Morgunblaðið - 23.11.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 23.11.2004, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2004 35 FRÉTTIR FYRRI hlutinn á Íslandsmóti skákfélaga var tefldur í Menntaskól- anum í Hamrahlíð um síðustu helgi. Fyrsta umferð var tefld á föstudags- kvöld, tvær umferðir á laugardag og ein á sunnudag. Teflt er í fjórum deildum og er metþátttaka á mótinu að þessu sinni. Þátttökusveitirnar eru 50, þannig að alls tefla 316 skákmenn í hverri umferð. Mikil þátttaka er vel við hæfi á 30 ára afmæli Íslandsmóts skákfélaga, sem áður var kallað Deildakeppni Skáksambands Íslands. Fyrsta mótið var sett á Akureyri, en stórskotalið Taflfélags Reykjavík, með Friðrik Ólafsson, stórmeistara, í broddi fylkingar, sótti Akureyringa heim í fyrstu viðureigninni á mótinu. Til gamans má geta þess, að tíma- mörkin á fyrsta mótinu voru 1,5 klst. til að ljúka skákinni fyrir hvorn tefl- anda. Yfirbragð mótsins er nokkuð breytt frá undanförnum árum, því að Skákfélagið Hrókurinn er hætt að senda lið í keppni. Hin sigursælu og alþjóðlegu lið félagsins eru þar af leið- andi ekki lengur í mótinu. Þetta hefur þó ekki orðið til þess, að erlendir skákmeistarar tefli ekki lengur á mótinu, þeir voru nokkrir í MH um helgina. Í 1. deild, Flugfélagsdeildinni, tefla 8 lið, en þar veitir Taflfélag Vest- mannaeyja „gömlu“ Reykjavíkur- stórveldunum, Taflfélagi Reykjavík- ur og Helli, keppni um meistara- titilinn. Í liði TV eru fjórir stórmeistarar, Nataf (Frakklandi), Helgi Ólafsson, Danielsen (Dan- mörku), Votava (Tékklandi), og þar er einnig alþjóðlegi meistarinn, Sævar Bjarnason. Skákfélag Akureyrar hef- ur einnig styrkt sig mikið, en í liðinu tefla m.a. Jóhann Hjartarson, stór- meistari, Steffen Pedersen, alþjóðleg- ur meistari og skákmeistari Dan- merkur 2004, John Arni Nilsson, Jón Garðar Viðarsson, alþjóðlegur meist- ari, og Flovin Tor Naes. Aðrar sveitir í Flugfélagsdeildinni hafa stórmeistara í liðinu, svo sem Hellir, með Hannes Hlífar Stefáns- son, Helga Áss Grétarsson, Jón L. Árnason, TR með Þröst Þórhallsson, en stigahæsti keppandinn á mótinu er stórmeistarinn, Jaan Ehlvest (2631), frá Eistlandi, sem teflir í liði Hauka í 2. deild. Eftir þær fjórar umferðir, sem tefldar voru um helgina, er staðan þessi: Flugfélagsdeildin (1. deild): 1. Taflfélag Reykjavíkur, a-sveit, 28,5 v. af 32 mögulegum 2. Taflfélagið Hellir, a-sveit, 24,5 v. 3. Skákfélag Akureyrar, a-sveit, 20,5 v. 4. Taflfélag Vestmannaeyja, a- sveit, 18 v. 5. Taflfélag Reykjavíkur, b-sveit, 11 v. 6. Taflfélagið Hellir, b-sveit, 10,5 v. 7. Taflfélag Garðabæjar, a-sveit, 9,5 v. 8. Skákfélag Akureyrar, b-sveit, 5,5 v. A-sveit Taflfélags Reykjavíkur hef- ur góða forystu, en hún á eftir að tefla við liðin í 2.-4. sæti, þannig að sveitin þarf að öllu sínu að halda til að tryggja sigurinn í mars, á næsta ári, þegar seinni hluti mótsins verður tefldur. Liðsmenn Taflfélags Vestmanna- eyja eru trúlega ekki sáttir við stöðu sína. Tap fyrir a-sveit Hellis, 2,5-5,5, setti stórt strik í reikning þeirra, auk þess að þeir gerðu 4-4 jafntefli við Ak- ureyringa, þar sem Jóhann Hjartar- son og Ingo-Alexandre Nataf tefldu magnaða baráttuskák, sem lauk með jafntefli. Efstu sveiti í 2. deild: 1. Haukar, a-sveit, 19,5 v. 24 mögu- legum 2. Selfoss, a-sveit, 15 