Morgunblaðið - 13.09.2004, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 C 39
JAFNGREIÐSLULÁN eða öðru
nafni annuitetslán bankanna og
Íbúðalánasjóðs eru þess eðlis að
samtala vaxta og afborgana er allt-
af sú sama áður en tekið er tillit til
verðbóta. Það myndi þýða að lán-
takandinn greiddi alltaf sömu upp-
hæð af láninu í hverjum mánuði ef
verðbólga væri engin en upphæðin
hækkar yfir lánstímann í takt við
verðbreytingar. Á móti vegur þá
að laun lántakandans hækka að
öllu jöfnu í takt við verðbreyting-
arnar eða gott betur.
Í fyrstu er hver mánaðar-
greiðsla að stórum hluta vextir og
einungis að litlum hluta afborgun
en undir lok lánstímans snýst
þetta síðan við. Einstaklingur sem
tekur jafngreiðslulán upp á átta
milljónir króna til 25 ára að gef-
inni 2,5% verðbólgu á ári greiðir
þannig á fyrsta ári um 46 þúsund
krónur af láninu, þar af er greiðsla
vaxta um 30 þúsund en afborgun
af höfuðstól lánsins aðeins liðlega
15 þúsund. Eftir tólf ár greiðir
þessi sami einstaklingur liðlega 61
þúsund, þar af væri afborgun af
höfuðstól um 34.500 krónur og
vaxtagreiðsla um 26.600. Á 22.
öðru ári væri heildargreiðslan á
mánuði liðlega 78 þúsund, afborg-
un af höfuðstól tæplega 69 þúsund
og vaxtagreiðslan orðin innan við
tíu þúsund krónur.
Heildarvaxtagreiðslan veltur
bæði á vöxtum og lánstíma og
þannig er greiðslan af hverri millj-
ón hjá Íbúðalánasjóði miðað við
4,5% vexti (ekki er gert ráð fyrir
verðbólgu) 518 þúsund ef lánið er
til 20 ára, 824 þúsund ef það er til
30 ára og 1.158 þúsund ef það er
til 40 ára.
Jafngreiðslu- eða annuitetslán
Ármúla 15 • Sími 515 0500 • Fax 515 0509 • www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.Sími 515 0500 www.fasteignakaup.is
Sandra Guð-
mundsdóttir
lögg. fastsali
Þorbjörn
Pálsson
Sigríður
Sigmundsdóttir
Guðmundur
Valtýsson
Björgvin
Ibsen
Páll
Höskuldsson
Sveinn
Skúlason
Erna
Valsdóttir
Sigríður
Birgisdóttir
2ja herbergja
Leirubakki - 109 Rvík
2ja herbergja, 71,3 m² íbúð á 1 hæð við
Leirubakka í Reykjavík. Stofa er rúmgóð
með útgengi út á vestursvalir. Hús hefur
verið klætt að utan. Verð 10,9 millj.
Miklabraut - 105 Rvík
Lítil og snotur 66 fm íbúð á 1. hæð ásamt
geymslu. Nýlegar flísar og parket á gólfum.
Mjög stórt svefnherbergi. Baðherbergi ný-
lega standsett með góðum sturtuklefa. Þre-
falt gler. Nýlegt rafmagn. Þvottahús í sam-
eign. Stutt í allar áttir og þjónustu. Sölufull-
trúar: Sirrý, s. 848-6071 og Þorbjörn, s.
898-1233
Skeiðarvogur - 104 Rvík
Skemmtileg og góð 55 fm 2ja herb. íbúð
með þvottahúsi og geymslu á jarðhæð í
raðhúsi á þessum friðsæla og góða stað í
Vogunum. Mjög stutt í alla þjónustu.
Grunnskóli/leikskóli/gæsluvöllur.
Kjörin fyrstu kaup.
