Morgunblaðið - 14.12.2004, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
UM 30 manna hópur rafiðn-
aðarmanna frá Alcan í Straumsvík
hefur undanfarin ár unnið mikið
starf í sjálfboðaliðavinnu við að
koma raflögnum og fleiru í Krýsu-
víkurskóla í viðunandi horf. Nýj-
asta verkefni þeirra var uppsetn-
ing á brunaviðvörunarkerfi í
skólanum sem þeir luku við nú í
haust. Uppsetningin tók um 480
vinnustundir og miðað við algengt
verð á útseldri vinnu rafiðn-
aðarmanna er virði þessa fram-
lags um 1,4 milljónir króna.
Í Krýsuvíkurskóla er meðferð-
arheimili fyrir langt leidda vímu-
efnaneytendur. Fyrir nokkru var
gerð krafa um að þar væri bruna-
viðvörunarkerfi. Lionsklúbburinn
Þór gaf kerfið og Lionsmenn
fengu síðan rafiðnaðarmennina til
liðs við sig. Bæði klúbburinn og
straumvísku rafiðnaðarmennirnir
hafa áður styrkt heimilið.
Eflir samheldnina
„Við erum voðalega glaðir að
hafa getað gert þetta en við höfum
líka verið voðalega lítið fyrir að
auglýsa okkur,“ segir Rúnar Páls-
son, rafvirki og verkefnastjóri
tæknisviðs Alcan í Straumsvík, í
samtali við Morgunblaðið. Hann
féllst þó á með smávegis semingi
að ræða við blaðamann um þá
vinnu sem rafiðnaðarmennirnir
hafa unnið í Krýsuvík. Rúnar segir
að vinnan í skólanum hafi í raun
verið auðveld, hópurinn sé sam-
stiga og þekkist vel enda séu
þarna menn sem hafi unnið saman
í allt að 35 ár. Þegar svo samstiga
hópur taki að sér verkefni séu þau
bæði fljótunnin og ánægjuleg.
Rúnar segir að rafiðnaðarmenn-
irnir séu sammála um að sjálf-
boðaliðastarfið sé gefandi og það
hafi eflt samheldnina í hópnum
enn frekar.
Rafiðnaðarmenn í Straumsvík
hafa aðstoðað meðferðarheimilið í
Krýsuvík allt frá því að því var
fyrst komið á laggirnar og giskar
Rúnar á að vinnustundirnar séu
a.m.k. 3–4 falt fleiri en þær sem
fóru í uppsetningu brunaviðvör-
unarkerfisins. Hann bætir við að
vinnuveitandi þeirra hafi látið
þeim í té verkfæri og bifreiðar, og
þegar lítil aðstaða var í Krýsuvík-
urskóla hafi þeir einnig fengið að
grípa með sér matarbita úr eld-
húsinu.
Rafiðnaðarmenn í álveri Alcan í Straumsvík
Gáfu 480 vinnustundir
í Krýsuvíkurskóla
Sjálfboðaliðastarfið er gefandi og eflir enn frekar samheldnina í hópnum.
SKÓLASTARF hefur nú staðið í
grunnskólum í þrjár vikur frá því að
samið var í kennaradeilunni. Yfir-
leitt virðist skólastarfið komið í eðli-
legt horf, en dæmi eru um að nú séu
að koma upp vandamál sem rakin
eru til verkfallsins.
Auður Árný Stefánsdóttir, skóla-
stjóri Laugalækjarskóla í Reykjavík,
sagði að í þessari viku hafi verið tölu-
vert mikið um nemendamál. Nem-
endur í skólanum eru í 7.–10. bekk,
það er 12 til 16 ára. „Það bar ekki á
því í þeirri viku sem þau komu í skól-
ann inn á milli og ekki fyrstu dagana
eftir að verkfalli lauk, en núna virðist
eitthvað vera að grípa um sig.“
Auður Árný sagði þetta lýsa sér í
meiri óróleika meðal nemenda, ekki
væri hægt að tala um uppivöðslu-
semi eða neitt slíkt.
„Við vorum að ræða þetta í morg-
un, nokkrir kollegar, og vorum sam-
mála um að þetta væri nánast alstað-
ar. Við viljum kenna verkfallinu um.
Okkur finnst þetta óeðlilega mikið.
Yfirleitt er ég með mjög rólega nem-
endur. Mér finnst ég hafa þurft að
hafa meiri afskipti af nemendum í
þessari viku en undir eðlilegum
kringumstæðum.“
Los en ekki agaleysi
Ragnar Þorsteinsson, skólastjóri í
Breiðholtsskóla, taldi ekki óeðlilegt
að að þegar börn kæmu úr 6–7 vikna
skólaleysi myndaðist svipað ástand
og oft er eftir sumarfrí og jólafrí.
Börnin séu nokkra daga að ná sér
niður. „Ég myndi ekki kalla þetta
agaleysi heldur fremur los,“ sagði
Ragnar. „Mér finnst ástandið núna
komið nánast í eðlilegt horf. Vissu-
lega finnum við að börn búa við mis-
jöfn skilyrði og hafa haft það mis-
jafnt í verkfallinu. Sum komu tættari
en önnur til baka. Menn verða að
velta því fyrir sér hvers vegna það
var.“
Hjördís Guðbjörnsdóttir, skóla-
stjóri í Engidalsskóla í Hafnarfirði,
sagði að þar væri allt með eðlilegum
hætti og engin sérstök eftirköst eftir
verkfallið. Í Engidalsskóla eru nem-
endur frá 1.–7. bekkjar. Hjördís
sagði að upphaf skólastarfs eftir
verkfall hefði verið líkt því sem er á
haustin. „Þetta var eins og að byrja
upp á nýtt. Það tekur svolítinn tíma
að komast í gang, sem er bara eðli-
legt. Ég myndi ekki segja að ég hafi
mikið orðið vör við los eða rót á nem-
endum.“
Karl Erlendsson, skólastjóri
Brekkuskóla á Akureyri, sagði að
þar hefði ekki orðið mikið vart við
agaleysi eða los á börnum eftir að
verkfallinu lauk. „Það var svolítið
óeðlilegt ástand rétt í upphafi, en
okkur þykir það allt komið í eðlilegt
horf.“ Aðspurður sagðist Karl ekki
hafa merkt sjáanlegan mun á því og
þegar skólastarf hæfist eftir löng frí.
