24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 2
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.hr.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
6
0
8
2 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 21
Amsterdam 23
Alicante 22
Barcelona 20
Berlín 22
Las Palmas 24
Dublin 19
Frankfurt 22
Glasgow 24
Brussel 23
Hamborg 22
Helsinki 12
Kaupmannahöfn 18
London 24
Madrid 23
Mílanó 23
Montreal 10
Lúxemborg 21
New York 17
Nuuk 3
Orlando 21
Osló 22
Genf 21
París 24
Mallorca 25
Stokkhólmur 16
Þórshöfn 17
Austan og norðaustan 3-10 m/s og skýjað
með köflum, en dálítil súld fyrir norðan.
Hiti 11 til 16 stig suðvestanlands, en annars 3
til 8 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
6
10
6
2 4
Allt að 16 stiga hiti
Austlæg átt, 13-18 m/s og víða rigning,
en slydda eða snjókoma fyrir norðan.
Hiti 0 til 10 stig, hlýjast SV-lands.
VEÐRIÐ Á MORGUN
6
7
1 1
0
Slydda eða snjókoma nyrðra
Íslendingar leyfa sér að fara í ut-
anlandsferðir eins og áður þótt
krónan hafi veikst, að sögn Þor-
steins Guðjónssonar, forstjóra Úr-
vals Útsýnar. „Það er stór þáttur í
lífsmynstri okkar að fara til út-
landa. Það dró ekki úr bókunum
þegar krónan veiktist en fólk virð-
ist vera meira á höttunum eftir til-
boðum en áður,“ segir Þorsteinn
og bætir því við að yfir heildina
hafi verð á sumarferðunum ekki
hækkað. „Ferðaskrifstofurnar
þurfa bara að taka á sig skellinn.
Það er skammsýni að hækka verðið
og enda svo með tóm sæti. Við
fáum ekkert fyrir þau.“
Þorsteinn segir þétt bókað á
marga ákvörðunarstaði. „Straum-
urinn liggur allur suður á bóginn,“
tekur hann fram.
Bjarni Ingólfsson, markaðsstjóri
Heimsferða, segir ekki hægt að
merkja samdrátt. „Það má segja að
salan hafi hikstað svolítið þegar
hörmungarnar dundu yfir en hún
hefur aukist á ný. Við hækkuðum
verðið um átta prósent þegar krón-
an féll um daginn. Við hefðum
þurft að hækka meira en það er
ekki hægt að hækka endalaust.“
Lára Birgisdóttir, deildarstjóri
hjá Plúsferðum, segir eftirspurn
eftir ódýrum utanlandsferðum
hafa aukist að undanförnu. „Þessar
ferðir hafa reyndar alltaf verið vin-
sælar en fólk spyr meira um þær en
áður. Það velur þær sem eru ódýr-
ari.“ ibs
Straumurinn suður á bóginn þrátt fyrir fall krónunnar
Meira spurt um tilboðsferðir
Á sólarströnd Íslend-
ingar halda suður á
bóginn enn sem fyrr.
Maður vopnaður hnífi ógnaði
starfsfólki útibús Landsbankans í
Bæjarhrauni í Hafnarfirði á tíunda
tímanum í gærmorgun. Hann
hafði eitthvað af fjármunum á
brott með sér.
Þyrla Landhelgisgæslunnar að-
stoðaði lögreglu við leit að mann-
inum. Sveimaði hún í tæpa
klukkustund yfir svæði í nágrenni
bankans, en án árangurs.
Maðurinn var klæddur í hettu-
peysu og huldi andlit sitt með
klúti. Lögregla telur að hann sé á
aldrinum 17 til 25 ára.
Þeir, sem þekkja manninn af
meðfylgjandi myndum sem náðust
á öryggismyndavélar bankans eða
geta veitt einhverjar upplýsingar,
eru beðnir að hafa samband við
lögregluna í síma 444-1100.
Bankarán í útibúi Landsbankans
Lögregla leitar
bankaræningja
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segir fund þeirra og fjögurra
ráðherra ríkisstjórnarinnar í
Stjórnarráðinu í gær hafa verið
ágætan og að samkomulag hafi
náðst um að þau kæmu aftur til
fundar um miðja næstu viku. „Við
óskuðum eftir því að ríkisstjórnin
gerði okkur grein fyrir því hvernig
hún hygðist efna fyrirheit um að stórbæta kjör umönnunarstétta, ráð-
ast gegn kynbundnu launamisrétti og bæta stöðu þeirrar starfsemi al-
mannaþjónustunnar sem á við manneklu að stríða.“
Ögmundur segir að um þessi mál hafi verið gefnar sverar yfirlýsingar á
undanförnum mánuðum og að fjallað sé um þau í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar. „Þegar við fáum tilboð um langtímasamning út
kjörtímabilið án þess að örli á nokkrum vilja til að taka á þessum mál-
um er eðlilegt að fólk spyrji. Það er augljóst að við munum ekki setjast
aftur að samningaborðinu fyrr en við erum búin að hitta fulltrúa rík-
isstjórnarinnar og fá svolítið skýrari mynd af stöðunni.“ atlii@24stundir.is
BSRB krefst skýringa
Landsnefnd Barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna, UNICEF á Ís-
landi, hefur hafið söfnun vegna
hjálparstarfs í Búrma. Hundruð
þúsunda barna og fjölskyldna í
landinu eru talin þurfa nauðsyn-
lega á aðstoð að halda vegna nátt-
úruhörmunganna fyrir fimm
dögum.
