Morgunblaðið - 14.12.2004, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 43
MENNING
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Jóga kl. 10, línudans
kl. 11, postulínsmálun kl. 13, baðþjón-
usta þriðju- fimmtu og föstudaga.
Jólaljósaferð verður farin miðvikud.
15. des. kl. 10, kirkjan í Þorlákshöfn
skoðuð og þaðan ekið að veitinga-
staðnum Hafið bláa og snæddur jóla-
grautur. Ekið til borgarinnar og jóla-
ljósin skoðuð, endað að Aflagranda
þar sem boðið er upp á kaffi og að-
ventukringlu skráning í síma 562
2571.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, almenn handavinna, leikfimi, vefn-
aður, línudans, boccia, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin, kl. 10–11 sam-
verustund, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14
félagsvist, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
kl. 13. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar
ganga frá Ásgarði Glæisbæ kl. 10.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Karlaleikfimi kl. 13 vatnsleikfimi í Mýr-
inni kl. 9.10, opið hús í safnaðarheimil-
inu á vegum kirkjunnar kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar m.a. glerskurður. Á
morgun jólahlaðborð í hádeginu,
ásamt fjölbreyttri dagskrá góðra
gesta sem líta við eftir hádegi, allir
velkomnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
glerskurður, myndlist, hárgreiðsla, kl.
10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádeg-
ismatur, kl. 12.15 Bónusferð, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–13, boccia kl. 9.30–10.30, börn frá
leikskólanum Austurborg mæta og
syngja kl. 10.30, jólahelgistund kl.
13.30, kaffi og meðlæti á eftir. Böðun
virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir–
hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf kl.
9–16. Betri stofan: handavinna. Lista-
smiðja: tréskurður, leikfimi 10–11, bóka-
bíll kl. 14.15–15. Bónus kl. 12.40. Fastir
liðir eins og venjulega. S. 568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Aðventufund-
ur Korpúlfanna, samtaka eldri borgara
í Grafarvogi, verður haldinn í Grafar-
vogskirkju, neðri sal á morgun, mið-
vikudaginn 15. desember kl. 10. Séra
Lena Rós Matthíasdóttir verður gest-
ur fundarins. Lesin verður jólasaga og
tónlist flutt. Heitt á könnunni.
Krabbameinsfélagið | Ný rödd, stuðn-
ingshópur verður með jólafund í húsi
Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8,
4. hæð miðvikudaginn 15. desember
kl. 20. Dagskrá: Gunnjóna Una Guð-
mundsdóttir félagsráðgjafi fjallar um
rannsóknarniðurstöður á áhrifamætti
bænarinnar. Önnur mál.
Kvenfélag Breiðholts | Jólafundurinn
verður þriðjudaginn 14. desember kl.
19 í safnaðarheimili Breiðholtskirkju
(inngangur að sunnanverðu). Dagskrá:
Einar Már Guðmundsson rithöfundur
les úr bók sinni Bítlaávarpið. Matur og
jólapakkar. Allir velkomnir.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.15–16 postulínsmálun, kl.
10.15–11.45 enska, kl. 11.45–12.45 há-
degisverður, kl. 13–16 bútasaumur, kl
13–16 frjáls spil, kl. 13–14.30 leshringur,
kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband og hárgreiðsla kl. 9,
morgunstund og fótsnyrting kl. 9.30,
félagsvist með stóru jólavinningunum
kl. 14.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9.
Fermingarfræðsla kl. 15 (hópur 3).
Áskirkja | Opið hús í Áskirkju neðri sal
kl. 10–14. Harmonikuspil. Bænastund
kl. 12. Jólamatur.
Digraneskirkja | Kirkjustarf aldraðra
kl. 12.00. Opið hús og jólagleði. (sjá
nánar : www.digraneskirkja.is).
Fríkirkjan Kefas | Bænastund kl.
20.30. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli,
Vídalínskirkju á þriðjudögum kl. 13 til
16. Við spilum lomber, vist og bridge
og röbbum saman. Kaffi og meðlæti kl.
14.30. Helgistund í kirkjunni kl. 16.00.
Allir velkomnir. Akstur fyrir þá sem
vilja, upplýsingar í síma 895 0169.
Ath. Opið hús hefst aftur 11. janúar
2005.
Grafarvogskirkja | „Opið hús“ fyrir
eldri borgara, kl. 13.30–16. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Kaffiveit-
ingar og alltaf eitthvað gott með
kaffinu. Kirkjukrakkar fyrir 7–9 ára í
Rimaskóla kl. 17.30–18.30. Æskulýðs-
félag Grafarvogskirkju kl. 19.30, fyrir
8. bekk. Kl. 20.30, fyrir unglinga í 9.
og 10. bekk. „Morgunstund gefur gull í
mund“. Morgunstundir alla virka daga
aðventunnar kl. 7.00. Hver stund sam-
anstendur af ritningarlestri, hugleið-
ingu og bæn og tekur um 10–15 mín.
