Morgunblaðið - 18.10.2004, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FYLGJA BIN LADEN
Abu Mussab al-Zarqawi og hryðju-
verkasamtök hans, sem staðið hafa
fyrir fjölda ódæðisverka í Írak, hafa
lýst yfir hollustu við Sádi-Arabann
Osama bin Laden, leiðtoga al-Qaeda-
hryðjuverkasamtakanna, sem stóðu
fyrir hryðjuverkaárásinni á Banda-
ríkin 11. september 2001.
Óvissa og aukinn þrýstingur
Þrýstingur fer vaxandi í þjóðfélag-
inu á að lausn finnist á deilu sveitarfé-
laga og grunnskólakennara. Óvissa
er um hvort einhver hreyfing kemst á
viðræðurnar á sáttafundi sem rík-
issáttasemjari hefur boðað deilendur
á kl. 13 í dag. Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands, sagði við setningu
Kirkjuþings í gær að verkfallið snerti
flest heimili í landinu og óþolandi
væri að kennarar skyldu enn og aftur
finna sig knúna til að beita verkfalls-
vopninu í kjarabaráttu sinni.
Hnífjafnt í Bandaríkjunum
Óttast er að forsetakosningunum í
Bandaríkjunum 2. nóvember nk. lykti
á sama hátt og kosningunum fyrir
fjórum árum, þ.e. fyrir dómstólum.
Barátta demókratans Johns Kerrys
og repúblikanans George W. Bush er
hnífjöfn og skoðanakannanir sýna
ekki marktækan mun á fylgi þeirra.
John Kerry hlotnaðist þó stuðnings-
yfirlýsing í gær frá einu áhrifamesta
dagblaði Bandaríkjanna, The New
York Times.
Rakst á frystitogara
Guðbjartur SH 45 frá Ólafsvík, 15
tonna Viking-bátur, er stór-
skemmdur eftir að hafa keyrt á fullri
ferð á frystitogarann Arnar í höfninni
á Skagaströnd síðastliðinn laug-
ardag. Var verið að ljúka löndun úr
Guðbjarti og enginn um borð í bátn-
um þar sem skipverji var að sækja
smúlinn upp á bryggju. Henti hann
slöngunni um borð og skrúfaði svo
fullt frá. Svo mikill kraftur var á vatn-
inu að slönguendinn slóst til og í olíu-
gjöf bátsins á dekkinu. Við það fékk
vélin fullt afl og skipti engum togum
að báturinn sleit böndin sem hann var
bundinn með og keyrði á frystitog-
arann.
Riða í Biskupstungum
Riða er komin upp í sauðfé í Gýgj-
arhólskoti í Biskupstungum og verð-
ur að fella og urða allt fé á bænum. Þá
er hugsanlegt að skera verði allt fé í
Eystri-Tungu en þar hafa verið um
tvö þúsund vetrarfóðraðar kindur.
Þetta er í fjórða skipti sem riða grein-
ist á bæ í Biskupstungum á einu ári.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Dagbók 30/32
Fréttaskýring 8 Myndasögur 30
Minn staður 11 Víkverji 30
Viðskipti 12 Staður og stund 32
Erlent 13/14 Af listum 33
Daglegt líf 15 Leikhús 33
Umræðan 16/18 Bíó 34/37
Bréf 18 Ljósvakar 38
Minningar 22/25 Veður 39
Forystugrein 20 Staksteinar 39
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
Ávísun í desember
ÞÚ GETUR FENGIÐ
TUGI ÞÚSUNDA
ENDURGREIDDA
Í DESEMBER
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
„MAÐUR verður ekki samur eftir svona ferð – hún var
stórkostleg,“ segir Jenný L. Þorsteinsdóttir, fyrsta
flugfreyja í tíu manna áhöfn Icelandair, sem nýkomin
er heim úr 25 daga heimsreisu fyrir bandarísku ferða-
skrifstofuna Starquest Expeditions. Ferðaskrifstofan
leigði flugvél Loftleiða Icelandic, Boeing 757, ásamt
áhöfn Icelandair, en farþegarnir, sem voru 67, voru frá
Bandaríkjunum og Kanada.
Flugvélinni var breytt í lúxusfarrými, útskýrir
Jenný. Í vélinni eru venjulega 189 sæti, en þau voru
tekin og í staðinn sett 72 sæti með baki sem hægt er að
leggja nær alveg niður svo farþegar geti legið út af.
