Morgunblaðið - 13.09.2004, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 13.09.2004, Qupperneq 48
48 C MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Einbýlishús DIGRANESHEIÐI KÓPAVOGI Áhugavert 145 fm eldra einbýli á þessum frábæra stað. Húsið er hæð og gott ris og er allt afar snyrtilegt og vel umgengið. Stór gróinn garður. Lítið gróðurhús og geymsluskúr á lóðinni. Hellulögð innkeyrsla. Nánari uppl. á skrifstofu FM. Sjá einnig fmeignir.is og mbl.is. 7907 BARÐASTAÐIR GRAFARVOGI Til sölu svo til fullbúið 209 fm einbýli í jaðri byggðar í Grafarvogi, rétt ofan við golfvöllinn. Mjög stór sólpallur með heitum potti. Fjögur góð svefnherbergi. Innbyggður bílskúr. Arinn í stofu. Eign sem vert er að skoða. Nánari uppl. á skrifstofu FM. Sjá einnig fmeignir.is og mbl.is. 7910 Opið mán.-fim. kl. 9-12 og 13-18 fös. kl. 9-12 og 13-17 SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ Sölumenn FM aðstoða. Sjá mikinn fjölda eigna og mynda á fmeignir.is og mbl.is Sumarhús GRÍMSNES HRAUNBORGIR Til sölu sumarhús í Hraunborgum í Grímsnesi og Grafningshreppi. Áhugaverð staðsetning. Stutt í alla þjónustu. Ásett verð 5,8 m. Nánari uppl. á skrifstofu FM. Sjá einnig fmeignir.is og mbl.is. 13759 Hesthús FAXABÓL HESTHÚS Til sölu helmingshluti í glæsilegu 16 hesta húsi. Húsið er byggt 1988 og allt hið vandaðasta. Stór kaffistofa, snyrting með sturtu. Húsið er vel mokað. Heitt vatn komið að húsi. Mögulegt að fá allt húsið keypt. Nánari uppl. á skrifstofu FM. Sími 550-3000. Sjá einnig fmeignir.is og mbl.is. 12216 Raðhús FURUGERÐI Erum með í sölu tvær nýstandsettar glæsiíbúðir á tveimur hæðum. Stærð frá 134 - 151 fm. Allar með sérinngang. Innréttingar frá HTH. Salerni upphengd, lýsing frá Lumex. Nánari uppl. á skrifstofu FM. 6600 Hæðir HRÍSATEIGUR SÉRHÆÐ OG BYGGINGARÉTTUR Til sölu 136 fm efri sérhæð, auk þess 36 fm verzlunarhúsnæði á götuhæð. Mögulegt að byggja hæð ofan á húsið og fylgir sá réttur íbúðinni. Eign sem vert er að skoða. Nánari uppl. á skrifstofu FM. Sjá einnig fmeignir.is og mbl.is. 5487 3ja herb. íbúðir BLÁSALIR Erum með í sölu á 6. hæð í lyftuhúsi 3ja herb. íbúð. Íbúðin er fullbúin án gólfefna. Sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir. Verð 15,9 m. 21147 2ja herb. íbúðir HRÍSATEIGUR - SÉRINNG. Vorum að fá í sölu snotra einstaklingíbúð, með sérinngangi á þessum frábæra stað. Gólfefni flísar og parket. Nýlegt rafmagn. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi. Verð 6,9 m. Landsbyggðin BISKUPSTUNGUR JARÐHITI Til sölu jörðin Syðri Reykir II Biskupstungum. Helstu byggingar eru reisulegt eldra íbúðarhús í glæsilegu umhverfi. Landstærð 15,5 ha. Umtalsverður jarðhiti úr hver rétt við húsgaflin. Nánari upplýsingar á skrifstofu F.M. sími 550 3000. 10976 140 BÚJARÐIR 80 SUMARHÚS Til sölu hjá okkur er nú fjöldi áhugaverðra jarða m.a. hlunninda- jarðir, jarðir með greiðslumark í sauðfé og mjólk, einnig jarðir fyrir garðyrkju, skógrækt, hrossarækt, svínarækt, frístundabú- skap og ferðaþjónustu. Jarðir þessar eru víðsvegar um landið. Erum einnig með á söluskrá fjölda sumarhúsa og hesthúsa. Fáið senda söluskrá í pósti eða nálgist eintak á skrifstofu. Einnig er oft til á sölu hjá okkur sauðfjár- og mjólkurframleiðsluréttur. Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sem er alhliða fasteignasala og selur fasteignir jafnt á landsbyggðinni sem á höfuðborgarsvæðinu. Sölumenn FM aðstoða. Minnum einnig á fmeignir.is og mbl.is. Jörðin Leirubakki var að fornu höfuðból og kirkjustaður. Bæjarins getur í Biskupasögum og Sturlungu. Jörðin er alls talin vera um 950 ha. Stór hluti úthagans er kjarri vaxið hraun. Jörðinni einnig fylgir jörðinni tilkomu mikill húsakostur eignarhlutur í Ytri-Rangá og veiði- réttur í Veiðivötnum, Fremri-Tungnárvötnum og þremur uppistöðu- lónum stórvirkjanna. Hótelbygging 450 fm, byggð 1991-1992. Tjald- stæði ásamt meðfylgjandi snyrtihúsi (böð og salerni), veislu- skáli/söngskáli með snyrtihúsi (salernum og geymslum) svo og heit laug, Víkingalaugin, sem byggð hefur verið við hraunjaðarinn neðan söngskálans. Reiðhöll norðan við þjóðveg og gömul fjárhús og hlaða (nýtt sem hesthús og geymslurými) á sama stað. Land austast á jörð- inni (Höfðinn), en þar er m.a. gert ráð fyrir tólf sumarhúsalóðum. Landrými fyrir 45 sumarhúsalóðir er einnig afmarkaðar í suðvesturhorni Leirubakkans, hver lóð um 1 ha að stærð. Í gistihúsinu, sem var byggt 1991-1992 geta rúmlega 50 manns gist í uppbúnum rúmum. Á jörðinni hefur verið byggt svo nefnt Hekluhof en þar er komin einstök aðstaða fyrir vísinda- og fræðisetur með áherslu á sögu Heklu og jarðsögu landsins. Með fyrirhugaðri Núpsvirkjun mun væntanlega koma brú á Þjórsá sem tengja mun Leirubakka og Heklu beint við Gullfoss og Geysissvæðið. Mjög áhugaverð eign sem vert er að skoða. Hótelbyggingin jarðhæð og tvær hæðir, hver um sig um 150 fm alls um 450 fm. Þar er borðsalur/setustofa, eld- hús, góðar sturtur, snyrtingar á hverri hæð, þvottahús, gufubað (sauna) og tveir heitir pottar eru á veröndinni við húsið. Athugið ýtarlegri upplýsingar á fmeignir.is og mbl.is. Einkasala LEIRUBAKKI RANGÁRÞING YTRA Í LANDSVEIT VANTAR - VANTAR Vegna mikillar sölu að undanförnu bráðvantar allar gerðir eigna á söluskrá. F ram eftir síðustu öld var „hvíti dauðinn“ skelfi- legasti sjúkdómur sem lagðist á fólk á öllum aldri og varð mörgum að fjörtjóni. Þessi sjúkdómur er í dag betur þekktur sem berklar og herjar víða um heim, en á Íslandi er hann ekki lengur sú ógn sem áður var, langt frá því. Í baráttu við þessa plágu lögðu þeir sem sjúkdóminn höfðu fengið en sigrast á honum, sumir aðeins tímabundið, ekki lítið lóð á vog- arskálar þegar samtök þeirra beittu sér fyrir stofnun heilsuhælis sem var valinn staður í Mosfellssveit þáver- andi og gefið nafnið Reykjalundur. Stór þáttur í rekstri Reykjalundar frá upphafi var margvíslegur at- vinnurekstur sem gaf þeim, sem ein- hverja krafta höfðu enn eftir erfiða baráttu, möguleika á að fá störf sem þeir réðu við og var liður í að koma þeim aftur út í þjóðfélagið. Þegar síðari heimsstyrjöld lauk 1945 komst aftur skriður á að þróa efni sem nefnt var plast, nafnið mun komið úr forngrísku og þýða eitt- hvað sem er þjált. Bæði austan hafs og vestan byggðu menn verksmiðjur til að steypa ýmsa nytjahluti úr plasti og ekki síður að framleiða rör. Ætla mætti að forkólfar hérlendis í plast- iðnaði yrðu einhverjir framámenn í atvinnulífi þjóðarinnar, en sú varð ekki aldeilis raunin. Þeir sem riðu á vaðið og hófu plastiðnað á Íslandi voru samtök berklasjúklinga og fyrir nánast ná- kvæmlega hálfri öld hófst fram- leiðsla á plaströrum á Reykjalundi auk þess sem þá voru steyptir lego- kubbar, margskonar leikföng, fötur og önnur ílát, svo mætti lengi telja. En nú skiljast leiðir, heilsuhælið hef- ur selt einkaaðilum plastverksmiðj- una, sem áfram verður á Reykja- lundi og undir því þekkta nafni. Bregðum okkur til Finnlands Finnar eru geysilega dugleg þjóð, hert í miklum hörmungum, en í dag státa þeir af einhverjum háþróað- asta iðnaði sem nokkur þjóð getur hreykt sér af, auk þess sem skógarn- ir og timbrið gefa þjóðinni drjúgan arð. Það væri freistandi að rifja upp hvað það var sem