Morgunblaðið - 14.12.2004, Page 44

Morgunblaðið - 14.12.2004, Page 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Stóra svið Nýja svið og Litla svið BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Mi 29/12 kl 20, Su 2/1 kl 20 Fö 7/1 kl 20, Fö 14/1 kl 20, FI 20/1 kl 20 HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögum Böðvars Guðmundssonar Frumsýning fö 7/1 kl 20 - UPPSELT Lau 8/1 kl 20 - GUL KORT Su 9/1 kl 20 - AUKASÝNING Lau 15/1 kl 20 - RAUÐ KORT Su 16/1 kl 20 - GRÆN KORT Fö 21/1 kl 20 - BLÁ KORT Lau 22/1 kl 20, Lau 29/1 kl 20, Su 30/1 kl 20 GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ - GILDIR ENDALAUST Gjafakort fyrir einn kr. 2.700 - gjafkort fyrir tvo kr. 5.400 Gjafakort á Línu Langsokk fyrir einn kr. 2.000, fyrir tvo kr. 4.000 VIÐ SENDUM GJAFAKORTIN HEIM ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU - pantið í síma 568 8000 eða á midasala@borgarleikhus.is Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 2/1 kl 14, Su 9/1 kl 14,Su 16/1 kl 14 Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14 HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Fö 14/1 kl 20, Su 23/1 kl 20 SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Mi 29/12 kl 20, Su 2/1 kl 20, Fö 14/1kl 20, Fi 20/1 kl 20 AUSA eftir Lee Hall og STÓLARNIR eftir Ionesco - Í samstarfi við LA Frumsýning fi 30/12 - UPPSELT Lau 8/1 kl 20, Su 9/1 kl 20 GJAFAKORTIN OKKAR GILDA ENDALAUST ☎ 552 3000 AUKASÝNING Í JANÚAR VEGNA MIKILLAR AÐSÓKNAR • Sunnudag 26/12 kl 20 NOKKUR SÆTI • Laugardag 15/1 kl 20 LAUS SÆTI eftir LEE HALL Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ www.loftkastalinn.is ELVIS Í JÓLAPAKKANN! Gjafakort í leikhúsið - skemmtileg og öðruvísi jólagjöf í samstarfi við LEIKFÉLAG AKUREYRAR 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími ÓLIVER! Frumsýnt 28. Des. Óliver! Eftir Lionel Bart Þri 28/12 kl 20 UPPSELT Frums. Mið 29/12 kl 20 UPPSELT Fim 30/12 kl 16 UPPSELT Fim 30/12 kl 21 UPPSELT Sun 2/1 kl 14 UPPSELT Sun 2/1 kl 20 örfá sæti Fim 6/1 kl 20 örfá sæti Lau 8/1 kl 20 UPPSELT Sun 9/1 kl 20 nokkur sæti Fim 13/1 kl 20 nokkur sæti Lau 15/1 kl 20 nokkur sæti Sun 16/1 kl 20 nokkur sæti Sýnt í Reykjavík: Eldað með Elvis, Svik og Ausa og stólarnir AUKASÝNING mið . 29 .12 k l . 20 .00 LAUS SÆTI LOKASÝNING f im. 30 .12 k l . 20 .00 UPPSELT Miðasa lan e r op in f rá k l . 14 -18 Lokað á sunnudögum ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR SINFÓNÍSK tónverk fyrir börn hafa hingað til ekki verið fyrirferð- armikil á verkalistum íslenzkra tón- skálda frekar en t.a.m. kamm- erverk fyrir áhugamenn. Skal í engu til getið um hvort slíku efni þyki almennt fylgja of lítil veg- semd, eða hvort einfaldleikinn reynist nútíma- tónhöfundum um megn þegar á hólminn er kom- ið. Það var því óneitanlega nýj- ungarbragð að 22 mín. melódrama Hildigunnar Rún- arsdóttur við jólasmásögu Jóns Guðmundssonar um ungt hrekkju- svín sem er öllum til ama, unz því vitrast loks náðarsýn til sjálfsbetr- unar. Sagan minnti að nokkru leyti á jólasögu Dickens um gamla nirf- ilinn Skrögg, en var ekki verri fyrir það; fyndin og jafnvel skáldleg á köflum og glimrandi vel upp lesin á milli hljómsveitarinnslaga af bróður tónskáldsins, Ólafi Einari Rúnars- syni. Tónlistin var, að svo miklu leyti sem heyrðist úr glymjandi kirkjunnar, fersk og aðgengileg