Morgunblaðið - 13.09.2004, Síða 42
42 C MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Víkurbraut 46, Grindavík
Sími 426 7711
Fax 426 7712
www.es.is
Eignamiðlun Suðurnesja
Vantar allar gerðir
eigna á skrá
Verðmetum
samdægurs
Höfum kaupanda að góðri
3ja herb. íbúð í Grindavík,
með eða án bílskúrs.
Sigurður V. Ragnarsson,
löggiltur fasteignasali
Snjólaug Jakobsdóttir,
sölumaður
Norðurvör 5, Grindavík
Gott 116,9 fm einbýlishús ásamt 37,1 fm
bílskúr. Á gangi er parket og stór skápur.
Á baði er hvít innrétting, baðkar, dúkur á
gólfi. Á herbergjum, stofu, borðstofu og
sjónvarpsholi er parket. Eldhúsinnrétting
hvít, lökkuð, parketdúkur, nýleg eldavél.
Hurðir málaðar gráar. Allir gluggar nýir,
franskir, nýir sólbekkir og gerefti. Varma-
skiptir á heitu vatn. Steyptur heitur pott-
ur. Verð 14.500.000.
Austurvegur 45 nh. Grindavík
Neðri hæð ásamt bílskúr. Íbúðin skiptist í
3 svefnherb. og stofu. Í eldhúsi er nýleg
innrétting og parketdúkur á gólfi. Á baði
eru veggir og gólf flísalagt og þar er ný-
leg innrétting. Búið er að endurnýja raf-
magn, holræsa- og vatnslagnir. Verð
9.000.000.
Vesturbraut 6, Grindavík
Einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er
149 fm ásamt 54 fm bílskúr. Hugguleg
eign sem var töluvert endurnýjuð á árun-
um 1998-2001 m.a. eldhús og baðherb.
Rúmgóð eign, mikið útsýni. Verð
16.200.000.
Blómsturvellir 10, Grindavík
Glæsilegt einbýlishús á góðum stað
ásamt bílskúr. Í eldhúsi er góð innrétting,
ofn, helluborð og háfur, parket á gólfi.
Skápar í öllum herb. holi og þvottaherb.
Arinn í sjónvarpsholi. Ljós innfelld í loft. Í
hluta bílskúrs er lítil íbúð með svefnherb.
og wc. Frábær staðsetning. Verð
19.800.000,-
Dalbraut 3 eh., Grindavík
Góð 4ra herb. 93,2 fm íbúð á 2. hæð í
tvíbýli, sérinngangur. Nýjar flísar á eld-
húsi, holi, þvottaherb. og baði. Gler og
gluggar voru teknir í gegn fyrir 6 árum.
Nýtt þak. Stærð íbúðarinnar kemur á
óvart og er gólfflötur stærri en segir til í
FMR.. Verð kr. 8.900.000.
Leynisbraut 6, Grindavík
Sérlega vandað og snyrtilegt einbýlis-
hús, ásamt bílskúr. Geymsla í bílskúr. 4
svefnherb. Í eldhúsi er nýleg innrétting.
Stór sólpallur á lóð sem er girt og rækt-
uð. Parket nýlega lakkað. Góður staður.
Verð 19.800.000.
Mánagata 9, Grindavík
Mjög gott 155,8 fm einbýlishús sem
skiptist í stofu, hol, þvottaherb. í kjallara
og 5 svefnherb. þar af 2 í kjallara. Bílskúr
er 37,2 fm. Góðar innréttingar. Nýtt
parket á stofu, holi, eldhúsi og svefn-
herb. gangi. Nýtt þak á húsinu. Stór og
vandaður sólpallur á baklóð og hlið
hússins, heitur pottur og góð sólbaðsað-
staða. Sturtuklefi og „sauna“-klefi í bíl-
skúr og þaðan er útgengt út á sólpall.
Verð kr. 16.800.000.
◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200 533 4200
eða 892 0667
SUNDABORG - TIL LEIGU
Mjög gott lager- og skrifstofuhúsnæði. Lagerhúsnæði á jarðhæð 280
fm með stórri innkeyrsluhurð, lofthæð ca 3,5 m. Á 2. hæð skrifstofur, ca
280 fm, sem skiptist í nokkrar skrifstofur, 2 minni sali, snyrtingar og
kaffistofur.
Auðvelt að breyta innra skipulagi.
Getur leigst í einu eða tvennu lagi. Laust strax.
Allar nánari upplýsingar ásamt teikningum
fást hjá Ársölum ehf. — fasteignamiðlun,
sími 533 4200/892 0667.
