24 stundir - 31.01.2008, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 24stundir
24 stundir hafa að undanförnu rakið skrýtna sögu af reykingaherbergi, sem
bareigandi í miðbænum lét innrétta á barnum sínum, í andstöðu við ný
tóbaksvarnarlög. Eigandi barsins kom alveg fjallbrattur í viðtal við blaðið og
sagði: „Lögin eru svo illa samin að ég tel að yfirvöld hafi engin úrræði til að
framfylgja þessu reykingabanni.“
Í sama blaði kom fram að heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar teldi sig hafa
„óljós úrræði“ til að framfylgja reykingalögunum en gæti kært brotin til lög-
reglu, sem hefði heimild til að beita sektum.
Þegar leitað var til lögreglu, fengust aftur á móti þau svör að „óvíst væri að til
væru ákvæði sem heimila að refsa bareigendum sem hundsa reykingabannið.“
Lögreglan taldi að úrræðin væru í höndum borgarinnar.
Næst fengum við að heyra túlkun heilbrigðisráðuneytisins. Lögmaður þar á
bæ sagði að heilbrigðisnefnd borgarinnar gæti beitt dagsektum eða svipt veit-
ingastaðinn starfsleyfi. Úrræðin væru því fullnægjandi.
Nú fór heilbrigðiseftirlitið á stúfana og hótaði að innsigla reykherbergið. Það
átti að gerast í lok síðustu viku. Bareigandinn svaraði fyrir sig með bréfi, þar
sem hann hótaði borginni skaðabótakröfu og benti aukinheldur á að reyk-
ingabannið bryti í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrár með því að heimila
reykingar í stofnunum og fyrirtækjum í sérstökum afdrepum, en ekki í sam-
bærilegum rýmum á veitingahúsum. Bareigandinn hafði áður bent á að á Al-
þingi er slíkt reykherbergi.
Í 24 stundum í gær kemur svo í ljós að lögmaður hjá borginni og settur
sviðsstjóri umhverfissviðs hennar er sammála bareigandanum, bæði um jafn-
ræðissjónarmiðin og skort á þvingunarrúræðum! Hann auglýsir eftir „al-
mennilegum úrræðum en ekki einhverjum hálfkveðnum
vísum.“ Og enn hefur reykherberginu ekki verið lokað.
Þetta er því miður ekki eina dæmið um að löggjöf frá
Alþingi sé meingölluð. Í þessu tilviki verður því ekki
kennt um að þingmenn hafi setið í tímaþröng á nætur-
fundum að klára tóbaksvarnalögin; það var nógur tími til
að undirbúa löggjöfina áður en reykingabann á veitinga-
stöðum tók gildi.
Einhver verður að binda enda á þennan skrípaleik. Lík-
lega stendur það heilbrigðisráðherranum næst að leggja
til við Alþingi breytingar á lögunum, sem gera kleift að
framfylgja þeim. Í leiðinni mætti skoða að loka reykinga-
herbergi þingmanna, þannig að þeir hætti að vaða reyk og
tekinn sé af vafi um jafnræði manna gagnvart lögunum.
Þingmenn
vaða reyk
Mjög skiptar skoðanir hafa verið um fyr-
irhugaðar framkvæmdir í miðbæ Hafn-
arfjarðar við Strandgötu 26-30. Um er að ræða afar
viðkvæmt svæði í hjarta gamla bæjarins. Því er eðli-
legt að Hafnfirðingar fái tíma til að lýsa skoðun sinni
á því deiliskipulagi sem lagt var fyrir. En það er samt
ekki afsökun fyrir því hve gríðarlega langan tíma af-
greiðsla málsins tók hjá meirihluta Samfylking-
arinnar eða hátt í tvö ár. Enda var ástæðan sú að
bæjaryfirvöld áttu erfitt með að taka á því þegar upp
reis mikil andstaða meðal Hafnfirðinga gegn hug-
myndum þeirra um 12 hæða byggingu á miðri
Strandgötunni. Málið þvældist í kerfinu í mörg miss-
eri og á meðan stóð lóðin auð. Það er afar mikilvægt
að byggja upp og lífga miðbæ Hafnarfjarðar; styðja
og styrkja þá verslun og viðskipti sem fyrir er. Því var
margan farið að lengja verulega eftir því að ákvarð-
anir yrðu teknar svo framkvæmdir gætu hafist og
fleiri verslanir og þjónusta hafið starfsemi. Í Hafn-
arfirði er starfandi miðbæjarnefnd sem á að vera
umsagnaraðili um öll mál sem tengjast miðbænum.
