Morgunblaðið - 13.09.2004, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 C 17
F
A
S
T
E
IG
N
A
M
A
R
K
A
Ð
U
R
IN
N
SUMARBÚSTAÐIR
SÉRBÝLI
ATVINNUHÚSNÆÐI
HÆÐIR
Ásvallagata - efri hæð m.
bílsk. Mjög falleg og þó nokkuð endur-
nýjuð 147 fm efri hæð í þríbýli auk 33 fm
bílskúrs á þessum eftirsótta stað. Hæðin
skiptist í rúmgóða setustofu með fallegum
frönskum gluggum, borðstofu, eldhús m.
fallegum uppgerðum innrétt. og nýlegum
tækjum, 3 herb., og nýlega endurnýjað
flísalagt baðherb. Nýlegur linoleumdúkur á
allri íbúðinni. Sér þvottaherb. í kj. Nýtt þak
á bílskúr. Verð 28,0 millj.
4RA-6 HERB.
Ljósheimar. Falleg og talsvert endur-
nýjuð 96 fm 4ra herb. íbúð á 3. hæð í end-
urn. lyftuhúsi. Björt og rúmgóð stofa, eld-
hús m. borðaðst., 3 herb. og nýlega endur-
bætt baðherb. Parket og flísar á gólfum.
Svalir í vestur og suðvestur. Sér geymsla í
kj. Verð 15,5 millj.
Kórsalir - Kóp. Mjög falleg og vel
skipulögð 128 fm útsýnisíbúð á 2. hæð.
Eignin skiptist m.a. í forstofu, þvottaherb.,
3 parketl. herb., flísal. baðherb., flísal. eld-
hús og parketl. stofu með útsýni til suðurs
og vesturs. Suður svalir útaf stofu. Sér
geymsla í kj. og sér stæði í bílageymslu.
Verð 19,9 millj.
Háaleitisbraut. Falleg og rúmgóð
131 fm 5 herb. íbúð á 4. hæð. Íbúðin skipt-
ist m.a. í parketl. sjónvarpshol, eldhús m.
góðri borðaðst., bjarta parketl. stofu, og 3
parketl. herb., öll m. skápum. Baðherb.
hefur allt verið endurnýjað og er flísalagt í
hólf og gólf. Þvottahús og búr innaf eld-
húsi. Sér geymsla í kj. Verð 17,5 millj.
Skúlagata. Glæsileg og björt 112 fm
3ja - 4ra herb. endaíbúð á 3. hæð auk 7,7
fm sér geymslu í kjallara og sér stæðis í
bílageymslu. Stórar saml. stofur, opið eld-
hús m. innrétt. úr ljósum kirsuberjaviði, 2
herb. og baðherbergi m. þvottaaðstöðu.
Flísalagðar svalir til suðurs. Gluggar í þrjár
áttir. Mikið útsýni út á sundin. Verð 24,9
millj.
Eiðistorg - Seltj. m. aukaíbúð
Falleg og björt 142 fm íbúð á tveimur efstu
hæðum. Stór stofa m. mikilli lofthæð,
borðst. m. útg. á stóra verönd, eldhús, 3
herb. og baðherb. Svalir út af hjónaherb.
Auk þess fylgir 52 fm sér íbúð á neðstu
hæðinni sem er í útleigu. Parket og flísar á
gólfum. Gríðarlegt útsýni yfir borgina, fjöllin
og til sjávar. Tvennar svalir. Hús nýviðgert
að utan. Verð 21,5 millj.
Hvassaleiti - m. bílskúr. 95 fm
4ra herb. íbúð á 4. hæð auk 21 fm bílskúr.
Íb. skiptist m.a. í eldhús m. borðaðst., stóra
parketl. stofu, 3 svefnherb., öll með skáp-
um og baðherb. Vestursvalir, mikið útsýni.
Geymsla og þvottaaðst. innan íbúðar auk
sér geymslu í kj. Hús í góðu ástandi að ut-
an, klætt að hluta. Áhv. 1,4 millj. Verð 14,9
millj.