Til sölu
Hafnargata 29, Keflavík
Rekstur verslunarinnar Stapafells ásamt lager
og 750m2húsnæði á tveimur hæðum.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Stuðlabergs, sími 420 4000
Guðlaugur H. Guðlaugsson löggiltur fasteigna- og skipasali
Halldór Magnússon sölustjóri
Hafnargötu 29, 2. hæð, Keflavík
Sími 420 4000 • fax 420 4009 • studlaberg.is
Þórhildur Sandholt
lögfr. og lögg. fastsali.
Gsm 898 8545
Gísli Sigurbjörnsson
sölumaður
FAX 568 3231
RAÐHÚS/ PARHÚS
GRENIMELUR
Virðulegt 3ja hæða parhús við Grenimel
skráð 209 fm auk herbergja í risi. Bílskúr
26,7 fm fylgir. Eignin er mikið endurnýjuð
og skiptist í 3 stofur, borðstofu, stórt
vandað eldhús, baðherbergi og mörg góð
svefnherbergi. Hiti í innkeyrslu og stéttum
að húsi. Laust til afhendingar mjög fljót-
lega. Verð 39,5 millj.
4RA HERBERGJA
RJÚPUFELL MEÐ BÍLSKÚR
Gullfalleg 4ra herb. íbúð á jarðhæð með
sólstofu, afgirtri sérverönd og bílskúr. Ný-
leg innrétting í eldhúsi. Sérþvottaherb..
Flísar á holi og eldhúsi og vandað parket
á stofu. Falleg verönd frá sólstofu. Bílskúr
í bílskúralengju. Verð 14 millj.
SÓRAGERÐI
Góð 4ra herb. 95 fm íbúð á 1. hæð. Skipt-
ist í stóra stofu með suðursvölum, 3
svefnherbergi, rúmgott eldhús með góðri
innréttingu og baðherb. Sérgeymsla í
kjallara. Sameign öll nýlega tekin í gegn.
Verð 14.0 millj.
3JA HERB.
BREIÐAVÍK
Gullfalleg 3ja herb. íbúð á 2. hæð með
sérinngangi af svölum. Stór og björt stofa
með útgangi á svalir. Fallegt eldhús. Tvö
svefnherbergi með skápum. Flísalagt
baðherb. með baðkari og sturtu. Vandað-
ar innréttingar. Parket og flísar á gólfum.
Laus fljótlega. Áhvíl. húsbr. 8,2 millj. Verð
15.2 millj.
SKIPHOLT
Stór 3ja herb. íbúð, 96,4 fm á jarðhæð
með sérinngangi. Skiptist í forstofu, sér-
þvottahús, hol með fataskápum, rúmgóða
stofu og herbergi innaf stofunni. Stórt
svefnherbergi með fataskápum. Eldhús
með snyrtilegri innréttingu og tengingu
fyrir uppþv.vél. Flísalagt bað. Sérgeymsla
í íbúðinni.
KLEPPSVEGUR
3ja herb. íbúð 82,7 fm á 4. hæð í lyftuhúsi.
Stofa og 2 svefnherb., eldhús og bað.
Suðursvalir. Sérgeymsla og sameiginlegt
þvottahús og þurrkherb. í kjallara. Íbúðin
þarfnast endurbóta. Skuldlaus eign. Verð
11 millj.
2-3JA HERBERGJA
LAUGARNESVEGUR
Gullfalleg 2ja herb. íbúð á 2. hæð með
aukaherb. í kjallara. Fallegt eldhús með
vönduðum tækjum, flísalagt bað, stofa og
gott svefnherb. með nýjum skápum.
Parket á gólfum. Aukaherbergi og sér-
geymsla í kjallara. Laus fljótlega. Verð
11.2 millj.
ATVINNUHÚSNÆÐI
HLÍÐARSMÁRI
Nýlegt 134,8 fm verslunar- eða skrifstofu-
húsnæði á jarðhæð með góðum gluggum.
Parket á gólfum. Góð lageraðstaða baka-
til. Verð 14,5 millj.
BÍLDSHÖFÐI
Glæsileg skrifstofuhæð, 330 fm á 2. hæð.
Skiptist í 8 herbergi og sameiginlega
snyrtingu og eldhús. Laus fljótlega. Verð
21.5 millj
KÁRSNESBRAUT
Iðnaðarhúsnæði á jarðhæð, 88.9 fm skipt-
ist í vinnusal, kaffistofu og snyrtingu.
Góðar innkeyrsludyr og göngudyr. Loft-
hæð u.þ.b. 3,7 m. Laust strax. Verð 6,8
millj.
LANDSBYGGÐIN
LAUGAVATN
Nýtt endaraðhús á einni hæð, 108 fm á
fallegum stað við Laugavatn. Húsið er
timburhús með STENI-klæðningu og af-
hendist fullfrágengið með sólpalli framan
við húsið og lóð að öðru leyti grófjöfnuð.