v. 3. Bolungarvík, 12 v. (5 stig) 4. Taflfélag Reykjavíkur, c-sveit, 12 v. (4 stig). Haukarnir eru í góðum málum, eins og við mátti búast, og Selfyss- ingar standa mjög vel að vígi í barátt- unni um 2. sætið, sem gefur einnig keppnisrétt í 1. deild á næsta móti. Efstu sveitir í 3. deild: 1. Taflfélag Garðabæjar, b-sveit, 16,5 v. af 24 2. Taflfélagið Hellir, c-sveit, 16 v. 3. Skákfélag Akureyrar, c-sveit, 14,5 v. Keppnin er mjög jöfn og spennandi í 3. deild. Efstu sveitir í 4. deild (þar tefla 26 sveitir): 1. Fjölnir, a-sveit, 19,5 v. af 24 mögulegum 2. Haukar, b-lið, 18,5 v. 3. Taflfélag Vestmannaeyja, b- sveit, 16 v. 4. Skákdeild KR, b-sveit, 15,5 v. Fjölnir, a-sveit, og Haukar, b-sveit, standa vel að vígi í 4. deildinni. Stórmeistararnir á Íslandsmóti skákfélaga hafa átt fullt í fangi með andstæðinga sína, sem ekki skarta slíkum titli. Nefna má, að Bolvíking- urinn harðskeytti, Halldór Grétar Einarsson, gerði jafntefli við stiga- hæsta skákmann mótsins, Jaan Ehlvest, Ingvar Ásmundsson lagði Hannes Hlífar Stefánsson að velli í innbyrðis viðureign Hellissveitanna og Kristján Guðmundsson, liðsmaður Taflfélags Garðabæjar, vann Helga Áss Grétarsson. Kristján, sem er fyrrverandi skólastjóri Skákskóla Ís- lands, háði harða baráttu við núver- andi skólastjóra, Helga Ólafsson, stórmeistara, og skulum við skoða þá skák. Hvítt: Kristján Guðmundsson Svart: Helgi Ólafsson Sikileyjarvörn 1.e4 c5 2.Rf3 Rc6 3.d4 cxd4 4.Rxd4 Rf6 5.Rc3 Db6 6.Rb3 e6 7.Be3 Dc7 8.a3 a6 9.f4 d6 10.Df3 b5 11.Bd3 Bb7 12.0–0 Be7 13.Kh1 0–0 14.f5!? – Það er frekar óvenjulegt að gefa svarti eftir e5-reitinn fyrir riddara. Algengt er að leika 14.Rd4, ásamt Dh3, t.d. 14.Rd4 Rd7 15.Dh3 Rxd4 16.Bxd4 e5 17.Be3 exf4 18.Bxf4 Re5 o.s.frv. 14...Re5 15.Dg3 Kh8 16.fxe6 fxe6 17.Rd4 Dd7 18.Dh3 Bc8 Almennt er það talið neyðarbrauð að leika manni til baka upp í borð á þennan hátt. Hugmyndin kemur fram í næstu tveim leikjum svarts, en hvít- ur kemur í veg fyrir lokaleikinn í áætluninni, e6-e5. 19.Rce2 De8 20.Rf3 Reg4 Eðlilegra virðist að drepa hinn hættulega biskup á d3, t.d. 20...Rxd3!? 21.cxd3 e5 o.s.frv. sjá stöðumynd 21.e5!? dxe5 Auðvitað ekki 21...Rxe5?? 22.Rxe5 dxe5 23.Hxf6! Bxf6 24.Dxh7+ mát. 22.Bxh7 Dh5! 23.Dxh5 Rxh5 24.Be4 Rxe3 25.Bxa8 Rxf1 26.Rxe5? – Hvítur hefði átt að drepa riddarann á f1, sem hefði gefið nokkuð jafnt tafl.: 26...Hf6 27.Bf3? – Hvíti yfirsést leikflétta svarts. Eft- ir 27.g4 Bd6 28.Hd1 Bxe5 29.Hd8+ Kh7 30.Be4+ g6 31.gxh5 Kg7 32.Hxc8 gxh5 33.Ha8 Hf2 34.Bd3 Hxh2+ 35.Kg1 Re3 á svartur mun betra tafl, vegna slæmrar stöðu hvíta kóngsins. 27...Rhg3+! 28.Rxg3 Eða 28.hxg3 Hh6+ 29.Kg1 Bc5+ 30.Kxf1 Hh1+ 31.Rg1 Hxg1+ 32.Ke2 Hxa1 og svartur vinnur. 28.-- Rxg3+ 29.Kg1 – Leikur sig í mát, en taflið er tapað, eftir 29.hxg3 Hh6+ 30.Kg1 Bc5+ 31.Kf1 Hh1+ 32.Ke2 Hxa1 o.s.frv. 29...Bc5+ mát. A-sveit TR hefur forystu á Íslandsmóti skákfélaga SKÁK Menntaskólanum í Hamrahlíð Íslandsmót skákfélaga 19.