24 stundir - 01.02.2008, Síða 25
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Sú var tíðin að börn fóru um bæ-
inn á öskudag og hengdu ösku-
poka á bak vegfarenda án þess að
þeir yrðu þess varir. Þessi skemmti-
legi og séríslenski siður hefur því
miður nánast lagst af á undanförn-
um árum en nú hyggjast Heimilis-
iðnaðarfélagið og menningarmið-
stöðin Gerðuberg endurvekja hann
og halda námskeið í öskupokagerð
fyrir krakka á öllum aldri.
Börn syngja í búðum
„Þetta er gamall og góður siður
sem er að detta upp fyrir því nú eru
krakkar farnir að taka upp norð-
lenska siði og syngja í búðum,“
segir Lára Magnea Jónsdóttir text-
ílhönnuður sem verður leiðbein-
andi á námskeiðinu. Sjálf er Lára
alin upp á Akureyri og segir að þar
hafi bæði tíðkast að syngja á ösku-
dag og hengja poka á vegfarendur.
„Upphaflega voru þetta kannski
frekar ungar konur sem hengdu
poka aftan á einhvern sem þær
voru hrifnar af og má segja að þær
hafi verið að reyna að krækja sér í
kærasta,“ segir hún.
Til þess að hengja megi ösku-
poka aftan á einhvern er mikilvægt
að vera með títuprjón sem hægt er
að beygja. Framboð á slíkum títu-
prjónum hefur dregist saman á
undanförnum árum og vilja sumir
tengja minnkandi vinsældir ösku-
pokanna við það. Lára Magnea
kann ráð við því.
Títuprjónar úr skyrtum
„Maður þarf að safna títuprjón-
um úr herraskyrtum sem eru
keyptar úti í búð. Það eru einu títu-
prjónarnir sem hægt er að beygja
núna,“ segir hún og bendir jafn-
framt á að sumir noti einfaldlega
litlar nælur í staðinn.
Öskupokagerðin fer fram í
Gerðubergi laugardaginn 2. febr-
úar kl. 15-17.
Siður á undanhaldi Sá siður að
hengja öskupoka aftan á vegfar-
endur hefur vikið fyrir barnasöng í
búðum að mati Láru Magneu Jóns-
dóttur sem ætlar að kenna krökk-
um að búa til öskupoka.
Heimilisiðnaðarfélagið efnir til öskupokagerðar
Gamall og góður
siður endurvakinn
Efnt verður til öskupoka-
gerðar fyrir krakka á öll-
um aldri í Gerðubergi á
laugardag en sá gamli
siður að hengja ösku-
poka aftan á vegfarendur
hefur því miður verið á
undanhaldi.
➤ Öskupokar þekkjast ekki ann-ars staðar en á Íslandi.
➤ Lengi vel hengdu konur pokameð ösku á karla.
➤ Karlar hengdu aftur á mótipoka með steinum á konur.
ÖSKUPOKAR
Árvakur/Kristinn Ingvarsson
24stundir FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 25
LÍFSSTÍLLHELGIN
helgin@24stundir.is a
Þetta er gamall og góður siður sem
er að detta upp fyrir því nú eru
krakkar farnir að taka upp norðlenska siði
og syngja í búðum.
Hörður Torfa og Laxness
Tónleikar Söngvaskáldið Hörður
Torfason flytur lög við ljóð Hall-
dórs Laxness í stofunni á Gljúfra-
steini á sunnudag kl. 16. Upphaf-
lega stóð til að halda tónleikana
um síðustu helgi en þá þurfti að
fella þá niður vegna veðurs.
Dave Spoon á Íslandi
Skemmtanir Dave Spoon spilar
á afmælishátíð Agent.is á Nasa í
kvöld og í Sjallanum á Akureyri
annað kvöld. Einnig koma fram
Ghozt, JayArr, Frigore og fleiri.
Gospelsveifla á nýju ári
Messa Gospelkór Árbæjarkirkju
og hljómsveit verða í syngjandi
sveiflu í fyrstu léttmessu ársins í
Árbæjarkirkju á sunnudagskvöld
kl. 20.
Vampírur í Salnum
Kvikmyndir Hin árlega
tónskáldahátíð Myrkir músíkdagar
hefst í Salnum á sunnudag með
pallborðsumræðum um fyrstu
vampírumyndina Nosferatu. Að
umræðum loknum verður myndin
sýnd við lifandi tónlistarflutning.
