbl
Ó.Ó.H. DV
NÝJASTA plata Bjarkar Guðmunds-
dóttur, Medúlla, er í níunda sæti
breska vinsældalistans sem gildir
frá og með morgundeginum, en
hann endurspeglar sölu platna í
Bretlandi í nýliðinni viku. Er það
fyrsta heila söluvikan sem Medúlla
hefur fengist í breskum plötubúðum.
Í efsta sæti listans fór plata
Libertines með sama nafni en hún er
einnig nýkomin út og í sinni fyrstu
viku á listanum. Í öðru sæti er platan
Songs About Jane með Maroon 5 en
hún var einnig í öðru sæti í síðustu
viku.
Í þriðja sæti er Hopes and Fears
með Keane, sama sæti og síðast, en
plata Prodigy, Always outnumbered
never outgunned, er fallin úr efsta
sæti í það fjórða. Í fimmta sæti er
plata Anastasia með sama nafni,
lækkar um eitt sæti.
Scissor Sisters með samnefnda
plötu eru í sjötta sæti, einu neðar en
fyrir viku. Í sjöunda sæti er platan A
Grand Dont Come For Free með
Streets, sama sæti og síðast, og í því
áttunda er Final Straw með Snow
Patrol, hefur fallið um tvö sæti.
Medúlla er svo í níunda sæti sem
fyrr segir og í því 10. er önnur ný
plata, High með Blue Nile.
Tónlist | Plata Bjarkar selst vel
Í 9. sæti í
Bretlandi
SÖNGSVEITIN Nylon eru staddar í
Lundúnum við upptökur í einka-
stúdíói Nigels Wright.
Wright er velkunnur upptöku-
stjóri þar ytra og hefur hann unnið
náið með Friðriki Karlssyni síðast-
liðin ár. Wright hefur m.a. unnið
með Madonnu að tónlistinni fyrir
kvikmyndina Evitu en aðrir sem
hann hefur stýrt upptökum fyrir í
hljóðveri sínu eru m.a. Barbara
Streisand, Ronan Keiting, Sir Cliff
Richards og Boyzone.
Nigel Wright er mjög eftirsóttur
útsetjari á söngleikjatónlist fyrir
West End. Þá er hann tónlistar-
stjóri Idol-þáttanna í Englandi og
Bandaríkjunum. Hann hefur tvisv-
ar verið tilnefndur til Grammy-
verðlaunanna og einu sinni til Ósk-
arsverðlauna, en það var fyrir tón-
listina í kvikmyndinni Evitu.
För stúlknanna er lokahnykkur í
upptökum á væntanlegri breiðskífu
Nylon sem Skífan gefur út í haust.
Stelpurnar verða í London fram á
miðvikudag og verða við upptökur
allan tímann.
Tónlist | Söngsveitin
Nylon í London
Þetta eru spennandi tímar fyrir
stelpurnar í Nylon.
Í fótspor
Madonnu
Á ÞESSU herrans ári 2004 þegar
aldrei hafa fleiri erlendar hljóm-
sveitir og söngvarar sótt Ísland heim
og leikið á stórtónleikum fyrir lands-
menn, eru sumir á að einna kærkom-
nasta heimsóknin hafi komið frá Ír-
landi. Að litlir og látlausir sóló-
tónleikar sem írska söngvaskáldið
Damiens Rice hélt á Nasa 19. mars
hafi verið með þeim magnaðri sem
haldnir hafa verið hér á landi í háa
herrans tíð og þeir hafi jafnvel slegið
út fyrirferðarmeiri og athyglisfrekari
tónleika með frægari stjörnum. Eft-
irvæntingin fyrir tónleikana var líka
mikil. Miðarnir seldust upp á einum
degi og komust mun færri að en vildu.
Þeir sem misstu þá af Rice, og hinir
sem ekkert þrá heitar en að upplifa
aðra tónleika með honum, ættu því að
kætast yfir þeim tíðindum að hann
hefur nú í hyggju að halda hér sína
aðra tónleika á árinu, enn og aftur á
Nasa, fimmtudaginn 23. september.
