24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 14

24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Björg Eva Erlendsdóttir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Stundum er gests augað svo ljómandi glöggt. Í íslenzkum stjórnmála- kreðsum hefur verið talað á þann veg að flokkarnir hafi gert rækilega hreint fyrir dyrum í fjármálum sínum er samstaða náðist á Alþingi um lög um fjár- mál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda, sem voru samþykkt í árslok 2006. Í fyrradag var gerð opinber skýrsla GRECO, samtaka ríkja í Evrópuráðinu gegn spillingu, um fjármál íslenzkra stjórnmálaflokka. Þar er nýja löggjöfin reyndar sögð mikið framfaraskref, en matsmenn GRECO finna engu að síð- ur á henni verulega ágalla, sem þeir leggja til að verði bætt úr. Ein veigamesta ábendingin varðar þann greinarmun, sem gerður er á framlögum til stjórnmálaflokka og frambjóðenda eftir því hvort um fyr- irtæki eða einstakling er að ræða. Eingöngu er nú gerð krafa um að fyr- irtæki, sem styrkja flokkana, séu nafngreind. Rökin fyrir þessu voru að verið væri að vernda einkalíf einstaklinga, sem styrkja stjórnmálaflokka. GRECO bendir á það, sem virðist liggja í augum uppi, að almannahags- munir af því að allt sé uppi á borðinu hljóti að vega þyngra. Þrjú hundruð þúsund krónur séu heilmiklir peningar og núverandi löggjöf bjóði upp á að fyrirtæki fari bæði framhjá ákvæðunum um hámarksframlög og um nafn- greiningu með því að láta stjórnmálamenn hafa mörg framlög í nafni starfs- manna sinna. Þess vegna eigi að nafngreina alla, sem styrkja stjórnmála- menn um upphæð yfir ákveðnu marki. Önnur veigamikil tillaga GRECO er að sömu reglur um gegnsæja fjár- mögnun kosningabaráttu verði látnar gilda um frambjóðendur til embættis forseta Íslands og um þá, sem bjóða sig fram til þings og sveitarstjórna. Þetta er sömuleiðis alveg sjálfsagt. Hlutverk forsetans hefur breytzt og hann er t.d. farinn að beita sér í þágu viðskiptahagsmuna fyrirtækja. Er þá ekki alveg sjálfsagt að almenningur fái að vita hverjir fjármagna forsetaframboð? Löggjöfin um gegnsæja fjármögnun stjórnmálabar- áttu er nauðsynleg út frá almannahagsmunum en bezt er hún fyrir stjórnmálamennina sjálfa. Ef allt er uppi á borðinu, verða þeir ekki grunaðir um að ganga erinda þeirra, sem styrktu þá til að ná kjöri. Í kjölfar umræðna um styrki verktaka til borgarfull- trúa, sem véla um skipulagsmál og lóðaúthlutanir, spurðu 24 stundir framboð og borgarfulltrúa í Reykja- vík hvort þeir hefðu þegið styrki af verktakafyrirtækj- um. Fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar og prófkjör vegna þeirra voru nýju lögin ekki gengin í gildi. Vand- ræðagangurinn í sumum svörunum, sem fram koma í blaðinu í dag, sýnir vel hvað það mun koma stjórn- málamönnum vel að gegnsæið nái alveg til botns. Gegnsætt til botns SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Þess vegna getur hinn frjálslyndi Jón Magnússon ekki lengur leyft sér að lyfta sér á vængnum og hugsa frjálst um evruna eins og forðum. Nú þarf hann jafnan að hnýta fyrirvörum við ræðu sína til að hafa Magnús góðan. Hið villta glit hins frjálsa strokuhests sem stirndi stundum úr augum hans í upphafi þings er horfið. Það er kominn léttadrengur á skútuna, sem vill og fær að stýra fyrir formanninn. Þannig hefur Guðjón Arnar taumhald á villi- stóðinu. Það er stefna Magnúsar Þórs sem ræður varðandi ESB og fleira fylgir örugglega á eftir. Össur Skarphéðinsson