24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 10

24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 10
Eftir Andrés Inga Jónsson andresingi@24stundir.is „Það er mikill léttir að vera frá- skilin. Núna get ég haldið áfram í skóla,“ sagði átta ára stúlkan Nujood Ali eftir að fjölskyldu- dómstóll í Jemen veitti henni lög- skilnað frá þrítugum eiginmanni sínum. Nujood kvartaði við dómstól- inn undan eiginmanninum, sem hún sagði hafa beitt sig líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi, og föður hennar, sem samþykkti hjóna- bandið. Féllst dómstóllinn á kröfu Nujood um skilnað, en sá sér ekki fært að dæma mennina til refsing- ar. Samkvæmt jemenskum lögum þóttu mennirnir ekki hafa brotið neitt af sér. Fjölskyldu Nujood var ennfremur gert að greiða eigin- manninum um 18.000 króna bæt- ur fyrir eiginkonumissinn. Tveir mánuðir eru síðan for- eldrar Nujood gerðu hjúskapar- samning við eiginmann hennar. Í honum var kveðið á um að hún myndi búa í foreldrahúsum til átján ára aldurs. Viku eftir að samningurinn var gerður sendu foreldar Nujood hana til að búa hjá eiginmanni sínum. Eiginmaðurinn barðist að sögn Yemen Times hatrammlega gegn skilnaðinum. „Ég læt ekki skilja okkur að,“ sagði hann fyrir rétti. „Það er réttur minn að halda henni.“ Barnabrúðir algengar Nujood er fyrsta stúlkan sem lögsækir föður sinn fyrir að gifta sig á unga aldri, en því fer fjarri að mál hennar sé einstakt. „Það eru hundruð stúlkna eins og Nujood sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hendi eldri karlmanna,“ segir hæstarétt- arlögmaðurinn Shatha Moham- med Nasser við Yemen Times. „Vandamálið er að það eru engin lög til að refsa föðurnum sem gef- ur barnið í hjónaband, embættis- manninum sem blessar ráðahag- inn eða eiginmanninum sem lætur barnið þjóna sér sem eiginkona.“ Úrbætur fást ekki Nasser hefur tekið mál Nujood upp á arma sína og biðlar til al- þjóðasamfélagsins að þrýsta á að hjúskaparlöggjöf Jemen verði breytt. Kvennasamtökin Women’s National Committe hafa áður hvatt þingið til að samþykkja 18 ára lágmarksaldur brúðhjóna, en án árangurs. Átta ára eigin- kona frelsuð  Þing Jemens deilir um lágmarkshjúskaparaldur  Mál átta ára stúlku sem neydd var í hjónaband síður en svo einsdæmi ➤ UNICEF telur barnungar brúð-ir vera eitt stærsta vandamál í þróunarstarfi í Jemen. ➤ Kannanir sýna að meðalaldurstúlkna við giftingu í Jemen geti verið tæp 15 ár. BÖRN Í HJÓNABANDI NordicPhotos/AFP Stórfjölskyldan í réttarsal Frá hægri: Eiginmaður Nujood, lögfræðingur henn- ar, móðir, Nujood sjálf og faðir hennar. John McCain, forsetaframbjóðandi repúblikana í Bandaríkjunum, nýtur jafnmikils fylgis og demókrat- inn Barack Obama og hefur naumt forskot á Hillary Clinton í könnun á fylgi mögulegra mótherja í forseta- kosningunum sem fram fara í október. Fréttastofan Reuters lét framkvæma könnunina og birti niðurstöð- ur hennar í gær. Á landsvísu jók Obama forskot sitt á Clinton frá síð- ustu könnun. Hann nýtur nú um 51% stuðnings, en hún 38%. Í síðasta mánuði hafði McCain sex prósentustiga forskot á Obama, en nú eru þeir jafnir með stuðning um 45% kjósenda hvor. Clinton vantar nú 5 prósentu- stig upp á að njóta jafnmikils stuðnings og McCain, sem er þremur prósentum minni munur en fyrir mán- uði. „Enn kemur Obama betur út gegn McCain heldur en Clinton, en það er mjög mjótt á mununum í báð- um tilfellum,“ segir John Zogby, forstjóri fyrirtækisins sem gerði könnunina. „Obama og Clinton skaða hvort annað því lengur sem þau keppa við hvort annað.“ andresingi@24stundir.is Reuters gerir könnun á möguleikum forsetaframbjóðenda vestanhafs McCain sjónarmun ofar NordicPhotos/AFP Sigurstranglegur McCain kemur vel út í nýrri könnun. 10 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 24stundir Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 I Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og laugard. 11-16 ÞAÐ ER SJÚKRAÞJÁLFARI Í VERSLUN OKKAR alla fimmtudaga frá kl. 16 til 18 sem aðstoðar þig við val á dýnu. Heimsferðir bjóða einstakt tilboð á einn vinsælasta áfanga- stað Costa Brava strandarinnar við Barcelona, Lloret de Mar. 11 nátta ferð með fullu fæði á hreint ótrúlegum kjörum. Hótel með góðri aðstöðu, garði, sundlaug og veitingastað. Stutt í golf og á ströndina. Öll herbergi með baði, sjónvarpi og síma. Gríptu tækifærið og tryggðu þér góðan sumarauka á Lloret de Mar á frábærum kjörum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Lloret de Mar 12. maí frá kr. 59.990 Mjög takmarkað magn - bókaðu strax! Munið Mastercard ferðaávísunina Ótrúlegt tilboð *** 11 nætur m/fullu fæði Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Verð kr. 59.990 með fullu fæði Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli með fullu fæði á Hotel Sunrise *** í 11 nætur, 12. maí. Aukagjald fyrir allt innifalið kr. 1.500 á dag. Aukagjald fyrir einbýli kr. 20.000.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.