24 stundir - 01.02.2008, Page 14

24 stundir - 01.02.2008, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 24stundir • Bylting fyrir bakið • Styrkir magavöðvana • Frelsi í hreyfingum • Með eða án hjóla Swopper vinnustóllinn www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 FÉOGFRAMI vidskipti@24stundir.is a Ég velti því oft fyrir mér hvernig í ósköpunum fasteignasalar eigi að geta gætt hagsmuna beggja aðila að fasteignaviðskiptunum, þegar annar borgar honum en hinn ekki. Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is Ekki er hægt að ætlast til þess að fasteignasali gæti bæði hagsmuna kaupenda og seljanda, þrátt fyrir að lög kveði á um að svo skuli vera. Þetta segir Guðfinna J. Guðmundsdóttir fasteignalög- fræðingur, sem rekur kaupenda- þjónustu hjá Fasteignamál lög- mannsstofu. „Við bjóðum kaupendum fast- eigna að koma í viðtal til okkar áður en þeir kaupa eign, förum yfir með þeim hvaða spurninga þurfi að spyrja og hvaða gögn þurfi að skoða,“ segir Guðfinna. „Svo bjóðum við fólki líka upp á aðstoð við tilboðsgerðina og mætum með því í kaupsamn- ingagerð og við afsal.“ Fara ekki að lögum Í lögum um sölu fasteigna, fyr- irtækja og skipa, 15. grein, segir að fasteignasali skuli „liðsinna báðum aðilum, seljanda og kaup- anda, og gæta réttmætra hags- muna þeirra.“ Þrátt fyrir að lögin séu skýr segir Guðfinna raunina vera þá að hagsmunir kaupenda fái ekki jafn mikið vægi og hagsmunir seljenda. „Fasteignsali er settur í þá stöðu að hann fær mikinn meirihluta tekna sinna frá selj- andum. Ég velti því oft fyrir mér hvernig í ósköpunum fasteigna- salar eigi að geta gætt hagsmuna beggja aðila að fasteignaviðskipt- unum, þegar annar borgar hon- um en hinn ekki. Mín skoðun er sú, og sama gildir um marga fasteignasala sem ég hef rætt við, að fráleitt sé að sami einstaklingur gæti hags- muna beggja aðila, á sama hátt og fráleitt væri að sami lögmaður gætti hagsmuna tveggja einstak- linga sem deila.“ Guðfinna segist ekki telja að fasteignasalar gefi meðvitað hags- munum seljenda meiri gaum en hagsmunum kaupenda. Hins vegar þyrftu fasteignasalar að setjast niður með kaupandanum áður en gert er tilboð í eign, fara yfir söluyfirlitið og ástandið á húsinu með honum og hvað gera skuli ef í ljós kemur galli, til að gæta jafnt að hagsmunum beggja aðila. Það geri þeir hins vegar yf- irleitt ekki. „Það ætti að vera í lögum hér, eins og t.d. í Danmörku, að kaupandi verði að vera með sér- stakan löggiltan fasteignasala eða lögmann með sér í gegnum kaupferlið,“ segir Guðfinna. Viljum redda hlutunum eftir á Boðið hefur verið upp á kaup- endaþjónustu hjá Fasteignamál lögmannsstofu í um þrjú ár. „Það eru alltaf einn og einn sem nýtir sér þjónustuna, en ekki margir. Við Íslendingar erum ekkert sér- staklega mikið fyrir fyrirbyggj- andi aðgerðir; við viljum frekar redda hlutunum þegar allt er komið í voll. En þá er orðið miklu erfiðara og dýrara að leysa úr hlutunum.“ Guðfinna Guðmunds- dóttir Býður kaupendum fasteigna upp á ráðgjöf. Býður kaup- endum aðstoð  Segir fasteignasala ekki geta gætt hagsmuna bæði kaupenda og seljenda  Kallar á breytingar á lögum um sölu fasteigna ➤ 15. gr. Fasteignasali skal ...liðsinna báðum aðilum, selj- anda og kaupanda, og gæta réttmætra hagsmuna þeirra. LÖG UM SÖLU FASTEIGNA Árvakur/Golli MARKAÐURINN Í GÆR             !""#                               !"#      $ %        &#  '()*+ '  , -./.   0#1   2         345   #"   " 61  "(## (7      81 !"# "    +9 #/   01  - -   :   -        ;# 1         -/    !                                                                                   : -   0 -< = $ ' 5>?