Morgunblaðið - 14.12.2004, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 14.12.2004, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 41 DAGBÓK Út er komin bókin Ljósberar og lögmáls-brjótar eftir Þorstein Antonsson. Bókininniheldur tíu ritgerðir um jafnmargaÍslendinga sem fóru eigin leiðir. Fæstir eru af því tagi sem oftast er fjallað um í bókum um íslenska originala; þessir höfðu eitthvað milli eyrn- anna, að sögn höfundar, og þættirnir ævisögur fremur en safn af skrítlum eins og oft vill verða í bókum um utangarðsmenn á íslenska vísu. „Þó vona ég að engum leiðist við lesturinn.“ Hvað er það sem gerir lögmálsbrjóta svo heillandi? „Ekki neitt eins og málin horfa við mér. Tilefni spurningarinnar er líklega heiti bókarinnar sem vís- ar til ritgerðar í henni um helgiljóðið Lilju sem flest- ir kannast við sem lokið hafa miðskólastigi. Sam- kvæmt ljóðinu hefur mannlífið tilgang sem auðvelt er að misnota. Vera í fyrstu ljósberi en gerst lög- málsbrjótur og er ljóðið sérstaklega ort síð- arnefndum til stuðnings en ekki hróss. Orðið ljós- beri er þýðing á orðinu Lúsifer og vísar til erkiengils sem fór út af línunni og féll ofan í iður jarðar; Lúsifer hafði brotið lögmál eins og fleiri fyrr og síðar. Bók mín fjallar meðal annars um Eystein Ás- grímsson höfund ljóðsins Lilju, sem þekkti vel bæði til myrkurs og ljóss. Hann hóf feril sinn sem munk- ur með því að berja ábótann í Þykkvabæjar- klaustri; fékk auk þess orð á sig fyrir kvennafar. Skálholtsbiskup sá hvað í Eysteini bjó og kom hon- um til betri verka.“ Hvers konar menn voru þetta? „Bók mín fjallar um fleiri nafnkunna menn en Eystein sem sett hefur verið spurningarmerki við vegna sérkennilegs skaplyndis, svo sem Sigurð Guðmundsson málara, einnig Bertel Þorleifsson sem nefndur er í öllum kennslubókum fyrir að vera brautryðjandi í ljóðagerð en fæstir hafa séð nokkuð eftir fram til þess sem ég nú birti. Aðrir eru minna þekktir þótt hafi haft áhrif á þjóðarsöguna eins og homminn Þórður Sigtryggsson, góðvinur Halldórs Laxness samkvæmt minningabókinni Grikklands- árinu, og er höfundur að óbirtri ævisögu frá sjö- unda áratugnum sem þrátt fyrir það hefur haft áhrif á þjóðfélagsþróunina með hætti sem ég lýsi í ritgerð minni um Þórð. Ég reyndi að fjalla af nær- færni um þá menn tíu sem ég valdi mér að viðfangs- efni, styðst við heimildir og skálda ekki í eyðurnar en reyni að draga upp læsilegar lýsingar á mönnum sem byggðu líf sitt á eigin forsendum og voru lík- lega ekki til annars færir.“ Hvar eru slíkir menn í dag? „Í dag hefur sálfræði og skyldar greinar náð að sauma að sömu manngerðum með hugtökum sem beina þeim í farveg, sumpart inni á stofnunum, ella í skólakerfinu og við ámóta aðstæður allt frá fyrstu æviárunum. Regluleg lyfjagjöf sér um framhaldið. Þetta gildir þó ekki um alla; sem betur fer. Með bók minni reyni ég að skoða mannlíf allt aft- ur á 14. öld. En einkum þó á 20. öld í ljósi slíkra fræða. Helst með að markmiðið fái notið sín, þó ekki sé fyrr en í frásögn minni.“ Bækur | Þorsteinn Antonsson sendir frá sér bókina Ljósberar og lögmálsbrjótar Lifað á eigin forsendum  Þorsteinn Antonsson rithöfundur fæddist í Reykjavík 30.5. 