24 stundir


24 stundir - 01.02.2008, Qupperneq 11

24 stundir - 01.02.2008, Qupperneq 11
24stundir FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 11 kynnir Áætlað er að 6.000 vöruflutn- ingabílar bíði tollafgreiðslu við eystri landamæri Póllands. Leiðir þetta af mótmælaað- gerðum tollvarða, sem hafa tafið vinnu sína þar til stjórn- völd koma til móts við launa- kröfur þeirra. Segja tollverðir vinnu sína hafa orðið erfiðari eftir að Pólland varð aðili að Schen- gen-svæðinu. Nú þurfi að gæta meira öryggis við landa- mæri Hvíta-Rússlands, Úkra- ínu og Kalíningrad. Stjórnvöld hafa boðið um 13.000 króna hækkun, en toll- verðir krefjast þrefalt meiri hækkunar. aij Sprenging í óleyfilegri flug- eldaverksmiðju skók Istanbúl í gær. 20 manns létu lífið, rösklega 100 særðust og nær- liggjandi hús skemmdust. „Það urðu tvær sprengingar. Fyrri sprengingin kveikti eld og fólk hópaðist að fyrir utan til að fylgjast með. Átta af þeim týndu lífi í seinni sprengingunni,“ segir Kadir Topbas borgarstjóri. Verksmiðjan stóð í hverfi þar sem mikið er af ólöglegu at- vinnuhúsnæði. Yfirvöld höfðu lokað henni í tvígang, en framleiðsla hófst jafnharðan aftur. aij Indverskar kvikmyndir hafa verið bannaðar í Pakistan síð- an stríð geisaði á milli ríkjanna tveggja árið 1965. Nú stendur til að aflétta banninu. Kvikmyndhúsaeigendur fagna því að geta tekið hinar vinsælu Bollywood-myndir til sýn- inga, en pakistönskum kvik- myndagerðarmönnum líst illa á samkeppnina. „Við munum leyfa innflutn- ing á indverskum kvikmynd- um í eitt ár. Eftir það tímabil verður hægt að endurskoða reglurnar,“ segir þingmað- urinn Zafar Iqbal Chaudhry. aij Pólskir tollverðir Krefjast bættra kjara Istanbúl í Tyrklandi 20 farast í flugeldaslysi Pakistan Bollywood- banni aflétt Þingmaður Afríska þjóðarráðs- ins, ANC, stjórnarflokks Suður- Afríku, hefur lagt til að vændi verði lögleitt meðan heimsmeist- aramót í knattspyrnu stendur yf- ir árið 2010. Tillaga George Lek- getho var rædd þegar þingnefnd lista og menningar fór yfir stöðu mála í undirbúningi HM í vik- unni. „Ef kynlífsiðnaður er lögleidd- ur gerir fólk ekkert í leyni. Það myndi færa okkur skatttekjur sem nýta mætti til að bæta líf þeirra sem ekki eru í vinnu,“ sagði Lekgetho. Hélt hann því enn fremur fram að breyting- arnar myndu fækka nauðgunum á konum. Stjórnarandstöðuþingmaður- inn Sydney Opperman mótmælti því að ríkið gerði sér samband kynjanna að féþúfu. „Þú getur ekki sett verðmiða á innilegasta samband karls og konu og tengt hann skattheimtu okkar,“ sagði Opperman. Urðu nefndarmenn að sögn Mail&Guardian sammála um að hugmyndina mætti taka til al- mennrar umræðu úti í samfélag- inu áður en lengra yrði haldið. andresingi@24stundir.is Óhefðbundin tillaga sem ætlað er að auka tekjur af ferðamennsku í Suður-Afríku Vill lögleiða vændi meðan HM fer fram Vændiskona Bíður eftir viðskiptavini í Jóhann- esarborg í Suður-Afríku. Nordic-Photo/AFP

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.