24 stundir - 31.01.2008, Side 15
24stundir FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 15
Enn fá áhugamenn umskondið sögulegt sam-hengi sitt-
hvað fyrir sinn
snúð. Guðmundur
Magnússon sagn-
fræðingur rifjar
upp á bloggi sínu
þegar ungt fólk
fjölmennti á áheyrendapalla
borgarstjórnar til að láta skoð-
anir sínar í ljós. „Talsmenn
meirihlutans segja að minni-
hlutinn hafi safnað ungmenn-
unum saman. Þetta sé pólitík
og segi ekkert um skoðanir
ungs fólks. Kunnuglegt? Jamm,
en þetta er árið 1969 en ekki
2008,“ skrifar Guðmundur. Til
umræðu voru atvinnumál ungs
fólks og alþýðubandalagsmenn
smöluðu á áheyrendapallana.
Varaborgarfulltrúi Alþýðu-bandalagsins, SvavarGestsson, flutti ræðu á
fundinum og hvatti til að borg-
in yki framboð á
vinnu fyrir ungt
fólk. Unga fólkið
var með mótmæla-
borða á pöllunum
og klappaði mikið
fyrir Svavari, en
var annars kurteist. Í Morg-
unblaðinu daginn eftir birtist
frétt af fundinum, þar sem sagt
er frá því að eftir að fólkið yf-
irgaf salinn hafi fundizt minn-
isblað á áhorfendabekknum:
„Klappa þegar Svavar er bú-
inn.“ Blaðið birti mynd af mið-
anum og glósur um gesti á
borgarstjórnarfundinum og for-
sprakka mótmælanna, segir
Guðmundur.
Í Þjóðviljanum daginn eftirvar tekið til varna og bent áað vondi blaðamaðurinn á
Morgunblaðinu, sem skrifað
hafði fréttina, væri
Styrmir Gunn-
arsson. Voru hon-
um sízt vandaðar
kveðjurnar. „Ein-
hverjir í Alþýðu-
bandalaginu hafa
kannski sagt upp Mogganum af
þessu tilefni,“ skrifar Guð-
mundur Magnússon. „Sagan
lætur ekki að sér hæða. End-
urtekur sig í margvíslegum
myndum eftir hentugleikum.
En merkilegt hvað hún getur
verið íhaldssöm þegar hún velur
í hlutverkin!“ Styrmir enn á
sínum stað á Morgunblaðinu –
en Svandís tekin við af Svavari
yzt á vinstri vængnum.
olafur@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Sviptingar í stjórnmálaheimin-
um að undanförnu, ekki síst í
borgarstjórn Reykjavíkur, gefa
fullt tilefni til vangaveltna um
grunngildi í stjórnmálabaráttu og
hvert stjórnmál á Íslandi eru að
þróast. Á ég þar ekki aðeins við
ákvarðanir stjórnmálamannanna
sjálfra, vinnubrögð og aðferðir,
heldur líka umræðuna sem af
þeim atburðum sprettur og jafn-
vel umfjöllun fjölmiðla um málin.
Undirritaður hefur áður sagt
að hann sé hugsi – og er þá vægt
til orða tekið – yfir því hvert
stefnir með viðhorf og gildismat í
stjórnmálabaráttu þegar hafðir
eru í huga atburðirnir í borg-
arstjórn Reykjavíkur. Það sem ég
á einkum við er að mér sýnist
komið að ákveðnum tímamótum,
jafnvel að stigið hafi verið yfir til-
tekna línu í stjórnmálabaráttunni,
sem ekki hefur verið venjan að
gera á Íslandi.
Það viðhorf virðist allsráðandi
að öllu sé til kostandi og allt sé
leyfilegt til þess að ná völdum eða
haldast við völd. Málefni eru
sáralítið ef nokkurn tímann nefnd
og kaupskapur um valdastöður er
afgreiddur eins og sjálfsagður
hlutur. Sú þróun náði að mínu
mati hámarki þegar einn maður,
eitt atkvæði, var keyptur til
stuðnings sjö manna minnihluta
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
með æðstu virðingarstöðu, borg-
arstjóraembættinu. Þessu má líkja
við að verið væri að koma saman
ríkisstjórn og vantaði einn mann
upp á að meirihluti væri á hendi.
Þá gripu menn til þess ráðs að
sækja sér eitt atkvæði inn í raðir
einhverra annarra stjórnmála-
samtaka og bjóða viðkomandi
forsætisráðherraembættið. Fyrir
slíku eru engin fordæmi í lands-
málunum og fá, ef nokkur, á
sveitarstjórnarstiginu, sem hægt
er að segja að séu sambærileg við
það sem gerðist í borgarstjórn
Reykjavíkur nú á dögunum.
Og þá kemur spurningin: Eru
það svona stjórnmál, er það svona
þróun sem við viljum eða teljum
heppilega? Ótrúlega fáir hafa í
umræðum um þessi mál sett
spurningarmerki við gjörninginn
sjálfan. Því miður hafa aðrir þætt-
ir og óskemmtilegri yfirskyggt
umræðuna, svosem heilsa ein-
stakra stjórnmálamanna eða
hvort mótmæli á áhorfendapöll-
um hafi verið skipuleg aðför að
lýðræðinu, eins og sumir hafa
gengið svo langt að kalla það. Í
mínum huga eru þetta ekki aðal-
atriði málsins, heldur það for-
dæmi sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefur nú sett.
Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á,
að ekki sé ýmsum lýðræðislega
þenkjandi sjálfstæðismönnum
eða stuðningsmönnum þess
flokks, sem verið hafa fram að
þessu, nokkuð brugðið. Eru völd-
in virkilega þess virði að ganga
jafn nærri sjálfsvirðingu sinni og
Sjálfstæðisflokkurinn gerir í
nefndu tilviki?
Einstakir skríbentar á blöðum,
sem maður hefur fram að þessu
talið að vildu vera teknir alvar-
lega, hafa lagt út af því að aðrir
hljóti að naga sig í handarbökin
fyrir að hafa ekki náð að skjóta
Ólafi F. Magnússyni ref fyrir rass
og verða á undan að ganga til
samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn.
Í slíkum skrifum er tekinn sá út-
gangspunktur, að því er virðist,
að völdin ein skipti máli, að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé fýsilegur sam-
starfsaðili óháð þeim vinnu-
brögðum sem hann hefur gert sig
beran að, valdanna vegna. Spyrja
má um hvatirnar að baki slíkum
skrifum: hvað ræður för?
Vissulega má lýsa stjórnmálum
sem list hins mögulega og mæra í
hita leiksins pólitíska refi sem
kunni bellibrögðin betur en aðrir
og skáki andstæðingum sínum
eða keppinautum með slíkum að-
ferðum. En virðing við grunngildi
stjórnmálanna er þetta þó alla-
vega ekki og þeir sem lofa nú um
stundir klækjastjórnmálin ættu að
hugsa sinn gang.
Er það virkilega bara gamal-
dags og úrelt að reyna að halda
því til streitu og minna á að
stjórnmál eigi að snúast um mál-
efni, að heiðarleiki, orðheldni og
traust séu verðmætustu innistæð-
ur jafnt einstakra stjórnmála-
manna sem stjórnmálahreyfinga,
að tímabundin valdaaðstaða og
einstaklingsbundin metorð, til
skamms tíma litið, megi aldrei
kaupa á kostnað langtímahags-
muna í stjórnmálum og að sjálfs-
virðing sé verðmætari en völd?
Höfundur er formaður
Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs
Sjálfsvirðing eða völd?
VIÐHORF aSteingrímur J. Sigfússon
Er það virki-
lega bara
gamaldags
og úrelt að
reyna að
halda því til
streitu og
minna á að stjórnmál eigi
að snúast um málefni.
Merkilegt með þessa karla hvað þeir verða
handóðir þegar þeim finnst þeir hafa öðlast
rétt til að vera sálusorgarar og geta jafnvel ráð-
ið ögn yfir fólki.
Þrymur Sveinsson á blog.is
Þetta er lýsandi dæmi um að fólk er ekki allt
þar sem það er séð.
Emma Vilhjálmsdóttir á blog.is
Það er alltaf gaman að sjá að fólk getur bætt sig. Ef hann hefði verið full-
kominn alla sína ævi hefði hann ekkert að gera með að ráðleggja öðrum.
Nanna Katrín Kristjánsdóttir á blog.is
Það hlaut að vera að eitthvað slæmt væri að segja um Dr. Phil, manninn
sem hefur ráð undir rifi hverju fyrir fólk í erfiðleikum.
Sverrir Þorleifsson á blog.is
BLOGGAÐ UM FRÉTTIR
Hlaut að vera
24stundir 30. jan
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008
Í nýjasta tölublaði Star Magazine er að finna
stóra grein um sjónvarpssálfræðinginn Phil
McGraw, sem er betur þekktur und-ir nafninu Dr. Phil, og meintavafasama fortíð hans. Í greininnier rætt við konu sem starfaði áskrifstofu Dr. Phils árið 1984, þegarhún var 19 ára, og kærði hannfyrir kynferðislega áreitni.„Hann fór inn undirblússuna mína og snertibrjóstin á mér. Hann varstöðugt að snerta á mérfótleggina og elskaði aðnudda á mér mjaðmirn-r,“ er haft eftir konunniviðtalinu. Dr. Phil var
sýknaður af ákærunni, en var þó ávíttur af sam-
tökum sem veita sálfræðileyfi í Texasríki. Af
þeim sökum var honum óheimilt að starfa sjálf-
stætt sem sálfræðingur.Í greininni er einnig sagt frá því að Dr. Phil
hafi rekið líkamsræktarsvikamyllu á áttunda
áratugnum. Á hann að hafa selt fjölda fólks að-gang að heilsuræktarstöð, sem hann síðanlokaði og stakk af með peninginn. Í kjölfar-ið var lögreglurannsókn sett af stað.Dr. Phil er sagður hafaskuldað fjölda fólks ogbönkum tugþúsundirdollara, sem hann hef-ur enn ekki greitt.
bjornbragi@24stundir.is
Sjónvarpssálfræðingur kærður fyrir kynferðislega áreitni og líkDr. Phil sagður eiga sér vafa
Ph
við
Skúrkur? Star segir Dr. Philhafa óhreint mjöl í pokahorninu.
Fyrsta flokks
sumarhús og einbýlishús
frá virtri finnskri verksmiðju.
Margar þykktir af límtré og bjálkum, sem henta
íslenskum aðstæðum. Mikil gæði- gott verð.
G. Pálsson ehf.
Símar 462 – 2272 og 896 - 0423
upplysingar
Kolbrun S.510 3722
Kolla@24stundir.is Kata@24stundir.is
Katrin s.510 3727
Serblad 24 stunda
heimili og honnun
6.februar 2008