Skúlagata. Stórglæsileg 120 fm 4ra
herb. íbúð á 2. hæð auk 11 fm geymslu á
jarðhæð í nýlega endurbyggðu húsi í mið-
borginni. Glæsilegt eldhús m. vönd. tækj-
um, stór stofa auk íb. með sérinng. Á neðri
hæð eru stór stofa með innrétt. og massívt
parket á gólfum. góð lofthæð. Suðursvalir.
þvottaherb. í íbúð. Hlutdeild í sameiginl. 55
fm verönd. Áhv. húsbr. 8,9 millj. Verð 21,9
millj.
Skipholt - laus strax. Falleg
og vel skipulögð 103 fm 4ra - 5 herb.
íbúð á 4. hæð auk 8,6 fm sér herb. í kj.
m. aðgangi að w.c. og sér geymslu.
Stórt eldhús m. góðri borðaðst., parketl.
stofa, 3 - 4 herb. og flísal. baðherb. sem
er allt endurnýjað. Verð 14,2 millj.
Eirhöfði. 1.150 fm iðnaðarhúsnæði
á þremur hæðum sem er sérhannað
undir matvælaiðnað, en býður upp á
mikla möguleika hvað varðar notkun. Á
aðalhæð eru vörumóttaka, vinnslusal-
ur, skrifstofur o.fl., á jarðhæð eru 4
rými með innkeyrsludyrum og góðri
lofthæð og á efri hæð eru skrifstofur
o.fl. Húseign í góðu ástandi. Aðkoma
með besta móti, malbikað plan beggja
vegna hússins og fjöldi bílastæða.
Austurströnd - Seltj. Mjög
gott 166 fm verslunar- og skrifstofuhús-
næði á 1. hæð. Anddyri, móttaka, stór
skrifstofa, stórt opið rými með vinnu-
aðst. fyrir 4 -5 manns, eldhús, w.c. auk
lagerrýmis og gluggal. herb. Parket og
flísar á gólfum. Verð 15,2 millj.
3JA HERB.
Hrísmóar - Gbæ. Falleg og mikið
endurnýjuð 69 fm íbúð 2. hæð. Íbúðin skipt-
ist Ì forstofu, baðherb. flísal. í hólf og gólf, 2
herb., bjarta stofu m. þtg. á stórar suður-
svalir og opið eldhús m. glæsilegri innrétt.
og vönduðum tækjum. Parket og flísar á
gólfum. Stutt í alla þjónustu. Verð 12,9 millj.
Leifsgata. Mjög falleg og mikið endurn.
91 fm. Ìbúð á 2. hæð í góðu steinhýsi ásamt
31 fm. bílskúr. Björt stofa, 2 rúmgóð herb.,
endurn. flísal. baðherb. og rúmgott eldhús
m. borðstofu innaf. Nýtt gler í gluggum. Sér-
bílastæði á íbúð. Áhv. 8,3 millj. Verð 17,5
millj.
Laugavegur. Stórglæsileg 101 fm íbúð
á 3. hæð ásamt um 65 fm hellul.
svölum/þakgarði til suðurs. Stór stofa, 2
herb., rúmgott eldhús m. nýjum innrétt. og
tækjum, vandað flísal. baðherb. Mikil loft-
hæð í íbúðinni og gifslistar í loftum. Sér
geymsla í kj. Hús nánast algjörlega endur-
nýjað. Laus strax. Verð 24,9 millj.
Háteigsvegur. Falleg 87 fm íbúð í
kjallara með sérinng. í fjórbýli. Eldhús m.
uppgerðum innrétt. og borðaðst., rúmgóð
parketl. stofa m. síðum fallegum gluggum, 2
herb. og flÌsal. baðherbergi. Sér bílastæði ·
íbúð. Verð 13,9 millj.
2JA HERB.
Miklabraut. Mjög falleg 61 fm íbúð á
1. hæð ásamt herb. í risi með aðgangi að
w.c. Björt stofa og rúmgott herb. Gler nýtt
að mestu og rafmagnsl. nýjar. Sér geymsla í
kj. Verð 11,5 millj.
