Morgunblaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. MARGRÉT Lára Viðarsdóttir úr Val og Eiður Smári Guðjohn- sen hjá Chelsea voru í gær út- nefnd knattspyrnukona og knattspyrnumaður ársins í leik- mannavali Knattspyrnu- sambands Íslands, en vel á ann- að hundrað mannst tók þátt í að velja bestu knattspyrnumenn landsins að þessu sinni. Laufey Ólafsdóttir varð í öðru sæti hjá konunum og Olga Færseth í því þriðja. Hjá körlunum var Her- mann Hreiðarsson í öðru sæti og Heimir Guðjónsson, fyrirliði Íslandsmeistara FH, í því þriðja./ B1Morgunblaðið/Sverrir Margrét Lára og Eiður Smári best ÆFINGAR á leikriti eftir skáldsögunni „Misery“, eða Eymd, eftir bandaríska rit- höfundinn Stephen King hefjast í nýju fjölnotarými í Vatna- görðum 4, sem áður hýsti kvikmyndafyr- irtækið Saga Film, strax eftir áramót. Fleiri leiksýningar eru í farvatninu í húsnæð- inu. Verið er að semja við landsfræga leik- konu og leikara til að fara með hlutverk í leikritinu, en eins og margir muna fóru Kathy Bates og James Caan eftirminni- lega með aðalhlutverk í kvikmynd sem gerð var eftir sögunni. Það er fyrirtækið Stúdíó 4 sem stendur að uppsetningunni, en félagið keypti ný- lega sýningarréttinn að Eymd. Stúdíó 4 hefur einnig fest kaup á húsnæðinu í Vatnagörðum 4 og er stefnan að vera með reglulegar leiksýningar í húsnæðinu á kvöldin en nýta rýmið sem upptökustúdíó á daginn meðal annars. Valdimar Örn Flygenring, leikari og einn eigenda Stúdíós 4, segir að sem stendur sé húsnæðið í útleigu og hafi verið það allt síðan hann og Jóhann Sigurðarson leikari keyptu húsnæðið við þriðja mann. „Við hugsum okkur að húsnæðið nýtist bæði sem stúdíó, sem leikhús og undir námskeiðahald ýmiss konar, meðal ann- ars. Auk þess má hugsa sér að þarna gætu farið fram alls konar kynningar, veislur og annað slíkt. Þetta er frábært húsnæði til ýmissa nota. Það er greinileg vöntun á svona húsnæði í Reykjavík.“ Eymd í nýju leikhúsi í Vatnagörðum Valdimar Örn Flygenring UM tvö þúsund Íslendingar á aldrinum 45 til 54 ára gætu verið tannlausir eða 6% Ís- lendinga á þessum aldri samkvæmt könn- un Guðjóns Axelssonar tannlæknis og Sigrúnar Helgadóttur tölfræðings frá árinu 2000 sem byggist á niðurstöðum könnunar meðal 800 manna. Árið 1995 voru 14% Íslendinga tannlaus í báðum gómum, rúm 26% árið 1990 og árið 1962 voru 70% kvenna á þessum aldri tannlaus í báðum gómum og rúm 30% karla. Í samantekt Guðjóns um könnunina kemur fram að Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunin telji að unnt sé að fylgj- ast með breytingum á tannheilsu þjóða með því að kanna hlutfall tannlausra í slembiúrtaki eins og hér var gert. Guðjón segir í samtali við Morgunblaðið að á þessu megi sjá að tannheilsa þjóðarinnar fari batnandi. Þá segir hann könnunina sýna að mikilvægt sé að fara reglulega til tannlæknis, þeir sem það geri séu með fleiri tennur en þeir sem síður leiti þjón- ustu tannlækna./6 Tannlausum fækkar hratt TVÖ SÍÐUSTU ár hafa verið þau hlýjustu í röð sem vitað er um. Tíð- arfar hefur verði einkar gott á yf- irstandandi ári og mun það skipa sér í flokk hlýrri ára, „en þó verður það að líkindum ekki eins gott og árið í fyrra“, segir Trausti Jónsson, veð- urfræðingur hjá Veðurstofunni. Ástæður þessara hlýinda má að nokkru leyti rekja til loftslagsbreyt- inga, að sögn Páls Bergþórssonar, fyrrverandi veðurstofustjóra. Þegar litið er á árið í heild hefur hiti verið yfir meðallagi alla mán- uðina fyrir utan október./8 Tvö óvenju- hlý ár í röð VIÐSEMJENDUR í kjaradeilu leikskólakennara og sveitarfélaga ætla að reyna til þrautar á næstu dögum og vikum að ná samkomu- lagi í kjaradeilunni undir stjórn rík- issáttasemjara en leikskólakennar- ar eru orðnir óþolinmóðir vegna gangs viðræðnanna og svartsýnir á að lausn finnist. Enn gera forsvarsmenn samn- inganefndanna sér þó einhverjar vonir um að ná megi samkomulagi án þess að komi til átaka. Fari hins vegar allt á versta veg má búast við að leikskólakennarar hefji eftir áramót undirbúning að atkvæða- greiðslu um verkfallsboðun. Skelli á verkfall í leikskólum snemma á næsta ári næði það til rúmlega 1.500 leikskólakennara og um 17 þúsund barna sem eru í leikskólum landsins. Áhrifin af lokun leikskól- anna vegna mögulegs verkfalls yrðu víðtæk og alvarleg. Spurður um möguleg áhrif þess fyrir atvinnulífið ef starfsemi leik- skólanna lamast vegna verkfalla segir Ari Edwald, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, að afleiðingarnar gætu orðið alvarleg- ar líkt og í sjö vikna verkfalli grunnskólakennara, sem hafði truflandi áhrif í atvinnulífinu og mikil áhrif á börnin sjálf og heim- ilin í landinu. Að sögn Bjargar Bjarnadóttur, formanns FL, snýst ágreiningur- inn um launalið samninga. Leik- skólakennarar bera laun sín saman við aðra háskólamenntaða hópa. ,,Það vantar töluvert upp á að þeim samanburði verði náð,“ segir hún. Karl Björnsson, forsvarsmaður launanefndar sveitarfélaga, segist ekki vilja hugsa þá hugsun til enda að til verkfalls komi á næsta ári. Reynt til þrautar að ná samningum í kjaradeilu leikskólakennara Leikskólaverkfall hefði víðtæk og alvarleg áhrif  Verkfall næði til/27 LÚSÍUHÁTÍÐIN svokölluð var haldin hátíðleg í Seltjarnarneskirkju í gærkvöldi en það var Sænska félagið á Íslandi sem stóð að hátíðinni. Sterk hefð er fyrir Lúsíuhátíðinni í Svíþjóð en eitt helsta einkenni hennar er að stúlkur, sem sums staðar eru kosnar í hlutverk Lúsíu, ganga um með ljósakrónur á höfði. Saga ítölsku stúlk- unnar Lúsíu, sem hátíðin er kennd við, segir að hún hafi dáið píslarvættisdauða 13. desember árið 304 á Sikiley. Segir sagan að hún hafi kallað yfir sig reiði unnusta síns eftir að hafa notað heimanmundinn til að gefa fátækum. Önnur saga segir að hún hafi verið kristin og viljað lifa ógift og gefa Jesú líf sitt. Hvort heldur var þá var Lúsía dæmd til að brenna á báli. Morgunblaðið/Jim Smart Ljósum prýdd Lúsía í Seltjarnarneskirkju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.