Morgunblaðið - 18.10.2004, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
DELL hefur ákveðið að kalla inn
990 þúsund straumbreyta sem seldir
voru með hluta Latitude, Precision
og Inspiron fartölva á árunum
1998–2002. Ástæðan er að tilkynnt
hefur verið um sjö tilvik þar sem
straumbreytar hitnuðu óeðlilega
mikið, án þess þó að fólk hafi hlotið
meiðsl af þeim völdum. Framleið-
andi straumbreytanna er taívanska
fyrirtækið Delta Electronics, sem
framleiddi einnig straumbreyta sem
IBM innkallaði í síðasta mánuði.
Örn Alfreðsson hjá EJS, umboðs-
aðila Dell á Íslandi, segir að erfitt sé
að segja til um hve margar tölvur af
þeim gerðum sem um ræði séu í
notkun hér á landi, en fyrirtækið
hefur selt átta gerðir af þeim sem
tilteknar eru hér að neðan. Segir
hann að engin kvörtun hafi borist
um að straumbreytar frá Dell hafi
ofhitnað, að einn viðskiptavinur hafi
komið með straumbreyti vegna inn-
köllunarinnar og fengið nýjan á síð-
ustu dögum.
Hann segir að EJS muni senda út
fréttatilkynningu um málið og setja
frétt á vef fyrirtækisins, ejs.is. Hægt
er að sjá hvort straumbreytir er af
umræddri gerð á síðunni http://
www.delladapterprogram.com/
multiorder.aspx.
Straumbreytarnir voru seldir
með eftirfarandi gerð fartölva:
Latitude CP, CPi, CPiA, CPtC,
CPiR, CPxH, CPtV, CS, CSx, CPxJ,
CPtS, C500, C510, C540, C600,
C610, C800, C805, C810, V700, C-
Dock, C-Port.
Inspiron 2500, 2600, 3700, 3800,
4000, 4100, 4150, 5000, 5000E, 7500,
7550, 8000, 8100, Advanced Port
Replicator, Docking Station.
Precision M40.
Straumbreytar
fyrir tölvur
innkallaðir
STJÓRN og fulltrúaráð Lands-
sambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna samþykkti eft-
irfarandi ályktun á fundi sínum 15.
október sl.:
„Stjórn og fulltrúaráð Lands-
sambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna lýsir fullum stuðn-
ingi við kjarabaráttu kennara og
sendir Kennarasambandi Íslands
baráttukveðjur. Mikilvægt er að
samningar takist hið allra fyrsta
því langvinnt verkfall getur haft
mjög alvarlegar afleiðingar fyrir
alla hlutaðeigandi.“
Slökkviliðsmenn
styðja baráttu
kennara
FYRIRÆTLUN Iceland Express um
að segja upp flugfreyjum félagsins
til þess að endurráða þær hjá er-
lendu félagi er tilraun til félagslegra
undirboða í því skyni að verða sam-
keppnisfærari á markaði lágjalda-
flugfélaga. Svo segir í ályktun fram-
kvæmdastjórnar
Starfsgreinasambands Íslands.
„Fyrirætlunin verður ekki túlkuð
öðruvísi en sem aðför að skipulagðri
verkalýðshreyfingu hér á landi og
umsömdum lágmarkskjörum launa-
fólks. Framkvæmdastjórn Starfs-
greinasambands Íslands heitir Flug-
freyjufélagi Íslands fyllsta stuðningi
sínum og bendir á að svipaðar til-
raunir atvinnurekenda séu þekktar
á alþjóðlegum markaði. Í kjaradeilu
SAS við starfsfólk sitt í september sl.
varð félagsleg samstaða Norrænu
stéttarfélaganna og tengsl þeirra við
systrasamtök í Evrópu til þess að at-
vinnurekendur gátu ekki lítilsvirt
réttindi starfsfólks samkvæmt ráðn-
ingarkjörum í einu landi með því að
láta aðra taka að sér störfin annars
staðar. Starfsgreinasambandið mun
beita sér fyrir félagslegri samstöðu,
bæði hérlendis og erlendis, gegn
áformum Iceland Express, óski
Flugfreyjufélag Íslands eftir þeirri
aðstoð í kjaradeilu sinni við flug-
félagið.“
SGS styður
flugfreyjur
ÞRÍTUGASTA og sjötta ólympíuskákmótið er haf-
ið hér á Mallorca og teflt er í Gran Casino Mallorca.