@34?A B3C@>3A?5 CD?ADD@C? CD?4>>>A@ BB>??4C>@4 3ABB354@ 4@AA>3@@ 35D5@C?BC> @C3C44D@4 5AD??? C44@C?@CC 53B3CAC?? D35C?@C@ 34?>@3A> >?4A5?? >44>???? ? A4?DBD4 , B5>?A>>@ 45?A44 4A??? , , , B@AB5A??? , , @EB5 CAE4? B3E4> B?EB@ BAEC? 3>E?5 >DE5? DD@E?? 3?E5? AAE5? 4ED5 B3E@D 5E4D A5E>? BEA4 4E4? B@AE5? BC@?E?? C>3E?? BE>5 B3CE?? 3ECB >3E>? , , 33C?E?? , , @E>? 5?E?? B3EDC B?E>? BAE5? 3>EC5 >DED5 D@CE?? 3?E@? B??E5? 4E@> B3EA@ 5EDC A4E?? BEA@ 4E45 BA>E?? BCA4E?? C35E?? BE>4 B3@E?? 3EC4 , , , 33@5E?? B?E?? 4E5? /   - B? B5 4D DA D> BB @ >?4 4B > BBA 43 B5 BB > 3 , B? , CA 5 B , , , BA , , F#   -#- 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3?B>??@ 3BB>??@ 3?B>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ 3BB>??@ AB>??@ 4B>>??D >>@>??D 3BB>??@ >5B>??@ BCB>??@ ● Mestu viðskiptin í Kauphöll OMX í gær voru með bréf í Kaup- þingi banka, fyrir 3.342 milljarða króna. ● Mesta hækkunin var á bréfum í Kaupþingi eða um 1,69%. Bréf í Century Aluminium Com hækk- uðu um 0,15%. ● Mesta lækkunin var á bréfum í Flögu Group eða 13,19 %. Bréf í FL Group lækkuðu um 7,6% og bréf í P/F Atlantic Petroleum um 5,8%. ● Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,09% og stóð í 5,481 stigi í lok dags. ● Íslenska krónan veiktist um 0,4% í gær. ● Breska OMX-vísitalan hækk- aði um 0,7%. Þýska DAX- vísitalan lækkaði um 0,3%. Laun Íslendinga eru dreifðari nú en þau voru 1998, skv. Hagtíð- indum sem komu út í gær. T.d. hefur það hlutfall þjóðarinnar sem er með heildarlaun á algeng- asta launabilinu minnkað. Árið 1998 var þriðjungur með algeng- ustu heildarlaun en árið 2006 var það hlutfall aðeins 18%. Algeng- ustu heildarlaun voru 145-195 þúsund árið 1998 og 245-295 þús- und árið 2006. Innan starfsgreina hefur dreifing líka aukist. þkþ Launin orðin dreifðari Hluthafar Kaupþings högnuðust um 70 milljarða á seinasta ári eftir skatta sem er töluvert minna en í fyrra, þegar hagnaðurinn nam rúmum 85 millj- örðum. Segir Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri að það hafi gengið sérlega vel hjá Kaupþingi framan af ári en viðsnúningur á alþjóð- legum fjármálamörkuðum hafi sett mark sitt á seinni hlutann. Heildareignir bankans námu 5.347 milljörðum króna í lok ársins og jukust um 31,9% í íslenskum krónum. Þá jukust innlán sem hlutfall af heildarútlánum til viðskiptavina, en þau voru 29,6% í upphafi ársins og 41,8% í árslok. Arðsemi eigin fjár var 23.5% á árinu og hagnaður á hlut 95,2 krónur. Kemur fram í fréttatilkynningu frá bankanum að stjórnin muni leggja það til við aðalfund að hluthöfum verði greiddar 14.810 milljónir í arð vegna ársins 2007, eða 20 krónur á hlut. þkþ Kaupþing: Hagnaður 70 milljarðar Seðlabanki Bandaríkjanna hefur lækkað stýrivexti úr 3,5% í 3,0%. Þar með hefur bankinn lækkað stýrivexti um 2,25% á seinustu fjórum mánuðum og hafa þeir ekki verið lægri síðan 2005. Lækkun stýrivaxta hefur ekki ver- ið jafn hröð síðan í byrjun ní- unda áratugarins. Lækkunin kemur í kjölfar frétta um að hagvöxtur hafi verið mun minni á seinasta fjórðungi ársins 2007 en búist var við. Spáð var 1,2% hagvexti en hann var aðeins 0,6% í reynd. þkþ Enn meiri lækk- un stýrivaxta Heildarlaun voru lægst í verslun og ýmiss konar viðgerðarþjón- ustu árið 2006, skv. Hagtíðindum Hagstofunnar. Þar voru heild- arlaun 337 þúsund krónur að meðaltali á mánuði. Hæst voru launin í fjármálaþjón- ustu, lífeyrissjóðum og vátrygg- ingum en þar voru heildarlaun að meðaltali 530 þúsund. Séu heildarlaun skoðuð eftir starfsstéttum voru stjórnendur með hæst laun og skrifstofu- og verkafólk með þau lægstu. þkþ Lægst laun í viðgerðum

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.