eyjan.is/goto/ossur BLOGGARINN Léttadrengurinn Stóru málin snúa að launum hefðbundinna kvennastétta, af- námi launaleyndar, þátttöku kvenna á öllum sviðum þjóðlífs- ins og þá sér- staklega þar sem ráðum er ráðið. Þar sem kjötkatl- arnir eru heit- astir. Ekki síður fer að verða ákaf- lega áríðandi að skoða vinnuálag ungra kvenna með lítil börn, allt of stutt fæð- ingarorlof, mikla atvinnuþátt- töku og fjölda barna per konu. Allt þetta þarf að skoða í sam- hengi og færa inn á hið pólitíska svið. Hversdagsleg tilvera ís- lenskra kvenna á barneignaraldri er þrungin álagi … Oddný Sturludóttir oddny.eyjan.is Álag mæðra Hvernig stendur á því að fjölmörg hús standa auð þar sem blómleg starfsemi og falleg hús ættu að vera? Það er vegna kotungshugs- unarháttar meiri- hluta borg- arstjórnar í Reykjavík sem markvisst stefnir að því með úr- ræðaleysi sínu í skipulagsmálum miðborgarsvæðisins og báru- járnsbyltingarinnar að meina eig- endum fasteigna t.d. við Laugaveg og Hverfisgötu að byggja fallegar látlausar byggingar við þessar göt- ur í staðinn fyrir kofana. Mið- borgin hefur verið í herkví kyrr- stöðufólks sem er smám saman að flæma allt líf úr miðborginni … Jón Magnússon jonmagnusson.blog.is Kotungsbragur Ólafur Þ. Stephensen olafur@24stundir.is „Það á ekki að taka mark á stúdentum sem mótmæla þeim (skólagjöldum), þeir eru bara í hagsmunabaráttu.“ Þessi setning hrundi inn á bloggsíðu áberandi netverja þegar umræða um upp- töku skólagjalda í Háskóla Íslands fór af stað nýverið í kjölfar frumvarps sem lagt var fyrir þingheim 3. apríl sl. Frumvarpið á í heild sinni að einfalda stjórnsýslu háskólans fyrir sameiningu HÍ og KHÍ nú í sumar. Í því er kveðið á um utanaðkomandi meirihluta í há- skólaráði, æðsta ákvarðanatökuvaldi háskólans, sem og glufu til hækkunar skráningargjalda og þar með upptöku skólagjalda. Það að enginn stúdent hafi verið hafður með í ráðum við gerð og útbúning frumvarps- ins, sem hefur jafnveigamiklar breytingar á háskóla- samfélaginu öllu og verið getur er í hæsta máta und- arlegt. Jafnundarlegt og að lýsa því yfir opinberlega að við stúdentar séum ekki gjaldgengir í umræðu um framtíðarstefnu Háskóla Íslands. Sérlega með þeim rökum að við séum „bara í hagsmunabaráttu“ og þess vegna beri að afskrifa fljótlega hugmyndir varðandi framtíðarmótun háskólasamfélagsins og þjóðfélagsins sem við hyggjumst skapa. Er þar með verið að mælast til þess að ummæli allra þeirra fylkinga, aðila og flokka sem eru „bara í hagsmunabaráttu“ verði felld út, af þeirri ástæðu að þeir aðilar hafa hagsmuna að gæta? Og við það vaknar spurningin: hver hefur ekki hags- muna að gæta þegar horft er til Háskóla Íslands og þess þekkingarakkeris þjóðfélagsins sem hann óum- deilanlega er, og þar með gjaldgengur í umræðu um framtíð hans? Auðvitað erum við stúdentar í hags- munabaráttu og vegferð til betri og bættari háskóla, rétt eins og rektor og alþingismenn, það veit það hver manneskja. En því má hins vegar aldrei gleyma að það erum við, stúdentar, sem höfum langmestra hagsmuna að gæta þegar kemur að málefnum háskólans. Og einmitt af þeirri einföldu ástæðu ætt- um við að vera með í hverri ákvörðun sem tekin er um HÍ, innan hans sem utan. Vegna þess að við stúdentar er- um Háskóli Íslands eða hann væri að minnsta kosti ekkert án okkar. Höfundur er formaður Stúdentaráðs Á að þagga niður skoðanir? ÁLIT Björg Magnúsdóttir bjorgmagn- us@gmail.com

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.