Mótshaldið er mjög þunglamalegt og mikil örygg-
isgæsla á skákstað. Þeir sem hafa eitthvað með sér,
eins og t.d. töskur eða myndavélar, verða að horfa
inn í byssukjafta hermanna á meðan þeira sæta
rannsókn, eins og á flugvöllum. Skákmennirnir
(sem ekki eru með farangur) fara sjálfir inn á skák-
staðinn um annað hlið. Þetta varð til þess að und-
irritaður þurfti í byrjun 1. umferðar að standa í bið-
röð í 30 mín. með veski kvennaliðsins og
myndavélar. Þegar undirritaður loksins komst inn
á skákstað voru skákirnar byrjaðar, þannig að
minna varð af myndatöku en efni stóðu til.
Aðstæður á skákstað eru ef til vill góðar fyrir
skákmennina sjálfa, en mjög slæmar fyrir alla aðra.
Þetta stafar fyrst og fremst af þrengslum, t.d. hafa
liðsstjórar enga stóla í skáksalnum til að setjast á í
þær 4–5 klst., sem skákirnar taka. Og ekki tekur
betra við ef menn fara út úr skáksalnum, þar er fá
sæti að hafa. Keppendur og liðsstjórar mega ekki
tala saman nema dómari sé viðstaddur. Þessari
reglu er fylgt hérna af slíkri hörku að þegar und-
irritaður ætlaði að færa liðsmönnum vatnsflöskur í
1. umferð, var honum bent á að hann yrði afhenda
dómara þær, sem kæmi þeim svo til skila! Vegna
þessara þrengsla (og öryggisgæslunnar?) fá ein-
ungis þeir skákmenn, sem tefla í hverri umferð, og
liðsstjórar að fara inn í skáksalina, sem eru tveir,
annar fyrir opna-/karlaflokkinn, en hinn fyrir
kvennaflokkinn. Liðsstjórar karla fá ekki aðgang
að skáksal kvenna og öfugt.
Fóru rólega af stað
Íslensku sveitirnar hafa farið rólega af stað, karl-
arnir hafa 6,5 v. af 12, en konurnar 4 v. af 9.
Karlarnir hafa unnið Tobago og Trinidad 3,5–0,5,
tap fyrir Kúbu, 1–3 og jafnt við Túnis 2–2. Tapið við
Kúbumenn var nokkuð óheppilegt, því að Hannes
Hlífar tapaði unninni skák og Stefán átti góð færi
sem hann nýtti ekki. Hins vegar var Þröstur frekar
lánsamur að vinna. Á móti Túnis tapaði Helgi
Ólafsson í flókinni skák þar sem hann missteig sig í
örlítið betri stöðu.
Íslenska kvennaliðið fékk það skemmtilega verk-
efni að tefla við ofursveit Rússa (nr. 2 á styrkleika-
listanum, fyrir mótið) í fyrstu umferð. Lenka tefldi
því við eina sterkustu skákkonu heims í fyrstu skák
sinni í landsliði Ísland. Alexandra Kostenjuk mætti
tilefni dagsins með neglurnar lakkaðar í bláum,
rauðum og hvítum lit, fánalitum Rússlands og
reyndar líka Íslands. Hún komst lítið áleiðis gegn
Lenku, og í tímahrakinu var þráleikið. Sú rúss-
neska rétti fram höndina, sem átti að tákna jafn-
teflisboð, án þess að segja orð. Lenka lét sér fátt
um finnast og það var dálítið „kómiskt“ að horfa á
þetta í þær 15–20 sekúndur sem liðu áður en Lenka
rétti fram höndina og tók boðinu.
