24 stundir - 17.04.2008, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Þessa dagana taka fjölmargir lands-
menn aftur fram hjólhestana sína
eftir nokkuð langan og kaldan vet-
ur. Pétur Þór Ragnarsson, formað-
ur Íslenska fjallahjólaklúbbsins,
segir það tilfinningu sína að hjól-
reiðafólki fari mjög fjölgandi þetta
árið, enda fullt tilefni til. Hann var-
ar þó við því að æða af stað í hjól-
túr að vori án þess að athuga fyrst
hvort ekki sé örugglega allt í fínu
standi. „Maður þarf ekki að vera
neinn sérfræðingur í hjólaviðgerð-
um til þess að geta yfirfarið hjólin
heldur er nóg að hafa fengið smá-
leiðsögn um helstu atriði sem þarf
að hafa í huga,“ segir hann en
klúbburinn býður upp á viðgerða-
námskeið fyrir byrjendur í klúbb-
húsinu að Brekkustíg 2 klukkan 20
í kvöld.
„Í raun er ótrúlega margt sem
hinn almenni hjólaeigandi ætti að
geta gert sjálfur og það er síst van-
þörf á slíku núna þegar biðin eftir
hjólaviðgerð getur orðið löng.“
Alltaf hægt
Aðspurður um aðstæður til
hjólaiðkunar á höfuðborgarsvæð-
inu segir hann að þeim sé vissulega
ábótavant. „Það fer þó mjög mikið
eftir því hvaða leið fólk er að fara.
Til dæmis er mjög bein og greið
leið frá Árbænum og niður í
miðbæ en um leið og menn ætla að
hjóla til dæmis frá Árbæ og upp í
Grafarholtið þurfa þeir að taka
stóran krók á leið sína,“ bendir
hann á. Hann bætir því við að sjálf-
ur sé hann bíllaus og setji það ekki
fyrir sig að hjóla allra sinna ferða
allan ársins hring. „Ég er yfirleitt
með aukaföt í vinnunni ef ske
kynni að ég skyldi blotna á leiðinni
og passa alltaf að klæða mig eftir
veðri.“
Hjóla á götunni
Víða í nágrannalöndunum eru
aðstæður til hjólaiðkunar mun
hagstæðari en hér á landi. Í borg-
um og bæjum í Danmörku og
Þýskalandi liggja til dæmis sérstak-
ir hjólastígar gjarnan meðfram göt-
um og gangstéttum, en Pétur segir
að sér lítist enn betur á þá leið sem
farin er víða í Bretlandi. „Þar eru
settar merkingar á göturnar sem
gefa til kynna að hjólreiðamenn
eru í jafnmiklum rétti og öku-
mennirnir sjálfir. Hér á landi tel ég
að hjólreiðamenn ættu að hjóla á
götunum í stað gangstéttanna, að
minnsta kosti ef þeir nota hjólið
sem samgöngutæki og hjóla á 30 til
40 kílómetra hraða. Slíkur hraði á
hjóli á ekki heima innan um gang-
andi vegfarendur. Mun betra er að
halda sig við hægri kant gatnanna.
Þá sjá ökumenn vel til manns og
geta alltaf keyrt framhjá manni. Ég
tek þó fram að enginn ætti að hjóla
á stóru stofnbrautunum á borð við
Miklubraut, slíkt væri of áhættu-
samt.“
Á götunni Pétur Þór segir oft betra
að hjóla á götu en gangstétt.
Að ýmsu þarf að huga áður en haldið er af stað á hjóli
Hjólin dregin fram
úr geymslunum
Miserfitt getur verið að
komast leiðar sinnar á
hjóli í borginni. Formaður
Íslenska fjallahjóla-
klúbbsins segist þó ekki
setja það fyrir sig að
hjóla allan ársins hring.
➤ Íslenski fjallahjólaklúbburinnsamanstendur af hópi fólks
sem hefur hjólreiðamenn-
ingu að áhugamáli, vill auka
veg reiðhjólsins sem sam-
göngutækis og vinnur að
bættri aðstöðu hjólreiðafólks
til samgangna.
➤ Heimasíða klúbbsins er áfjallahjolaklubbur.is.
KLÚBBURINN
Á vef Reykjavíkurborgar má
finna ítarleg kort yfir göngu- og
hjólastíga í borginni. Hægt er að
nálgast kortin með því að slá inn
slóðina rvk.is, smella á „Styttu
þér leið“ og velja þar „Fram-
kvæmdir“ undir fyrirsögninni
„Málaflokkar“. Þá er hægt að
smella á kortasíðu framkvæmda-
og eignasviðs og skoða götukort
sem og kort yfir göngu- og hjóla-
leiðir Reykjavíkur.
Göngu- og
hjólreiðastígar
Fólk í tjaldútilegu veit ekki alltaf
hvort það má tjalda á tilteknum
stöðum á landinu, enda liggur
slíkt oft ekki í augum uppi. Áður
en haldið er af stað í útilegu getur
verið gott að kíkja á hvað lands-
lög hafa um málið að segja. 20.
grein laga um náttúruvernd frá
1999 hefur yfirskriftina Heimild
til að tjalda.
Hvar má tjalda
og hvar ekki?
Afþreying í
Gufunesi
Blóðberg er ekki
bara falleg jurt
heldur er það
jafnframt til
margra hluta nyt-
samlegt. Blóð-
bergsbreiðurnar
verða oft áber-
andi í júní og júlí
og jafnvel fram í ágúst. Fátt er
betur við hæfi en að blanda sér
gott blóðbergste eftir gönguferðir
í náttúrunni, og svo þykir mörg-
um gott að blanda blóðbergi út í
salat og nota sem krydd á grill-
kjöt.
Fallegt og
bragðgott
Góður sjónauki
getur komið sér
afar vel á göngu-
ferðum um nátt-
úruna, ekki síst ef
göngumaður
hyggst nota tæki-
færið og skoða
fugla í leiðinni.
Þessi netti, 280 gramma sjónauki
fæst í Veiðihorninu við Síðumúla
og kostar 6.995 krónur.
Hlauparar sem hafa unun af því
að njóta fallegrar náttúru á með-
an þeir spretta úr spori geta enn
skráð sig í Mývatnsmaraþonið
sem fram fer 31. maí næstkom-
andi. Skráning og skipulag er í
höndum Mývatnsstofu í síma
464-4390 og á infomyvatn@est.is.
Hlaupið
við Mývatn
VORIÐÚTIVIST
lifsstill@24stundir.is a
Þar eru settar merkingar á göturnar sem gefa til
kynna að hjólreiðamenn eru í jafnmiklum rétti
og ökumennirnir sjálfir.
Reykjavíkurborg hefur und-
irritað samning við Fjörefli ehf.
um afnot af landspildu í Gufu-
nesi til að koma upp afþreyingar-
og þjónustumiðstöð. Fjörefli ehf.
mun starfrækja ýmiss konar af-
þreyingarstarfsemi á svæðinu og
einnig er fyrirhuguð æfingaað-
staða fyrir golfáhugamenn bæði
innandyra og utan.
Á myndinni má sjá Eyþór Guð-
jónsson, framkvæmdastjóra Fjör-
eflis, Ólaf F. Magnússon borg-
arstjóra og Ingibjörgu
Guðmundsdóttur frá Fjörefli
undirrita samstarfssamninginn.
Betra útsýni
á göngunni