24 stundir - 01.02.2008, Page 9
henni munu sitja fulltrúar alla
stjórnmálaflokka auk hagsmuna-
aðila. Ingibjörg segir hlutverk
nefndarinnar verða að fylgjast með
þróun mála í Evrópu og leggja mat
á breytingar út frá hagsmunum Ís-
lendinga. „Við viljum fylgjast með
þróuninni í Evrópu þannig að við
séum alltaf á vaktinni og tilbúin ef
hlutirnir breytast þannig að við
þyrftum mögulega að breyta okkar
stöðu gagnvart ESB.“
Hagsmunaaðilar á vaktinni
Íslendingum býðst, á grundvelli
EES-samningsins, að hafa áhrif á
þróun mála innan ESB á fyrsta stigi
tillagna. Ingibjörg segir það tæki-
færi ekki hafa verið nýtt sem skyldi.
„Við erum ekki að nýta okkar tæki-
færi nógu vel, en það er þó að
aukast. Við höfum verið að læra
hvernig við getum sinnt þessari
hagsmunagæslu og við sýndum
það mjög vel varðandi málefni
hafsins að við getum náð árangri.
Þar vann utanríkisráðuneytið sínar
athugasemdir með öðrum ráðu-
neytum, sendi þær til gríðarlega
margra hagsmunaaðila og þeir
voru beðnir um ábendingar eða at-
hugasemdir. Örfáir nýttu sér það.
Þetta er því ekki bara spurning um
að stjórnmálamenn standi vaktina
heldur líka þeir fjölmörgu hags-
munaaðilar sem ættu að vera fylgj-
ast með því sem er að gerast á vett-
vangi ESB, en gera það ekki.“
Árvakur/Frikki
Utanríkisráðherra
segir að það sem gerist
innan ESB verði alltaf að
veruleika okkar.
24stundir FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 9
Héraðsdómur Suðurlands sýkn-
aði í gær karlmann af því að hafa
brotið höfundarréttarlög með því
að sýna tvær kvikmyndir um eld-
gosið í Heimaey án leyfis höfundar,
á veitingastaðnum Kaffi Kró í Vest-
mannaeyjum. Málavextir voru þeir
að Sigurmundur Gísli Einarsson
sem rak ferðaþjónustu í Vest-
mannaeyjum sýndi sumarið 2004
myndina Uppbyggingin-Eldgosið í
Heimaey á veitingastað sínu Kaffi
Kró í tvö skipti. Jafnframt sýndi
Sigurmundur myndina The
Heimaey eruption, Iceland 1973 í
nokkur skipti árið 2005. Höfund-
arréttarhafar myndanna kærðu
Sigurmund fyrir sýningarnar til
sýslumannsins í Vestmannaeyjum
29. ágúst árið 2005. Ákæra í málinu
var hins vegar ekki gefin út fyrr en
18. júlí 2007. Var því sök fyrnd í
málinu auk þess sem ekki taldist
sannað að Sigurmundur hefði
brotið höfundarrétt með sýningu á
hluta myndar sem talið var að væri
úr The Heimaey eruption.
Málið bara steypa
Sigurmundur segist glaður yfir
málalokunum. „Þetta mál var bara
steypa. Ég skil ekki að menn skuli
eyða tíma í þetta. Við töldum ekki
að við værum að brjóta nein lög og
hættum sýningum strax og haft var
samband við okkur af höfundun-
um. Við leituðum þá eftir því við
þá að fá að sýna þessar myndir en
fengum ekki. Mér finnst hins vegar
út í hött hvað þetta mál gekk langt.
Það væri gagnlegra að nota tímann
í alvöru mál, ég hélt að menn hefðu
nóg annað að gera hjá dómstólum.
Þetta er bara hjákátlegt. Vonandi
verður þetta víti til varnaðar.“
freyr@24stundir.is
Ákæra gefin út tveimur árum eftir meint brot á höfundarréttarlögum
Sýknaður af að sýna myndir
Vestmannaeyjar Maður
var sýknaður af broti á höf-
undarréttarlögum.
Matthías Guðmundsson, formað-
ur Félags kjúklingabænda, segir
hættu á að hækkun á fóðurverði
fari út í verðlagið. „Það sést í vor
hvort þær verða meiri. Þá verður
uppskera í Ástralíu og menn sjá
hvað mikið kemur á markað.
Kjarasamningar geta líka kallað á
verðhækkun á kjúklingum.“
Hækkun á fóðurverði
Hætta á hærra
verði á kjúklingi
Umhverfisráðuneytið fjallar um
kæru Landverndar vegna ákvörð-
unar Skipulagsstofnunar að nýta
ekki lagaheimildir um heildarmat
á umhverfisáhrifum vegna álvers
í Helguvík. Stofnunin taldi álver-
ið ekki valda verulega neikvæð-
um og óafturkræfum áhrifum,
segja Víkurfréttir.
Umhverfisráðuneytið
Fjallar um kæru
Landverndar
Hæstiréttur dæmdi í gær 39 ára
karlmann í 10 mánaða fangelsi
fyrir að hafa haft
í vörslum sínum
4.048 ljósmyndir
og 7 hreyfimynd-
ir með barna-
klámi. Héraðs-
dómur
Reykjavíkur
hafði dæmt
manninn í 12
mánaða fangelsi vegna brotsins.
Árið 2001 var ákærði dæmdur í
12 mánaða fangelsi fyrir kynferð-
isbrot gegn tveimur drengjum.
Árin 1998 og 2003 var hann
dæmdur fyrir vörslu barnakláms.
Varsla barnakláms
10 mánaða
fangelsisdómur
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Das Auto.
KOLEFNIS-
JAFNAÐUR
Í EITT ÁR
EYÐIR
AÐEINS FRÁ
5.0 l/100 KM
ALVÖRU 6
ÞREPA SJÁLF-
SKIPTING
Golf Trendline kostar aðeins frá
2.098.000 kr.
Eða 24.740 kr. á mánuði miðað við bílasamning SP til 84 mánaða og 20% útborgun.
Árleg hlutfallstala kostnaðar er 7,06%. Aukabúnaður á mynd: Álfelgur og samlitur.
Komdu og prófaðu betur búinn Golf með nýrri sex þrepa sjálfskiptingu
GOLF GTI
BÍLL ÁRSINS
2008 Car&driver
DÚXAÐI Á
EURO NCAP
PRÓFINU
FÉKK GULLNA
STÝRIÐ
SVEIGJAN-
LEGIR
SÖLUMENN
Sex þrepa sjálfskiptingin í Golf er ein af þeim tækninýjungum sem færa honum forskot á aðra bíla.
Í Golf tvinnast saman hágæðahönnun, framúrskarandi aksturseiginleikar og nýstárleg tækni. Kraftalegur
afturhluti og sportlegar línur í bílnum gefa fyrirheit sem aksturseiginleikarnir standa fyllilega undir.
Álfelgur, sam
litur, armpúð
i á milli
framsæta og
rafstýrð sóllú
ga.
Bættu við Sp
ortpakka fyri
r
290.000 kr. .