24 stundir - 17.04.2008, Side 46

24 stundir - 17.04.2008, Side 46
46 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 24stundir Mugison og hljómsveitin Bloodgroup verða fulltrú- ar Íslendinga á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku í sumar. Fjölmiðlar hafa slúðrað um að Jónsi og fé- lagar í Sigur Rós komi einnig fram á hátíðinni, en nú hefur fengist staðfest að það er ekki rétt. Sigur Rós verður samt á ferð um Evrópu í sumar og kem- ur meðal annars fram á Rock Werchter-hátíðinni í Belgíu og Southside-hátíðinni í Þýskalandi. afb „Ef þú ert með smá hár þá er nú aldeilis gott að krúnuraka helvít- ið. Leyfðu raksápunni að sjatna á skallanum, getur t.a.m. rakað af þér skeggið meðan á því stendur. Að því loknu skaltu skipta um blað á rakvélinni þinni, því þú gætir endað eins og Pinhead úr Hellraiser.“ Þórður Ingvarsson blogdodd.maurildi.com „Fékk í dag bréf frá internetfyr- irtækinu SKO þar sem mér var tilkynnt að frá og með næstu mánaðamótum myndi nettenging mín hækka um 50% í verði. Hækkunin er gerð undir því falska yfirskini að vera hugsuð sem „bætt þjónusta fyrir við- skiptavini SKO“. Ómar R. Valdimarsson omarr.blog.is „… Luton er fallið. Við hefjum keppni í gömlu fjórðu deildinni næsta haust. Allir stuðnings- mennirnir standa þó eins og klettur á bak við Mick Harford. Stjórnin hefur líka sagt að hann megi kaupa leikmenn í sumar - jafnvel fyrir svimandi upphæðir eins og 150 þús. pund.“ Stefán Pálsson kaninka.net/stefan Eftir Viggó I. Jónasson viggo@24stundir.is „Já, ég er mjög blankur. Það eru ekki margir sem ráða mig í vinnu þessa dagana. Ég veit ekki af hverju, hvort ég sé ekki nógu að- laðandi starfskraftur eða vegna fer- ils míns hjá Istorrent. Ég er búinn að vera atvinnulaus síðan um ára- mót,“ segir Svavar Lúthersson sem birti fyrir viku áskorun til áhuga- manna um skráaskipti á jafn- ingjaneti um að styrkja sig fjár- hagslega vegna lögfræðikostnaðar sem hefur tilkomið vegna máls- höfðunar Samtaka myndrétthafa á Íslandi og fleiri aðila á hendur honum og Istorrent ehf. Vantar mikið upp á Lögfræðikostnaður Svavars hljóðar nú upp á þrjár milljónir króna og hann segir að kostnaður- inn muni aukast þegar málið fer fyrir Hæstarétt. „Fjárhagslega er ástandið mjög slæmt. Lög- fræðikostnaðurinn er stór og mik- ill og svo á Hæstiréttur eftir að bætast við.“ Svavar birti áskorun sína á vef- síðu sinni torrent.is á föstudaginn var og hann segir að síðan þá hafi nokkur kippur komið í söfnunina. „Upphæðin sem var inni á reikn- ingnum hefur tvöfaldast.“ Þegar Svavar ræddi við 24 stundir höfðu safnast um 206.000 krónur en Svavar býst við að fleiri styrkir komi inn um mánaðamótin. „Ég hef fengið loforð um styrki um næstu mánaðamót. Ég minntist á ástandið rétt fyrir helgi og fólk fær auðvitað greidd út launin um mánaðamótin þannig að ég geri ekki ráð fyrir að allir sem vilja gefa hafi gefið.“ Svavar vonar að nógu margir muni styrkja hann en hann segist vera búinn að undirbúa sig fyrir það að hann gæti farið illa út úr málaferlunum fjárhagslega. Píslarvottur netverja Í pistlinum, sem birtist á tor- rent.is, lýsir Svavar yfir von- brigðum sínum yfir því að sam- félag áhugamanna um skráaskipti hafi ekki staðið betur við bakið á honum en raun ber vitni, segir að sér líði eins og fórn sem var skilin eftir fyrir hrægammana. „Það mætti segja að ég sé písl- arvottur þótt ég vilji ekki skilgreina mig sem slíkan.