við hæfi, og kæmi ugglaust enn betur út við kjöraðstæður. Hugsanlega eftir smáendurskoðun með ofurlít- illi bakgrunnsmúsík við suman upp- lestur til að fleyga framvinduna enn þéttar saman. Kalla mátti þetta hálfgerða fjöl- skyldusamkundu, því auk Ólafs kom einnig fram systir þeirra Hildigunnar í Exultate jubilate í F- dúr K165. Hallveig Rúnarsdóttir er stöðugt vaxandi söngkona, eins og mátti m.a. heyra á fjölbreyttari raddbeitingu en fyrrum, og fór glæsilega með hina krefjandi ein- söngsmótettu Mozarts frá 1773. Ólafur Einar söng síðan nokkar arí- ur og söngles úr Messíasi með sér- lega fallegri bjartri tenórrödd, og vantaði aðeins egóstyrkrænan herzlumun upp á öryggi stjörnu- klassans. SÁ lék að lokum Flugeldasvítu Händels – á stundum nokkuð óhefðbundnum hraða. Mér vitandi lak t.d. hið venjulega orkuskopp- andi Bourrée löturhægt áfram, meðan fyrri hluti forleiksins var í efsta kanti. Samt gætti töluverðra tilþrifa, ekki sízt í 1. trompet, þó að dýnamíska svigrúmið hefði almennt mátt vera meira, svo og hryns- kerpan. Á hinn bóginn var varla auðhlaupið að því fyrir lítt reyndan stjórnanda að stilla saman áhuga- mannasveit í jafnerfiðu húsi, og raunar afrek út af fyrir sig að sleppa stórslysalaust fyrir horn. Nýtt verk fyrir börnin TÓNLIST Seltjarnarneskirkja Hildigunnur Rúnarsdóttir: Stjarnan mín og stjarnan þín (frumfl.). Mozart: Ex- ultate, jubilate. Händel: Aríur og söngles úr Messíasi; Flugeldasvítan. Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Ólafur Einar Rún- arsson tenór/upplestur og Sinfón- íuhljómsveit áhugamanna. Stjórnandi: Hildigunnur Rúnarsdóttir. Sunnudaginn 12. desember kl. 17. Sinfóníutónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Hildigunnur Rúnarsdóttir ÞAÐ ER orðinn fastur þáttur að Sin- fóníuhljómsveit Norðurlands auki á jólastemningu í Eyjafirði með árleg- um aðventutónleikum sem gleðja jafnt börnin og þá fullorðnu sem njóta barnsins í sjálfu sér. Það sem gaf þessum tónleikum sérstakt gildi, var þátttaka nær 40 nemenda Tón- listarskólans í flutningi ásamt SN á átta jólalögum, sem Guðmundur Óli hefur fært í haganlegan, hug- myndaríkan og skemmtilegan hljóm- sveitarbúning. Tónleikarnir hófust á hornkonsert nr. 2 í Es eftir Franz Antonio Rosetti. Antonio tók upp þetta ítalska nafn, sem hljóðlíkingu af sínu upphaflega þýska nafni Anton Rösler, enga sögu- skýringu hef ég fundið á því háttalagi, sennilega þótt fínna. Nafnið dugði honum ekki til langlífis, hann dó 42 ára, árið 1892, og fá af hans fjölmörgu tónverkum eru flutt á okkar tímum. Hornkonsertinn, sem hér var fluttur er einn þriggja hornkonserta hans og er í hefðbundnum þremur þáttum hraður – hægur – hraður með yf- irskrift 1. þáttar: Allegro-Modrtato, 2. þáttar: Romanza og 3. þ. Rondo- allegro non troppo. Sérstakt við þennan konsert eru óvenjumörg tækifæri sem hornleikarinn leikur aleinn, en einleiks „kadenza“ er í hverjum þætti, venjulega aðeins í ein- um. László lék verkið prýðisvel og af miklu öryggi. Hornið er hljómmikið í höndum hans, ég hefði fyrir minn smekk kosið bjartari tón. Tónlistin sver sig í ætt Haydn og Mozart, og er mjög ljúf og rennur fram átakalaust og ekki tilþrifamikið. Áður var greint frá þátttöku nem- enda Tónlistarskólans á Akureyri og var hún til mikillar fyrirmyndar. Þarna lék 13 nemenda gítarhljóm- sveit með Sinfóníuhljómsveitinni