Gefa fólki tækifæri til að eiga friðar-
og kyrrðarstund í erli aðventunnar.
Morgunverður í safnaðarsal að helgi-
haldi loknu.
Hallgrímskirkja | Starf með öldruðum
alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15.
Súpa, leikfimi, kaffi og spjall. Fyrir-
bænaguðsþjónusta alla þriðjudaga kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Laugarneskirkja | Kl. 19.45 Trú-
fræðsla. Unnið er með bókina Lífið er
áskorun eftir Nicky Gumbel. Gengið
inn um litlar dyr á austurgafli kirkj-
unnar. 20.30 Kvöldsöngur í kirkjunni.
21.00 fyrirbænaþjónusta og kaffispjall
í safnaðarheimilinu.
Selfosskirkja | Ekkjur, munið fundið
hjá Geisla, félagi um sorg og sorgar-
viðbrögð, 14. desember kl. 20. Höldum
áfram þar sem frá var horfið síðast.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
BÓKAVEISLA Landsbankans heldur
áfram í aðalbankanum nú í vikunni. Lesið
verður upp úr nýjum bókum í afgreiðslusal
Landsbankans, Austurstræti, í dag, á
miðvikudag og fimmtudag.
Í dag les Þórarinn Eldjárn úr skáldsögu
sinni Baróninn og Guðrún Helgadóttir les
úr barna- og fjölskyldubókinni Öðruvísi
fjölskylda, sem tilnefnd er til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna. Á morgun, mið-
vikudag, les Sigfús Bjartmarsson úr ljóða-
bókinni Andræði, sem líka er tilnefnd til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna og
Hannes H. Gissurarson úr 2. bindi ævi-
sögu Halldórs Kiljans Laxness. Á fimmtu-
daginn les Kristín Ómarsdóttir úr skáld-
sögunni Hér og Haukur Ingvarsson les úr
fyrstu ljóðabók sinni, Niðurfall og þættir
af hinum dularfulla Manga.
Bókaveisla Landsbankans hófst í síð-
ustu viku. Þá lásu Flosi Ólafsson, Halldór
Guðmundsson, Einar Már Guðmundsson,
Birna Anna Björnsdóttir, Jóhanna Krist-
jónsdóttir og Einar Kárason.
Bókaveisla Landsbankans heldur áfram
Guðrún Helgadóttir Þórarinn Eldjárn
!" #$ %&'
!
(& !" #$ %&'
"#
$
%& &
!
!
! " #
$ ! % ! !
!
! &#
'
($) & * + , & , & -
! ! !
.
* ! /
0
*1 ! 2 3
" ! * 1 *
#/
4 !
SPÆNSK menningardagskrá
verður haldin við Háskólann í
Reykjavík laugardaginn 18. des-
ember nk. kl. 16.00 í stofu 101. Ian
Gibson, spænskufræðingur og rit-
höfundur, heldur fyrirlestur um
spænska skáldið Federico García
Lorca sem nefnist: Federico
García Lorca, Victim of the Span-
ish Right. Bók Gibson um dauða
Lorca, La Muerte de García
Lorca, hlaut alþjóðlegu blaða-
mannaverðlaunin Prix Int-
ernational de la Presse. Ævisaga
Gibsons um skáldið Federico
García Lorca: A Life vann einnig
til fjölda verðlauna og var útnefnd
bók ársins af New York Times og
Boston Globe.
Ian Gibson er spænskur ríkis-
borgari en fæddist árið 1939 í
Dublin á Írlandi. Hann hefur hlot-
ið fjölda viðurkenninga fyrir verk
sín, m.a. fyrir ritun ævisögu um
málarann Salvador Dalí.
Gibson skrifar reglulega í
spænsku dagblöðin El País og El
Periódico.
Gibson kemur hingað til lands í
boði spænska sendiráðsins og í til-
efni af tvímálaútgáfu af Yermu eft-
ir Federico García Lorca sem
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttir
gefur út.
Boðið verður upp á veitingar að
fyrirlestri loknum. Menningar-
félagið Hispánica, Háskólinn í
Reykjavík, Spænsk-íslenska versl-
unarráðið og Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur standa að móttöku
Ians Gibsons.
Aðgangur að spænsku menning-
ardagskránni er ókeypis. Fyr-
irlesturinn verður haldinn á ensku
og eru allir velkomnir.
Ian Gibson
á spænskri
menningar-
dagskrá
Fréttir á SMS
Jólaskeið
Ernu
kr. 6.700
Gull- og
Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is
Silfurbúnaður
Landsins
mesta úrval