24 stundir - 31.01.2008, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 24stundir
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Fasteignasalar eiga að afhenda
kaupanda og seljanda lista með
nöfnum og símanúmerum þeirra
sem gert hafa kauptilboð. Þetta er
tillaga nefndar á vegum sænskra
yfirvalda sem endurskoðað hefur
lögin um sölu íbúðarhúsnæðis í
Svíþjóð. Grétar Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Félags fasteignasala,
sem á sæti í nefndinni sem end-
urskoðar lögin hér á landi, er ef-
ins um ágæti slíks fyrirkomulags.
„Það er litið svo á hér að tilboð
í eign sé trúnaðarmál. Þessi tillaga
Svía er náttúrlega til þess að fólk
geti sannreynt að tilboð hafi bor-
ist en ég sé ekki alveg þörfina fyr-
ir slíkt fyrirkomulag. Þetta getur
líka verið spurning um persónu-
verndarsjónarmið,“ tekur Grétar
fram.
Ekkert misjafnt
Efist fólk um að raunverulegt
tilboð hafi borist getur það leitað
til eftirlitsnefndar Félags fast-
eignasala, að sögn Grétars. „Það
hefur komið upp slíkt tilvik en
það kom ekkert misjafnt í ljós,“
greinir hann frá.
Stærsta málið að mati Grétars
er endurskoðun á skilgreining-
unni á hlutverki fasteignasala.
„Fasteignasalinn hefur löggildingu
af hálfu ríkisvaldsins og honum er
falið að gæta hagsmuna kaupenda
og seljenda út frá kunnáttu og
menntun. Norðmenn hafa endur-
skoðað lögin um fasteignasölu og
skilgreint verkaskiptingu milli
fasteignasalanna sjálfra og al-
mennra starfsmanna á fasteigna-
sölum. Það þurfum við líka að
gera.“
Óviðunandi staða
Félag fasteignasala vill að öll
ráðgjöf, verðmat og samningsgerð
verði í höndum fasteignasala. Fé-
lagið bendir á að með því sé neyt-
endavernd tryggð auk þess sem
það tryggir að ekki sé brotið gegn
starfsréttindum fasteignasala..
„Það er ekkert sem kemur í veg
fyrir að einn fasteignasali sé með
fjölda manna í vinnu sem sjá um
allt ferlið. Þess eru dæmi að sölu-
menn sem starfað hafa á fast-
eignasölu í nokkra daga fari og
verðmeti eignir. Sölumennirnir
veita einnig ráðgjöf um lántöku,
yfirtöku lána og veðflutning. Þetta
nær ekki nokkurri átt þegar fólk
er með alla sína fjármuni undir.
Staðan í dag er algjörlega óásætt-
anleg,“ leggur Grétar áherslu á.
Skilgreining á hlutverki fast-
eignasala er bara ein af fjölmörg-
um tillögum að úrbótum sem fé-
lagið hefur lagt fram í
endurskoðunarnefndinni, að því
er Grétar greinir frá.
Eftirlitsnefnd aðstoðar
leiki vafi á tilboðum
Litið er á tilboð í eignir sem trúnaðarmál Nefnd endurskoðar lög um fasteignasölu
Mikilvæg viðskipti Nefndin sem
endurskoðar lögin um fasteigna-
sölu á að skila tillögum í mars.
➤ Dómsmálaráðherra skipaði ámiðju ári 2007 nefnd til að
endurskoða lögin um sölu
fasteigna. Nefndin skilaði til-
lögum fyrir síðustu áramót.
➤ Þegar málaflokkurinn varfluttur til viðskiptaráðuneyt-
isins um áramótin óskaði við-
skiptaráðherra eftir að nefnd-
in skoðaði ákveðna þætti
betur.
ENDURSKOÐUN LAGANNA
Árvakur/Árni Torfason
18,2% aðspurðra töldu REI-
málið svokallaða stærsta fjöl-
miðlamál ársins 2007 sam-
kvæmt niðurstöðum könn-
unar Gallup. Næst á eftir
komu borgarstjórnarskiptin í
október með 15,9%. Miðað
við fréttamagn voru alþing-
iskosningarnar stærsta málið
en í apríl og maí birtust 3.857
fréttir um þær. Baugsmálið
fékk 6,1% en 2,4% töldu Lúk-
asarmálið stærst. aak
Stærsta fjölmiðlamálið
Borgarstjórn,
REI og Lúkas
Hr. Örlygur, sem sér um Ice-
land Airwaves-tónlistarhátíð-
ina, hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu vegna fyrirhugaðs
niðurrifs Klapparstígs 30. Þar
segir að niðurrif hússins sé
aðför að tónlistar- og menn-
ingarlífi höfuðborgarinnar.