Fulltrúar hennar biðu átekta og þess að fá nýju deili-
skipulagshugmyndirnar til umfjöllunar og umsagnar.
En það leið og beið. Skyndilega föstudaginn 7. des-
ember voru nefndarfulltrúar boðaðir á kynningu á
fundi skipulags- og byggingarráðs. Þar voru nefnd-
armönnum kynntar nýjar tillögur að sjö hæða húsi
og þeim sagt að gengið yrði frá málinu eins og það
leit þá út, í bæjarstjórn á næsta þriðjudegi. „Þakka
ykkur komuna og verið bless.“ Bókaður var inn á vef
Hafnarfjarðar fundur í miðbæjarnefnd en hann var
aldrei haldinn enda var búið að ákveða hvernig bygg-
ingin ætti að líta út og ekki beðið
umsagnar nefndarinnar. Yfirklór og
yfirlýsingar bæjarstjórans nú um að
nefndarmenn hafi bæði haft tíma og
tækifæri til að koma með at-
hugasemdir sínar á þessum dögum
sem um ræðir, dæma sig því sjálfar.
Því er mjög eðlilegt að nefndarmenn
og ekki síður bæjarbúar sem borga
nefndinni laun spyrji sig hvort ein-
hver þörf sé fyrir nefnd sem þessa.
Höfundur er bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
Nefndin ekki virt viðlits
ÁLIT
Rósa Guð-
bjartsdóttir
rosagu@althingi.is
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Ólafur Þ. Stephensen
Björg Eva Erlendsdóttir
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: 24stundir@24stundir.is, frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is
Prentun: Landsprent ehf.
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Svo virðist sem Gísli Marteinn
Baldursson sé kominn í blaðafull-
trúahlutverk fyrir nýja borg-
arstjórann. Alla-
vega verður Gísli
æði oft til svara
fyrir borgarstjór-
ann í fréttum,
samanber frétt
Stöðvar 2 í kvöld
[þriðjudag] um
fyrirhugaðan
fund borgarstjóra
Norðurlanda. Ég man ekki til þess
að stjórnmálamaður hafi áður eft-
irlátið keppinaut í öðrum flokki
að sjá um fjölmiðlasamskipti fyrir
sig. Til samanburðar; dettur
nokkrum í hug að Geir Haarde,
svo dæmi sé tekið, myndi láta Öss-
ur Skarphéðinsson um að svara
fyrir sig í fjölmiðlum?
Eiríkur Bergmann Einarsson
eirikurbergmann.blog.is
BLOGGARINN
Almannatengill
Sá sem hlustar á Spegilinn þessa
dagana fær á tilfinninguna að
hann sé allt í einu kominn í spor
Bills Murray í
kvikmyndinni
Groundhog Day
– en í stað þess að
Sonny og Cher
syngi: „I’ve got
you babe,“ segir
Gunnar Gunn-
arsson graf-
alvarlega: „Olíu-
hreinsunarstöð á Vestfjörðum“.
Fyrirhuguð olíuhreinsunarstöð á
Vestfjörðum var til umræðu í
gærkvöldi, 28. janúar, og einnig
15., 16., 17. og 24. janúar. Skv.
þessu hefur Spegillinn fjallað
a.m.k. sex sinnum á einum mán-
uði um hugmyndir Vestfirðinga
um olíuhreinsunarstöð.
Guðbjörg Hildur Kolbeins
kolbeins.blog.is
Spegillinn
Verkalýðsfélögin settu fram í
byrjun desember um hvað þau
vildu semja, en SA hafa ekki feng-
ist til þess að
ræða það. Ef
verkalýðfélögin
samþykktu það
sem til boða hef-
ur verið þá fengju
mjög stórir hópar
engar launa-
hækkanir. Það er
helst að skilja á
frjálshyggjumönnum að fyr-
irtækin bíði í ofvæni eftir því að
fá heimild verkalýðsfélaganna til
þess að hækka launin. Sú töf sé að
þeirra mati ástæðulaus, starfs-
menn eigi að taka á móti þessum
launahækkunum án afskipta og
tilgangslausra tafa verkalýðs-
félaganna.
Guðmundur Gunnarsson
gudmundur.eyjan.is
Engin hækkun
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@24stundir.is
upplysingar
Kolbrun S.510 3722
Kolla@24stundir.is
Kata@24stundir.is
Katrin s.510 3727
Bilablad
Serblad 24 stunda
5.FEB.2008