lagði grundvöll að háþróuðum iðnaði Finna, en til þess er hvorki staður né stund. Þó má skjóta því inn að það voru hinar þungu byrðar sem voru lagðar á þjóðina með friðarsamningum við Rússa eftir að hafa tapað hinu grimmilega vetrarstríði. Í fjölda ára urðu Finnar að standa Rússum skil á ótrúlega fjölbreyttri iðnaðarvöru, sem þeir höfðu aldrei framleitt áður. Það var ekki um annað að gera en byggja verksmiðjur, hefja fram- leiðslu og skila vörunum austur fyrir landamærin endurgjaldslaust. En í dag eru þeir að uppskera og fá end- urgoldið fyrir þrældóminn og fá- tæktina. Rör sem eru engin smásmíði Það er ánægjulegt að ganga un verksmiðjuna á Reykjalundi með nýjum eigendum. Margt kemur þar kunnuglega fyrir sjónir, rör renna úr vélasamstæðu og rúllast upp á tromlur, en fljótlega er staldrað við stór og styrk rör sem eru svo mikil í þvermáli að vart hafa sést víðari plaströr á Íslandi. Hér er komið að þætti finnskra hugvitsmanna, en þessi víðu og sterku plaströr eru framleidd á Reykjalundi með leyfi finnsku verk- smiðjunnar KWH Pipe og nefnast þau Weholite. Það er ekki óeðlilegt að gesturinn, sem telur sig hafa þó nokkra þekkingu á framleiðslu plaströra, þykist þess fullviss að hér hafi þurft að fjárfesta í miklum og plássfrekum vélakosti. En upplýst er að svo er alls ekki, þessi rör eru framleidd í sömu vélalínum og minni plaströr og þá verður gesturinn klumsa. En þegar hann er leiddur í allan sannleikann er það fyrsta sem honum dettur í hug hvað þetta sé einfalt og snjallt. Ef hann hefði verið rúmlega hálfri öld yngri hefði hann eflaust tautað á nútímamáli: „Að ég skyldi ekki hafa fattað upp á þessu.“ Það er líklega óðs manns æði að reyna að skýra í stuttu máli hvernig Weholite-plaströrin eru framleidd, en reynum samt. Í venjulegri véla- línu er framleitt plaströr, ekki sívalt heldur ferkantað. Þetta ferkantaða rör er mjög mismunandi að sver- leika, fer eftir því hver stærð end- anlegs rörs á að verða. Þetta rör er síðan undið upp á tromlu og soðið saman um leið og þegar horft er á rörið fullgert má sjá hvernig fer- kantaða rörið myndar spírallaga þverrákir eftir endilöngu rörinu. Með þessari framleiðsluaðferð eru í raun engin takmörk fyrir hvað rörið getur orðið vítt, það er tromlan sem vindur upp ferkantinn úr plasti sem ákvarðar það. Þegar hafa verið framleidd rör hjá móðurfyrirtækinu sem eru hvorki meira né minna en 3 m í þvermál! Hættum okkur ekki út í frekari lýsingu á frameiðslu þessa merka rörs. En þá eru það eiginleikarnir og notagildið. Með þessari fram- leiðsluaðferð verður rörið tvöfalt, það verður til ytra og innra byrði og með jöfnu millibili eru bríkur á milli byrðanna, það kemur af sjálfu sér þegar ferkantaða rörið er vafið upp á tromluna. Þetta gefur rörinu óhemjumikinn styrk og þess vegna er það mikð notað í stærri skólpveit- ur og sem loftstokkar í grunnum stórbygginga. Vera má að það sem að framan er sagt hafi ekki náð tilætluðum ár- angri til að skýra þetta merkilega plaströr. Ef einhver er samt svo forvitinn að hann vill komast til botns í málinu er ekki um annað að ræða en að leggja leið sína að Reykjalundi, þar eru menn eflaust boðnir og búnir til að kynna, sýna og fræða. Reykjalundur á merka og margþætta sögu að baki Hér eru starfsmenn Reykjalundar að sjóða saman Weholite-rör í Grafarvogs- ræsi. Með því að fjarlægja ytra byrði á röri og innra byrði á öðru myndast skrúf- gangur, þannig er hægt að skrúfa rörin sama og sjóða þau einnig. Lagnafréttir eftir Sigurð Grétar Guðmundsson pípulagningameistara/ sigg@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.