24 stundir - 01.02.2008, Blaðsíða 28

24 stundir - 01.02.2008, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 24stundir ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Sú ákvörðun Hoya að taka aftur slaginn við Mayweather er ekki endilega byggð á hefnigirni. Síðasti slagur þeirra reyndist tekjuhæsti hnefaleikaviðburður sögunnar og Hoya fékk umtalsvert meira í launaumslag sitt fyrir vikið en andstæðingur hans. Kamerúninn SamuelEto’o fór í sögubækur ífyrra- kvöld þegar Kamerún sigr- aði Súdan 3-0 í Afríkukeppn- inni. Bætti kappinn tveim- ur mörkum þar í safn sitt en enginn hefur skor- að jafn mörg mörk í keppninni frá upphafi og Eto’o eða sextán alls. Loksins er farið að glitta íliti AC Milan meðaltopp- liðanna á Ítal- íu. 1-0 sigur gegn Emil Hallfreðssyni og félögum í Reggina kom stórliðinu í sjötta sætið en slíkar hæðir hafa leikmenn þess ekki komist upp í á þessum vetri. Emil kom ekki við sögu en lið hans er í vond- um málum við botn Seríu A. Það ætti einnig að gefaaðdáendum AC tilefni tilglotts að þjálfari erki- fjendanna í Inter, Roberto Mancini, þykir ekki merki- legur þjálfari þrátt fyrir stór- kostlegan árangur Inter undir hans stjórn. Allavega er hann ekki meðal þeirra þriggja þjálf- ara sem til greina koma sem þjálfarar ársins á Ítalíu. Nú eru skrílslæti eða lýð-ræði, eftir því hver lít-ur á, í gangi í Liver- pool. Þar hafa aðdáendur liðsins stofnað hlutafélag sem hefur það eitt markmið að kaupa liðið af bandarískum eig- endum þess. Plottið gæti mögulega gengið ef nógu marg- ir leggja í púkkið auk þess sem hægt er að koma eigendunum í bobba með því einu að láta ekki sjá sig á einum eða tveimur heimaleikjum liðsins enda eig- endurnir vel skuldugir. Ungstirnið Theo Walcottvar ekki par sáttur viðAr- sene Wenger sem setti hann á lánslista Ars- enal enda beð- ið lengi tæki- færis. Ætlar hann ekki að fara neitt heldur freista þess áfram að heilla Wenger á æf- ingasvæðinu. Betri en Beckham. Þettasegir Alex Ferguson umauka- spyrnusnilli Cristiano Ro- naldo hins portúgalska. Mark hans úr aukaspyrnu gegn Ports- mouth fer að sögn fræðinga beint í metabækur sem eitt hið glæsilegasta í boltanum og undir það tekur stjórinn Alex sem hefur séð tonn af slíkum mörkum. Knattspyrnugoðið, fíkillinn og dansstjarnan Diego Maradona hefur loks beðist afsökunar á einhverju umtalaðasta og umdeildasta marki sem nokkurn tíma hefur verið skorað í knatt- spyrnu; marki hans með hendi í landsleik Eng- lands og Argentínu á HM í Mexíkó 1986 sem Maradona hélt fast við að „hönd Guðs“ hefði komið nærri og átt sök á. Áberandi var í sjónvarpi að markið væri ólöglegt en dómarinn var illa staðsettur og lét það standa sem vakti deilur í mörg ár á eftir enda tryggði það að Argentína komst áfram í undanúrslit og vann heimsmeistaratitilinn það árið. Heimspekingurinn Maradona var samt ekki á því að gera mál úr afsökuninni. „Þetta er vatn undir brúna og hluti af sögunni og verður ekki breytt úr þessu. Lífið heldur áfram.“ Diego Armando Maradona að bæta fyrir syndir sínar Biður afsökunar á „hendi Guðs“ Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is Það má líkja þessu við að Tiger Woods hætti í golfi. Eftir verða hundruð góðra kylfinga en eng- inn þeirra kemst með tærnar þar sem Woods hefur hælana í hreinu aðdráttarafli. Þess vegna eru blendnar tilfinningar hjá áhuga- mönnum yfir því að Oscar de la Hoya, gulldrengurinn sjálfskipaði, hætti keppni eftir árið. