24 stundir - 31.01.2008, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 24stundir
HEILL HEIMUR
AF SKEMMTUN
Opið sunnudaga til fimmtudaga
11.00 -24.00
Opið föstudagaoglaugardaga
11.00 - 02.00
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Ég held að þetta skapi skemmti-
lega umræðu um hvenær hlutirnir
eru stolnir og hvenær ekki.
Laugardagskvöldið 2. febrúar
mun ítalski plötusnúðurinn
Benny Benassi koma fram á vetr-
arhátíð Techno.is á Broadway
ásamt Exos, Sindra Bm og
Plugg’d. Benny Benassi er einn af
frumkvöðlum „Electrohouse“-
stefnunnar eða „New Rave“ eins
og hún er kölluð í Bretlandi.
Margir vilja meina að Benny Be-
nassi hafi gert fyrsta Electro-
house lagið og það vinsælasta en
það er lagið „Satisfaction“ sem
kom út árið 2002.
Árið 2005 stofnaði Benny útgáfu-
fyrirtækið Pump-Kin Music sem
hefur það hlutverk að færa upp á
yfirborðið unga og efnilega tón-
listarmenn framtíðar.
Í ágúst í fyrra kom Benny Benassi
sterkur inn í danssenuna aftur
eftir smálægð, en þá gaf hann út
endurhljóðblöndun sína af Pu-
blic Enemy-laginu Bring the
Noise, og náði það efsta sæti á
sölulista Beatport.com.
Allar nánari upplýsingar má
finna á síðunum www.bennybe-
nassi.com og myspace.com/
benassi. Einnig er hægt að kaupa
tónlist eftir kappann á www.beat-
port.com. Miðaverð á laugardag-
inn er 2.500 krónur. re
Benassi á Broadway
Leikstjórinn Mark Romanek, sem
leikstýra átti endurgerð á The
Wolfman, hefur sagt upp störf-
um, aðeins nokkrum vikum áður
en tökur áttu að hefjast. Upp-
sögnin á rætur sínar að rekja til
rifrildis um kostnað mynd-
arinnar en Romanek taldi sig
þurfa meira ráðstöfunarfé til að
ljúka við myndina sem skartar
Benicio del Toro, Anthony Hopk-
ins og Emily Blunt í aðal-
hlutverkum. Handritið skrifaði
Andrew Kevin Walker, er gerði
meðal annars handritið að Seven.
Romanek hættir
við Úlfmanninn
Sean Young, ein aðalstjarnan úr
meistarastykkinu Blade Runner
og Ace Ventura: Pet Detective, er
farin í meðferð. Young, sem er 48
ára, þótti heldur ódæl á verð-
launahátíð leikstjóra, þar sem
hún greip ítrekað fram í fyrir
Julian Schnabel, sem reyndi að
flytja þakkarræðu sína. Young,
sem hafði fengið sér aðeins of
mikið neðan í því, sagði Schnabel
að flýta sér með ræðuna, en
Schnabel sagði henni að fá sér
bara annan kokteil. Young var
loks leidd í burtu.
Sean Young fer í
áfengismeðferð
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Þrívíddarkvikmyndir eru nú að
ryðja sér til rúms, enn á ný, en fyr-
irbærið er ekki alveg nýtt af nál-
inni. Þegar árið 1890 voru menn
farnir að taka upp í þrívídd, en
tækjabúnaðurinn til áhorfs þótti
ekki praktískur fyrir hinn almenna
bíógest. Gullaldarár þrívídd-
arkvikmynda voru frá 1952-1955
og síðan aftur á fyrri hluta níunda
áratugarins. Og nú virðist önnur
gullöld í uppsiglingu, ef marka má
sérfræðingana.
Ný og fullkomnari tækni
Tæknin hefur tekið stakkaskipt-
um síðan fólk sat með blá og rauð
filters-gleraugu og horfði á
Jaws-3D og A Nightmare on Elm
Street í þrívídd. Nýja tæknin heitir
Stereoscopic 3D þar sem kraftar
stafrænnar tækni gera kvikmynda-
gerðarmönnum kleift að sjá af-
rakstur hvers tökudags áður en
haldið er í eftirvinnsluna, en efnið
er þá tekið upp með tveimur
myndavélum sem eru cirka 6,3 cm
hvor frá annarri, sem er um það bil
breiddin á milli augna fólks. Með
notkun póleraðra gleraugna jafnar
heilinn síðan út hina skekktu
mynd á skjánum, svo útkoman
verður afar raunveruleg, líkt og
áhorfandinn sé persóna í atburða-
rás myndarinnar sjálfrar.
Það sem einnig er heillandi fyrir
framleiðendur er að ferlið allt er
litlu dýrara en að taka upp í 2D,
aðeins um 20-30% aukalega, auk
þess sem efnið er auðveldara í
dreifingu með tilkomu DVD í stað
VHS. Og ef marka má aðsókn á
Beowulf, sem einmitt var sýnd
með slíkri tækni, virðist almenn-
ingur sáttur við nýju tæknina. Í
kjölfar vinsælda Beowulf tilkynnti
Dreamworks að allar þeirra mynd-
ir yrðu framleiddar með nýju
tækninni og er Disney sagt ætla að
feta í sömu spor. Þá fjölgar stöðugt
þeim kvikmyndahúsum sem styðja
slíka tækni. Árið 2005 voru þau
aðeins 98 talsins, en verða yfir
3000 fyrir árslok 2008. Nú er bara
að bíða og sjá.
