Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 39

Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 39 Fjárhagserfiðleikar? Viðskipta- fræðingur semur um skuldir við banka, sparisjóði og aðra. FOR, sími 845 8870. www.for.is Skemmtileg og hlý jólagjöf fyrirbörn, dömur og herra – verð frá 750,- til 1.400, Misty-skór, Laugavegi 178, s. 551 2070. Rafbylgjumælingar & varnir Virðist hafa áhrif á: Mígreni, höfuðverk, síþreytu, svefntruflanir, vöðvabólgu, exem, þurrk í húð vegna tölvu, fótaverki, liðkast í mjöðm. Klettur ehf., símar 581 1564, 892 3341. Kynnum glæsilegu vöruna frá ARIANNE Misty, Laugavegi 178, sími 551 2070. Fagleg ráðgjöf - góð þjónusta. HEIMAGALLAR fyrir konur á öllum aldri. Nokkrar gerðir. Verð frá 8.900 kr. Ullarsjöl, 15 litir. Verð 3.500. Ódýrar bensínvatnsdælur LTP80C, afköst 830 l/min, verð 40.629 án vsk. LTWT80C "Heavy Duty", afköst 1300 l/min, verð 63.345 án vsk. Loft- og raftæki, sími 564 3000, www.loft.is Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslimælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., s. 567 1130 og 893 6270. Það hefur sjaldan verið hag- stæðara að flytja inn bíla frá USA. Bjóðum ávalt hagstæðasta verðið. Örugg þjónusta hjá lög- giltum bifreiðasala. 10 ára reynsla. Uppl. í síma 897 9227, www.is-band.is Jeppapartasala Þórðar, Tangarhöfða 2, sími 587 5058 Nýlega rifnir Grand Vitara '00, Kia Sportage '02, Terrano II '99, Cherokee '93, Nissan P/up '93, Vitara '89-'97, Patrol '95, Impreza '97, Legacy '90-'94, Isuzu pickup '91 o.fl.Innrömmun Gallerí Míró. Málverk og listaverkaeftirprentanir. Speglar í úrvali, einnig smíðaðir eftir máli. Alhliða innrömmun. Gott úrval af rammaefni. Vönduð þjónusta, byggð á reynslu og góðum tækjakosti. Innrömmun Míró, Framtíðarhús- inu, Faxafeni 10, s. 581 4370, www.miro.is, miro@miro.is Allar þakpappalagnir!! Viðgerðir og nýlagnir. Þakdúkar og tveggja laga membrur. Nánari upplýsingar í síma 892 8131 eða www.pappi.is mbl.is FÉLAGAR úr MND-félaginu hafa afhent forsvarsmönnum líkn- ardeildar Landspítala – háskóla- sjúkrahúss í Kópavogi sérhannaða dýnu og dýnubúnað sem veldur ekki legusárum. Að sögn Guðjóns Sigurðssonar, félagsmanns í MND- félaginu, var dýnan afhent í minn- ingu tónlistarmannsins og fyrrum formanns félagsins, Rafns Ragnars Jónssonar, eða Rabba, sem hefði orðið fimmtugur sl. miðvikudag, en hann lést á þessu ári eftir langvinn veikindi. „Með tilkomu þessarar dýnu og búnaðar hefur bæði sjúklingurinn það betra um leið og hún sparar ómælda vinnu fyrir hjúkr- unarfólkið. Því þar sem svona dýna er þarf ekki starfsfólk til að snúa sjúklingnum á tveggja tíma fresti allan sólarhringinn, með öllu því ónæði fyrir sjúklinginn sem því fylgir. Þannig að það er mikill feng- ur að þessari dýnu,“ segir Guðjón. Hann segir dýnuna vera þá fyrstu af þremur sem MND-félagið mun ætla að safna fyrir og afhenda líkn- ardeildum sjúkrahúsanna á næstu misserum. Aðspurður segir Guðjón dýnu- búnaðinn, sem er að verðmæti um eina milljón króna, að stærstum hluta fjármagnaðan af TM trygg- ingum, Orkuveitu Reykjavíkur og Sparisjóði vélstjóra, auk frjálsra framlaga og söfnunarfjár sem safn- ast hefur við sölu smáhluta á borð við lyklakippur, nælur og jólakort. Morgunblaðið/Jim Smart Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir líknardeildar LSH, Friðgerður Guð- mundsdóttir, starfsmaður MND-félagsins og ekkja Rabba, Guðrún Frið- jónsdóttir læknir, Guðjón Sigurðsson og Hallfríður Reynisdóttir. Dýnubúnaður afhentur í minningu Rabba ÞRJÚ börn Sri Rhamawati heitinnar fengu að gjöf samtals 150.000 krón- ur frá líknar- og hjálparsjóði Lands- sambands lögreglumanna. Geir Jón Þórisson, yfirlög- regluþjónn í Reykjavík, segir að allir lögreglumenn greiði af launum sín- um í sjóðinn auk þess sem seld séu merki og annað til að afla tekna. Á hverju ári gefi sjóðurinn