1943 og er höfundur á þriðja tugar bóka. Einkum fræðirita á seinni árum en hefur einnig skrifað og gefið út skáldsögur og ljóð. Um langt árabil birti hann sögur og greinar í Lesbók Morgunblaðsins. Höfund- urinn hefur öðru hverju verið í sambúð og einu sinni kvongast. Börn af hjónabandi eru tvö, drengur og stúlka. Bæði hin mannvænlegustu, að mati Þorsteins. Fyrirspurn til þeirra stjórn- valda sem hlut eiga að máli MIG langaði til að kanna hvernig stæði á því að allir flutningagámar sem kæmu hingað til lands enduðu alltaf í bakgarði hjá einhverju fólki en ekki í brotajárni eins og allt ann- að brotajárn? Nú hef ég verið að fylgjast svolítið með þessum gámum og hef ég tekið eftir því að það eru skipafélögin sem eru að selja gamla gáma frá sér til einstaklinga og fyrirtækja. Það hef- ur vakið svolitla undrun að þessir gámar geti endað þar og eru seldir þangað fyrir lítinn sem engan pen- ing, gámarnir eru fluttir hingað inn í land með þeim fyrirvara að þeir fari úr landi aftur og þess vegna er ekki settur skattur á þá þegar þeir koma hingað inn í landið og svo úrelda skipafélögin þá og fólk endar með þetta í garðinum eins og áður kom fram. Ég bara skil ekki hvers vegna það er ekki sett stopp á svona sjón- mengun og einnig er ekki annað að sjá en að skipafélögin séu að stela undan skatti með því að selja svo þessa gáma eftir að það er búið að úrelda þá. Í Evrópu eru komnir sérstakir geymslugámar og eru þeir með sér- stökum umhverfisstaðli sem og vinnuverndarstaðli. Ef ekki er brugðist við þessu, hvernig er þá hægt að banna fólki að geyma gamla bíla eða kerrur á lóðum sínum sem eru notaðar til þess eins að geyma dót í? Það er því áskorun frá mér til við- eigandi stjórnvalda, sem ég held að sé tollstjórinn, að fylgjast með þeim gámum sem koma til landsins og sjá til þess að þeir fari aftur úr landi eða að það verði lögð trygging á þessa gáma sem er ekki greidd til baka fyrr en gámurinn er farinn aftur úr landi eins og er gert við bíla og aðra hluti sem eru lánaðir hingað til lands, sem dæmi má nefna formúlu einn-bíl sem kom hingað, það þurfti að borga af honum tryggingu sem var fyrir því að hann færi örugglega aftur úr landi eftir sýningu. Kveðja og von um skjót og góð viðbrögð frá stjórnvöldum. Umhyggjusamur borgari. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 100ÁRA afmæli.Í dag, 14. desember, er 100 ára Þorkell Sveinsson frá Leirvogstungu í Mos- fellssveit, Hvassaleiti 58, Reykjavík. Þor- kell starfaði í allmörg ár hjá Sláturfélagi Suðurlands, en rak Vélsmiðjuna Steðja síðan um áratuga skeið ásamt bræðr- um sínum. Kona hans, Sigríður Bjarnadóttir, lést árið 2002. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 70 ÁRA afmæli. Ídag, 14. des- ember, er sjötugur Sigurgeir Sigurðs- son, fyrrverandi bæjarstjóri á Sel- tjarnarnesi. Hann verður að heiman. Systrabrúðkaup og skírn | Hinn 6. nóvember sl. voru gefin saman í Svalbarðs- eyrarkirkju af sr. Pétri Þórarinssyni brúðhjónin Eiríkur Orri Hermannsson og Sigrún Jónsdóttir og skírð dóttir þeirra Halldóra Eiríksdóttir og brúðhjónin Jón Gunnar Einarsson og Guðrún Hjálmtýsdóttir og skírður sonur þeirra Einar Hjálmtýr. Með þeim á myndinni er dóttir Sigrúnar, Karen Ósk. Notið þægindin Notaleg stæði í sex bílahúsum bíða þín í jólaumferðinni. H ön nu n: G ís li B . Ráðhús Reykjavíkur Innkeyrsla í kjallara frá Tjarnargötu. 130 stæði. Úrslitin í enska boltanum beint í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.