24 stundir - 17.04.2008, Side 15
24stundir FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 15
Margrét Sverrisdóttir varkjörin formaður Kven-réttinda-
félags Íslands á að-
alfundi þess í
fyrradag. Fyrir
fundinn hafði hins
vegar kvisast út að
Ásgerður Jóna
Flosadóttir hefði
mikinn áhuga á þessu embætti.
Hafði hún hringt í konur og reynt
að fá þær til að mæta á fundinn
og kjósa sig. Margrét mun hafa
heyrt af þessu og „smalað“ sjálf
þannig að „hennar“ konur fylltu
nær salinn. Ásgerður mun hafa
horfið hljóðlega af vettvangi þeg-
ar hún sá samsetninguna í saln-
um. Það urðu því engin átök hjá
kvenréttindakonunum að þessu
sinni.
Árni Snævarr, bróðir Sig-ríðar Snævarr sendiherraog mágur Kjartans
Gunnarssonar, hefur bæst í hóp
öflugra bloggara á
netinu. Á vefsíðu
sinni í gær segist
hann oft vera
spurður hvort hann
ætli ekki í pólitík.
„Svar mitt er æv-
inlega það sama að ég geri það
ekki af því ég hafi svo mikinn
áhuga á stjórnmálum. Það hefur
líka verið komið að máli við mig
og skorað á mig að fara í forseta-
framboð. En það eru hrein
ósannindi að báðir sem það
gerðu, séu vangefnir. Bara annar
þeirra er vangefinn, hinn var bara
blankur og vantaði pening fyrir
bjór,“ segir Árni. Pétur Gunn-
arsson lýsir yfir stuðningi við
væntanlegt forsetaframboð Árna.
Hann er fundinn, segir Pét-ur á vefsíðu sinni og áþar við mótframbjóð-
anda Ólafs Ragnars. „Það er ljóst
að ef Árni Snævarr
nær kjöri mun
hann ekki sækja Ól-
ympíuleikana í
Kína. Það er helsta
baráttumálið að
forsetinn fari ekki
til Kína. Eins og kunnugt er hefur
núverandi forseti ekki fengist til
þess að lýsa því yfir að hann ætli
að hundsa ólympíuleika kín-
versku alræðisstjórnarinnar. Ég
hef hingað til kosið Ólaf Ragnar
en það er komið meira en nóg af
honum. Hann er búinn að vera
þarna í 12 ár og virðist telja alveg
sjálfsagt að hann reki eigin utan-
ríkisstefnu sem byggist á dekri við
auðmenn og alræðisstjórnir.“
elin@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Sigurður Kári Kristjánsson, for-
maður menntamálnefndar Alþing-
is, hefur lýst því yfir að til umræðu
sé innan stjórnarflokkanna að gefa
opinberum háskólum heimild til
að taka upp skólagjöld. Jafnframt
hefur formaðurinn sagt að vaxandi
stuðningur sé við það innan Sam-
fylkingar að heimila slíka gjald-
töku, jafnvel þó að það stangist al-
gjörlega á við stefnu
Samfylkingarinnar, í það minnsta
eins og hún var fram lögð fyrir
kosningar. Þar segir m.a. um
menntamál: „Stuðla að því að öll-
um standi til boða gjaldfrjáls
menntun frá og með leikskóla til
og með háskóla. Tryggja að skóla-
gjöld verði ekki tekin upp í al-
mennu grunn- og framhaldsnámi
við opinbera háskóla.“
Þetta er nokkuð skýr og skor-
inorð yfirlýsing hjá Samfylking-
unni sem varla er hægt að mis-
skilja, jafnvel þó reynt væri með
góðum vilja að gera það. Það kom
því á óvart að heyra það frá for-
manni menntamálanefndar að það
væri aðeins tímaspursmál hvenær
skólagjöld í opinberum háskólum
yrðu heimiluð. Í viðtali við Frétta-
blaðið sl. sunnudag segir Einar
Már Sigurðsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar og varaformaður
menntamálnefndar, orðrétt um
skólagjaldamálið: „Það verkefni
sem bíður okkar er að svara þeirri
spurningu hvernig við getum jafn-
að samkeppnisstöðu háskólanna
svo allir sitji við sama borð“ og síð-
ar í sama viðtali: „Ég hef þó ekki þá
mælistiku að geta hent reiður á það
hvort sífellt meiri stuðningur sé
um þessar hugmyndir í mínum
flokki.“ Hvað á varaformaðurinn
við þegar hann í sambandi við um-
ræðu um skólagjöld talar um að
jafna stöðu háskólanna svo allir
sitji við sama borð? Vill hann lækka
framlög til einkarekinna skóla eða
vill hann heimila opinberum skól-
um að taka upp skólagjöld? Hvaða
mælistiku vantar varaformanninn
til að slá máli á skoðanir þingflokks
Samfylkingarinnar um skólagjöld?
