24 stundir - 31.01.2008, Side 19
24stundir FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 19
Hagvöxtur í Bandaríkjunum féll
niður í 0,6 prósent á fjórða fjórð-
ungi seinasta árs. Mánuðinn áður
óx hagkerfið um 4,9%. Hagvöxtur-
inn var 2,2% yfir árið í fyrra og hef-
ur ekki verið minni síðan árið 2002.
Margir þættir eru taldir skýra
minnkandi hagvöxt, t.d. minnk-
andi vöxtur einkaneyslu og lækk-
andi húsnæðisverð, en verð á fast-
eignum hefur ekki lækkað jafn
hratt í Bandaríkjnum síðan á fjórða
áratugnum.
Verra en búist var við
Greinendur höfðu spáð 1,2%
hagvexti á þessu tímabili og því er
þetta helmingi verra en menn
héldu. Ennfremur þykir þetta
styrkja það viðhorf að dýfan í
bandaríska hagkerfinnu verði dýpri
en haldið var og hafi þar með meiri
áhrif á önnur hagkerfi.
Sumir óttast að þetta sé byrjunin
á kreppu þar vestra. M.a. sagði Al-
an Greenspan, fyrrum seðlabanka-
stjóri Bandaríkjanna, að líkurnar á
kreppu væru meiri en 50 á móti 50,
að sögn Guardian í gær.
Spá stýrivaxtalækkun
Því er spáð að bandaríski seðla-
bankinn, sem hefur nú þegar lækk-
að stýrivexti úr 4,25% í 3,5%, lækki
stýrivexti enn frekar í dag, jafnvel
niður í 3%, til þess að auka hag-
vöxt.
thorakristin@24stundir.is
Óttast kreppu
Í dag birtist í blöðum auglýsing
sem jafnframt hefur verið send
stjórnendum margra stærstu fyrir-
tækja landsins. Á henni eru nöfn
yfir 100 kvenna sem lýsa sig reiðu-
búnar að setjast í stjórnir fyrir-
tækja.
„Með bréfi þessu viljum við
hvetja fyrirtæki til að setja konur á
dagskrá við tilnefningu í stjórnir
því við teljum að hvorki fyrirtækin
né samfélagið hafi efni á því að
konur skipi áfram innan við 10%
stjórnarsæta í íslenskum fyrirtæk-
um – en sú hefur verið raunin ár-
um saman,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Félagi kvenna í
atvinnurekstri og Leiðtogaauði
sem standa að auglýsingunni.
Miklu fleiri eru til
Allar konurnar hundrað eru
sagðar hafa víðtæka reynslu og
þekkingu. „Það skal jafnframt tekið
fram að þessi listi er langt frá því að
vera tæmandi. Þær eru miklu,
miklu fleiri.“
Í hádeginu í dag efna félögin til
fundar á Hótel Nordica með Björg-
vini G. Sigurðssyni viðskiptaráð-
herra. Umræðuefni fundarins er:
„Hvernig fjölgum við konum í
stjórnum og öðrum áhrifastöð-
um?“
Fundað með viðskiptaráðherra í dag
Hundrað konur vilja
í stjórn fyrirtækja
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins hefur úrskurðað að-
þýski orkurisinn E.ON skuli greiða
sekt sem nemur um 3,6 milljörð-
um króna.
Er E.ON sakað um að hafa rofið
innsigli sem sett var á skjala-
geymslu þess í tengslum við rann-
sókn á samkeppnishamlandi starf-
semi þess á þýskum orkumarkaði.
Talsmenn fyrirtækisins neita því
að innsiglið hafi verið rofið vilj-
andi. Hafa þeir meðal annars sagt
að ræstitæknir hafi verið þar að
verki óviljandi.
„Framkvæmdastjórnin mun
ekki og getur ekki liðið að fyrirtæki
reyni að grafa undan baráttu fram-
kvæmdastjórnarinnar gegn auð-
hringjum og annarri samkeppnis-
hamlandi iðju,“ segir í tilkynningu
Neelie Kroes, framkvæmdastjóra
samkeppnismála hjá ESB.
„Fyrirtæki vita vel að háar fjár-
hæðir eru í húfi í samkeppnismál-
um og fyrir sum kemur til greina
að brjóta lög til að hamla rannsókn
og forðast með því sekt,“ segir enn-
fremur í tilkynningunni.
Talsmenn E.ON hyggjast áfrýja
málinu. Segja þeir engin skjöl hafa
horfið úr geymslunni og því ljóst
að ekki hafi verið unnið gegn rann-
sókninni. andresingi@24stundir.is
Evrópusambandið sektar orkufyrirtæki
Rofið innsigli kostar
3,6 milljarða
Vallý s.510 3728
Böddi s.510 3726
ATVINNUBLAÐIÐ
atvinna@24stundir.is
alltaf á laugardö
gum
Pantið gott pláss t
ímanlega
Minnkandi hagvöxtur í Bandaríkjunum