í tveimur jólalögum, flautusveit í öðru og loks blásarasveit í þremur. Það, að nemendur fái að taka beinan þátt í flutningi með þeim fullnuma í listinni, er í sögunni einhver farsælasta upp- eldisleið til góðs árangurs í tónlist og reyndar á miklu fleiri sviðum. Þetta þekkti Leopold Mozart, þegar hann leyfði Wolfgang litla syni sínum að taka þátt í að leika með kollegum og atvinnumönnum í hljóðfæraleik. Ég fullyrði að leikur nemendanna á þess- um tónleikum varð öllum sannkall- aður gleðigjafi. Útsetningar Guð- mundar Óla á þeim sex jólalögum sem nemendur léku með sveitinni og einnig á þeim tveimur sem hljóm- sveitin flutti ein að lokinni jólasögu uppfylla að mínu mati tvo mikilvæga kosti, að vera prýðisvel skrifaðar fyr- ir hljóðfærin og gefa lögunum fersk- an og aðlaðandi blæ fyrir áheyrand- ann. Mér finnst kominn tími á að þessar skemmtilegu útsetningar rati á jólageisladisk, sem myndi taka ýmsu fram sem þar er að finna. Frumflutningur á Jólasögu, tón- verki eftir Hildigunni Rúnarsdóttur var á dagskrá eftir hlé, en verkið var skrifað sérstaklega fyrir Sinfón- íuhljómsveitina. Jólasagan í orðum er samin af Jóni Guðmundssyni og heit- ir Stjarnan mín og stjarnan þín. Sag- an segir frá stráknum Frikka frekju, sem var eins og heitið segir óþolandi í háttum og terroríseraði litla bæinn sinn með frekjuöskrum þegar hann fékk kartöflu í skóinn dag eftir dag. En eins og í mörgu góðu ævintýri leiddi heilladísin, engillinn, hann frá villu síns vegar og hann fékk að sjá hvernig stjarnan hans á himni breytt- ist úr kartöfluásýnd í skæra stjörnu þegar hann bætti háttalag sitt. Enda þótt sagan sé í endursögn rýr, þá gaf það henni gildi hvað hún var oft kankvís. Þráinn Karlsson las söguna ágætlega, en ég held að góður míkrófónn og hátalari hefðu verið til bóta. Í efnisskránni er sú meinlega villa að tónverkið Pétur og úlfurinn er kennt við Tsjaikovsky en ekki Prokofiev. Ég átti satt best að segja von á hugmyndaríkari tónsmíð frá Hildi- gunni. Sagan gaf oft tilefni til ennþá djarfara tónmáls, „skelfandi öskur“, „stríðsástand í litlum bæ“ „fyndin framvinda“ og svo myndbreytingin úr kartöflu í stjörnu. Mér fannst verkið skorta einhvern æringjahátt og galsa sem umbreyttist svo í þetta mikla og kærleiksríka ljós í lokin. Eins fannst mér að vel hefði farið á að fá hluta textans fluttan með hljóð- færaundirleik og jafnvel rappaðan. Einnig gátu tónmyndir á stundum komið í staðinn fyrir frásögn í orðum. Flutningur Jólasögunnar var vand- aður og áheyrendur virtust njóta verksins vel. Guðmundur Óli laðar fram, með sinni fínu stjórn og ágætu sambandi við hljómsveit jafnt sem áheyrendur, ljúfa stemningu sem fylgir manni áfram eftir tónleika og vonandi sem lengst. TÓNLIST Akureyrarkirkja Hornkonsert í Es-dúr eftir Franz Antonio Rosetti, Jólasaga eftir Hildigunni Rúnars- dóttur, frumflutningur, ásamt útsetn- ingum á átta jólalögum eftir Guðmund Óla Gunnarsson. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, ásamt 10 gítarnemendum og 28 nemendum á blásturshljóðfæri úr Tónlistarskólanum á Akureyri. Einleikari á horn: László Czenek. Sögumaður: Þráinn Karlsson. Hljómsveit- arstjóri: Guðmundur Óli Gunnarsson. Sunnudaginn 12. desember kl. 16.00. Sinfóníutónleikar Jón Hlöðver Áskelsson Á allt og alla/börnin leika ogskemmta sér …“ Og svoframvegis. Þið kunnið þetta. Þessar stórkostlegu línur eru úr jólalagi sem sjálfur Laddi er búinn að gera ódauðlegt enda glymur það ótt og títt um hver jól og hefur gert síðan það kom fyrst út í íslenskri út- gáfu árið 1986 (upprunalega útgáf- an er með Shakin Stevens, „svari Wales við Elvis Presley“, og kallast „Merry Christmas Everyone“). Er líða fer að jólum dynja á manni tugir jólalaga sem maður er búinn að vera í fríi frá í ellefu mánuði. Sum- um þeirra tekur maður fagnandi eins og gömlum vin- um þar sem þau ylja manni um hjartarætur og maður fer þegar að humma eða syngja glaður með allt fram að jólum og jafnvel fram yfir þau. Önnur skjóta að manni hrolli hins vegar og maður veit, sé maður sæmilega virkur samfélagsþegn, að undan þessum óboðnu gestum verð- ur ekki komist.    Jólalagageirinn er einn merkileg-asti undirflokkurinn sem þrífst í skjóli blessaðrar dægurtónlist- arinnar. Umgjörðin utan um hann er einstök því að ólíkt allri annarri tón- list er þessi tiltekna tónlist bara spil- uð í mesta lagi einn mánuð á ári. Og látum vera með feril þinn sem rokk- ari eða poppari. Þú getur dælt út plötum, farið í tónleikaferðalög og lætt lögum inn í útvarpið í árafjöld. Allt þetta bliknar í samanburði við það að landa góðum jólasmelli. Þá fyrst ertu dottinn í lukkupottinn og stefgjöldin rúlla inn til þín ár hvert til eilífðarnóns. Sjáið t.d. „Jólahjól“ með Sniglabandinu. Jólin – og þar með jólalagabrans- inn – eru reyndar það mikill fasti í lífi okkar Vesturlandabúa að allir bregðast við og það er eins og öllum tónlistarmönnum, sama úr hvaða geira þeir koma, finnist þeir þurfa að reyna sig við svosem eitt jólalag, hvort sem það er í gríni eða alvöru. Afleiðingar þessa geta í senn verið stórfurðulegar og stórskemmti- legar. Því samfara þessum „hefð- bundnu“ jólalögum sem eru spiluð gjörsamlega á gat linnulaust fram að hátíð koma reglulega út „jað- arjólaplötur“ sem geta – þegar vel er að verki staðið – verið einkar skemmtileg viðbót við „venjulegu“ jólalögin.    Ámínu heimili eru t.d vinsælartvær plötur sem báðar standa utan við jóla-radarinn. Á Doo Wop Christmas taka þannig frægar söng- sveitir á borð við Penguins, Orioles og Five Keys þekkt jólalög með sín- um hætti, og því mikið um hina und- arlegustu raddfimleika. Þá gaf neð- anjarðarsveitin Low út frábæra jólaplötu árið 1999 sem inniheldur algerlega mergjaða útgáfu af „The Little Drummer Boy“. Það merki- legasta við þá plötu, sem sannarlega fer ótroðnar slóðir, er að á henni er ekki vottur af kaldhæðni enda hjón- in sem reka Low strangtrúaðir mormónar. Þessar plötur eru bara brot af þeim „undarlegu“ jólaplötum sem til eru á markaðnum og við Íslendingar höfum að sjálfsögðu ekki verið eft- irbátar í þeim efnum, eitt gott dæmi er t.d. að nýverið kom út safnplatan Stúfur sem inniheldur jólalög með ungum tónlistarmönnum á borð við hipphopparann Hermigervil og rokksveitirnar Lokbrá og bob. Svona þreifingar eru jákvæðar og gott til þess að vita að nýsköpun sé stunduð innan jólalagageirans, geira sem sækir að eyrunum á hverju ári hvort sem okkur líkar betur eða verr. „Snjókorn falla …“ ’Það er eins og öllumtónlistarmönnum, sama úr hvaða geira þeir koma, finnist þeir þurfa að reyna sig við svosem eitt jólalag.‘ AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Guðmundur Óli Gunnarsson stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.