Safnað handa
börnum í Búrma
DV leitar nú leiða til að hagræða í
rekstri í ljósi efnahagsástandsins
hérlendis um þessar mundir.
„Við höfum fækkað sölustöðum
og erum hætt að senda blöð á þá
staði þar sem blaðið seldist
minnst og höfum sagt upp svo-
kölluðum fríáskriftum,“ segir Elín
Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri
útgáfufélagsins Birtíngs.
„Það stendur hvorki til að fækka
starfsfólki né minnka blaðið því
þvert á móti ætlum við að ráða til
okkar starfsfólk og auka efni
blaðsins, enda rokgengur blaðið í
sölu. Við höfum hins vegar fundið
fyrir samdrætti í auglýsingasölu
eins og aðrir fjölmiðlar landsins
og við erum að bregðast við því.“
DV fækkar sölustöðum
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
„Það er of mikið um óttaslegið
starfsfólk og óttaslegna skóla-
stjórnendur sem vita ekki hvert
þeir eiga að snúa sér og hvort þeir
eiga yfirhöfuð að gera eitthvað þeg-
ar grunur vaknar um að nemandi
sé beittur kynferðislegu ofbeldi,
sem veldur því að oft ákveða þeir
að gera ekki neitt.“
Þetta segir Sigríður Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri félagasamtak-
anna Blátt áfram sem hafa þann til-
gang að efla forvarnir gegn kyn-
ferðislegu ofbeldi gegn börnum á
Íslandi.
Fjöldi barna þarf hjálp
„Það er fullt af einmana og ótta-
slegnum börnum á skólalóðinni
sem hægt er að taka eftir, því mörg
þeirra bera merki þess að eitthvað
hræðilegt sé í gangi í lífi þeirra.“
Kennari hjá Háskólanum í
Reykjavík hefur setið í gæsluvarð-
haldi frá 11. apríl grunaður um
gróf kynferðisbrot gagnvart fjórum
börnum sínum og vinkonu einnar
dóttur sinnar. Sum barna manns-
ins eru uppkomin en brotið var á
þeim öllum á barnsaldri.
Grunnsemdir vöknuðu í skólum
barna mannsins, en hann færði
börnin á milli skóla þegar hann
óttaðist að upp um brotin kæmist.
„Þarna var menntaður maður í
góðri stöðu og skólayfirvöld hrein-
lega trúðu ekki að svona maður
gæti gert þessa hluti. Það gleymist
að kynferðisbrotamenn koma yfir-
leitt sérlega vel fyrir og geta vel ver-
ið lögfræðingar, skólastjórar eða
prestar,“ segir Sigríður.
Mikilvægt að fræða starfsfólk
Hún telur brýnt að starfsfólk
skólanna fái fræðslu til að geta bet-
ur komið auga á börn sem þurfa
hjálp, en Blátt áfram býður upp á
slíka fræðslu fyrir skólana.
„Mér finnst að hver og einn
starfsmaður sem vinnur náið með
börnum þurfi að fara á námskeið
til að læra að greina svona mál og
hvernig styðja á við börn sem verða
fyrir kynferðislegu ofbeldi. Starfs-
fólk skólakerfisins er ekki í stakk
búið til þess í dag og vegna kunn-
áttuleysis er ég sannfærð um að
það séu fjölmörg alvarleg mál sem
aldrei komast upp á yfirborðið.“
Skólayfirvöld
sofa á verðinum
Framkvæmdastjóri Blátt áfram segir skólakerfið vanbúið að
greina kynferðisbrotamál Mörg mál upplýsast aldrei, segir hún
Áhyggjufull Sigríður Björns-
dóttir, framkvæmdastjóri Blátt
áfram, hefur áhyggjur af því
að skólayfirvöld séu ekki
nægilega á verði varðandi
kynferðisbrotamál.
➤ Tilkynntum kynferðisbrotumgegn börnum hefur fjölgað
verulega á þessu ári, sam-
anborið við árið í fyrra.
➤ Það sem af er ári hefur 51 málkomið inn á borð lögregl-
unnar, en í fyrra voru málin
44 talsins.
KYNFERÐISBROTAMÁL
STUTT
● Árétting Reynir Traustason,
ritstjóri DV, vill koma á fram-
færi vegna mola í Klippt og
skorið í blaðinu í gær, að eng-
in áform séu um að fækka út-
gáfudögum blaðsins og breyta
því í helgarblað, eins og þar
var sagt að væri til umræðu.
● Meðferðargangur Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra
og Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra undirrituðu
í gær samning sem tryggir fé til
að halda áfram rekstri meðferð-
argangs í fangelsinu á Litla-
Hrauni. Föngum er þar hjálpað
út úr vítahring andfélagslegs
hugarfars, afbrotahegðunar og
vímuefnamisnotkunar. mbl.is
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.