–21. nóvember 2004 Bragi Kristjánsson Sveit Eyktar sigraði í deildar- keppninni sem lauk um helgina og öðlaðist sveitin þar með rétt til að spila fyrir Íslands hönd í Norð- urlandamótinu á næsta ári. Í sigursveitinni spiluðu Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Að- alsteinn Jörgensen, Sigurður Sverrisson, Ragnar Her- mannnsson, Sveinn Rúnar Eiríks- son og Hrannar Erlingsson. Lokastaða efstu sveita í 1. deild: Eykt 246 Skeljungur 231 Ferðaskrifst. Vesturlands 217 Vinabær 213 Í annarri deild sigraði sveit Landsbankans á Ísafirði en þar fara saman í sveit Vestfirðingar og Selfyssingar. Þar er fremstur með- al jafningja Arnar Geir Hinriksson en með honum spiluðu Guðmundur Þ. Gunnarsson, Þórður Sigurðsson, Vilhjálmur Þ. Pálsson og Óskar Elíasson. Tvær efstu sveitirnar flytjast upp í fyrstu deild að ári en með sigursveitinni flyzt sveit Guðlaugs Sveinssonar. Lokastaða efstu sveita í 2. deild: Landsbankinn Ísafirði 240 Guðlaugur Sveinsson 224,5 ÍAV 221 Tryggingamiðstöðin 214 Suðurnesjamenn spiluðu best í þriðju deild og uppskáru sigur en með þeim fer sveit Sölufélags garðyrkjumanna í aðra deild en Sölufélagið átti ævintýralegan lokasprett meðan helztu andstæð- ingarnir misstigu sig. Í sigurliðinu í 3. deild spiluðu Kristján Örn Kristjánsson, Garðar Garðarsson, Arnór Ragnarsson, Heiðar Sigurjónsson, Karl G. Karlsson, Þröstur Þorláksson og Gunnlaugur Sævarsson. Lokastaða efstu sveita í 3. deild: Suðurnesjasveitin 240 Sölufél. garðyrkjumanna 225 Marin ehf. 224 Jón Björnsson 217 Kristján B. Snorrason afhenti verðlaun í mótslok. Hann þakkaði Kristjáni Blöndal og Matthíasi Þorvaldssyni fyrir hugmyndasmíð- ina að deildarkeppninni sem hann taldi góða viðbót í flóru bridsmót- anna. Keppnisstjóri var Björgvin Már Kristinsson og Stefanía Sigur- björnsdóttir mótsstjóri. Sveit Eyktar deildarmeistari Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Í mótslok fengu þrjár efstu sigursveitirnar í hverri deild verðlaun. Myndin er af þremur efstu sveitum í fyrstu deild. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson VEITTIR voru fimm styrkir úr Starfsmenntunarsjóði ungra kvenna á vegum Bandalags kvenna í Reykjavík, 8. nóvember sl. Rúm- lega 20 beiðnir bárust. Starfsmenntunarsjóður ungra kvenna var stofnaður 18. mars 1995 og í reglugerð sjóðsins segir m.a. að tilgangur hans sé að hvetja og styðja við bakið á ungum konum til þess að leita sér aukinnar mennt- unar. Á myndinni eru styrkþegar BKR, frá vinstri: Jóhanna Margeirsdóttir, Steinunn Ruth Stefnisdóttir, Ester Einarsdóttir og Díana Ósk Ósk- arsdóttir. Á myndina vantar Ástu Kristrúnu Ólafsdóttur. Þau fyrirtæki, sem styrktu sjóð- inn að þessu sinni voru Hafgæði, Gripið og greitt, Orkuveita Reykja- víkur, Gæðabakstur og K. Karlsson. Auk þess lögðu nokkur aðildarfélög bandalagsins framlag í sjóðinn. Bandalag kvenna veitir fimm námsstyrki Ljósmynd/Róbert Fragapane JÓLAKORT Svalnanna eru komin út. Í ár prýðir jólakortin myndverk eftir Gerði Gunnarsdóttur mynd- höggvara og félagskonu. Jólakortin eru fimm saman í pakka og kosta 500 kr. pk. og er hægt að fá þau bæði með eða án texta. Sala jólakortanna er aðal fjár- öflun félagsins og mun ágóðinn m.a. fara í að styrkja Rjóðrið í Kópavogi, hvíldarheimili fyrir langveik börn. Eftirtalin fyrirtæki selja kortin: Jón Indíafari og Villeroy og Boch í Kringlunni. Líf og list í Smáralind, Ulrich Falkner í Mjódd, Guðrún, tískuverslun, Rauðarárstíg, Hjá Hrafnhildi við Engjateig, Kello í Hamraborg, Lífstykkjabúðin á Laugavegi, MKM við Óðinstorg, Soldis við Vitastíg og Runni – stúd- íóblóm Grafarvogi. Jólakort Svalnanna Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.