24 stundir - 01.02.2008, Blaðsíða 1
24stundirföstudagur1. febrúar 200822. tölublað 4. árgangur
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA10-
70% F
SLÁTT
UR
Fataefni
Gardínuefni
Bútasaumsefni
Gjafavara
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 I Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 I Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og laugard. 11-15
Lára Magnea Jónsdóttir ætlar að
kenna krökkum á öllum aldri
öskupokagerð um næstu helgi
en þessi skemmtilegi og sér-
íslenski siður hefur því miður
nánast lagst af.
Öskupokagerð
HELGIN»25
Í kvöld verður leikritið Hetjur
frumsýnt í Borgarleikhúsinu en
það er í leikstjórn Hafliða Arn-
grímssonar sem segir leikritið
vera grátbroslegt verk um
menn sem hafa misst af lífinu.
Grátbroslegt verk
MENNING»16
Páll Egill Winkel fangelsismála-
stjóri telur fráleitt að fangar sinni
símsvörun í fyrirtæki Jónasar Inga
Ragnarssonar. Engir samningar
hafi verið gerðir og vinnu fanga
verði aðeins breytt á forsendum
Fangelsismálastofnunar. Fyr-
irtækið Hjúpur á að bæta atvinnu-
tækifæri fanga og
dæmdra manna.
Engin símsvörun
í fangelsinu
»2
„Ég valdi að vera með sérstaka
skýrslu um Evrópumál í þinginu til
að skapa umræður um þau. Al-
þingi hefur látið sig þessi mál litlu
varða,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir sem kynnti í gær nýja
Evrópuskýrslu sína fyrir Alþingi.
Hún ræðir Evrópumál í
24 stundum í dag.
Vill virkari þátt-
töku Alþingis
»8
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði
í gær karlmann af því að hafa brot-
ið lög með því að sýna kvikmyndir
um eldgosið í Heimaey í leyfisleyfi
á veitingastaðnum Kaffi Kró. Mað-
urinn sem var sýknaður furðar sig
á því að dómstólar skuli eyða tíma
í svona mál, þegar önn-
ur mikilvægari bíða.
Tóm steypa fyrir
dómstólum
»9
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Samkvæmt upplýsingum frá rík-
islögreglustjóra eru tuttugu og níu
ökutæki, þar með taldir tjaldvagn-
ar og felli- og hjólhýsi, enn eftirlýst
eftir að hafa verið tilkynnt stolin
eða horfin til lögreglu árið 2007.
Þeirra á meðal eru fimmtán bif-
reiðar, allt frá Toyota-smábílum
upp í dýra jeppa á borð við Cadil-
lac Escalade.
Sjö ökutækja saknað frá 2005
Á heimasíðu lögreglunnar, sem
er uppfærð daglega, er að finna
lista yfir eftirlýst ökutæki. Sam-
kvæmt honum hafa sex bifreiðar
horfið sporlaust á höfuðborgar-
svæðinu frá áramótum, sú fyrsta
var grá Toyota Corolla sem var til-
kynnt horfin til lögreglu 10. jan-
úar.
Sjö ökutækja er enn saknað frá
því árið 2005 samkvæmt heima-
síðunni og tólf ökutæki sem til-
kynnt voru til lögreglunnar sem
stolin eða horfin árið 2006 hafa
enn ekki komið í leitirnar.
Mörg dæmi eru um að ökutæki
sem hverfa hér á landi finnist aldr-
ei. „Það er alltaf einhver hluti öku-
tækjanna sem aldrei finnst, en sú
tala hefur ekki verið tekin saman,“
segir Þorvaldur Sigmarsson, varð-
stjóri á almennri deild lögreglunn-
ar á höfuðborgarsvæðinu.
„Það virðist þó vera stígandi í
þessu ár frá ári, enda fjölgar fólki
hér ört og ökutækjunum sömu-
leiðis.“
Mest stolið af Nissan-bílum
Athygli vekur að þriðjungur
þeirra bíla sem horfið hafa á ár-
unum 2005 til 2007 er af gerðinni
Nissan. „Nissan-bílar eru búnir að
vera ansi áberandi. Þetta virðist
fara eftir gæðum á kveikjulásunum
í bílunum hverju sinni, það virðist
vera auðveldara að stela Nissan-
bílum en öðrum og við höfum
tekið eftir því,“ segir Þorvaldur.
Bílar gufa upp
Um þrjátíu ökutæki enn eftirlýst, sem tilkynnt voru stolin eða
horfin í fyrra Sex bifreiðar hafa horfið í borginni frá áramótum
➤ 15 bifreiðar hurfu sporlaust ásíðasta ári.
➤ Sömu sögu er að segja af 6bifhjólum og 4 fjórhjólum.
➤ 2 tjaldvagnar og 1 fellihýsihafa ekki komið í leitirnar,
ekki heldur einn vélsleði.
HORFIN ÖKUTÆKI 2007
„Kuldinn nú í vikunni er aðeins sýnishorn af því sem koma skal, það verður kalt þegar kuldinn fer yfir 20 stig,
fyrst kuldinn bítur núna, “ segir Ásgeir Einarsson sem fann til kuldans í gær og rætt er við inni í blaðinu.
Grunnskólabörnum úr Norðlingaskóla sem sóttu útikennslu í Björnslundi veitti ekki af varðeldi til að orna sér
við.
Kalt og verður enn kaldara
Árvakur/Árni SæbergKrakkarnir vilja vera úti nema kuldaskórnir gleymist
Kommakerra
á uppboði
-6
-4
-3
-6 -4
GENGI GJALDMIÐLA
GENGISVÍSITALA 127,22
ÚRVALSVÍSITALA 5.364,5
SALA %
USD 65,23 0,05
GBP 129,78 0,14
DKK 13,03 0,73
JPY 0,61 1,06
EUR 97,10 0,72
-0,48
3,19
NÁNAR 4
VEÐRIÐ Í DAG
45%verðmunur
ákaffi
NEYTENDAVAKTIN
14
Glæsibifreið sem sagt er að til-
heyrt hafi Sovétleiðtoganum
Leoníd Brezhnev verður seld á
internetuppboði í Þýskalandi í
dag.
Bíllinn, sem er Mercedes Benz
600, er einn af aðeins 2.190
sem framleiddir voru. Bíllinn
er í prýðisgóðu ástandi. Þykir
það benda til þess að Brez-
hnev sjálfur, annálaður öku-
níðingur, hafi sjaldan setið við
stýrið. aij