Morgunblaðið - 14.12.2004, Síða 13

Morgunblaðið - 14.12.2004, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Egilshöll 13. Mars 2005 Lotion Promotion og Viva Art Music kynna með stolti: ásamt hinni stórkostlegu Ana Maria Martinez Sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur Óperukórinn í Reykjavík Stjórnandi Eugene Kohn Miðasala í verslunum Skífunnar og á www.domingo.is Jólagjöf sem gleður MEÐLAGSGREIÐENDUR! Gerið skil hið fyrsta og forðist vexti og kostnað INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉLAGA Lágmúla 9 - 108 Reykjavík - Kt. 530372 0229 - www.medlag.is Banki 0139-26-4700 - Sími 590 7100 - Fax 590 7101          !"#  $%"%#  " "# & ' &( ' )( ' ( *+$%,% % -" ., /''" ÍSLENSK skattayfirvöld þurfa að kalla eftir upplýsingum um fjármála- viðskipti í einstökum tilfellum. Þetta sagði Skúli Eggert Þórðarson, skatt- rannsóknarstjóri, í samtali við Morg- unblaðið. Ennfremur sagði hann þetta ekki svo á hinum Norðurlönd- unum þar sem bankar sendi óumbeð- ið inn upplýsingar um vaxtagjöld og vaxtatekjur. Vegna þessa geti skattayfirvöld fyllt í þessar upplýs- ingar fyrirfram á skattframtali. Jafnframt segir Skúli að samkvæmt 94. grein tekjuskattslaganna beri fjármálafyrirtækjum að láta skatta- yfirvöldum þessar upplýsingar í té í einstökum tilvikum þegar þess er óskað en slík sé ekki alltaf raunin. Fóru fyrir hæstarétt Til dæmis hafi skattayfirvöld þurft að fara fyrir Hæstarétt árið 1999 þegar Landsbanki Íslands neitaði að afhenda upplýsingar um vaxtatekjur 1.347 einstaklinga á þeim forsendum að hér væri um víðtæka beiðni að ræða. Einnig hafi skattrannsóknar- stjóri fyrr á þessu ári þurft að stefna Verðbréfaskráningu Íslands í tví- gang vegna verðbréfaviðskipta sem voru til rannsóknar hjá embættinu. Í öllum þessum málum féll dómur skattayfirvöldum í vil. Að sögn Skúla er það ein af tillögum skattsvika- nefndarinnar að skattayfirvöld fái sjálfvirkan aðgang að þeim upplýs- ingum sem hér er um að ræða. Þegar Guðjón Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, er inntur eftir þessu segir hann að hafa verði í huga að hér sé í mörgum tilfellum um við- kvæmar persónuupplýsingar að ræða. „Öllum finnst eðlilegt að veita skattayfirvöldum aðgang að þeim upplýsingum sem óskað er eftir. Hins vegar geta upplýsingarnar í sumum tilvikum innihaldið persónu- upplýsingar sem eru viðkvæmar og því treysta fjármálafyrirtæki sér ekki til þess að afhenda þessar upp- lýsingar án dómsúrskurðar,“ segir Guðjón. Að hans sögn er það þó afar sjaldgæft að fyrirtæki neiti skatta- yfirvöldum um upplýsingar. Hann vísar til skýrslu sem SBV lét ráð- gjafafyrirtækið Deloitte vinna fyrir sig og segir að samkvæmt henni sé aðgangur skattayfirvalda hér á landi með sama móti og gerist í nágranna- löndunum og því sé rangt að gefa í skyn að svo sé ekki. Bankar meti heimild Varðandi persónulegt eðli upplýs- ingana segir Skúli Eggert Þórðar- son: „Það er auðvitað sjónarmið sem taka þarf til umhugsunar en þó er ljóst að skattayfirvöld hafa rýmri heimildir en aðrir til þess að kalla eftir upplýsingum.“ Morgunblaðið hafði samband við Björn Geirsson, lögfræðing hjá Per- sónuvernd, og innti hann eftir því hvernig túlka megi þetta með tilliti til laga um persónuvernd en hann svaraði því að: „Samkvæmt almenn- um reglum um vinnslu persónuupp- lýsinga samkvæmt lögum um per- sónuvernd og meðferð persónu- upplýsinga er það hlutverk ábyrgðaraðila upplýsinganna að taka afstöðu til þess hvort fullnægj- andi heimild sé fyrir miðlun upplýs- inga til þriðja aðila, svo sem á grund- velli sérlagaákvæða.“ Það er með öðrum orðum bankanna að meta það hverju sinni hvort heimild sé fyrir því að miðla þessum upplýsingum til skattayfirvalda. Að sögn Björns lýt- ur það sömu lögmálum hvort skatta- yfirvöld eigi að fá sjálfvirkan aðgang að upplýsingunum. Skattayfirvöld þurfa að kalla eftir upplýsingum Fjármálafyrirtækjum ber að gefa upplýsingar um viðskiptavini TENGLAR ..................................................... www.mbl.is/itarefni Skúli Eggert Þórðarson Guðjón Rúnarsson ( F .G?       /.H $4<       I4I ;E<      6/< (         JIH< $: &    

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.