Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 8

Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nei, nei, þetta er ekki miltisbrandur, bræður, en þetta er sjáanlega mjög hættuleg veira þótt lítil sé. Tíðarfar hefur veriðeinkar hagstætt áárinu 2004 og mun það í heild skipa sér í flokk hlýrri ára, „en þó verður það að líkindum ekki eins gott og árið í fyrra,“ segir Trausti Jóns- son hjá Veðurstofu Ís- lands. Nýliðinn nóvember var nokkuð umhleypingasam- ur á landinu og hitasveifl- ur miklar, samkvæmt yf- irliti frá Veðurstofunni. Þar kemur fram, að hiti hafi verið yfir meðallagi, þrátt fyrir að mikið kulda- kast hafi gert dagana 15. til 20. nóvember. Meðalhiti í Reykjavík mældist 2,2 stig og er það 1,1 stigi ofan meðallags. Frost í Reykjavík fór í 15,1 stig aðfaranótt 19. nóvember og hefur svo mikið frost ekki mælst þar síðan í janúar 1981 og hitinn er sá lægsti í Reykjavík í nóvember frá 1893, en þá mældist frostið 17,4 stig. Á Akureyri var meðalhiti í nóvember 0 stig og er það 0,4 stigum ofan meðallags. Frost fór mest í 15 stig á Akur- eyri. Í Akurnesi var meðalhitinn 1,9 stig, en -3,7 á Hveravöllum. Úrkoma í Reykjavík mældist 113 mm og er það rúmlega 50% umfram meðallag. Á Akureyri mældist úrkoman 62 mm og er það 15% umfram meðallag. Úr- koman í Akurnesi mældist 154 mm. Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 27 og er það 12 stundum færra en í meðalári. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 23 og er það 8 stundum meira en að meðaltali í nóvember. Haustið, október og nóvember, var nokkuð umhleypingasamt en þó var tíð fremur hagstæð. Hiti var í rétt rúmu meðallagi, úrkoma nokkuð yfir meðallagi, en sól- skinsstundir ekki fjarri meðallagi. Hvað árið í heild varðar var hiti yfir meðallagi alla mánuði ársins nema hvað október er undantekn- ing. Þá hafði hiti verið fyrir ofan meðallag í 30 mánuði í röð í Reykjavík. Marsmánuður var óvenju hlýr í höfuðborginni og að- eins 5 marsmánuðir verið hlýrri þar frá því mælingar hófust, síð- ast var svo hlýtt í mars árið 1964. Á Akureyri hefur mars tvívegis verið hlýrri en í ár, 1929 og 1964. Þá má nefna að í ágúst féll 113 ára gamalt hitamet í höfuðborginni, hiti mældist 24,8 stig þann 11. ágúst og eins þótti óvenjulegt að hiti fór á þessum tíma í ágúst fjóra daga í röð yfir 20 stig, en ekki er vitað til að slíkt hafi áður gerst. Sama dag, 11. ágúst, mæld- ist 29,2 stiga hiti á Egilsstaðaflug- velli og vita menn ekki til þess að jafn hár hiti hafi mælst í þeim mánuði. Síðastliðið ár, 2003, var eitt hið hlýjasta á vestanverðu landinu frá því mælingar hófust, „en fyrir norðan eru nokkur ár svipuð, þannig var meðalhitinn 5,1 á Ak- ureyri í fyrra, en árið 1933, sem er eitt hið hlýjasta sem mælst hefur þar um slóðir, var meðalhitinn 5,3 stig,“ segir Trausti en það sumar var sunnanátt ríkjandi með rign- ingu syðra. Gjarnan var á liðnu sumri vitnað til sumarsins 1939 og það borið saman við sumarið 2004. Trausti segir að meðalhitinn hafi verið 11,5 stig á Akureyri sumarið 1939, örlítið hærri sumarið 1933 eða 11,8 stig, 10,8 stig í fyrra sum- ar og 10,9 nú í sumar. Sem