Jenný segir að þrátt fyrir mikla vinnu hafi ferðin
verið gríðarleg lífsreynsla. „Við fengum tækifæri til að
skoða okkur um á hverjum stað,“ útskýrir hún.
Áfangastaðirnir voru ellefu; meðal annars var komið
við í Perú, Chile, Ástralíu, Nýju-Gíneu, Kambódíu, Ind-
landi, Malí, Eþíópíu og Marokkó.
Íslenska áhöfnin: Beverly Ellen Chase, Una Hannesdóttir, Einar Sigurjónsson, Jenný L. Þorsteinsdóttir, Sæmund-
ur Guðmundsson, Guðrún Fríður Hansdóttir, Kjartan Guðmundsson, Sigurlaug Halldórsdóttir og Eyþór Bald-
ursson, fyrir framan Taj Mahal-hofið á Indlandi. Á myndina vantar Jón Hjartarson flugvirkja.
Reynslunni ríkari eftir heimsreisu
ÞEGAR rússneski herskipaflotinn
hafði verið fyrir norðan land í tæp-
lega tvær vikur þótti utanríkisráðu-
neytinu þörf á skýrum svörum um
fyrirætlanir flotans. Þau bárust þó
ekki fyrr en sl. laugardag, daginn
eftir að skipin sjö sigldu á braut.
Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður
utanríkisráðherra, segir að Rússarn-
ir hafi verið á alþjóðlegu siglinga-
svæði við æfingar á Þistilfjarðar-
grunni, um 8–15 sjómílur fyrir utan
12 mílna landhelgismörkin. Þeir hafi
haft rétt á því að æfa á þessu svæði.
Í september hafi Rússar greint
ráðuneytinu frá því að flotaæfingar
yrðu haldnar á Norður-Atlantshafi
en ekkert komið fram um að skipin
yrðu svo nálægt landi.
Fyrst sást til Rússanna 29. sept-
ember og tæplega hálfum mánuði
síðar, eða þann 11. október, óskaði
ráðuneytið eftir upplýsingum hjá
rússneska sendiráðinu um hversu
lengi skipin yrðu á þessum slóðum.
Þar vissu menn ekki hvenær æfing-
unni hér við land myndi ljúka og því
ítrekaði sendiráð Íslands í Moskvu
sömu beiðni við rússneska utanrík-
isráðuneytið þann 15. október.
Illugi segir að stjórnvöldum hafi
þótt óþægilegt að skipin væru svo
lengi nálægt landi. Hefði verið eðli-
legt af hálfu Íslands að leita upplýs-
inga um hve lengi flotinn yrði á þess-
um slóðum. Ekki hafi verið talið að
öryggishagsmunum Íslands hefði
verið ógnað með nærveru flotans.
Herskipaflotinn ógnaði ekki öryggi
Svar barst eftir að
skipin sigldu á braut
FINNA má dæmi um fleiri reiti í
Reykjavík en Fossaleyni í Graf-
arvogi þar sem starfsemi í þeim
byggingum sem þar standa er á ein-
hvern hátt takmörkuð, en lóð-
arhafar í Fossaleyni hafa nú stefnt
borginni vegna banns við rekstri
matvöruverslana í Fossaleyni eins
og fram kom í Morgunblaðinu á
sunnudag.
„Það hafa verið settir alls konar
skilmálar í gegnum tíðina, mismun-
andi þröngir,“ segir Gunnar Eydal
borgarlögmaður. Hann nefnir sem
dæmi Bakkahverfið í Breiðholti þar
sem miklar takmarkanir voru á því
hvers konar verslanir yrðu byggð-
ar hvar þegar það hverfi var að
verða til. „Menn hafa gengið mis-
langt í þessu í gegnum tíðina.“
Gunnar segir þessa skilmála
hluta af deiliskipulagi fyrir reitina,
en það útiloki ekki að slík ákvæði
séu tímabundin. Það er þó ekki í til-
viki Fossaleynis. Hann segir borg-
ina nú hafa fjórar vikur til að skila
greinargerð vegna stefnunnar.
Dæmi um tak-
markanir víðar
GERT er ráð fyrir því að Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðurinn geti
stækkað til suðvesturs allt að Suð-
urlandsbraut í tillögum að breyt-
ingu á deiliskipulagi Laugardalsins
sem nú hefur verið auglýst.