„Við höfum verið að skoða mætingar
og annað þess háttar. Það er allt í
góðu lagi. Ég tel að þetta sé allt fallið
í réttar skorður, nú eftir þriggja
vikna kennslu,“ sagði Karl.
Starf í grunn-
skólum að kom-
ast í eðlilegt horf
BRATZ-dúkkurnar hafa lækkað í
verði hjá Hagkaupum um 900–1.400
krónur síðan Morgunblaðið birti
verðkönnun á leikföngum í Banda-
ríkjunum og hér á landi 9. desem-
ber sl. Þá var kannað verð á þrett-
án tegundum leikfanga sem fengust
í Hagkaupum 3. desember sl. Þetta
er m.a. niðurstaða verðkönnunar á
leikföngum sem Neytendasamtökin
framkvæmdu í fjórum leikfanga-
verslunum á höfuðborgarsvæðinu
13. desember sl.
12 tegundir kannaðar
Verslanirnar sem könnunin náði
til voru Dótabúðin, Hagkaup, Leik-
bær og Liverpool. Kannaðar voru
12 tegundir sem voru í Morgun-
blaðskönnuninni ásamt þremur teg-
undum í viðbót. Fram kemur að
Leikbær er oftast með hæsta verðið
en Hagkaup eru oftast með lægsta
verðið. Mesti verðmunurinn er á
Bratz-dúkkunum í Nighty night-lín-
unni. Þær eru ódýrastar í Hag-
kaupum en dýrastar í Dótabúðinni
Smáralind og munar þar 34%.
Dúkkurnar hafa lækkað í verði hjá
Hagkaupum um 900–1.400 krónur
síðan Morgunblaðið gerði sína
könnun hinn 9. sl.
Verðkönnun Neytendasamtakanna í fjórum leikfangaverslunum
Leikföngin ódýrust í Hagkaupum
!"#
$%
& '( %
!"# $% & ' ()*+ ( '
!"# $%"" , - .* ' / *01 /2" '
!"# 3%-
!"0' 4 ' 5" - '
!"0' 6) )" *" ) *""
7 " "0'
8)9 !1 !": ;:
8)9 .":" <=>) /)*"
8)9 .5 " / *%
8)9 !1 6"
/*" ?"1 !9 0" - * @9-
/*" ?"1 A" * (9
/*" ?"1 7)2"" $B$ 5 "
? +0 .@9")@5
!0+ 0" $% - + )*
)5
6")
"
80"
/C
$90%-
.D"
82"5
8)2)
E"
* )
)
34% verðmunur á
Bratz-dúkkum
RUNÓLFUR Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda, telur ekki að verð á
dísilolíu muni hækka um áramót
vegna krafna um lægra brenni-
steinsinnihald eldsneytis. Olía með
lægra brennisteinsinnihaldi hafi ver-
ið á markaði hér við sama verði og
önnur olía og því sé það spurning
hvort þeir aðilar sem eru með olíu
með hærra brennisteinsinnihaldi séu
ekki með óeðlilega álagningu á sinni
olíu.
Ný lög um fljótandi eldsneyti taka
gildi um áramót, en með þeim eru
lögfestar strangari umhverfiskröfur
en verið hafa í gildi til þessa. Þannig
má brennisteinsinnihaldið ekki vera
yfir 50 á hinum svonefnda ppm-
skala, en núgildandi reglur gera ráð
fyrir að 350 ppm sé leyfilegt. Í frétt í
Morgunblaðinu var sagt að dísilolía
muni hækka um 10% af þessum sök-
um þar sem olía með lægra brenni-
steinsinnihaldi sé dýrari í innkaup-
um sem því nemi.
Runólfur sagði í samtali við Morg-
unblaðið að Atlantsolía hefði aldrei
selt dísilolíu nema með þessu lægra
brennsisteinsinnihaldi og hann sæi
því ekki að þetta hefði nein áhrif á
markaðinn hér. Í frétt Morgunblaðs-
ins kæmi fram að Skeljungur hefði
selt dísilolíu hér á landi með lægra
brennisteinsinnihaldi og því væri
spurningin hvort hin olíufélögin
væru ekki að selja olíuna of dýrt.
Ganga misvel eftir olíu
Runólfur sagði að FÍB hefði einn-
ig verið að skoða þetta út frá því
sjónarmiði að eigendur nýjustu dís-
ilbíla kvörtuðu stundum undan því
að bílarnir gengju misvel eftir því
hver olían væri. Það væri ljóst að
nýjustu dísilhreyflarnir væru þannig
að þeir þyldu illa hátt brennisteins-
innihald í eldsneytinu og það væri
krafan í dag að það væri ekki hátt.
Runólfur benti jafnramt á að
menn hefðu keyrt á brennisteins-
snauðara eldsneyti í enn lengri tíma í
Skandinavíu og Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda hefði alltaf verið fylgj-
andi því að við fylgdum fyrirmælum
frá Evrópu í þessum efnum.
Framkvæmdastjóri FÍB um
gildistöku nýrra eldsneytislaga
Hefur ekki áhrif
á verð á dísilolíu