Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 37

Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 37 FRÉTTIR Atvinnuauglýsingar R A Ð A U G L Ý S I N G A R Tilboð/Útboð Útboð sími 528 9000 • www.rarik.is RARIK RARIK óskar eftir tilboðum í : RARIK 04019 Um er að ræða stækkun stöðvarhúss, byggingu inntaks- og inntakslokumannvirkis og rýmkun aðrennslisskurðar. Helstu magntölur : Útboðsgögn eru til sölu á skrifstofu RARIK, Rauðarárstíg 10, Reykjavík og kostar hvert eintak 10.000 kr. Skila skal tilboðum á skrifstofu RARIK, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík fyrir kl. 14:00 mánudaginn 14. febrúar 2005. Tilboðin verða þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem óska að vera viðstaddir. Lagarfossvirkjun Stækkun - Byggingarhluti a) Gröftur lausra og fastra jarðlaga. . 40 000 m³ b) Sprengigröftur. . . . . . . . . . . . . . . . 95 000 m³ c) Fylling . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 10 000 m³ d) Mótauppsláttur . . . . . . . . . . . . . . . 10 000 m² e) Járnbending . . . . . . . . . . . . . . . . 480 000 kg f) Steinsteypa. . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7 000 m³ Útboð þetta er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Svæðisskipulag Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Austur-Húnavatnssýslu auglýsir hér með skv. 13. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að Svæðis- skipulagi Austur-Húnavatnssýslu 2004-2016, sem nær til sýslunnar neðan marka Svæðis- skipulags Miðhálendis Íslands 2015. Tillagan liggur frammi á skrifstofu Héraðs- nefndar A-Hún., Húnabraut 32, 540 Blönduósi, hjá oddvitum sveitahreppanna, skrifstofu Höfð- ahrepps, skrifstofu Blönduósbæjar og hjá Skip- ulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík á skrifstofutíma (milli kl. 10-16) frá 15. desem- ber 2004 til 20. janúar 2005. Þeir, sem telji sig eiga hagsmuna að gæta, er gefinn kostur á að skila skriflegum athuga- semdum við tillöguna fyrir kl. 16:00 laugar- daginn 5. febrúar 2005. Athugasemdum skal skila á skrifstofu Héraðs- nefndar A-Hún., Húnabraut 32, 540 Blönduósi. Þeir, sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni. Fyrir hönd samvinnunefndar um Svæðisskipu- lag A-Húnavatnssýslu, Jóhann Guðmundsson, formaður. Félagslíf Miðlun/heilun  Sjálfsupp- bygging  Hugleiðsla  Fræðsla Halla Sigurgeirsdóttir, and- legur læknir. Upplýsingar í síma 553 8260 fyrir hádegi.  EDDA 6004121419 I Jf. I.O.O.F. Rb. 1  15412148- Jv. ATVINNA mbl.is Í ritdómi um ævisögu Halldórs Lax- ness eftir Halldór Guðmundsson í Lesbók sl. laugardag misritaðist nafn Björgólfs Guðmundssonar og bókaútgáfu hans, Nýja bókafélags- ins. Beðist er velvirðingar á þessu. Texta vantaði Í grein Ásdísar Thoroddsen sem birtist í blaðinu 7. desember um nið- urstöðu í kærumáli til Eftirlitsstofn- unar EFTA út af Kárahnjúkavirkjun vantaði texta um að greinin væri byggð á lögfræðiáliti Elviru Mendez Pinedo, sem er spænskur lögfræð- ingur og sérfræðingur í Evrópurétti. Elvira.MENDEZ-PINEDO@- cec.eu.int. Rangt nafn Í Morgunblaðinu 9. desember birtist grein eftir Svein Einarsson, fv. þjóðleikhússtjóra, þar sem hann fjallar um bókina „Landsins útvöldu synir“. Þar segir hann að Bragi Þor- móður Ólafsson hafi tekið bókina saman. Hið rétta er að það gerði Bragi Þorgrímur Ólafsson. Enn til meðferðar á Alþingi Fram kom í frétt í blaðinu í gær um skólagjöld við Tækniháskóla Ís- lands, að frumvarp um afnám laga um skólann hafi verið samþykkt fyr- ir helgi á Alþingi. Hið rétta er að frumvarpið er enn til meðferðar í þinginu og verður það tekið til loka- meðferðar á vorþingi. LEIÐRÉTT Nöfn misrituðust BSRB og Framvegis, miðstöð um sí- menntun, hafa undirritað samning um tungumálafræðslu BSRB. Um er að ræða afar metnaðarfullt átak í að efla tungumálakunnáttu fé- lagsmanna í BSRB. Boðið verður upp á námskeið í ensku, dönsku, spænsku, íslensku ritmáli, þýsku og frönsku fyrir félagsmenn BSRB ár- in 2005 og 2006. Í boði verður bæði einingabært nám fyrir framhalds- skóla, 60 klst. og einnig styttri nám- skeið þar sem höfuðáhersla verður lögð á talað mál, 30 klst. Stefnt er að því að minnsta kosti 1.500 manns sæki þessi námskeið. Lengra nám- skeiðið mun kosta 32.984 kr. en styttri námskeiðin 18.042 kr. Framvegis hefur samið við sí- menntunarmiðstöðvarnar um allt land um að annast námskeið fyrir félagsmenn utan höfuðborgarsvæð- isins og verða þau á sama verði og námsefnið samræmt. Fjölbreytt tungu- málafræðsla BSRB Frá undirritun samningsins: Inga Sigurðardóttir, formaður Kvasir, samtaka símenntunarmiðstöðva, Birna Gunnlaugsdóttir, fram- kvæmdastjóri Framvegis, Ögmund- ur Jónasson, formaður BSRB, og Elín Björg Jónsdóttir, formaður fræðslunefndar BSRB. EA-SAMTÖKIN halda sinn árlega fund um jólakvíða fimmtudaginn 16. desember kl. 18 í Kórkjallara Hallgrímskirkju. EA-samtökin bjóða upp á 12 spor tilfinninga til gleðilegra jóla. Allir velkomnir. Það er því miður vaxandi hópur fólks sem er að berjast við mikinn jólakvíða fyrir þessi jól eins og und- anfarin jól. Til dæmis vegna ást- vinamissis, hjónaskilnaðar, fjár- hagsörðugleika, fjölskylduvanda af ýmsum toga sjúkdóma o.fl. sem erf- itt er að sætta sig við, segir í frétta- tilkynningu. Fundur um jólakvíða NÝLEGA var opnuð ný húsgagna- og gjafavöruverslun í sama húsi og Vefnaðarvöruverslunin Virka í Mörkinni 3, Reykjavík. Eigendur verslunarinnar eru hjónin Helgi Axelsson og Guðfinna Helgadóttir. Verslunin er með úrval af hús- gögnum í gamaldags stíl frá Banda- ríkjunum, s.s. hillur, stóla, borð, stóra skápa o.fl. Húsgögnin eru handpússuð þannig að þau líti út eins og gömul og slitin. Einnig selur verslunin gam- aldags gjafavörur, alpa-jólatré, jólavörur, kertaljósakrónur og bútasaumsrúmteppi, töskur og fl. Frekari upplýsingar um vörurn- ar eru á www.virka.is. Ný verslun Virku húsgögn Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.