Umræðurnar hefjast kl. 14 og kvik-
myndasýningin kl. 17.
Það besta í bænum
Tveir meistarar Hörður
Torfason flytur lög við ljóð
Halldórs Laxness í stofu
skáldsins á sunnudag.
Árvakur/Kristinn
Árleg hönnunarkeppni véla- og
iðnaðarverkfræðinema við Háskóla
Íslands fer fram í Háskólabíói í dag.
Keppnin gengur út á að þátttak-
endur hanna og smíða tæki sem
leysir fyrirfram ákveðna þraut. Að
þessu sinni eru 11 lið skráð til leiks
og því búist við harðri og spenn-
andi keppni. „Þessi keppni skipar
stóran sess í skemmtanalífi okkar
og hefur í raun bæði fræðslu- og
skemmtigildi,“ segir Bjarni Ólafur
Stefánsson, formaður undirbún-
ingsnefndar. Þá hefur almenningur
einnig sýnt henni mikinn áhuga.
„Þetta hefur verið vel sóttur við-
burður í gegnum tíðina. Það hefur
verið fullur salur eða því sem næst
síðustu ár,“ segir hann.
Keppnin hefst í Háskólabíói kl.
13 í dag og er öllum opin.
Hönnunarkeppni verkfræðinema
Hugvit og skemmtun
Ævintýrið um Pétur og úlfinn eft-
ir Prókofiev og þættir úr Mynd-
um á sýningu eftir Mussorgsky
verða fluttir á sérstökum barna-
og fjölskyldutónleikum í Salnum
í Kópavogi á laugardag kl. 13.
Tónleikarnir eru liður í TKTK,
tónleikaröð kennara Tónlistar-
skóla Kópavogs, og verður tón-
listin leikin í útsetningum fyrir
blásarakvintett. Sögumaður er
Sigurþór Heimisson leikari.
Ýmislegt fleira verður í boði fyrir
börn um helgina því að á sunnu-
dag kl. 14 fer fram listasmiðja
Listasafns Reykjavíkur í Hafn-
arhúsi. Smiðjan er helguð huldu-
fólki en á sýningu Steingríms Ey-
fjörð; Lóan er komin, sem
stendur yfir í safninu leynast til-
vísanir í álfa og huldufólk. Áður
en listasmiðjan hefst verður
gengið undir leiðsögn um sýn-
inguna.
List fyrir börn Listasmiðja fyrir börn
verður haldin í Hafnarhúsi á sunnudag.
Tónleikar og listasmiðja
Sængurfataverslun, Glæsibæ Sími: 552 0978, www.damask.is
Opið mán. - fös. kl.10-18 og lau. kl.10-16.
● Byssusýning Starfsár Veiði-
safnsins á Stokkseyri hefst
með árlegri byssusýningu í
samvinnu við verslunina Vest-
urröst. Sýningin er opin laug-
ardag og sunnudag kl. 11-18 í
húsakynnum safnsins Eyr-
arbraut 49.
● Vítamín á Vélsmiðjunni
Hljómsveitin Vítamín leikur
fyrir dansi á Vélsmiðjunni á
Akureyri á föstudags- og laug-
ardgskvöld. Húsið verður opn-
að kl. 22 og er frítt inn til mið-
nættis.
● Dísel í Kópavogi Hljóm-
sveitin Dísel gerir víðreist um
helgina og leikur á Players í
Kópavogi í kvöld og á Lukku-
Láka í Grindavík annað kvöld.
● Benassi á Broadway Benny
Benassi kemur fram á vetr-
arhátíð Techno.is á Broadway á
laugardagskvöld. Fyrri sýningin
er ætluð fólki á aldrinum 16-20
ára og hefst kl. 20. Sú síðari
hefst kl. 00:30.
● Dalton í bænum Hljóm-
sveitin Dalton leikur á Players
í Kópavogi á laugardagskvöld.
● Benny Crespo og félagar
Benny Crespo’s Gang koma
fram á tónleikum á Dillon í
kvöld. Tónleikarnir hefjast kl.
23:30 og er aðgangur ókeypis.
● Styrktartónleikar Félag
anti-rasista heldur styrkt-
artónleika á Gauki á Stöng í
kvöld kl. 22.
UM HELGINA