Hringbraut. Falleg 71 fm íbúð 2.
hæð auk 10,6 fm sér geymslu. Tvær
rúmgóðar og bjartar stofur m. útg. á
svalir, rúmgott herb. m. skápum, eldhús
m. eldri uppgerðri innrétt. og baðherb.
Áhv. húsbr. 5,1 millj. Verð 11,3 millj.
Tómasarhagi - sérinng.
Mikið endurnýjuð 71 fm íbúð í kj. m. sér-
inng. auk sér geymslu. Rúmgott eldhús
m. nýl. ljósum innrétt. og góðri borð-
aðst., 2 herb., björt stofa og flísal. end-
urn. baðherb. Parket og flísar á gólfum.
Gler og gluggar nýlegt. Áhv. húsbr. 7,1
millj. Verð 12,9 millj.
Seljavegur. Góð 3ja herb. risíbúð í
þríbýli. Verð 11,0 millj. Brunab.mat 8,4
millj.
Furugrund - Kóp. Góð 76 fm
íbúð á efri hæð í tveggja hæða húsi
ásamt 9,3 fm. herb. Ì kjallara með að-
gangi að w.c. á hæðinni er forstofa, eld-
hús m. nýlegri innréttingu og borðaðst.,
rúmgóð stofa m. þtg. á svalir, 2 herb.,
og flísal. baðherb. Útsýni yfir Fossvogs-
dalinn. Hús nýmálað að utan. Verð 13,5
millj.
Austurströnd - Seltj. Falleg 80
fm íbúð á 7. hæð ásamt stæði í bílskýli í
nýlega endurnýjuð fjölbýli. Björt stofa
m. útg. á flísal. svalir, 2 herb., bæði með
skápum, eldhús og flísal. baðherb. Sam.
þvottaherb. á hæð og sér geymsla í kj.
Verð 14,2 millj.
Bogahlíð. Falleg 102 fm 4ra herb.
íbúð á 2. hæð ásamt 15 fm sér geymslu
í kj. Eldhús m. eldri innrétt., rúmgóð og
björt stofa, sjónvarpshol, 3 herb. og flís-
al. baðherb. Parket og flísar á gólfum.
Suðursvalir. Áhv. húsbr. 8,6 millj. Laus
fljótlega. Verð 16,2 millj.
Laugavegur Afar glæsilegt og
mjög vel staðsett 720 fm verslunarhús-
næði á horni Laugavegar og Smiðju-
stígs með mikilli lofthæð og góðum
gluggum ásamt lagerrými í kjallara.
Húsnæðið er í dag nýtt í tvennu lagi en
auðvelt að sameina í einn eignarhluta.
Laust til afhendingar mjög fljótlega.
Vesturvör - Kóp. 420 fm at-
vinnuhúsnæði ásamt 30 fm millilofti við
Vesturvör í Kópavogi. Möguleiki á að
breyta húsnæðinu í íbúðir. Teikningar og
allar nánari uppl. veittar á skrifstofu.
VERÐ TILBOÐ.
Lyngás - Gbæ. Til sölu 918 fm
iðnaðarhúsnæði við Lyngás með mal-
bikuðu aflokuðu porti. Hagstætt verð,
góð greiðslukjör. Allar nánari upplýsing-
ar veittar á skrifstofu.
Dalvegur - Kóp. Mjög vel skipu-
lagt, fallegt og bjart iðnaðar-og skrif-
stofuhúsnæði á tveimur hæðum með
sérinngangi, góðri aðkomu og miklum
bílastæðum. Neðri hæð hússins sem er
með góðum innkeyrsludyrum og mikilli
lofthæð er 147 fm. auk ca. 50 fm milli-
lofts. Efri hæð hússins er 85 fm. og er
fallega innréttuð sem skrifstofur. Verð
25,5 millj.
SÉRBÝLI ÓSKAST
Á SELTJARNARNESI
Óskum eftir góð sérbýli á Seltjarnarnesi fyrir traustan kaupanda.
SUMABÚSTAÐUR ÓSKAST
Óskum eftir vönduðum sumarbústað við Þingvallavatn
eða nýlegum bústað við Skorradalsvatn.