Frumkvöðull Kvikmynd-
in Beowulf markar tíma-
mót þegar kemur að þrí-
víddarkvikmyndum.
Ný þrívíddartækni loksins boðleg bíógestum
Upplifun áhorf-
enda hámörkuð
Hollywood hefur oft
reynt að hámarka upp-
lifun áhorfenda með þrí-
víddartækni, en með mis-
jöfnum árangri. Nýja
stereoscopic-tæknin gæti
þó verið varanleg lausn.
➤ Fyrsta þrívíddarmyndin hétThe Power of Love, frá 1922.
➤ Steven Spielberg vinnur aðþróun tækni sem ekki krefst
gleraugna.
➤ George Lucas hefur sagstætla að gefa út Star Wars-
myndirnar allar í 3-D.
ÞRÍVÍDD Í BÍÓ
„Þetta er ótrúlegt. Umslögin eru
rosalega lík,“ segir Högni Egilsson,
söngvari og gítarleikari hljómsveit-
arinnar Hjaltalín.
Umslag væntanlegrar breið-
skífu Íslandsvinanna í Hot
Chip þykir líkjast umslagi
fyrstu breiðskífu Hjaltalíns sem
kom út fyrir jól. Málverk eftir
Eggert Pétursson prýðir umslag
Hjaltalíns, en Sigurður Egg-
ertsson sá um hönnun og
uppsetningu. Högni býst
við að um tilviljun sé að
ræða.
„Þeir hafa náttúrlega
komið nokkrum sinn-
um til landsins, en ég
veit ekki hvort þeir
hafa séð plötuna okk-
hvenær hlutirnir eru stolnir og
hvenær ekki,“ segir hann. „Flest
sem skapar umræðu er fínt.“
atli@24stundir.is
að hringja í lögfræðingana, en
leggur áherslu á að málið geti
skapað umræðu. „Ég held að þetta
skapi skemmtilega umræðu um
ar,“ segir hann. „Mér finnst það
frekar ólíklegt þó að það geti verið
að þeir hafi séð umslagið okk-
ar á netinu.“
Umslag óútkominnar
breiðskífu Hot Chip þykir
einnig svipa til smáskífu
sem Hjaltalín gaf út á
síðasta ári. Þar er not-
ast við svipaðan
bláan lit þó að
hringurinn
hafi verið
skorinn í
tvennt.
Högni segir
í léttum dúr
að hann
ætli að
hinkra með
Umslag óútkominnar breiðskífu Hot Chip svipar til umslags fyrstu breiðskífu Hjaltalíns
Ótrúlega líkt Umslögin tvö nota sama einfalda hringformið þó málverkið
eftir Eggert Pétursson á umslagi Hjaltalíns (t.v) sé töluvert mikilfenglegra.
Ólíklegt að um þjófnað sé að ræða
Tilviljun Högni er ekki búinn
að hringja í lögfræðing.
Róbert Örn Hjálmtýsson og fé-
lagar hans í hljómsveitinni Ég
halda tónleika á Organ á morgun,
fimmtudag, klukkan níu. Síðasta
plata sveitarinnar var hin stór-
skemmtilega Plata ársins, en lítið
hefur heyrst frá sveitinni síðan.
„Þetta er svona kickstartið hjá okk-
ur. Við erum búnir að vera mjög
rólegir undanfarið hvað tónleika-
hald varðar, en núna ætlum við að
gera þetta í alvöru. Við verðum
með gömlu góðu lummurnar og
svo ný lög í bland af nýju plöt-
unni,“ segir Róbert, en breiðskífan
Lúxusupplifun er væntanleg frá
sveitinni innan tíðar. Og líkt og á
öllum alvöru tónleikum verður
boðið upp á upphitunaratriði. „Já,
heldur betur. Það er hann Steindór
Ingi Snorrason, úr hljómsveitinni
Apríl. Hann er svona „altmulig-
mand“ þegar kemur að hljóðfæra-
leik og tónlist, en hann lætur sér
nægja að munda kassagítarinn í
kvöld. Tónleikarnir hefjast stund-
víslega klukkan níu og aðeins kost-
ar 500 krónur inn. Fólk þarf að
mæta tímanlega, því það komast
ekki alveg allir fyrir sem keyptu
síðustu plötu okkar,“ sagði Róbert
hlæjandi í lokin.
Ég með tónleika á Organ
Britney-vísitalan hækkaði lít-
illega í gær eftir að foreldrar
Britneyjar Spears heimsóttu dótt-
ur sína. Það gaf markaðnum von
um að stúlkan fengi brátt hjálp.
Sú von er reyndar veik þar sem
Britney lét senda heim til sín nýj-
an Benz í gær og byrjaði á að týn-
ast á honum eftir að hún ætlaði
að stytta sér leið heim.
BRITNEY-VÍSITALAN
2006 2007 2008
30. 01. 2008 3.2680,86%
Lítil hækkum
vegna batavona