Er málið svo viðkvæmt innan Sam-
fylkingarinnar að þingmenn
flokksins vilji ekki eða geti ekki
upplýst varaformann menntamál-
nefndar og talsmann flokksins í
menntamálum um afstöðu sína til
þessa mikilvæga máls?
Í fyrirspurnartíma á Alþingi í
gær spurði ég varaformann
menntamálanefndar, samfylking-
arþingmanninn Einar Má Sigurðs-
son, hver afstaða Samfylkingarinn-
ar væri varðandi upptöku
skólagjalda og hvort flokkurinn
muni yfir höfuð ljá máls á því að
veita opinberum háskólum heim-
ild til að innheimta skólagjöld.
Einnig spurði ég hann þess hvort
hann væri sammála því áliti for-
manns nefndarinnar að það væri
aðeins tímaspursmál hvenær opin-
berum háskólum verði gefin heim-
ild til aukinnar gjaldtöku.
Í svari varaformannsins kom
fram að Samfylkingin væri tilbúin
til að „skoða málið frá öllum hlið-
um fordómalaust“ og væri í raun-
inni ekkert heilagt í þeim efnum.
Þannig staðfesti Einar Már Sigurð-
arson þá stefnubreytingu Samfylk-
ingarinnar í menntamálum að
opna á skólagjöld í opinberum há-
skólum sem var þó fyrir aðeins
nokkrum mánuðum talið fráleitt af
hálfu flokksins að nefna á nafn.
Samfylkingin stendur að og styður
frumvarp menntamálaráðherra til
laga um opinbera háskóla þar sem
m.a. er opnað á auknar gjaldtökur í
háskólum og að gjaldtakan eigi að
vera „stjórntæki til að stýra eftir-
spurn eftir þeirri þjónustu sem um
er að ræða hverju sinni“ eins og
segir orðrétt í athugasemdum með
frumvarpinu. Samfylkingin getur
því með engu móti neitað þeirri
stefnubreytingu í þessum málum
sem merkja má bæði í orðum Ein-
ars Más Sigurðssonar, talsmanns
flokksins í menntamálum, og í því
frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi.
Samfylkingin hefur varpað fyrir
róða þeim góðu áformum í
menntamálum sem hún lagði fyrir
kjósendur fyrir tæpu ári. Um það
þarf ekki að deila.
Höfundur er varaþingmaður
Vinstri grænna
Styður Samfylkingin
skólagjöld?
VIÐHORF aBjörn Valur Gíslason
Er málið svo
viðkvæmt
innan Sam-
fylking-
arinnar að
þingmenn
vilji ekki eða
geti ekki upplýst um af-
stöðu sína til þessa mik-
ilvæga máls?
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620.
www.schballett.is
4 vikna vornámskeið
hefst 26. apríl
Upplagt til kynningar
fyrir byrjendur.
Gallerí Fold · Rauðarárstíg og KringlunniRau›arárstígur 14, sími 551 0400 · Kringlan, sími 568 0400 · www.myndlist.is
Íslensk list
gerir hús að heimili
· · ·
Kristján D
avíðsson
Listmunauppboð
Á Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 27. apríl, kl. 19.
Erum að taka á móti verkum núna
Opið í Galleríi Fold á Rauðarárstíg, virka daga 10–18,
laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 14–16
Soffía Sæ
m
undsdóttir
Til sölu er 7.3 brl. bátur,
8.6 metrar að lengd og
2.8 á breidd. Smíðaður úr
plasti og með Mermaid 77
hestafla vél. Vagn fylgir
með. Báturinn er dekk-
aður og með perustefni
og hefur verið notaður til
fiskveiða en selst án kvóta
en hefur heimild til þess
að fá veiðileyfi í aflamarkskerfi. Grásleppuleyfi getur fylgt með.
Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl.
Nánari upplýsingar veitir
Fasteignasalan Eignaver
Sími 553-2222 • eignaver.is
Síðumúli 13 • 108 Reykjavík
Bátur til sölu