Sunnudagsblaðið - 28.11.1965, Blaðsíða 8

Sunnudagsblaðið - 28.11.1965, Blaðsíða 8
Sitt af hverju um dýra- garða PÝRAGARÐAR hafa aldrei verið til á íslandi, en engu að síður munu allir hafa heyrt þeirra getið, og þeir eru margir, sem hafa komið í einhvern dýra- garð erlendis. Dýragarðar eru hvarvetna í stórborg- um og þykja þar orðið ómissandi stofnanir. Þeir eru taldir hafa mikið uppeldislegt gildi, auk annars gUdis, enda eru vinsældir þeirra alls staðar miklar. Dýragarðar eru ævaforn fyrirbrigði. Fornegyptar áttu sér dýragarða, sömuleiðis Rómverjar, og þeir voru til í hinu forna Kínaveldi. En þessir gömlu öýragarðar voru ekki vísindastofnanir eins og dýra- garðar nútímans, heldur munaður auðmanna, og al- mehningur hafði ekki af þeim nein kynni. Það er ekki fyrr en á 17. og 18. öld, að áhugi vaknar á dýra- fræðirannsóknum, og þá fyrst er farið að hugsa dýra- garða sem þátt í vísindastarfinu. Elzti vísindalegi dvragarðurinn, sem enn er við lýði, er dýragarður- inn í London. Hann er stofnaður af Dýrafræðifélagi Londonar, en tilgangur þess félags var samkvæmt stofnskránni að efla rannsóknir í dýrafræði og dýra- sálfræði og kynna nýjar og óvenjulegar tegundir úr d.ýraríkinu. Félagið skyldi styrkja vísindarannsókn- ir, gefa út fræðirit um dýrafræði og efna til ráð*>. stefna og umræðna um þau efni. Hitt var nánast 592 sunnÚdagsblað - alþýðublaðíð aukaatriði að hafa lifandi dýr til sýnis fyrir almenn- ing. Dýragarðar hafa hvarvetna orðið mjög vinsæli’’- Þejr hafa sprottið upp í stórborgum um allan heim- Ekkert land mun þó búa eins vel hvað fjölda dýra- gaiða srtertir og Þýzkaland, en þar eru dýragarðar til í flestum stórborgum, og venjulega stoít borgar- búa. Dýragarðsforstjórinn er þar eiginlega engu þýðingarminni maður í borgarlífinu en sjálfur borg- arstjórinn. En dýragörðum hefur líka verið komið á fót í löndum, þar sem í fljótu bragði mætiti ætla að þeirra væri sízt þörf, t. d. í Afríku og Asíulöndum. En þar eru það eins og annars staðar borgarbúar, sem sækja þá, menn, sem ekki hafa mjög mikil tengsl við náttúruna og dýr í eðlilegu umhverfi- Dýragarðar eru nefnilega borgafyrirbrigði, enda hefur því stundum verið haldið fram, að þeir séu borgarbúum nauðsynlegir Dr. Bernhard Grzimek, foistjóri dýragarðsins í Fránkfurt í Þýzkalandi er t. d. þeirrar skoðunar, að borgarbúar verði að fara í dýragarða til að viðhalda eðlilegum tengslum Vfð náijúrupa, en gerviumhverfi stórborganna vilj.a _ rjufa þau tengsír1

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.