Guðlaug missteig sig í byrjuninni og þá var ekki
að sökum að spyrja. Harpa fórnaði manni, en því
miður yfirsást henni drottningarskák andstæðings-
ins. Eftir það var lítil von um björgun.
Meðal þáttakenda eru alltaf einhverjar „príma-
donnur“. Maja Tsjíburdanidze, fyrrverandi heims-
meistari kvenna, á 1. borði fyrir Georgíu, er ein
þeirra, og undirstrikar hún það m.a. með því að
tefla ávallt með barðastóran hatt, þannig að ekki
sér í andlit hennar þegar hún beygir sig yfir tafl-
borðið. Stóllinn, sem Maju var boðið að setjast í við
skákborðið, var ekki nógu góður fyrir hana, og varð
að útvega henni sérstakan stóláður en hún gat hafið
taflið. Þetta dugði þó skammt, því að hún varð að
sætta sig við jafntefli við Titovu-Boric frá Bosníu-
Herzegóvínu.
Konurnar óheppnar
Í annarri umferð voru íslensku konurnar sein-
heppnar í meira lagi. Þær áttu betra tafl á öllum
borðum framan af í keppni við Makedóníu, en upp-
skeran varð aðeins hálfur vinningur.
Lenka stóð mun betur framan af, en eftir að hún
missti frumkvæðið, hélt hún áfram að reyna að
vinna, sem endaði með skelfingu. Lilja tefldi mjög
vel og byggði upp vinningsstöðu með kraftmikilli
og skemmtilegri taflmennsku. Þegar tíminn var
orðinn lítill í lokin missti hún skákina niður í jafn-
tefli. Harpa átti þægilegt tafl, þar sem hún átti mun
betri möguleika. Einn vanhugsaður leikur kostaði
peð og eftir það var erfitt fyrir Hörpu að flækja
taflið.
Í 3. umferð vannst stórsigur á Jómfrúreyjum,
3–0.
Við skulum nú sjá vinnningsskák Arnars gegn
Túnis.
Arnar E. Gunnarsson – Chikhaoui,
Enskur leikur
1. c4 Rf6 2. Rc3 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 0-0 5. Rf3 d6
6. 0-0 c5 7. d3 Rc6 8.Bd2 a6 9. Dc1 He8 10. Bh6 Bh8
11. h3 Hb8 12. Rh4 Rd4 13. e3 Rf5 14. Rxf5 Bxf5 15.
e4 Bd7 16. a4 b5?! (Betra er 16...e6 17. f4 Bc6 18.
Kh2 Rd7 o.s.frv.) 17. e5 (betra er að leika fyrst 17.
axb5 axb5 18. e5 b4 19. Ra4 o.s.frv.) 17. -- dxe5
(Best er 17...b4 18. exf6 bxc3 19. fxe7 Dxe7 20. bxc3
De2 og svartur heldur sínu) 18. axb5 axb5 19. Rxb5
Db6 (ekki gengur að drepa tvisvar á b5, vegna Bc6)
20. b4 Bxb5 21. bxc5 Dxc5 22. Be3 Dd6 23. cxb5
Hec8 24. Db1 Rd5 25. Ha6 Dd7 26. Bxd5 Dxd5 27.
b6 Bf6 28. Hc1 Hxc1+ 29. Dxc1 e4 30. dxe4 Dxe4
31. Dc7 Be5 32. Dxe7 Dd5 33. Ha7 Kg7 34. Hd7 og
svartur gafst upp, því að hann tapar manni, vegna
máthótunar.
Stórsigur kvennaliðsins
Íslenska liðið tefldi við Túnis í gær og gerði jafntefli 2:2. Næst á myndinni er Arnar Gunnarsson á 4.
borði, þá Þröstur Þórhallsson, Helgi Ólafsson og loks Hannes Hlífar Stefánsson á 1. borði.
Mallorca, frá Braga Kristjánssyni.
ENGIN vísindaleg sönnun liggur
fyrir um skaðleg heilsufarsleg
áhrif farsímafjarskipta, hvorki frá
sendistöðvum né frá farsímum sem
nota sendistyrk sem er innan sér-
stakra viðmiðunarmarka Alþjóða-
geislavarnaráðsins, ICNIRP, að
því er fram kemur í samnorrænni
tilkynningu geislavarnayfirvalda.