Skaðinn fyrir ferðaþjónustu
Reykjavíkur og nágrennis ætti
að vera öllum ljós. aak
Vill vernda Sirkus
Skaðinn ljós
„Viðurlögin við því að fara ekki
að áliti mannréttindanefndarinnar
eru sæmdarmissir,“ sagði Þorvald-
ur Gylfason, prófessor í hagfræði
við Háskóla Íslands, á málstefnu
sem bar yfirskriftina Álit Mann-
réttindanefndar Sameinuðu þjóð-
anna – Er kvótakerfið í uppnámi?
Þorvaldur sagði það ekki sköp-
um skipta hvort álitið væri form-
lega séð bindandi eða ekki. Það
sem máli skipti væri að íslensk
stjórnvöld hefðu, með því að mis-
muna fólki við úthlutun aflaheim-
ilda, orðið uppvís að mannrétt-
indabrotum. En slíkar ávítur ættu
íslensk stjórnvöld ekki að sætta sig
við án þess að grípa til viðeigandi
aðgerða.
Með vel útfærðu veiðigjaldi, þar
sem allir sætu við sama borð þegar
kæmi að úthlutun heimilda, væri
komið í veg fyrir það óréttlæti sem
felst í núverandi fiskveiðistjórnun-
arkerfi, sagði Þorvaldur.
Auk þess nefndi Þorvaldur tvær
ástæður fyrir því að veiðigjald væri
hagkvæmara en kvótakerfi. Í fyrsta
lagi hvetji kvótakerfið til brottkasts
á ákveðnum hluta aflans. Í öðru
lagi jafngildi ókeypis úthlutun
kvótans styrkjum, en eins og í öðr-
um atvinnugreinum valdi styrkir
óhagkvæmni.
Á málstefnunni tók einnig til
máls Helgi Áss Grétarsson, sér-
fræðingur við Lagastofnun Há-
skóla Íslands. Helgi tók undir með
Þorvaldi um að álit mannréttinda-
nefndarinnar hefði bæði pólitískt
og siðferðilegt vægi, þótt það væri
ekki bindandi. „Lög veita engin
skýr svör við því hvernig bregðast
eigi við álitinu – það er pólitísk
spurning,“ sagði Helgi. Jafnframt
tók hann fram að álit nefndarinnar
væru ekki talin hafa fordæmisgildi,
heldur væri litið svo á að hvert álit
væri einungis umsögn um afmörk-
uð atvik.
Galli í áliti nefndarinnar
Þá benti Helgi á þann veikleika í
áliti mannréttindanefndarinnar að
það byggði á þeirri röngu forsendu
að veiðiheimildum hefði verið út-
hlutað varanlega samkvæmt veiði-
reynslu á árunum 1980-83, en eftir
þann tíma væri ekki nokkur leið að
komast inn í kerfið án þess að
kaupa kvóta af þeim sem þegar
hefðu fengið hann úthlutaðan. Hið
rétta væri hins vegar að aflaheim-
ildir hefðu breyst margoft eftir að
kvótakerfinu var komið á, og veiði-
reynsla á áðurnefndum árum væri
ekki nauðsynleg forsenda þess að
menn fengju úthlutað heimild.
Helgi tók þó fram að að hans
mati gætu yfirvöld ekki skýlt sér á
bak við áðurnefndan galla. Enda
væri ekki líklegt að mistökin væru
upprunnin hjá nefndarmönnum
mannréttindanefndarinnar, heldur
hefðu þeir líklega fengið óviðun-
andi skýringar frá íslenskum
stjórnvöldum á eðli og verkan ís-
lenska kvótakerfisins.
hlynur@24stundir.is
Skrafað um álit mannréttindanefndar SÞ á fiskveiðistjórnunarkerfinu
Sæmdarmissir að hlusta ekki
Mikið niðri fyrir Þor-
valdur sagði kvótakerfið
óréttlátt og óhagvæmt.
Árvakur/Golli