Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 33

Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 33 MINNINGAR ✝ Berndt Olov Edvard Grön- qvist fæddist í Eke- nes í Finnlandi 6. október 1946. Hann lést á heimili sínu 4. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Gerda Karen, f. í Skt. Pétursborg 24. október 1903, d. 22. apríl 1995 og Ragnar Grönqvist, f. í Hels- inki 29. desember 1905, d. 16. mars 1973. Systkini eru Birgitta, f. 12. des- ember 1937, búsett í Svíþjóð, Jan, f. 7. maí 1940, d. 1997 og Curt, f. 21. desember 1942, bú- settur í Þýskalandi. Eiginkona Berndts er Guðrún Gerður Sæmunds- dóttir, f. í Hvera- gerði 16. maí 1950. Börn þeirra eru Ró- bert Ragnar, f. 20. september 1979 og Christína Guðrún, f. 10. júní 1982. Útför Berndts fer fram frá Kópavogs- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Í dag kveðjum við kæran vinnu- félaga okkar, Berndt Olov Edvard Grönqvist. Berndt fæddist í Finnlandi og ólst upp í fallegum strandbæ sem heitir Hanko. Þaðan átti hann góð- ar minningar með vinum sínum. Berndt sagði okkur oft frá skemmtilegum stundum og minnt- ist þá gjarnan á siglingar og aðrar tómstundir. Það var notalegt að setja sig inn í hugarheim hans þeg- ar hann talaði um Finnland og lýsti staðháttum. Ungur fór Berndt til vinnu hjá SAS í Stokkhólmi þar sem grunnurinn var lagður að lífs- starfi hans. Í byrjun áttunda áratugarins fluttist hann til Kaupmannahafnar og hélt áfram að vinna hjá SAS. Á þessum tíma kynntist hann eigin- konu sinni Gerði Sæmundsdóttur sem var að vinna í Kaupmannahöfn. Vegna vinnu sinnar ferðaðist Berndt mikið og hann sagði okkur margar skemmtilegar sögur frá fjarlægum stöðum. Á Kaupmanna- hafnarárunum var Berndt virkur félagi í róðrarklúbbi og hélt hann alla tíð góðum tengslum við róðr- arfélagana. Berndt hafði mikinn áhuga á hinum ýmsu íþróttum og þá helst frjálsum, aksturs- og keppni í norrænum greinum skíða- íþrótta. Veiðimennskan átti þó hug hans allan. Ófáar voru veiðiferð- irnar austur á Þingvöll. Berndt hafði yndi af að ferðast og dásam- aði íslenska náttúru. Við vinnufélagarnir og viðskipta- vinir okkar hérlendis sem og er- lendis fundum að Berndt var vel að sér um margt og var áreiðanlegur. Það tók Berndt ekki langan tíma að setja sig inn í hin flóknustu mál. Þegar Kaupmannahafnarárunum lauk fluttu þau hjónin til Íslands þar sem þau bjuggu sér fallegt heimili og eignuðust tvö mannvæn- leg og yndisleg börn, Róbert og Christinu. Berndt talaði alltaf um börnin sín og eiginkonu með stolti og það var hans háttur að vera trúr sinni fjölskyldu, vinum og vinnu- félögum. Kæri Berndt. Söknuðurinn er mikill. Við minnumst þín með þakk- læti fyrir allar þær stundir sem við áttum saman og biðjum algóðan Guð að styrkja fjölskyldu þína um alla framtíð. Hvíl í friði. Jan, Páll, Ólafur og fjölskyldur. Fyrir tveimur mánuðum síðan voru skilaboð til mín í talhólfinu „Ég er öskureiður út í þig – hringdu í mig eins og skot.“ Ég varð miður mín og hjartað tók að slá hraðar. Hvað í ósköpunum hafði ég gert sem gerði Berndt svo reið- an? Ég hringdi til baka og þar var Berndt skellihlæjandi og hafði óskaplega gaman að öllu saman. Hann vissi sem var að ég mundi taka slík orð alvarlega og gat ekki látið það vera að stríða mér svolítið. Við spjölluðum og hlógum saman að þessu uppátæki hans. Síðastliðinn mánudag áttaði ég mig á að þetta samtal okkar Berndts var okkar síðasta hérna megin. Berndt tilheyrði í mínum huga „fraktfjölskyldunni“. Ég kynntist honum fyrst sem sölumanni í flug- frakt Flugleiða. Þá reyndi hann að selja mér flugfrakt fyrir ferskan lax til Bandaríkjanna á þeim forsend- um að hætt yrði við flugið ef ekki næðist að selja nægilegt magn til að hægt væri að fljúga. Þannig var nú framboðið á þessum markaði á þeim tíma – fyrir 15 árum síðan. Næst lágu leiðir okkar saman þegar Berndt var kallaður til starfa fyrir Flugflutninga þegar Cargolux byrjuðu flug sitt hingað. Berndt bjó að mikilli og eftirsóknarverðri reynslu á markaði fyrir flugfrakt sem fyrrum