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að þangað til ætlar hann að berjast þrívegis. Eftirsjá Hversu mjög sem margir hafa horn í síðu Hoya, sem nánast einn síns liðs gerði hnefaleikara að kyntáknum og breytti kynjaáhorfi á hnefaleikabardaga umtalsvert, er engum blöðum um það að fletta að Hoya er frábær hnefa- leikari og bardagar hans jafnan skemmtilegir. Fékk hann talsvert skítkast frá gömlum hundum í bransanum er í ljós að konur sem löngum hafa aðeins verið milli 20 og 30 prósent áhorfenda á hnefa- leika juku áhorf sitt umtalsvert þegar Hoya steig í hringinn. Stærsti bardagi ársins Sú ákvörðun Hoya að taka aftur slaginn við Floyd Mayweather er ekki endilega byggð á hefnigirni. Síðasti bardagi þeirra sem Hoya tapaði eftir ákvörðun dómara reyndist tekjuhæsti viðburður nokkru sinni í sportinu og Hoya fékk þar umtalsvert meira útborg- að en Mayweather þrátt fyrir tap- ið. Sama verður uppi á teningn- um nú og áhuginn líklega enn meiri þegar ljóst er að Hoya hend- ir hvíta handklæðinu í árslok. Í desember ætlar kappinn svo að taka lokaslag að nafninu til. Hvort það verður nettur heiðurs- slagur eða hvort alvöru andstæð- ingur mætir til leiks veltur á út- komunni úr slagnum við Mayweather. Síðustu metrarnir Vinsæl- asti hnefaleikari samtímans fer á eftirlaun eftir árið. Hoya hendir handklæðinu  Hnefaleikarinn stórkostlegi Oscar de la Hoya hættir eftir þetta ár  En fyrst ætlar hann að hefna harma sinna gegn Mayweather ➤ Maí Hoya mun taka upphanskana, að líkindum gegn Steve Forbes í Mexíkó. Úrslit- in þykja fyrisjáanleg enda bardaginn hugsaður til að Hoya komist í form fyrir bar- dagann gegn Mayweather. ➤ September Hoya mætir FloydMayweather en þeim bar- daga tapaði Hoya fyrir ári. Tapið í hringnum skipti litlu enda varð gróðinn í bank- anum því meiri en Hoya fékk tvöfalt meira fyrir bardagann en Mayweather. ➤ Desember Hoya tekur sinnsíðasta bardaga á ferlinum. Óvíst hver er andstæðing- urinn. ALLT ER ÞÁ ÞRENNT ER Dýrir hlaupaskór eru að lík- indum verri kostur en þeir ódýrustu hvað hlaup varðar. Hafa vísindamenn breskir komist að því að ódýrir hlaupaskór vernda fætur og bein jafnan betur en flottir, fágaðir og dýrir og þátttak- endur í sérstakri könnun vildu ekki meina að dýrustu skórnir væru almennt þægi- legri heldur. Skýrist þetta að flestu leyti af því að ódýrari týpur af skóm eru jafnan með aðeins þykkari sóla sem taka betur við höggum og þrýst- ingi. Dýrt spaug Fernando Alonso sem fannst ekkert skemmtilegra en að baða sig í sviðsljósi fjölmiðla fyrir nokkrum mánuðum hef- ur ekki sagt múkk opinberlega í þrjá mánuði fyrr en í gær. Á blaðamannafundi Renault- liðsins var hann klisjugjarn og sagðist vonast til að geta bætt árangur Renault sem var dap- ur á síðasta ári. Engar sprengj- ur um lið McLaren eða fyrrum félaga sinn Lewis Hamilton. Þrár og þögull Þýsk rannsókn hefur leitt í ljós að mikil aukning hjarta- áfalla átti sér stað í landinu þegar þýska landsliðið keppti á HM fyrir tveimur árum. Virðist karlmönnum þannig 15 prósentum hættara við hjartaáfalli í tengslum við æs- ing vegna íþróttaviðburðar en ella. Hjartans áföll Sama virðist vera hvað Darren Clarke reynir til að koma sér aftur til fyrri frægðar í golf- inu. Karlanginn sem batt miklar vonir við Dubai Clas- sic-mótið endaði fyrsta dag- inn í 92. sæti og gerir vart miklar rósir héðan í frá. Tröllum gefinn SKEYTIN INN

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.