24 stundir - 31.01.2008, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLHEILSA
heilsa@24stundir.is a
Hvatinn kemur innan frá. Ef manni finnst
hreyfingin skemmtileg eru meiri líkur á því
að manni gangi betur að viðhalda henni.
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Þegar fólk er komið yfir miðjan
aldur reynist því oft erfitt að byrja
að stunda reglulega hreyfingu á ný
eftir langt tímabil hreyfingarleysis
og kyrrsetu. Gígja Gunnarsdóttir,
verkefnastjóri hreyfingar hjá Lýð-
heilsustöð, mælir með því að fólk
fari rólega af stað og setji sér ekki of
háleit markmið í upphafi.
„Það er alltaf gott fyrir fólk sem
ætlar að byrja að hreyfa sig að
staldra við og meta eigin hreyfi-
venjur til að sjá hvar tækifæri fyrir
aukna hreyfingu liggja,“ segir Gígja
og bendir á að hugsanlega sé hægt
að ganga eða hjóla til vinnu, nýta
hádegishlé til gönguferða og svo
framvegis.
Álagið aukið smám saman
Fyrir þá sem hafa ekki hreyft sig
lengi og eru orðnir stirðir er ganga
frábær leið til að koma sér af stað
að mati Gígju. „Fólk ætti að byrja
rólega þannig að það finni aðeins
fyrir andardrættinum og mæðist
kannski svolítið. Síðan er hægt að
bæta við tímann sem gengið er eða
auka álagið með því að ganga til
dæmis meira í brekkum,“ segir
Gígja sem hvetur fólk jafnframt til
að ganga í umhverfi sem því þykir
fallegt.
„Síðan getur fólk leitað eftir auk-
inni þjónustu hjá íþróttafélögum
og heilsuræktarstöðvum ef það
hefur áhuga á því. Úrvalið er orðið
það fjölbreytt að flestir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi og inn-
an skynsamlegra marka í verðlagi,“
segir hún.
Skemmtileg hreyfing
Fyrir þá sem ætla að byrja að
stunda reglulega hreyfingu á ný eft-
ir langt hlé er ekki vitlaust að gera
það í góðum félagsskap svo sem
vina, vinnufélaga eða fjölskyldu.
Síðast en ekki síst ætti fólk að
velja hreyfingu sem því finnst
skemmtileg. Oft hefur fólk til
dæmis stundað íþrótt á yngri árum
sem það gæti hugsað sér að taka
upp á nýjan leik. „Hvatinn kemur
innan frá. Ef manni finnst hreyf-
ingin skemmtileg eru meiri líkur á
því að manni gangi betur að við-
halda henni,“ segir Gígja Gunnars-
dóttir að lokum.
Mörgum reynist erfitt að byrja að stunda hreyfingu á ný
Farið rólega af stað
Fólk sem komið er yfir
miðjan aldur og vill
stunda reglulega hreyf-
ingu ætti ekki að fara of
geyst af stað heldur setja
sér raunhæf markmið og
taka eitt skref í einu.
Góð hreyfing Ganga er frábær hreyfing fyrir þá
sem hafa ekki stundað reglulega hreyfingu lengi.
➤ Miðað er við að lágmarks-hreyfiþörf fullorðins fólks sé
um hálftími á dag.
➤ Hreyfiþörfina má uppfyllameð 10-15 mínútna lotum í
senn.
➤ Hreyfiþörf barna er meiri enhinna fullorðnu en miðað er
við að þau hreyfi sig í a.m.k.
klukkutíma daglega.
HREYFING FULLORÐINNA
Fólk er hamingjusamara snemma
á lífsleiðinni og undir lok hennar
en um miðja ævi ef marka má
niðurstöður tveggja rannsókna
breskra og bandarískra vísinda-
manna sem nýlega voru birtar.
Þættir á borð við hjúskaparstöðu,
barneignir, atvinnu eða tekjur
hafa ekki áhrif á líkurnar á því að
fólk finni fyrir depurð eða þung-
lyndi um miðjan aldur. Góðu
fréttirnar eru að með hækkandi
aldri batnar yfirleitt andleg líðan
fólks á ný.
Lægð um miðjan aldur
Breski þingmaðurinn Greg Mul-
holland vill að vínveitingastöðum
verði gert að selja léttvín í hefð-
bundnum litlum glösum. Hefð-
bundið vínglas tekur 125 ml en
víða er vín selt í 175 ml og 250 ml
glösum. Mulholland heldur því
fram að 125 ml glösin séu á und-
anhaldi á breskum börum og
krám á kostnað stærri glasanna
og sums staðar sé jafnvel ekki
hægt að fá vín í minni glösum en
175 ml.
Mulholland telur að afleiðingar
séu þær að fólk geri sér ekki grein
fyrir því hve mikið áfengi það
innbyrðir í raun og veru þegar
það fær sér fáein vínglös. Hann
telur jafnframt að fullt tilefni sé
til að hafa áhyggjur af þróuninni
í ljósi þess að heilbrigðisvanda-
mál sem tengjast áfengisneyslu
færist í vöxt í landinu, meðal
annars hjá konum sem fá sér
frekar léttvín á barnum en karlar.
Vill minni vínglös
Fullbúin máltíð á innan við 5 mínútum
Má bjóð
a þér
upp á ljú
ffengan
grænme
tisrétt
í kvöld?
Matvælastofnun varar við fæðu-
bótarefninu Therma Power sem
inniheldur efedrín og er selt á net-
inu. Danska matvælastofnunin til-
kynnti um 36 ára gamlan mann
sem dó af hjartaslagi eftir að hafa
tekið inn efnið og tilkynnt hefur
verið um þrjú önnur tilvik þar sem
alvarlegar aukaverkanir komu
fram. Auk efedríns inniheldur efn-
ið koffín og synefrín. Herdís Guð-
jónsdóttir hjá Matvælastofnun seg-
ir að þegar um sé að ræða blöndu
efedríns, koffíns og fleiri sterkra
efna geti það kallað fram sterk við-
brögð sem líkaminn þoli ekki.
Fæðubótarefnið var pantað á
netinu og hvetur Matvælastofnun
fólk til að vera á varðbergi gagnvart
vörum sem seldar eru á netinu eða
í póstverslun.
Skaðleg fæðubótarefni á netinu
Hættuleg blanda