Sölufulltrúar: Sirrý, s. 848-6071 og Þor-
björn, s. 898-1233
3ja herbergja
Krummahólar - 111 Rvík
Snyrtileg og góð 3ja herb. íbúð á 6. hæð
með frábæru útsýni í góðu lyftuhúsi með
góðum, löngum suðursvölum og stæði í
bílageymslu. Sérgeymsla á hæð. Sameigin-
legt þvottahús. Góður stigagangur. Frysti-
geymsla. Þrif og sorphirða innifalin í hús-
sjóði. Sölufulltúar: Sirrý, s. 848-6071 og Þor-
björn, s. 898-1233
Efstihjalli - 200 Kóp.
Skemmtileg og góð 79 fm 3ja herb. íbúð á
1. hæð með góðri geymslu í kjallara í þessu
vinsæla hverfi. Stofa með útgengi á suður-
svalir. Eldhús með góðu útsýni til norðurs.
Afgirt og skjólgóð suðurlóð. Mjög stutt í alla
þjónustu. Sölufulltrúar: Þorbjörn, s. 898-
1233 og Sirrý, s. 848-6071
Kóngsbakki - 109 R.
Góð 3ja herb. 87 fm íbúð á 1. hæð með
góðu eikarparketi á gólfum ásamt geymslu.
Útgengi úr eldhúsi á verönd og skemmti-
legan sérgarð til suðurs. Verið að standsetja
baðherbergi. Hús/sameign og lóð nýlega
standsett. Mjög skemmtilegt og barnvænt
umhverfi með góðum göngustígum í
grunnskóla/leikskóla/gæsluvöll og alla þjón-
ustu. Sölufulltrúar: Sirrý, s. 848-6071 og
Þorbjörn, s. 898-1233
Kjarrhólmi - 200 Kóp.
3ja herbergja 75,1 m² íbúð á 1. hæð við
Kjarrhólma í Kópavogi. Hér er um að ræða
eign á besta stað í Kópavogi. Verð 12,5
millj.
Vesturgata - 107 Rvík
3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð við Vestur-
götu. Eignin sem hefur verið mikið endur-
nýjuð er öll hin glæsilegasta og afar vönd-
uð í alla staði. Baðherbergi er með flísum í
hólf og gólf, sturtuklefi. Verð 16,5 millj.
Nönnugata - 101 Rvík
79,2 fm íbúð á þriðju hæð í góðu steinhúsi
í Þingholtunum. Hjónaherbergi er með
skápum og eikarparketi á gólfi. Baðherbergi
er snyrtilegt með flísum í hólf og gólf. Stofa
er með eikarperketi á gólfi. Svefnherbergi
eru með eikarparketi á gólfum. Hér er um
að ræða eign sem hefur verið nýlega tekin
og endurnýjuð að mestu. Gott útsýni er úr
íbúðinni. Nýtt rafmagn var dregið í íbúðina
á þessu ári að sögn eiganda. Verð 14,9
millj.
4ra herbergja
Arnarhraun - 220 Hf.
Höfum fengið til sölumeðferðar mjög rúm-
góða 4ra herhergja 144,7 m² íbúð á efstu
hæð með bílskúr á besta stað í Hafnarfirði.
Baðherbergi er nýlega standsett með flísum
í hólf og gólf. Verð 16,8 millj.
Engihjalli - 200 Kóp.
Rúmgóð 4-5 herbergja, 97,4 m² íbúð á 4.
hæð í lyftuhúsi við Engihjalla í Kópavogi.
Íbúðin getur verið laus við kaupsamning.
Verð 12,9 millj.
