Morgunblaðið - 18.10.2004, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
TTT
auglýsingastofa/Ljósm
.S
S
J
Mark
skrifstofustólar
Ótrúlegt verð!
Mark er ný og glæsileg lína skrifstofustóla
frá Á. Guðmundssyni ehf. fyrir vinnustaði og heimili.
Stólarnir eru hannaðir af Pétri B. Lútherssyni.
Hægt er að velja um fjölda lita á áklæði.
Nú bjóðum við þessa stóla á frábæru kynningarverði.
Hæðarstilling á baki
Pumpa til að stilla
stuðning við mjóhrygg
Hæðarstillanlegir armar
Hallastilling á baki
Sleði til að færa setu
fram og aftur
Mjúk hjól
Hæðarstilling á setu
og baki
Hægt er að stilla stífleika setu
og baks eftir þyngd notanda
Veltustilling á setu og baki
KYNNINGAR
AFSLÁTTUR!
30%
Mark 20 Kr.25.340
Mark 10 Kr.13.930
Mark 30 Kr.38.570
Bæjarlind 8-10 • Sími 510 7300 • www.ag.isHeildarlausnir í skrifstofuhúsgögnum
BEINBROT eru algeng. Þau or-
saka þjáningu ungra sem aldinna.
Þau eru tímaþjófur. Beinbrot eru
einstaklingum, fjölskyldum, fyrir-
tækjum og þjóðfélaginu mjög dýr.
Árlega koma yfir þúsund ein-
staklingar af höfuðborgarsvæðinu
á slysa- og bráðadeild Landspítala
– háskólasjúkrahúss og greinast
með ýmiss konar beinbrot. Í flest-
um tegundum slysa eru karlar í
meirihluta framan af ævinni. Eftir
miðjan aldur brotna konur frekar
en karlar og þá aðallega vegna af-
leiðingar beinþynningar.
Mun minna hefur verið fjallað
um beinbrot karla en kvenna eftir
miðjan aldur. Í nýlegri íslenskri
rannsókn kom í ljós að brot hjá
körlum eru algeng eftir miðjan
aldur. Þar var stuðst við hóprann-
sóknir Hjartaverndar sem hófust
árið 1967 og var ætlað að finna og
fylgjast með áhættuþáttum hjarta-
og æðasjúkdóma. Það vaknaði
áhugi á að rannsaka brotalíkur
karla í rannsóknarhópum Hjarta-
verndar. Einnig að kanna hversu
mikinn áverka þurfti til að brotna
og hvaða bein helst brotnuðu. Ein-
staklingar voru valdir úr íbúaskrá
Reykjavíkur og nágrennis sem
voru fæddir á árunum
1907–1934. Mörg þús-
und (4.137) körlum var
fylgt nákvæmlega eftir
frá 1. janúar 1977 til
31. desember árið 2000
eða þar til þeir létust.
Karlarnir voru að með-
altali 54 ára þegar þeir
komu inn í rannsóknina
og þeim var fylgt eftir í
18,5 ár. Alls brotnuðu
939 af 4.137 eða tæp-
lega fjórðungur karl-
anna á þessu tímabili og hlutu þeir
samtals um 1.531 brot. Brot hjá
körlunum fyrir 1. janúar 1977 voru
ekki talin með í rannsókninni.
Meira en helmingur karlanna
eða 53% brotnaði við til þess að
gera lítinn áverka eins og fall eða
hrösun úr standandi stöðu en slík
brot eru kölluð
lágorkubrot.
Fyrsta brot átti
sér stað um 65 ára
aldur, annað brot við
68 ára aldur, það
þriðja um 71 árs
aldur og það fjórða
þegar karlarnir voru
73 ára. Ef karl
brotnaði voru 34%
líkur á að brotna
öðru sinni. Ef karl
brotnaði tvisvar
voru 43% líkur á að brotna í þriðja
skiptið og eftir það um 40% líkur á
nýju broti eftir hvert brot. Brota-
líkur karlanna voru 19.5 á 1.000
karla á hverju ári. Brotalíkur juk-
ust mikið með hækkandi aldri. Al-
gengustu brotin voru: Rifbrot 246,
brot á hendi 241, brot á fram-
handlegg 212, brot á fæti 138 og á
mjöðm 135. Lítinn áverka þurfti til
að brotna á upphandlegg í 72% til-
vika, á framhandlegg hjá 77% og á
mjöðm í 75% tilvika.
Hvað er til ráða?
Við vitum að ef karlmaður brotnar
um miðjan aldur eru rúmlega
þriðjungs líkur á að hann brotni
öðru sinni og eftir það um 40% lík-
ur á nýju broti í hvert skipti sem
hann brotnar. Það skiptir því
miklu máli að við karlar og reynd-
ar konur líka tökum þátt í reglu-
bundinni líkamsþjálfun eins og að
ganga, synda, dansa eða fara á
einhverja af hinum fjölmörgu stöð-
um sem bjóða upp á góða aðstöðu
til líkamsþjálfunar.
Hækkandi aldur á frekar að
vera hvati og aldrei er of seint að
byrja á reglubundinni líkams-
þjálfun. Jafnframt er gott og
reyndar nauðsynlegt að stunda
jafnvægisæfingar sem ættu að
vera hluti af daglegri líkams-
þjálfun bæði karla og kvenna.
Andleg þjálfun er ekki síður mik-
ilvæg. Öllum farnast betur ef heil-
inn er í góðu lagi. Hann þjálfast
t.d. við að lesa, spila, leysa kross-
gátur eða tefla. Ekki má gleyma
mataræðinu. Við þurfum að borða
hollan mat með miklu kalkinnihaldi
ásamt D-vítamíni í fljótandi eða
föstu formi. Ef karlar og konur
brotna eftir miðjan aldur er mik-
ilvægt að leita sér ráðgjafar um
mataræði, hreyfingu, rannsóknir
og lyfjameðferð. Hjá flestum, bæði
konum og körlum, sem brotna um
miðjan aldur er skynsamlegt að
láta mæla beinþéttnina. Beinþéttn-
imælingar segja til um hvort við-
komandi þarf á sértækri lyfja-
meðferð að halda.
Beinvernd er nauðsynleg svo
lengi sem við lifum.
Brothættir karlar
Brynjólfur Mogensen skrifar
vegna alþjóðlega beinvernd-
ardagsins 20. október
Brynjólfur Mogensen
’Beinbrot eru ein-staklingum, fjölskyld-
um, fyrirtækjum og
þjóðfélaginu mjög dýr. ‘
Höfundur er sviðsstjóri slysa-
og bráðasviðs Landspítala –
háskólasjúkrahúss.
Smáralind • sími 553 6622 • www.hjortur.is