fyrr segir var meðalhiti á Akureyri 5,1 stig í fyrra en verði hitastig í desember 2004 í með- allagi mun meðalhiti ársins verða 4,8 stig, verði hann hins vegar einu stigi fyrir ofan meðallag líkt og raunin hefur verið með flesta mánuðir ársins verður meðalhit- inn 4,9. „Desember þyrfti að vera mjög hlýr til að fara upp fyrir meðaltal síðastliðins árs,“ segir Trausti. „Þetta ár hefur verið óvenjulega hlýtt, það eru sárafá önnur ár hlýrri, fyrst og fremst þá árið í fyrra, 1933 og 1939. Það sem einnig er óvenjulegt er að það komi tvö svona hlý ár í röð. Þessi hlýju ár koma svolítið í kippum, en sjaldan tvö ár í röð, oftast líða einhver ár á milli þeirra.“ Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, bendir á að með- alhiti í Stykkishólmi á árinu verði sennilega 5 stig á árinu, var 5,4 stig í fyrra og þetta séu tvö hlýj- ustu ár sem komið hafa samanlagt frá því mælingar hófust þar fyrir 159 árum Ástæður hlýindanna segir hann að megi að nokkru leyti rekja til gróðurhúsaáhrifa en einnig til þess að hitabylgja sé í hafinu norður undan landinu. Hiti í hafinu þar sveiflist mikið frá ára- tug til áratugar, öld til aldar en nú séu hlýindin ríkjandi. „Það má vera að þetta snúist við, en óvíst hvenær það verður. Veruleg kóln- un er þó ólíkleg næstu 5 ár eða svo“ segir Páll. „Mér sýnist ekki líklegt að verði svona stanslaus hlýnun eins og verið hefur und- anfarið.“ Vissulega segir Páll aldrei nema gott fyrir Íslendinga að fá hlýju, það komi sér vel til sjávar og sveita, „en þetta er að verða ískyggilegt, þetta er mikil breyting á skömmum tíma og að öllum líkindum að verulegu leyti af mannavöldum. Þess virðast ekki þekkt dæmi að svo mikið magn koltvísýrings sé í loftinu og nú, jafnvel í 100 þúsund ár.“ Páll segir ástandið viðkvæmt hvað hitabreytingar varðar en þegar við bættist að maðurinn kæmi af fullum þunga inn í dæmið væri ómögulegt að geta sér til um hvaða afleiðingar það hefði. Fréttaskýring | Óvenju hagstætt tíðarfar tvö ár í röð Mikil breyting á stuttum tíma Sjórinn norðan við land óvenju hlýr Óvenjulegt að tvö hlý ár komi í röð  Öllu meiri hlýja er í sjónum norður af landinu en dæmi eru um áður. Það skýrir að hluta til hagstætt tíðarfar á því ári sem senn verður að baki sem og árinu í fyrra. Ástæða hlýindanna má einnig að nokkru rekja til lofts- lagsbreytinga. Þetta eru tvö hlýj- ustu ár í röð sem um er vitað. Hiti var yfir meðallagi alla mán- uði ársins nema í október þegar hiti var 0,1 stigi ofan meðallags. maggath@mbl.is NÝTT húsnæði sendiráðs Íslands í Brussel var opnað sl. föstudag við hátíðlega athöfn af Davíð Odds- syni, utanríkisráðherra. Sendiráðið er jafnframt fasta- nefnd Íslands gagnvart Evrópu- sambandinu og fylgir eftir fram- kvæmd EES-samningsins gagnvart því. Í dag starfa 20 manns við sendi- ráðið. Nýja húsnæðið er við Schuman–torgið í Brussel þar sem flestar aðalstofnanir Evrópu- sambandsins hafa skrifstofur sín- ar. Davíð Oddsson utanríkisráðherra, Kjartan Jóhannsson, sendiherra Íslands í Brussel, og frú Ástríður Thorarensen. Nýtt húsnæði sendiráðs í Brussel

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.