2JA-3JA HERB. ÍBÚÐIR
ÓSKAST Í MIÐBORGINNI
Kelduland. 48 fm íbúð á 1.hæð
ásamt 4,4 fm geymslu Ì fjˆlbýli Ì Foss-
vogi. Sér íbúð fyrir framan íbúð. Laus
strax. Verð 9,8 millj.
Nókkvavogur. 58 fm íbúð · 1.hæð
auk 12 fm sér íbúðarherb. Ì kj. Ób. skiptist
íforst., stórt herb. m. góðum skápum, bað-
herb., stofu og eldhús m. borðaðst. auk
geymslu. Flísar á gólfum. Laus strax. Áhv.
húsbr. Verð 11,3 millj.
Austurströnd - Seltjarnarnesi
Hárgreiðslustofa í eigin húsnæði við
Austurströnd með góðum gluggum
með miklu auglýsingagildi. Húsnæðið er
63 fm og skiptist í stórt opið rými auk
kaffistofu og w.c. Hús nýlega viðgert og
málað að utan. Næg bílastæði. Verð á
húsnæði 9,9 millj. og rekstur 3,0 millj.
Nánari uppl. veittar á skrifst.
ER UPPSELT?
Reyndar ekki, en vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur
tilfinnanlega 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir víðsvegar á höfuð-
borgarsvæðinu sem og annarra gerða og stærða eigna.
Ánanaust
Virðulegt skrifstofu- og verslunarhús.
Húsið er á þremur hæðum samtals að
gólffleti 1817 fm. Innréttingar og
sameign í góðu ásigkomulagi. Góð
aðkoma og næg bílastæði. Útsýni yfir
Faxaflóann. Húsnæðið er að mestu leyti
laust nú þegar. Heimild fyrir byggingu
einnar hæðar ofan á húsið. Möguleiki
að breyta húsnæðinu í íbúðir. Allar
nánari uppl. veittar á skrifstofu.
Kringlan-skrifst./þjónustuhúsnæði
TIL SÖLU EÐA LEIGU
797 fm skrifstofu-, þjónustuhúsnæði á
tveimur hæðum auk 347 fm kjallara í
nýlegu og vönduðu 16 hæða verslunar-
og skrifstofuhúsi. Húsnæðið er innrétt-
að á afar vandaðan og smekklegan
hátt. Lyftur eru í húsinu. Bílageymsla
undir húsinu og fjöldi malbikaðra bíla-
stæða við húsið. Nánari uppl. veittar á
skrifstofu.
Hlíðasmári - Kópavogi skrifstofuhúsn.
Vel innréttað 369 fm skrifstofuhúsnæði á 3. hæð í nýlegu húsi við Hlíðasmára.
Frábært útsýni. Vel staðsett við fjölfarna umferðaræð. Laust nú þegar. Nánari
uppl. á skrifstofu.
Ingólfsstræti
Mjög glæsilegt 324 fm húsnæði á jarðhæð og í kjallara í góðu og reisulegu stein-
húsi í miðborginni. Jarðhæðin sem er 210 fm er með um 5 metra lofthæð og er að
mestu leyti opið rými auk w.c. Kjallarinn er 114 fm með um 3 metra lofthæð. Ný-
legt gler í gluggum og nýlegt rafmagn. Nánari uppl. á skrifstofu.
GREIÐSLUBYRÐI einstaklings
sem tók 25 ára jafngreiðslulán hjá
Íbúðalánasjóði árið 1994 með 5,1%
vöxtum og hefur greitt af því í 10 ár
en ákveður að endurfjármagna það
með 15 ára jafngreiðsluláni með 4,4%
hjá einhverjum viðskiptabankanna,
myndi einfaldlega minnka sem nem-
ur muninum á 4,4% og 5,1% vöxtum.
Eignamyndunin yrði nákvæmlega sú
sama að öðru leyti en því að hún er
aðeins öðruvísi í lægri vöxtum en
hærri.