Þar kemur fram að á undanförn-
um árum hafi hópar sérfræðinga
birt skýrslur með viðamiklu
áhættumati vegna rafsegulsviða og
niðurstaðan jafnan orðið hin sama
og hjá hinni bresku Stewart-nefnd
árið 2000 að ekkert bendi til að
geislun með útvarpsbylgjum undir
viðmiðum ICNIRP hafi í för með
sér skaðleg líffræðileg áhrif á al-
menning.
Óvíst hvort börn eru við-
kvæmari fyrir bylgjunum
Í tilkynningunni segir þó að
birst hafi skýrslur sem gefi til
kynna að líffræðileg áhrif kunni að
vera fyrir hendi undir sömu við-
miðum og því þurfi að endurtaka
rannsóknir og fylgjast vel með vís-
indalegri þróun á þessu sviði.
Í því samhengi telja norræn
geislavarnayfirvöld skynsamlegt
að fólk noti handfrjálsan búnað
sem dragi umtalsvert úr rafseg-
ulsviði nálægt höfði. Þá sé óvíst
hvort börn og ungt fólk séu við-
kvæmari fyrir rafsegulsviði frá
farsímum en þeir sem eldri eru og
mikilvægt að foreldrar fræði ungt
fólk og börn um leiðir til að
minnka rafsegulsvið frá símunum.
Þorgeir Sigurðsson, fagstjóri hjá
Geislavörnum ríkisins, segir að til-
mæli um notkun handfrjáls bún-
aðar séu fyrst og fremst sett fram
í varúðarskyni og án þess að fyrir
liggi sannanir um hættur frá raf-
segulsviði farsíma.
Aðsðurður segir að hann að allt-
af komi upp tilfelli þar sem fólk
telur sig hafa orðið fyrir heilsufar-
stjóni af völdum farsímanotkunar,
meðal annars hér á landi, „en það
er bara svo erfitt að segja til um
það hvort hægt er að kenna far-
símum, farsímamöstrum eða ein-
hverju um.
[…] Það er ekkert sem gefur til-
efni til að hafa verulegar áhyggj-
ur,“ segir Þorgeir.
Reuters
Engar vísindalegar sannanir eru fyrir skaðlegum áhrifum á heilsu þeirra
sem nota farsíma, samkvæmt niðurstöðum norrænna geislavarnayfirvalda.
Engar sannanir eru
um skaðsemi farsíma
Samnorræn könnun geislavarnayfirvalda á símum
FLOKKSSTJÓRN Samfylk-
ingarinnar sendi frá sér álykt-
un á laugardag, þar sem lýst
er yfir stuðningi við ASÍ og
sjómannasamtökin í máli Sól-
baks EA. Í ályktuninni er
framgöngu Brims lýst sem
„aðför að grunnreglum ís-
lensks nútímasamfélags“.
Tekið er undir mótmæli
verkalýðshreyfingarinnar
vegna kjarafyrirkomulagsins
sem Brim hf. hefur komið upp
á Sólbak EA-7, „þar sem eitt
skilyrðið er að sjómenn séu
ekki félagar í stéttarfélagi“,
segir í ályktuninni.
„Á Íslandi er til siðs að
ágreiningur á vinnumarkaði sé
leystur við samningaborðið á
grundvelli vinnulöggjafarinn-
ar. Þess utan hafa aðilar átt
með sér víðtækt samstarf til
heilla fyrir atvinnulífið og sam-
félagið allt. Fyrirkomulag eins
og Brim hf. reynir nú að koma
á um borð í Sólbak ógnar þess-
um samskiptavenjum. Í því
felst aðför að verkalýðshreyf-
ingunni og grunnreglum ís-
lensks nútímasamfélags. Sam-
fylkingin fagnar því að
stéttarfélögin bregðast hart
við og heitir þeim fullum
stuðningi.“
Styðja
sjómanna-
samtökin í
máli Sól-
baks EA