Núna kemur Lisa með
„Ég fékk bara frá honum SMS-
farsímaskilaboð þar sem hann spurði
hvort hann mætti ekki koma aftur,“
segir Kári Sturluson tónleikahaldari,
sem einnig stóð ásamt Birni Stein-
bekk fyrir komu hans í mars. „Ég
svaraði auðvitað um hæl að það væri
ekkert mál og þá spurði hann hvort
Lisa mætti ekki vera með í för að
þessu sinni. Og auðvitað var það auð-
sótt mál.“
Lisa þessi er Hannigan, er í hljóm-
sveit Rice og syngur með honum í
nokkrum lögum á plötunni margróm-
uðu O, en hún leikur einnig á selló og
gítar. Hún mun leika með honum á
tónleikunum á Nasa, en á síðustu tón-
leikum lék Rice einn síns liðs á kassa-
gítar og söng.
Platan O hefur selst mjög vel hér á
landi og var víða á lista yfir bestu
plötur fyrir síðasta ár.
Leið svo vel eftir
síðustu heimsókn
„Ég get sagt þér að mér leið svo vel
eftir að hafa verið á Íslandi. Endur-
nærðist. Svo ég varð bara að koma
aftur,“ segir Rice í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær.
„Þetta var bara ein af þessum ferð-
um sem lánaðist fullkomlega. Ég hef
aldrei fengið alúðlegri og persónu-
legri viðtökur frá nokkrum tónleika-
höldum. Ég heillaðist af landi og þjóð.
Hvað allt var afslappað og óþvingað.
Bláa lónið sló mig svo algjörlega út af
laginu og ég naut hverrar mínútu þar.
Svo ekki sé nú talað um sjálfa tón-
leikana sem eru mér sérstaklega
minnisstæðir.“
Rice segist hafa verið bara núna
fyrir helgi að rifja Íslandsförina enn
eina ferðina upp fyrir félögum sínum,
þ.á m. Lisu og þá hafi þau fengið þá
snilldarhugmynd að skella sér bara.
„Ég var alveg búinn að gera hana óða
og hún hreinlega varð að koma og sjá
þetta sjálf. Þá SMS-aði ég bara til
Kára og við gengum frá þessu.“
Rice á strangt til tekið að vera í fríi
um þessar mundir, og það kærkomnu
fríi, eftir að hafa dembt sér beint í
plötugerð um leið og langri og
strangri tónleikaferð lauk í haust.
„Við vorum komin á fullt í plötu-
gerðina og ég hafði einsett mér að
vera tilbúinn með plötu í febrúar á
næsta ári, en þá eru nákvæmlega 3 ár
síðan O kom út á Írlandi. En svo allt í
einu fór ég gjörsamlega yfir um á öll-
um þessum æðibunugangi. Það rann
upp fyrir mér hversu mikið rugl það
var að vera að flýta sér svona mikið,
bara til að ná einhverju tilbúnu
marki. Því sló ég allt af, setti plötu-
gerðina á bið og fór í frí.“
En hverskonar frí er það að spila
síðan út um allar jarðir, og meira að
segja þvælast norður yfir Atlantshaf?
„Umboðsmaðurinn minn spurði
mig líka gáttaður sömu spurningar.
Og ég svara þér á sama veg: Ég lít á
það sem hluta af mínu fríi að koma til
Íslands og spila. Ég hef aldrei litið á
það sem vinnu að heimsækja staði
sem mér líkar við og leika fyrir fólk
sem mér líkar við. Það eru forrétt-
indi, ein af mínum lífsnautnum.“
Rice segir að tónleikarnir 23. sept-
ember verði vissulega svolítið frá-
brugðnir hinum fyrri, vegna þess að
nú muni hann njóta fulltingis Lisu.
„Lagavalið er svolítið annað þegar
hún er með mér. Hún kemur með
eitthvað alveg sérstakt, bæði sem
söngvari og hljóðfæraleikari. Svo hef-
ur hún líka svo sterka nærveru.“
Aðspurður segist Rice frjálsari
þegar hann er einn á sviði, en með
Lisu séu sköpunarkrafturinn á hinn
bóginn mun meiri. Rice bætir við að
tónleikagestir megi alveg búast við að
heyra einhver ný lög, en hann leggi
það annars ekki í vana sinn að ákveða
með löngum fyrirvara hvað hann ætli
að spila. „Mér finnst best að spila
þetta af fingrum fram.“
Tónleikar | Damien Rice heldur sína aðra tónleika á árinu á Nasa
Morgunblaðið/Sverrir
Damien Rice á sviðinu á Nasa 19. mars 2004 þar sem hann lék á als oddi.
Sendi SMS og bað
um að fá að spila
Tónleikar Damiens Rice verða á
Nasa fimmtudaginn 23. september.
Miðasala hefst í Skífunni Laugavegi
26 laugardaginn 18. september kl.
10. Miðaverð er 2.900 kr.
skarpi@mbl.is