Þetta segir Sigurður Geirsson, yf-
irmaður fjárstýringarsviðs Íbúða-
lánasjóðs, en bendir jafnframt á að al-
gengara sé að fólk lengi í lánum með
endurfjármögnun.
Lítið unnið með lengingu
lána úr 25 árum í 40 ár
„Þegar menn lengja í lánum, hvort
heldur sem er með lægri vöxtum eða
ekki, eru menn yfirleitt að lækka
greiðslubyrðina, hversu mikið fer eft-
ir því hvað menn hafa greitt lengi af
láninu. Þumalputtareglan er sú að ef
eftir á að greiða af láninu í 25 ár eða
lengur ávinna menn ekki neitt að ráði
með lengingu. Það er afskaplega lítið
sem lenging lánstíma umfram 25 ára
skilar í lægri greiðslubyrði. Ef við
tökum t.d. muninn á 25 ára og 40 ára
lánum í húsbréfunum þá munaði eitt
þúsund krónum í greiðslubyrði á
mánuði af hverri milljón og ekki mun-
ar nema 500 krónum á núverandi 30
og 40 ára lánum. En það skilar mönn-
um ákaflega miklu í heildarkostnaði
við lánið þegar upp er staðið.“
Sigurður segir að þegar fólk sé að
hugsa um lengingu lána sé mikilvægt
að það geri sér grein fyrir að þótt það
þýði lægri greiðslubyrði í dag þá þýði
það hærri heildarkostnað af láninu. Í
flestum tilvikum sé það þannig að
þegar fólk líti á það hvernig það er
statt eftir að það er búið að borga
nýja lánið þá sé það í sumum tilvikum
töluvert verr sett eignarlega en ef
það hefði borgað af upphaflega lán-
inu. „Þetta er atriði sem hver og einn
fyrir sig þarf að skoða og hvað þetta
þýði. Það er full ástæða til þess að
hvetja fólk til þess að skoða þetta
mjög vandlega.“
Nauðsynlegt að taka mið af
aðstæðum hvers lántakanda
Sigurður bendir þó á að fyrir
marga sé greiðslubyrðin í dag það
mikil að þó svo þeir taki á sig aukinn
kostnað í framtíð sé það mikið áunnið
með að lækka greiðslubyrðina í dag
og menn myndu segja við fólkið að
fara þá leið, hún sé að vísu dýrari þeg-
ar upp er staðið en létti mönnum lífið
núna. „Við aðra myndi maður hins
vegar segja: vertu frekar aðeins
klemmdur í dag en svo betur settur á
morgun,“ segir Sigurður.
Aðspurður segir Sigurður að þegar
menn hafi greitt af 25 ára jafn-
greiðsluláni í tiltölulega fá ár og
ákveði síðan að endurfjármagna með
öðru 25 ára láni og lengja um leið
lánstímann verði eignamyndunin
vissulega tiltölulega lítil vegna eðlis
lánanna. Þannig bendir hann á að
þegar einstaklingur greiðir í fyrsta
sinn af 25 ára jafngreiðsluláni með
föstum 4,4% vöxtum skiptist greiðsl-
an þannig að um það bil 34% fari í
greiðslu af höfuðstól en hitt fari í
greiðslu vaxta ef menn gefi sér fast
verðlag. Þetta hlutfall hækki síðan
hægt og rólega og eftir níu til tíu ár
gangi um helmingur af afborguninni
til lækkunar höfuðstóls og helmingur
fari í vaxtagreiðslu. Séu vextirnir
5,1% gerist þetta eftir um ellefu ár.
„Þetta eru atriði sem fólk þarf að
huga að þegar það tekur ákvörðun í
þessum efnum. Fyrir suma er það al-
veg tvímælalaust gagnlegt að fá
möguleika á skuldbreytingu enda
höfum við hjá Íbúðalánsjóði boðið
upp á slíkt með lengingu núverandi
lána. Yfirleitt er það þó þannig að
lenging bjargar ekki miklu ef enn á
eftir að greiða af láninu í 25 ár eða
lengur,“ segir Sigurður.
Endurfjármögnun
vegna íbúðakaupa
Nauðsynlegt
að skoða alla
þætti vand-
lega