5 herbergja
Gullengi - 112 Rvík
5 herbergja, 115,1 m² falleg íbúð á efstu
hæð í litlu fjölbýli. Íbúðin skiptist í anddyri,
baðherbergi, þvottaherbergi, eldhús, stofu,
sjónvarpsherbergi, hjónaherbergi og tvö
svefnherbergi. Eldhúsinnrétting, allir skápar
og innhurðir eru úr kirsuberjavið. Gólfefni:
Flísar á anddyri, eldhúsi og baðbergi, dúkur
á svefnherbergjum og jatoba-parket á stofu
og sjónvarpsherbergi. Húsið lítur vel út og
var málað fyrir ári síðan. Bílskúrsréttur fylgir
íbúðinni. ÍBÚÐIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ
KAUPSAMNING. Verð 17,9 millj.
Stórglæsileg útsýnisíbúð í lyftuhúsi við
Barðastaði í Grafarvogi. Íbúðin var
byggð af Byggingarfélagi Gunnars og
Gylfa árið 2000 enda er frágangur allur
til fyrirmyndar. Í baðherbergi er flísalagt í
hólf og gólf, sturtuklefi og innréttingar.
Þvottaherbergi í íbúðinni. Á gólfum íbúð-
arinnar er ákaflega vandað, gegnheilt
parket úr Yberaro-viði. Hér er um ákaf-
lega vandaða eign að ræða með falleg-
um innréttingum, og hús er í góðu ásig-
komulagi. Bílskýli fylgir eigninni. Verð
19,4 millj.
Höfum ákveðna fjársterka kaupendur
að eftirfarandi eignum:
X Einbýlishús/hæð, ca 120 fm, og stór bílskúr.
Staðsetning ekki aðalatriði en stór bílskúr.
X Lítið raðhús eða 4ra herb. íbúð með eða án bílskúrs.
Staðsetning í póstnúmeri 110 - Áshverfi.
Önnur hverfi koma til greina.
X Þangbakki í Mjódd - 3ja herb. íbúð.
Góðar greiðslur. Rúmur afhendingartími.
X Seltjarnarnes - íbúðir og stærri eignir.
Sérstaklega 2ja til 3ja herb. íbúð með bílskýli.
Erum með langan kaupendalista fyrir íbúðir í Breiðholti.
Allar nánari upplýsingar veita sölufulltrúar Fasteignakaupa
Þorbjörn, sími 898 1233 og Sirrý, sími 848 6071.
Vantar/óskast
Norðlingaholt
Barðastaðir - 112 Rvík
Lækjarvað 2-14, 110 Reykjavík
Glæsileg hús í fallegu umhverfi
Um er að ræða íbúðir í tvíbýli og með annarri hverri íbúð
fylgir bílskúr. Hæðirnar eru við Lækjarvað 2-14. Raðhúsin
eru 7 talsins með tveimur íbúðum í hverju húsi og er sér-
inngangur í hverja íbúð. Húsin eru timburhús á steyptri
plötu, klædd að utan með álkæðningu og harðviðartimb-
urklæðningu úr sedrusviði. Íbúðum er skilað fullbúnum
bæði að utan og innan ásamt fullbúinni lóð með hita í
innkeyrslu, göngustíg að inngangi og tröppum. Húsin
verða afhent með sérlega vönduðum innréttingum og
eldhústækjum. Fyrstu íbúðirnar afhendast 1. nóvember
2004.
Verð 22,9 og 24,9 millj.
Arkitekt: Hallvarður Aspelund
Byggingaraðili: Flott hús ehf.
Allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fasteignakaupa
og á www.fasteignakaup.is
Atvinnuhúsnæði til leigu
Þingholtin:
100 fm skrifstofuhúsnæði.
25 fm skrifstofa með snyrtiaðstöðu.
Kvosin:
100 fm skrifstofuhúsnæði.
Garðabær:
1. 300 fm skrifstofu- og lagerhúsnæði.
2. 600 fm lager- og þjónustuhúsnæði, var áður
kjötvinnsla og er með frystigeymslum.
Upplýsingar veitir Styrmir í s. 899 9090 eða á net-
fanginu styrmir@kirkjuhvoll.com
Fasteignafélagið Kirkjuhvoll.