starfsmaður SAS, þeir voru ekki svo margir hér á landi með þá þekkingu. Það voru skemmtilegir tímar, samskiptin urðu mikil og náin. Við vorum á þessum tíma að taka þátt í upp- byggingu á nýrri atvinnugrein, það sameinaði okkur og okkur varð vel til vina. Fyrir ekki svo löngu síðan tók Berndt á móti viðurkenningu vegna þessara starfa sinna á upp- hafsárum Flugflutninga. Það gladdi hann óumræðilega og okkur öll sem komum að þessari sögu. Ósjaldan hef ég leitað til Berndts þegar mig hefur vantað einhverjar upplýsingar sem ég vissi að hann byggi yfir og hann átti það til að slá á þráðinn til mín í sömu erinda- gjörðum. Ég minnist þess einhverju sinni þegar mér var mikið niðri fyrir vegna skrifræðis í greininni að Berndt sagði mér reynslusögu frá árum sínum hjá SAS. Hann sagði að þegar um útflutning til Sovét- ríkjanna gömlu var að ræða gilti það eitt að hafa nægilega marga stimpla af öllum stærðum og gerð- um – á umbúðum vörunnar sem og á pappírum til að tryggja að varan kæmist á áfangastað. Það gilti einu hvaða stimplar þetta voru eða frá hverjum – það var stimpillinn per se sem skipti öllu máli. Þessa reynslusögu Berndts er ástæða til að við munum vel eftir nú á tímum nýrrar öldu skrifræðis af öllum toga. Berndt hætti í „fraktfjölskyld- unni“ fyrir nokkrum árum en hann fór þó ekki langt. Hann fékk starf sem sölumaður í ferskum fiski og var sem slíkur stór viðskiptavinur flugfraktar. Fyrir mér er það tákn- rænt að Berndt var í símanum að tala við starfsmann Flugleiða frakt- ar þegar hann kvaddi svo snögg- lega síðastliðinn laugardag. Það er erfitt að trúa því að þú sért ekki lengur á meðal vor og ég geti ekki lengur hringt í þig þegar ég þarf á aðstoð að halda eða bara þegar mig langar að spjalla um gamla tíma. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka þér, Berndt, fyrir frábær kynni og samstarf í gegnum árin. Góður guð veri með fjölskyldu þinni og vinum á þessari sorgarstundu. Signý Sigurðardóttir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Hvíl í friði, elsku Berndt. Laufey Jóhannsdóttir, Sesselja Henningsdóttir. BERNDT O. E. GRÖNQVIST Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 Legsteinar Englasteinar www.englasteinar.is Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við and- lát og útför sonar okkar, bróður og ömmu- barns, GUÐNA MÁS BALDURSSONAR, Hólmgarði 45, Reykjavík. Ásta Hjartardóttir, Baldur Árni Guðnason, Halldór Rafn Bjarnason, Svanborg O. Karlsdóttir og fjölskylda. Útför JÓNASAR GUÐJÓNSSONAR fyrrv. kennara við Laugarnesskóla, fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 17. desember kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknar- stofnanir og minningarsjóði. Ingibjörg Björnsdóttir, Ragnar Jónasson, Eva Örnólfsdóttir, Björn H. Jónasson, Guðrún Þóroddsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, LILJA ÓLAFSDÓTTIR, Sörlaskjóli 78, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 11. desember. Björn Þ. Þórðarson, Þórunn B. Björnsdóttir, Pálmi V. Jónsson, Sigurður H. Björnsson, Þórunn Ólafsdóttir, Bryndís Anna Björnsdóttir, Edda Björnsdóttir, Jakob Pétursson, Páll Björnsson, Lilja Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar okkar ást- kæru, SIGRÍÐAR E. HALLDÓRSDÓTTUR frá Hnífsdal, Þrastarási 6, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fyrir góða umönnun og einstakan hlýhug. Rikharð Bess Júlíusson, Júlíus Þór Bess Rikharðsson, Anna Lísa Rikharðsdóttir, Brynjar Örn Rikharðsson, Eva Hlín Gunnarsdóttir, Jökull P. Jónsson, Hákon Darri Jökulsson, Marta Gunnarsdóttir, Sigvaldi L. Guðmundsson, Halldór G. Pálsson og fjölskylda. Þökkum innilega samúð og vinarhug við frá- fall föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS TRYGGVASONAR úrsmíðameistara, Reynimel 26, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á K1 á Land- spítala Landakoti. Gróa Kristín Ólafsdóttir, Tryggvi Ólafsson, Elín Jóhannsdóttir, Garðar Ólafsson, Guðlaug Ingólfsdóttir, barnabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.