til ýmissa góðra málefna, jafnt stórra sem smárra. Frá því sjóðurinn var stofn- aður fyrir 12 árum hafi um 4–5 millj- ónum verið úthlutað víða um land. Morgunblaðið/Júlíus Amanda, dóttir Sri Rhamawati tekur við gjafabréfi úr hendi Geirs Jóns Þórissonar yfirlögregluþjóns. Við hlið hennar eru Mardiana Nana, systir Sri, og Gissur Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður í Hafnarfirði. Lögreglan styrkir börn Sri Rhamawati REGLUR um val á mönnum í stjórn- ir lífeyrissjóða virðast víðast hvar í Evrópu vera með svipuðum hætti og hér á landi og ef um lokaða sjóði er að ræða, eins og meginreglan er hér- lendis eru stjórnirnar nær alltaf skip- aðir fulltrúum launþega og atvinnu- rekenda til helminga. Þetta kemur fram í skýrslu, sem Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðu- maður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands hefur unnið fyrir Landssam- tök lífeyrissjóða. „Ef um starfsgreinasjóði er að ræða velur verkalýðsfélag yfirleitt fulltrúa launþega í stjórnina og heild- arsamtök atvinnurekenda hina stjórnarmennina. Það fyrirkomulag sem tíðkast á Íslandi við val stjórn- armanna virðist því ekki vera frá- brugðið því sem almennt gerist í Evr- ópu. Þetta er athyglisvert í því ljósi að nokkur gagnrýni hefur komið fram á fyrirkomulag það sem haft er um val í stjórnir lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði og því haldið fram að eðlilegra sé að velja stjórnir á al- mennum opnum fundum sjóðfélaga. Slík aðferð við val í stjórnir starfs- greinasjóða virðist hins vegar heyra til undantekninga í viðmiðunarlönd- unum,“ segir meðal annars á heima- síðu Landssamtaka lífeyrissjóða um niðurstöðurnar. Fram kemur einnig að ef um opna sjóði er að ræða virðist meginreglan vera svipuð og hér á landi hvað það snerti að vörsluaðili og sjóðfélagar skipi stjórn oftast til helminga og eru fulltrúar sjóðfélaga þá yfirleitt kjörn- ir á aðalfundi. Um fyrirtækjasjóði, sem víða þekkjast erlendis, þó þeir séu nánast óþekktir hér á landi, gildir almennt að þeir eru skipaðir fulltrúum fyrirtækis og fulltrúum starfsmanna og fer val á fulltrúum þess síðarnefnda yfirleitt fram á aðalfundi. Svipaðar reglur um hæfi Fram kemur einnig að svipaðar reglur virðast gilda um hæfi stjórn- armanna almennt í þeim löndum sem könnunin náði til og eru reglurnar hér mjög í takt við það sem almennt gildir í Evrópu. Yfirleitt er ekki farið fram á að stjórnarmenn búi yfir sérþekk- ingu, en alls staðar gildir að stjórn- armenn séu ráðvandir og hafi ekki verið dæmdir fyrir brot sem snúa að rekstri. Þá gilda hvergi neinar reglur um það hversu lengi stjórnarmaður getur setið í stjórn lífeyrissjóðs. Skýrsla LL um reglur um val fulltrúa í stjórnir lífeyrissjóða í Evrópu Áþekkar reglur hér og víðast hvar í Evrópu vandamanna og er aðgangur að kortasafninu ókeypis. Þessi gömlu jólakort gefa mynd af samtíma sínum og þeim hefðum og stíl sem ríkt hefur á hverjum tíma. Elstu kortin sem finna má á vefnum eru frá því um það bil 1920 og er kortið sem fylgir með þessari tilkynningu frá þeim tíma. Á BORGARSKJALASAFNI Reykjavíkur er að finna mikið magn jólakorta sem safnað hefur verið á undanförnum árum. Tekið hefur verið saman safn nokkurra gamalla korta og þau gerð aðgengi- leg á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is þar sem hægt er að senda þau rafrænt til vina og Gömlu jóla- kortin komin á Reykjavik.is EFTIRFARANDI ályktun var sam- þykkt í stjórn Félags ungra fram- sóknarmanna í Skagafirði, FUFS: „Félagið mótmælir harðlega frum- varpi menntamálaráðherra um hækkun innritunargjalda í rík- isrekna háskóla. Innritunargjöld eru skólagjöld. Skólagjöld eru ekki stefna Framsóknarflokksins. Við skorum á þingmenn Framsókn- arflokksins að styðja þetta mál ekki.“ Gegn hækkun innritunargjalda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.