“ Neyðarkall frá aðstandanda Istorrent Svavar blankur og fær enga vinnu Svavar Lúthersson, að- standandi deilisíðunnar Torrent.is, hefur leitað til skráaskiptasamfélagsins um fjárhagslegan styrk vegna lögfræðikostn- aðar. Skilinn eftir í súpunni Svavari finnst hann hafa verið yfirgefinn. Myndin er samsett. ➤ Torrent.is var opnuð árið2005. ➤ 19. nóvember 2007 er settlögbann á síðuna. Í kjölfarið var mál höfðað gegn Istor- rent og Svavari. ➤ 27. mars var málinu vísað frá íHéraðsdómi Reykjaness en stefnendur áfrýjuðu málinu til Hæstaréttar 2. apríl. ISTORRENT Valur Grettisson, hinn skeleggi blaðamaður á DV, eignaðist sitt fyrsta barn í gær, hraustan dreng. Val- ur var viðstaddur fæðinguna og segja kunnugir að svo mjög hafi hann lifað sig inn í fæðinguna að hann sé meira eftir sig en móðirin. Valur, sem kallar fátt ömmu sína í blaðamennsku, er greinilega mjúkur inn við bein og ljósmæðurnar á fæðing- ardeildinni sáu því óvænta hlið á töffaranum. afb Helga Vala Helgadóttir bendir á skemmtilegan flöt á olíuhreinsistöðvarmálinu á bloggi sínu. Hún ber málið saman við Næturvaktina og segir Ragnar Jörundsson, bæjarstjóra í Vesturbyggð, minna sig á Ólaf Ragnar þegar hann var á kafi í Nígeríusvindli. Það fyndna er að persóna Jörundar Ragnarssonar var rödd skynseminnar í Næturvaktinni, en Jör- undur er sonur Ragnars bæjarstjóra. afb „Þetta eru um fjörutíu manns sem eru búnir að skrá sig,“ segir Ólafur Þór Jóelsson, þáttastjórn- andi GameTíví, aðspurður um viðtökurnar sem fyrirhuguð Guit- ar Hero-keppni þáttarins hefur fengið. Ólafur reiknar með að þátttakendum eigi eftir að fjölga eitthvað á næstu dögum en þátt- tökufrestur rennur út á miðnætti á föstudag. Dómnefnd GameTíví mun að þátttökufrestinum liðnum velja hæfileikaríkustu leikmennina og láta þá keppa sín á milli með form- legum hætti. Verðlaunin fyrir sig- urvegarann eru ekki af verri end- anum, 100.000 krónur og áritaður gítar. Ólafur bætir því við að vinn- ingsfjárhæðin sé sambærileg þeim launum sem góðir gítarleikarar á Íslandi geta búist við. „Þetta er meira en meðalgítarleikari fær fyrir giggið hér á Íslandi.“ Einstæðir hæfileikar Hæfileikar þátttakenda eru sam- kvæmt Ólafi í hæsta gæðaflokki en hann segir þó, að umsóknirnar séu misgóðar. „Menn eru misframbærilegir. Menn eru allt frá því að vera á fyrstu stigum yfir í það að spila lagið, snúandi baki í sjónvarps- tækið, á erfiðasta erfiðleikastigi. Það er mjög sérstakt.“ Hann lofar þó mikilli flug- eldasýningu á lokakeppninni en enn hefur ekki verið ákveðið hve- nær sú keppni fer fram. „Miðað við gæði þeirra keppenda sem þeg- ar eru komnir inn verður virkilega áhugavert að fylgjast með þegar lokakeppnin fer fram.“ viggo@24stundir.is Góð aðsókn í Guitar Hero-keppni GameTíví 40 manns vilja vera tölvurokkstjörnur Góð aðsókn GameTíví bræður eru ánægðir með fjölda þátttakenda. Árni, að vera eða að vera ekki bæjarstjóri, það er...? Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, tekur þátt í leikritinu Bærinn breiðir úr sér á föstudagskvöldið, þar sem hann mun leika sjálfan sig. T.G.I. FRiDAYŚ ...snakkið er á leiðinni www.snakk.is ...engu öðru líkt! BLOGGARINN HEYRST HEFUR … Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 3 2 7 6 4 8 5 1 9 4 5 1 7 9 2 6 8 3 6 8 9 1 3 5 2 4 7 2 3 4 9 6 7 1 5 8 8 1 6 2 5 3 9 7 4 7 9 5 4 8 1 3 6 2 9 7 8 3 1 6 4 2 5 1 4 2 5 7 9 8 3 6 5 6 3 8 2 4 7 9 1 Elli var ekki nema 24 ára gamall þegar hann málaði þessa. 24FÓLK folk@24stundir.is a ...Það er spurningin, sko. Spurðu Clint Eastwood.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.