Ef þessar tillögur að deiliskipu-
lagi verða samþykktar óbreyttar er
ljóst að ekki verður byggt í þessum
hluta Laugardalsins annað en
mannvirki sem tengjast Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum, segir Þór-
ólfur Árnason borgarstjóri. Hann
segir þó að eftir sé svæði til móts
við Glæsibæ sem skipulagið nái þá
ekki til, og því ekki tekin afstaða til
þess hvað verði gert við þann reit.
Fjölskyldugarður
nái að Suður-
landsbraut
MIKIL hætta skapaðist á þjóðvegi
eitt, um 20 km austan við Höfn í
Hornafirði, rétt fyrir kl. 21 í gær-
kvöldi þegar tvö stærðarbjörg féllu
úr hlíð við bæinn Þorgeirsstaði og
stöðvuðust á veginum.
Að sögn lögreglu voru björgin á
bilinu 300–500 kg og hefði getað
farið illa ef bíll hefði lent á öðru
hvoru í myrkrinu. Vegfarandi lét
lögreglu vita, og lokaði hún annarri
akreininni á veginum á meðan beð-
ið var eftir bíl frá Vegagerðinni til
að ryðja grjótinu burtu. Ekki er vit-
að hvers vegna björgin losnuðu.
Nokkur vindur var á staðnum en
ekki úrkoma þegar björgin féllu.
Mikil hætta vegna
grjóts á veginum
Í NÝRRI hagspá greiningardeildar
Landsbankans fyrir árin 2004 til 2010
er gert ráð fyrir að verðbólgan hækki
tímabundið og fari í rúm 6% í upphafi
árs 2007 – eða yfir þolmörk Seðla-
bankans – ólíkt því sem þjóðhagsspá
fjármálaráðuneytisins gerir ráð fyrir.
Sú síðarnefnda gerir ráð fyrir að
verðbólgan haldist á bilinu 3–3,5%
fram til ársins 2007, þegar hún lækki í
2%. Ástæðan fyrir þessum mun eru
m.a. mismunandi forsendur um geng-
isþróun krónunnar að sögn Eddu
Rósar Karlsdóttur, forstöðumanns
greiningardeildar Landsbankans.
Í tilkynningu frá greiningardeild-
inni segir að spámenn virðist almennt
sammála um að gengi íslensku krón-
unnar sé sterkara nú en fái staðist til
lengdar „og gera flestir ráð fyrir að
krónan muni veikjast þegar fram í
sækir“, segir þar. „Fjármálaráðu-
neytið áætlar í spá sinni að gengi
krónunnar lækki hægt og rólega allt
fram til ársins 2008. Þetta felur í sér
að verðbólgan helst á bilinu 3 til 3,5%
fram til ársins 2007, þegar hún lækk-
ar í 2%.“
Greiningardeildin telur hins vegar
líklegra að krónan haldist áfram sterk
um sinn og gengisaðlögunin komi
fram síðar og með mun skjótari hætti.
Verðbólguþróunin verði því öðruvísi.
Fram komi verðbólgukúfur, áþekkur
því sem gerðist á árunum 2001 til
2002, áður en varanleg verðbólgu-
lækkun eigi sér stað.
Í tilkynningunni segir ennfremur
að sá mikli hagvöxtur sem fyrirsjáan-
legur sé á næstu árum kalli á aðhalds-
sama hagstjórn. „Í fylgiskjölum með
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2005
kemur fram að stjórnvöld áætla að
skila rekstrarafgangi sem nemur
1–1¼% af landsframleiðslu á næstu
tveimur árum. Slík niðurstaða fæli
vissulega í sér hagstjórnaraðhald, en
þó nokkuð minna aðhald en var á ár-
unum 1999 og 2000 þegar rekstraraf-
gangurinn nam 1½% og 2% af lands-
framleiðslu. Í ljósi þess mikla
verðbólguskots sem varð við lok síð-
ustu uppsveiflu dugar fyrirhugað
hagstjórnaraðhald tæplega til þess að
koma í veg fyrir að sagan endurtaki
sig að einhverju leyti.“ Segir síðar að
gangi spá greiningardeildarinnar eft-
ir feli það í sér að fjármálastefna hins
opinbera verði ekki aðhaldssöm held-
ur hlutlaus á næstu árum.
Ný spá greiningardeildar Landsbanka Íslands
Verðbólgan yfir 6%
í upphafi árs 2007