Skipist í 3 svefnherb., stofu, eldhús, bað-
herb. og þvottaherb. Áhvíl. húsbr. 9.8
millj. Verð 14.4.millj.
Útreikn-
ingar á
greiðslu-
mati
GREIÐSLUMATIÐ sýnir há-
marksfjármögnunarmöguleika með
lánum Íbúðalánasjóðs miðað við
eigið fé og greiðslugetu umsækj-
enda. Forritið gerir ráð fyrir að
eignir að viðbættum nýjum lánum
s.s. lífeyrissjóðslánum eða banka-
lánum til fjármögnunar útborgun-
ar séu eigið fé umsækjenda og séu
10, 30 eða 35% heildarkaupanna.
Síðan eru hámarksfjármögnunar-
möguleikar hjá Íbúðalánasjóði
reiknaðir út miðað við eigið fé, há-
marksgreiðslugetu til að greiða af
íbúðalánum og vaxtabætur.
Útreikningur á greiðslugetu:
Heildartekjur
-skattar
-lífeyrissjóður og félagsgjöld
-framfærslukostnaður
-kostnaður við rekstur bifreiðar
-afborganir annarra lána
-kostnaður við rekstur fasteign-
ar
=Ráðstöfunartekjur/hámarks-
geta til að greiða af íbúðalánum
Á greiðslumatsskýrslu kemur
fram hámarksgreiðslugeta um-
sækjenda til að greiða af íbúða-
lánum og eigið fé umsækjenda.
Þegar umsóknin kemur til Íbúða-
lánasjóðs fylgir henni yfirlit yfir
greiðslubyrði af yfirteknum og nýj-
um lánum í kauptilboði. Hámarks-
greiðslugeta skv. greiðslumats-
skýrslunni er þá borin saman við
raun greiðslubyrði á kauptilboði og
eigið fé í greiðslumatsskýrslu borið
saman við útborgun skv. kauptil-
boði. Eftir atvikum getur þurft að
reikna vaxtabætur m.v. raunveru-
legt kauptilboð aftur þegar um-
sókn er skilað til Íbúðalánasjóðs.
Verð eignarinnar og samsetning
fjármögnunar getur svo verið önn-
ur en gert er ráð fyrir í greiðslu-
mati eftir því hvaða mögulega
skuldasamsetningu hin keypta eign
býður upp á. Ekki er gert ráð fyrir
að umsækjendur endurtaki
greiðslumatið ef aðrar fjármögn-
unarleiðir eru farnar en gengið er
út frá í greiðslumati.
Tökum dæmi:
Umsækjandi sem er að kaupa
sína fyrstu eign gæti t.d. fengið
greiðslumat sem sýnir hámarks-
verð til viðmiðunar 7.000.000 kr.
miðað við 2.100.000 í eigið fé og há-
marksgreiðslugeta hans væri
40.000 kr. þegar allir kostnaðarlið-
ir hafa verið dregnir frá tekjunum.
Þessi umsækjandi gæti svo
keypt íbúð fyrir 8.000.000 án þess
að fara í nýtt greiðslumat ef for-
sendur hans um eignir og greiðslu-
getu ganga upp miðað við nýja
lánasamsetningu.
Dæmi:
Kaupverð 8.000.000
Útborgun 2.080.000
Fasteignaveðbréf 5.600.000
(70%, greiðslubyrði m.v. 25 ára lán
= 33.000 á mánuði)
Bankalán 320.000 (greiðslubyrði
t.d. 10.000 á mánuði)
Það er ljóst ef kauptilboð, yfirlit
yfir greiðslubyrði yfirtekinna og
nýrra lána í kauptilboði og
greiðslumatsskýrsla er borin sam-
an án þess að farið sé í nýtt
greiðslumat að þessi kaup eru inn-
an ramma greiðslumatsins þrátt
fyrir að stungið hafi verið upp á
7.000.000 íbúðarverði m.v. upphaf-
legar forsendur. Útborgunin er
innan marka eigin fjár hans og
greiðslubyrði lánanna innan marka
greiðslugetunnar.
Fyrsta greiðsla er að jafnaði
talsvert hærri en síðari greiðslur,
hún er á þriðja reglulega gjalddaga
frá útgáfu fasteignaveðbréfsins (sé
um mánaðarlega gjalddaga að
ræða) og samanstendur af einnar
mánaðar afborgun, vöxtum frá
fyrsta vaxtadegi (a.m.k. þrír mán-
uðir) og vísitölu frá grunnvísitölu-
mánuði (a.m.k. þrír mánuðir).
Gjalddagar húsbréfalána Íbúða-
lánasjóðs geta verið mánaðarlega
eða ársfjórðungslega. Hægt er að
breyta gjalddögum lánanna eftir
útgáfu þeirra.